Þjóðviljinn - 30.07.1991, Page 8

Þjóðviljinn - 30.07.1991, Page 8
Fmétter Steingrfmur St. Th. Sigurðsson list- málari. 71. einkasýning Steingríms Steingrímur St. Th. Sigurðsson opnar í kvöld 71. einkasýningu sína. Sýningin er í Eden í Hveragerði og er þetta í 15. skipti sem hann sýnir þar. Steingrímur segir sýninguna til- einkaða Perlunni í Öskjuhlíð, sem hann segist hafa hrifist af eftir dvöl í París fýrir stuttu. A sýningunni eru yfir 40 mál- verk, flest ný. Sýningin verður opnuð kl. 21.00 í kvöld og henni lýkur 11. ágúst. -Sáf verö á hrossa- til J apans Gott Félag hrossabænda hafa nýveríð gert samning við japanska aðila um sölu á hrossakjöti. Verð kjötsins er með því mesta sem geríst þannig að hrossabændur geta væntanlega litið björtum augum til framtíðar- innar Halldór Gunnarsson í Holti, formaður markaðsnefndar hjá Félagi hrossabænda, sagði að undanfarín ár hafi 60-70 tonn af fitu- sprengdu hrossakjöti veríð send til eins aðila í Japan. - Nú er hins vegar kominn annar aðili inn í myndina, þannig að búast má við yfir 100 tonna útflutningi á ári hveiju. Þetta eru um 1000 til 1500 hross, sem verða þá að vera fimm vetra eða eldri og vel feit. Þessir kaup- endur vilja fá svokallað pístólukjöt sem er afturparturinn á hrossinu, síðan er kjötið fitusprengt sem gerir það að sannkölluðum veislumat, sagði Hall- dór. Verðið á þessari afúrð er mjög gott um þessar mundir í Japan. Þeir borga 45 þúsund krónur fýrir hálfan skrokk, flutningskostnaður er 20 þús- und krónur og síðan verður einhver sláturkostnaður til viðbótar. Bændur geta því fengið ágætis verð fýrir hrossin. Aðspurður um hvemig Japanir framreiddu hrossakjötið, sagði Hall- dór að bestu bitana borðuðu þeir hráa. - Þeir em svona vitlausir í þetta þar sem rannsóknir hafa sýnt að kjöt af hrossum er eitt hollasta kjöt sem hægt er að fá. Það er gaman að sjá þá koma hingað í sláturhúsin þegar verið er að slátra. Þeir skera af bitum og borða þetta eins og konfekt, sagði Halldór. Að sögn Halldórs verða bændur að koma til móts við þennan markað. - Það þýðir ekki að ætla sér að smala bara einu sinni tvisvar á ári. Við þurfúm að flytja um 4-6 tonn utan á hverri viku og það þýðir að slátra verður um 70 hrossum til að ná því magni. Bændur ættu því að hafa sam- band svo hægt verði að skipuleggja slátrunina eitthvað fram í tímann, sagði Halldór að lokum. -sþ Bókin um bílnúmerin Komin er út nýstárleg bók um nýju bílnúmerin sem ætlað er að skemmta öku- mönnum og ferðafólki á vegum landsins. Gagnstætt gamla kerfinu hafa bókstafirnir á nýju númerunum enga merkingu frá hendi útgefanda. Tveir bókstafir saman hafa hins- vegar merkingu á ýmsum sviðum. Sem orð, skammstafanir og tákn í ís- lensku og öðrum tungumálum. Enn- fremur sem tákn í visindum, við- skiptum, fjarskiptum og samgöng- um, svo eitthvað sé nefnt. 1 bókinni um bílnúmerin er safn- að saman um 1200 slíkum þekking- arbrotum, er nota má sem dægradvöl á ökuferðum eða til spumingaleikja og minnisæfmga við öll tækifæri, ekki síst í sumarleyfinu. Bókin hþfðar þannig til fjöl- fræðiáhuga íslendinga, sem er al- þekkt einkenni á þjóðinni. Þó bókin sé fýrst og fremst til skemmtunar, örvar hún einnig at- hyglisgáfuna. En það getur komið í góðar þarfir þegar muna þarf ein- kennisstafí bifreiðar, sem aðeins bregður fýrir eitt andartak. Bókin fæst á bensínstöðvum og í almennum bókabúðum. -KMH Hér afhendir fulltrúi útgáfu bókarinn- ar, Elisabet Árnadóttir, forstjóra Bif- reiöaskoðunar (slands, Karli Ragn- ars, fyrsta eintakið til skoðunar. Uppbót til lífeyrisþega Lífeyrisþegar með tekju- tryggingu munu fá uppbót með greiðslu ágústlífeyrisins um mánaðamótin. Þetta er í samræmi við kjarsamninga á vinnumarkaði og samsvar- ar þeirri orlofsuppbót sem launafólk fékk fyrir mánuði. Þeir sem hafa óskerta tekjutryggingu, heimilsuppbót og sérstakka heimilisuppbót fá fulla orlofsuppbót 7.371 krónu. Þessi 21 prósent tekju- hyggingarauki skerðist svo í sama hlutfalli og bótaflokk- amir hjá lífeyrisþegum. -gpm Vinningstötur laugardaginn „uuKiiuí-ín Fj0Lra UPPHÆÐÁHVERN VINNINGAR VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA 1. 5af5 2.252.263 2. 195.713 105 6.430 4. 3.828 411 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.892.147 UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91 -68151 UUKKULlNA 991002 Undir hvaða stofnun falla mengunarslys? Engin stofnun á íslandi virðist hafa framkvæmdarskyldu ef mengun- arslys ber að höndum, sagði Umhverfiráðherra þegar hann var inntur eftir hvaða lærdóm mætti draga af grútarmenguninni á Ströndum. Nú hefur veríð ákveðið að skipa sérstaka aðgerðarnefnd vegna meiríháttar mengunaróhappa á sjó. Fram kom í máli Eiðs Guðnason- ar á fundi er hann hélt með fjölmiðl- um íýrir síðustu helgi, að ekki er til nein áætlun í neinu ráðuneyti, ef stór- fellt umhverfisslys ber að höndum. Einnig er ljóst að erlend skip þurfa á engan hátt að tilkynna sig þó þau sigli umhverfis landið og dóli hér upp við landsteina. Skip sem með hægum leik geta verið full af eiturefnum eða öðr- um slíkum úrgang. Aðspurður um til- kynningaskyldu fyrir erlend skip sem koma inn 1 íslenska landhelgi, sagði Eiður að sú hugmynd heföi komið fram og málið væri í athugun í stjóm- kerfinu. - Það eru ýmsir möguleikar í því máli. Ef sú regla kemst á er hugsan- legt að beita ströngum viðurlögum ef skip tilkynna ekki komu sína inn í landhelgina. Málum er þannig háttað í dag að við höfúm ekki hugmynd um hvaða eða hvemig skip em í kringum landið og það er hlutur sem auðvitað þarf að laga, sagði Eiður. Hann sagði að nú væri í undirbún- ingi að skipa sérstaka aðgerðamefnd sem hefði eflirfarandi hlutverk: ,,Að koma saman þegar meiri mengunaró- höpp verða eða þegar hætta er á slíku, meta mengunarhættu, skipuleggja rannsóknir á lífríki, leiðbeina um við- brögð og samræma aðgerðir einstakra stofnana." Einnig á nefndin að meta árangur þeirra aðgerða sem gripið verður til vegna meiriháttar menguna- róhappa þegar aðgerðum er lokið og gera tillögur til umhverfisráðherra um úrbætur eftir þvi sem þörf krefúr. Auk þess er þessari nefnd falið sem sérstakt verkefhi að gera áætlun um rannsóknir eða mælingar vegna hugsanlegra mengunaróhappa af völd- um olíu og geislavirkra efha sbr. skýrslu starfshóps um mengunarmæl- ingar í sjó frá júní 1989. I lok tilkynningar um þessa nefhd segir, að hún eigi að fara ýfir og meta viðbrögð stjómvalda við grútarmeng- uninni á Ströndum. Nefndin verður skipuð fúlltrúum frá Geislavömum ríkisins, Hafrann- sóknarstofnun, Náttúrufræðistofhun, Siglingamálastofnun og fúlltrúa frá Umhverfisráðuneytinu. Þjóðviljinn hefúr eftir starfsmanni Umhverfisráðuneytisins að írafár það sem skapaðist vegna grútarmálsins á Ströndum megi rekja til ákveðinna þátta. I fýrsta lagi að Umhverfisráðu- neytið er ungt að árum og verksvið ráðuneytisins ekki fúllkunnugt. Starf- semi ráðuneytisins skarast einnig mjög við ýmiss önnur ráðuneyti. I þessu dæmi, sagði viðmælandi Þjóð- viljans, vom áhöld um hvaða ráðu- neyti átti að bregðast við grútarmeng- uninni. Undir Sjávarútvegsráðuneytinu heyrir Siglingamálastofhun og sú stofnun á að bregðast við mengun í sjó. Áðumefndur starfsmaður sagði einnig að sumum hafi fúndist að Landbúnaðarráðuneytið ætti að vera inn í þessu máli, þar sem æðarbúskap- ur heyrir undir Landbúnaðarráðuneyt- ið. -sþ Byggt yfir 205 þúsund manns á Aárunum 1945-1989 var lokið byggingu 68.300 íbúða á íslandi. Sé gert ráð fyrir að þrír íbúar búi að meðaltali í hverri íbúð þá hefur verið byggt yfir 205.000 manns á þessum árum. Um er að ræða rúmlega 80 prósent þjóöarinnar miðað við mannfjölda í árslok 1989. Þetta kemur fram í riti Þjóðhagsstofnunar um fjárfestingu á árunum 1945-1989. Gífurlegt átak hefur verið gert í húsnæðismálum á þessum ámm því á sama tíma og byggt var yfir 205.000 manns fjölgaði íslendingum um 123.000 manns. Á þessu 44 ára tímabili hefur fjár- festing aukist meira en landsfram- leiðsla. Aukning fjárfestingar í land- inu, þ.e. fjárfestingar atvinnuveganna, íjárfestingar opinberra aðila og fjár- festingar í íbúðarhúsnæði, hefur verið 4,5 prósent að meðaltali. Á sama tima hefur landsframleiðslan aukist um 4,3 prósent á ári að meðaltali. Sé tekið til- lit til mannfjölda hefúr fjárfesting auk- ist um 2,9 prósent á mann á ári að meðaltali en landsframleiðslan um 2,7 prósent. Öll þessi fjárfesting hefúr þýtt það að þjóðarauður íslendinga hefur auk- ist til muna. Hann hefúr sjöfaldast síð- an 1944. Á þessum ámm hafa komið sam- dráttarskeið sem flest hafa staðið í eitt til tvö ár. En blómaskeið mælast einn- ig á mælikvarða fjárfestingar, þannig jókst fjárfesting að meðaltali um 12,7 44 árum prósent á árunum 1950-55 og um 11,7 prósent á árunum 1970-75. I riti Þjóðhagsstofnunar má finna ýmsan fróðleik. Til dæmis er þar út- skýring á hvemig landsframleiðslan er reiknuð. Verg landsframleiðsla er jöfn samanlagðri einkaneyslu, samneyslu, íjárfestingu, birgðabreytingum og út- flutningi á vöm og þjónustu að frá- dregnum innflutningi á vöm og þjón- ustu. -gpm ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júlí 1991 Slða 8

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.