Þjóðviljinn - 30.07.1991, Page 15
GáXED
Hvemig á
að bjarga
Hafnfirðingi
frá drukknun?
Vitiði hvernig á að bregða
Hafnfirðingi frá drukknun?
Bregða honum. Þá hrekkur
hann í kút.
Pétur
útvarpsstjóri?
Eitthvað virðist það ætla að
vefjast fyrir menntamálaráð-
herra að skipa nýjan útvarps-
stjóra, eftir að Markús Öm
Antonsson hætti og tók við
embætti borgarstjóra. Einsog
kunnugt er þá tók Hörður
Vilhjálmsson að sér starfið til
bráðabirgða. Nú er talið lang
líklegast að öðrum innanhús-
manni, Pétri Guðfinnssyni
framkvæmdastjóra Utvarps-
ins, verði boðið útvarps-
stjórastarfið. Bogi Agústsson
fréttastjóri Sjónvarpsins
verður líklega ffamkvæmda-
stjóri og einhver góður og
gegn Heimdellingur fær
fréttastjórastólinn.
Hestur
bítur hest
Ofbeldið er ekki einangrað
við mannskepnuna eina. I
BB, sem geflð er út á Vest-
fjörðum er frásögn af hesti
sem réðst á hest og beit hann:
Sá óvenjulegi atburður átti
sér stað í Súðavík síðastliðið
mánudagskvöld að hestur
einn tók á rás inn í hóp hesta
og réðst þar á annan og beit
illa.
Upphófúst sóðan mikil
„slagsmál“ á milli hestanna
sem enduðu með því að sá
sem varð fyrir bitinu féll á
gaddavírsgirðingu og slasað-
ist mikið. Kalla þurfti á dýra-
lækni sem gerði að meiðslum
hestsins.
Hesturinn hefúr enn ekki ver-
ið yfirheyrður og ekki er vit-
að hvort eigandi hestsins sem
varð fyrir árásinni leggi fram
opinbera kæru á hendur eig-
anda hestsins vígreifa.
9
Hrun ána-
maðka-
stofnsins
Frá Vestfjörðum skreppum
við austur á SeyðisQörð. í
Austra er sagt frá því að á
Seyðisfirði finnist nú engir
ánamaðkar og er þurrknum
kennt um. „Þetta kemur sér
auðvitað illa fýrir veiðimenn
sem nú kaupa þennan fénað
að sunnan á okurverði, þetta
35-80 kr. stykkið eftir væn-
leik og stærð. Öllu alvarlegri
hlutur mun þó vera æxlunar-
mál þessara kvikinda, en Jón-
as kvað þau einungis stunda
árlíf sitt ofanjarðar og hafði
eftir virtum raunvísinda-
manni. Nú er bara að vita
hvort norð-austanáttin með
sínum sudda bjargar málun-
um eða hvort hrun ána-
maðkastofnsins hér austan-
lands bætist ofan á aðra óár-
an.“
Eftirsókn
í einangrun
I síðustu viku var greint frá
því í Degi að fullskipað væri
í hundaeinangrunina í Hrísey
út næsta ár. Sex klefar fýrir
hunda og tveir fýrir ketti eru
fullir og mikil aðsókn ffá
fólki sem vill flytjagæludýr-
in með sér heim til Islands.
Sóttkvíin varir frá einum
mánuði og allt að ársfjórð-
ungi en tegund dýrana skipir
þar máli.
EÚSÍNAN
Norðurljósin þinga um hreyfimyndagerð
hreyfimynd var í sjónvarpi árið
1974. Höfúndur hennar var Jón
Axel Egilsson og var myndin
kubbamynd, sem kallaðist Land-
neminn. Fjórum árum síðar var
fýrsta íslenska teiknimyndin fhim-
sýnd í sjónvarpi, var það Þryms-
kviða eftir Sigurð Öm Brynjólfs-
son.
Norðurljósin munu þinga í
Hafnarfirði dagana 23.-25. ágúst. í
Hafnarborg verður haldin sýning á
teikningum, handritum og fleim
sem tengist hreyfimyndagerð í
tengslum við þingið.
Þeim sem áhuga hafa á að taka
þátt í þingi þessu og koma verkum
sínum á framfæri er bent á að
hringja í síma 611307 til að fá allar
nánari upplýsingar. BE
Samtök þeirra sem fást við hreyfimyndagerð á Norðurlöndunum
og í Eystrasaltsríkjunum munu halda sitt árlega þing hér á landi
í ágústlok. Nordic Light kallast samtökin, sem voru mynduð ár-
ið 1985 á fundi nokkurra hreyfimyndagerðarmanna í Stokkhólmi.
Norðurlöndin hafa síðan skiptst
á að halda þing Norðurljósanna, en
þetta er í fýrsta sinn sem íslending-
ar em gestgjafamir. Eystrasaltsbúar
slógust í hópinn fýrir nokkmm ár-
um, en í þeim löndum stendur
þessi listgrein á gömlum merg og
hefúr þátttakendum þaðan fjölgað
með hverju ári.
Hreyfimyndir geta verið af
ýmsu tæi, eins og menn þekkja
sem horfa á sjónvarp, þ.e. teikni-
myndir, brúðumyndir, leirmyndir
og fleira.
íslendingar eiga sér ekki langa
hefð í gerð hreyfimynda þótt
nokkrar slíkar hafi verið gerðar. Nú
em í framleiðslu tvær myndir sem
báðar hlutu styrk úr Kvikmynda-
sjóði og Norræna kvikmyndasjóðn-
um. Þá er verið að leggja síðustu
hönd á þá þriðju, Jólatréð eftir Sig-
urð Öm Brynjólfsson, og verður
hún væntanlega sýnd á þinginu.
Fyrsta opinbera sýning á íslenskri
Úr teiknimyndinni Jólatréð okkar" eftir
Sigurð Örn Brynjólfsson, sem verið er
aö leggja slöustu hönd á um þessar
mundir.
Hreyfimyndir geta verið af ýmsu tæi, þekktastar eru að sjálfsögðu teiknimyndimar sem hafa um lanat skeið verið ómiss-
andi hluti sjónvarpsdagskrár. Fáir eru frægari nú en púkinn hann Bart Simpson og fjölskylda hans. fslensk hreyfimynda-
gerð er skammt á veg komin, en kannski mun þing Norðurljósa i Hafnarfirði blása llfi i þá sem áhuga hafa á gerð teikni-
mynda og annarra hreyfimynda hér á landi.
1 8
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júll 1991