Þjóðviljinn - 30.07.1991, Side 7

Þjóðviljinn - 30.07.1991, Side 7
FKÉTTBR Geösjúkir hafa kvartaö mikiö undan þvl aö þurfa aö hlrast úti I kuldanum vegna þess reykingabanns sem gildir á rlkisspltölunum. Mynd: Jim Smart. Við erum svipt mannréttindum egar ákveðið var að banna allar reykingar á ríkissp- itölum stóðu umræður yfir um það hvort geðdeildir ættu að vera undanþegnar frá þessari reglu. Héldu sumir þvi fram að andlegt ásigkomulag geð- sjúkra væri í sumum tilvikum nógu slæmt fyrir, svo að ekki þyrfti að bæta á þá að þurfa allt í einu að hætta að reykja. Sjúklingar á Flókagötu 29, en það er deild frá Kleppsspítalanum, hafa kvartað mikið undan þessu og segja að þetta sé óviðunandi ástand og sé á engan hátt bætandi íyrir þeirra andlegu vanlíðan. „Þetta er ekkert annað en svipt- ing á okkar mannréttindum," sagði einn sjúklinganna, sem blaðið ræddi við. „Það þarf sterkan vilja til að hætta allt í einu að reykja og þann sterka vilja höfum við ekki til staðar sem stendur. Það er aðeins verið að auka á okkar andlegu vanliðan með banninu." Hann sagði ennfremur að ef sjúklingamir vildu fá sér að reykja þá þyrftu þeir að hírast úti í kuldan- um, jafnvel í hellirigningu og fár- viðri. „Reykingar eru ekki leyfðar á ríkisspítölum, og Flókagata 29 er ein af deildum Landspitalans," sagði Margrét Eíríksdóttir deildarstjóri á Flókagötu 29. „Hvers vegna ættu þessar reglur ekki að gilda fyrir geðsjúka eins og alla aðra? Reykingar em mjög slæm- ar fyrir fólk sem er slæmt á taugum því þær spenna upp taugakerfið," sagði Margrét. Þess má geta að í nýjasta tölu- blaði Geðhjálpar er grein sem nefn- ist „Að gera illt verra“. Að áliti greinarhöftmda þeirrar greinar er að- eins verið að auka á vanda geðsjúkra með banninu. I greininni segir að með banninu verði enn erfiðara að fá viðkomandi sjúklinga til að samþykkja að leggj- ast inn á spítalann. Þetta stuðli einn- ig að því að sjúklingar noti hvert tækifæri sem gefst til að strjúka í bæinn eða jafnvel útskrifi sig sjálfir áður en meðferð er lokið. I þriðja lagi ef ætlast sé til þess að sjúklingar hætti eða stórminnki allt í einu tób- aksneyslu, hljóti það að kalla á aukna lyfjagjöf. Aðspurð um þörfina á aukinni lyfjagjöf sagði Margrét að þvert á móti hefði það sýnt sig að þeir sem hefðu hætt að reykja, þyrftu á minni lyfjagjöf að halda. Hún sagði þetta stafa af þvi að nikótínið ynni á móti verkun lyfjanna. „Það em til vísind- arlegar athuganir sem sanna að reyk- ingar auki þörfina á geðlyfjum. Þannig að þetta bann gerir sjúkling- unum ekkert nema gott,“ sagði Mar- grét að lokum. -KMH Vöruskiptin í jafnvægi Fyrstu sex mánuði ársins var vöruskiptafjöfnuðurinn í jafn- vægi en á sama tíma í fyrra var hann hagstæður um 3 mil- jarða króna á sama gengi. I júní vom fluttar út vömr fyrir 8,7 miljarða króna og inn fýrir 8,9 miljarða króna. Vömskiptajöfnuður- inn var því óhagstæður um 0,2 mil- jarða í júní en var hagstæður um 1,6 miljarða í júní í fýrra á sama gengi. Fyrstu sex mánuðina vom fluttar út vörur fyrir 46,4 miljarða króna og inn fýrir sömu upphæð. Verðmæti útflutningsins er óbreytt á föstu gengi frá því sem það var á sama tíma í fýrra. Sjávarafurðir vom um 82 prósent alls útflutnings og tæp- lega 5 prósent meiri en á sama tíma í fýrra. Utflutningur á áli var 9 pró- sentum minni og útflutningur kísil- jáms 59 prósentum minni en á sama tíma á síðastliðnu ári. Verðmæti innflutningsins fýrstu sex mánuði ársins var 7 prósentum meira en á sama tíma í fýrra. -Sáf Menntamála- ráðuneytið úthýsir námsmönnum Olafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, skipaði í sumar nefnd er leggja skal fram tillögur um breytingar á lögum Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Námsmenn sendu skriflega ósk um að fá fulltrúa í nefndina, sem menntamála- ráðherra hafnaði. Pétur Óskarsson, fulltrúi stúdenta hjá LÍN, segir námsmenn vera furðulostna yfir vinnubrögðunum. Pétur Oskarsson segir það skrítin vinnubrögð að námsmenn skuli ekki eiga fúlltrúa í nefhd sem fjallar um lífsafkomu þeirra. - Við vitum ekkert hvað er að gerast í sambandi við þessa nefnd. Það er þó ljóst að nefhdin er tekin til starfa og einnig heyrum við úr ýms- um áttum að lagðar verði til miklar breytingar í sambandi við það kerfi sem nú er við lýði, sagði Pétur. Þjóðviljinn hafði samband við Lárus Jónsson, formann LÍN og innti hann eftir störfúm nefndarinnar. - Það er enginn fúlltrúi frá Lána- sjóðnum í nefhdinni. Hún mun samt hafa samráð við stjóm hans á síðari tímum um ýmis atriði varðandi þær hugmyndir er nefhdin leggur til. Formaður nefndarinnar, Guð- mundur K. Magnússon prófessor, sagði að einn fúndur hafi verið hald- inn í nefhdinni. Hann segir að líklegt sé að námsmenn fái fúlltrúa í nefhd- ina einhvemtímann síðar, en það væri alfarið komið undir ákvörðun menntamálaráðherra. Aðspurður hvort um miklar breytingar hjá LÍN yrði að ræða, sagðist Guðmundur ekki geta svarað því á þessu stigi málsins. - Við höfúm aðeins rætt um hvemig kerfin em í nágrannalöndum okkar og svo hver umræðan um Lánasjóðinn hefur verið héma heima. Það virðist vera að blandað kerfi sé komið víðast hvar, ef ekki allsstaðar í kringum okkur, sagði Guðmundur. Er Þjóðviljinn innti Guðmund eftir því hvort um einhveija breyt- ingu yrði að ræða á endurgreiðslu- tímanum sem í dag er miðaður við 40 ár, sagði hann að málefhi Lána- sjóðsins væm of óskýr til að hægt væri að ræða einstaka liði hans. - Við eram á kafi í umræðum um Evrópskt efnahagssvæði. Þetta hangir allt á sömu spýtunni, og ég get engu svarað fýrr en niðurstaða er komin í sambandi við EES. Ef við verðum þar með hljótum við að sam- ræma okkar kerfi miðað við önnur í Evrópu, sagði Guðmundur. -sþ Suðurlandsmótið I hestaíþróttum var haldið á Gaddastaðaflöt- um við Hellu um helgina. Mikill fjöldi tók þátt I mótinu og var keppt I öllum greinum hesta- íþrótta. Mynd: G.T.K. Lappað upp á lyfjareglugerðina Breytingar verða gerðar á umdeildri reglugerð um þátttöku almenn- ings í lyfjakostnaði um mánaðamótin. Formaður lyfjahópsins segir að verið sé að lagfæra agnúa á reglugerðinni og gagnrýnir verka- lýðshreyfinguna fyrir að koma ekki með ábendingar. Verkalýðshreyfing- in vill ekki taka þátt í slíku og endurtekur kröfu sína um að reglugerðin verði dregin til baka. Jón Sæmundur Sigurjónsson sagði að lyfjahópurinn sem vann að breytingunum á reglugerðinni myndi ganga endanlega frá nýju breyting- unum á fundi sínum í dag. I drögum að breytingum er gert ráð fyrir að fjölga eitthvað lyfjum á bestukaupa- listanum auk þess að taka nokkur fleiri lyf inn í greiðsluskyldu Trygg- ingstofhunar. Þá koma inn nýjir flokkar lyfja sem fara inn á lyfjaskír- teinin, sagði Jón Sæmundur. Hann vildi ekki fara út breytingamar í smáatriðum. Hann sagði þó víst að neflyf vegna heymæði yrðu tekin inn í lyfjagerðina en einsog málum er háttað nú greiðir Tryggingastofnun ríkisins heymæðislyf í augu en ekki í nef. Það mun breytast. Jón Sæmundur gagnrýndi verka- lýðshreyfinguna fýrir að koma ekki með tillögur um breytingar. Bjöm Grétar Sveinsson formaður verka- lýðsfélagsins Jökuls á Höfn á Homa- firði sagði að hreyfingin tæki ekki þátt í þvi að slípa agnúa af reglu- gerðinni heldur væri þeirra tillaga einföld: Dragið reglugerðarbreyting- tma til baka, sagði Bjöm Grétar og bætti við að verkalýðshreyfingin væri tilbúin til að ræða við aðila áður en þeir fremja glæpinn en ekki á eft- ir. Til stendur að breyta löggjöf um þessi mál í haust þegar Alþingi kem- ur saman. Jón Sæmundur sagði að vinna væri ekki farin af stað í því. Hugmyndir em uppi um að fólk greiði hlutfallskostnað af lyfjum, þannig að því dýrari sem lyfin em því meira þarf að borga. Einnig hef- ur verið rætt um þak og gólf á slíkar greiðslur, auk þess sem sérstakir hópar yrðu teknir útúr. -gpm Mótmælir vanvirðu utanríkisráðuneytisins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingkona Kvennalista hefur sent utanríkisráðherra bréf þar sem hún mótmælir svörum ráðu- neytisins frá 22. júli sem hún telur hvorki greinargóð, fullnægjandi né sæmandi ráðuneytinu. Þá biður hún enn og aftur um tæmandi lista um herskipakomur til íslands síðastliðin 30 ár, en samþykkir að takmarka listann við Bandarikin, Frakkland, Bretland og Sovétríkin - það er að segja þau lönd á norð- urhveli sem eiga kjarnavopn. Ingibjörg Sólrún hafði áður fengið lista yfir herskipakomur, en í ljós kom að hann var ekki tæmandi og vantaði komu skipa sem mjög líklegt er talið að hafi borið kjama- vopn. Ráðuneytið bar fýrir sig að hafa leitað skipakoma með röngum „skjalalykli" og bað um frekari rök- stuðning við beiðni þingkonunnar. „Hlýt ég sérstaklega að mót- mæla þeirri vanvirðu sem ráðuneyti yðar sýnir mér sem þjóðkjömum fulltrúa þegar það neitar að láta mér i té umbeðnar upplýsingar um her- skipakomur í islenskar hafnir nema ég rökstyðji beiðni mína enn frekar en ég hef þegar gert. Með þessu er ráðuneytið að koma í veg fýrir að ég geti rækt störf mín sem þingkona og fúlltrúi i utanríkismálanefúd Alþing- is á þann hátt sem ég tel sjálf nauð- synlegt,“ skrifar Ingibjörg Sólrún í bréfi sínu til Jóns Baldvins Hanni- balssonar og bætir við: „Þessi afgreiðsla á beiðni minni vekur óneitanlega þá spumingu hvort þær upplýsingar sem um er beðið séu á einhvem hátt óþægilegar fýrir íslensk stjómvöld og ráðuneyti yðar.“ -gpm Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.