Þjóðviljinn - 30.07.1991, Síða 4

Þjóðviljinn - 30.07.1991, Síða 4
Rúmenía: Tugir drukkna í flóðum Flóð af völdum mikilla vatnavaxta hafa orsakað mikið mann- og eignatjón í Moldavíu, norðausturnluta Rúmeníu. Mest varð tjónið í grennd við borgina Bacau í fyrrinótt og gærmorgun. Brast þar stífla og fióðalda sópaði með sér um 500 hús- um í 17 þorpum og olli skemmdum á um 1500. Tal- ið er að 65 manns a.m.k. hafí farist og um 13.000 hafa misst heimili sín. íránskar konur mótmæla lögum um klæðaburð Til óeirða kom í mið- borginni í Isfahan, ?ögu- frægri borg í miðhluta Irans, á íostudag er lögregla tók til við að handtaka konur, sem létu sjá sig á almannafæri klæddar öðruvísi en þeim er heimilað að þarlendum ís- lamslögum. Um 300 mann- eskjur voru um síðir hand- teknar. Samkvæmt áminnstum lögum mega konur ekki láta sjá meira af sér á almanna- færi en hluta andlits og hendur. Upp á síðkastið hef- ur farið að bera á því að lög- um þessum væri ekki hlýtt að öllu, og seint í apríl voru um 800 konur handteknar af þeim sökum í Teheran á tveimur dögum. Sagt er að óeirðimar í Isfahan hafi verið þær mestu á síðustu ámm út af lögun- um um klæðaburð kvenna, en fregnir af þeim em að öðm leyti óljósar. Fyrir brot á lögunum má refsa með sekt, fangelsisvist og 74 svipuhöggum. EKLENBAR FRETTIK Tekið fram fyrir hend- umar á Gorbatsjov Forsetar Litháens og Rúss- lands, þeir Vytautas Landsbergis og Borís Jelt- sín, undirrituðu í gær í Moskvu vináttusáttmála milli lýðvelda þessara tveggja. Með sáttmálanum veitir rússneska stjórnin Litháen viðurkenningu sem fullvalda ríki. Ekki kemur fram að Rússland viðurkenni þar með Litháen sem fullsjálfstætt ríki. Samkvæmt fréttum af samn- ingi, sem sovésku lýðveldin öll 15 gerðu með sér í s.l. viku, felst í honum samkomulag lýðveldanna um að vinna saman í öllum þýð- ingarmiklum atriðum á sviði efna- hagsmála án hlutdeildar stjómar Sovétríkjanna. Segir sovéska viku- ritið Kommersant, sem fjallar um efnahagsmál, að með samningnum ákveði lýðveldin að skipta á milli sín demöntum, gulli og erlendum gjaldeyri Sovétríkjanna og eignum þeirra erlendis. Samningar þessir tveir benda eindregið til þess, að stjómir lýð- veldanna ætli sovésku stjóminni lítil völd í eluahagsmálum, einnig lýðveldi þau níu er samþykkt hafa sambandslagasáttmála Gorbat- sjovs. Er talið að þetta muni veikja stöðu hans gagnvart vestrænum ráðamönnum, sem kunna nú að ef- ast um að borgi sig að gera mikil- væga samninga við hann um efna- hagsmál þar eð vafi sé á að stjóm hans hafi teljandi völd um þau í raun. Allt fast í EEA-viðræðum Fulltrúar Evrópubandalags og EFTA sátu i gær á fundum í Bruss- el í þeim tilgangi að ná samkomu- lagi um stofnun Evrópsks efna- hagssvæðis (EEA) og var haft eftir einum fulltrúa í framkvæmdastjóm EB i gærkvöldi að þeir væru reiðu- búnir að haida áfram alla nóttina. Líkur á samkomulagi vom samt ekki miklar. Enn sem fyrr er deilt um frjálsa verslun með fiskafurðir, fjárframlög EFTA til EB og rétt- indi til vörubílaumferðar yfir Alpafjöll. Bandalögin höfðu sett sér það mark og mið að EEA-samningur- inn yrði í höfn um mánaðamótin, en í gær vom ekki miklar líkur á að það gengi. Þeir Jeltsln og Gorbatsjov hafa virst vera bandamenn undanfarið, en á ýmsu er svo að sjá að það bróðerni sé flátt mjög. Sjálfshjálparhreyfing þeirra sem haldnir eru kaupæði Um það bil 6% þegna í neyslusamfélögum ráða ekki við inn- kaupagleði sína. Þeir hafa nú fetað í fótspor margra ann- arra fíkla og stofnað sjálfshjálparhreyfingu sem á að venja þá af stjórnlausu kaupæði. Af slíku fólki eru sagðar marg- ar skrýtnar sögur, m.a. þessi hér í greininni úr New York Times sem stuðst er við: bundið vald greiðslukortsins til að bæta sér upp það sem að öðm leyti fór aflaga í þeirra lífi. Rannsóknir sýna og að hegðun kaupóðra er ótrúlega svipuð hegð- un margra þeirra sem nota eigin- lega vímugjafa. Sjálfsvirðing þeirra er til dæmis i molum. Þá hafa þeir og undarlega útsmogna hæfileika til að telja sjálfum sér trú um að það sé allt í lagi með að eyða svolítið meim („fá sér einn í viðbót“) - til dæmis með því að ímynda sér að von sé á einhveijum aukapeningum inn á tékkareikn- inginn alveg á næstunni. áb tók saman. Efnuð hjón (sem hafa um 20 miljónir króna i árstekjur) vom svo skeflilega blönk orðin eftir stjóm- laus innkaup, að þau gripu í síðasta hálmstráið. En það var möguleiki á að kaupa flugmiða og hóteldvöl upp á krít og með miklum afslætti (út á fyrri viðskipti). Þau fiúðu til Havæ og sátu þar á hóteli í mánuð (búið að greiða máltíðir fyrirfram) meðan þau vom að komast yfir næsta mánuð. Flestar sögur em náttúrlega miklu dapurlegri, því kaupæðið kemur vitanlega verst við þá sem hafa úr miklu minna að spila. Sú saga sem nú var nefnd var sögð á fundi hjá samtökum sem em einskonar AA-félag kaupóðra. En með kaupóðum eða kaupfiklum er átt við fólk sem kaupir villt og galið og em innkaupin í litlu sem engu sambandi við eitthvað sem kalla má þörf. Enda kaupa þessir fíklar hvað eftir annað sömu eða svipaða hluti og taka þá kannski ekki einu sinni upp úr umbúðunum þegar heim kemur. Búðarferðir em þessu fólki íyrst og fremst eins- konar helgistund þar sem einstak- lingurinn sannar fyrir sjálfum sér (og öðmm í leiðinni) að hann sé karl í krapinu og finnur einhvers- konar útgönguleið frá einsemd og áhyggjum. (Sem hvolfast náttúr- lega síðar yfir hinn kaupóða með auknum krafti). „Huggunarinnkaup“ eru að sjálfsögðu alþekkt fyrirbæri og sumir teija að það geti komið fyrir besta fólk að lenda í þeim hremm- ingum. En hér er um að ræða fólk sem hvað eftir annað fer í sama farið í verlsunarleiðangmm, kaupir hluti sem það hefur ekkert við að gera og iðrast sáran eftir á - fær með öðmm orðum sagt einskonar timburmenn eftir innkaupafyllirí. Sem fyrr segir hefur rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum sýnt, að um sex af hundraði mann- fólks falli undir skilgreininguna kaupfíkill. Fræðimenn bæta því við að vandamálið sé útbreiddara hjá konum en körlum. Að minnsta kosti em þrír fjórðu þeirra, sem taka þátt í starfi sjálfshjálparsam- taka kaupóðra, konur. Sem leiðir svo hugann að því, að hve miklu leyti þessi „vímugjafi" (búðaráp) endurspeglar valdleysi kvenna, sem freistast til að nota sér tíma- Kaupæöi getur náð til hvaða tekjuflokka og hvaða varnings sem vera skal, ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júlí 1991 Síða 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.