Þjóðviljinn - 23.08.1991, Page 14
um, sér í lagi vakti eggjandi vöxt-
ur bassaleikarans athygli.
Fimmta sveit kvöldsins
nefndist Kvensaxið, skipuð tveim
ungum „dömum“, sem fluttu dá-
indis dauðapopp af fítonskrafti og
höfðu einnig einna skemmtileg-
ustu sviðsframkomu af hijóm-
sveitum kvöldsins. Hljómsveitin
Hrafnar er ættuð frá Akureyri.
Sveitin er ein sú reffílegasta sem
undirritaður hefur séð, drengimir
eins og nýkomnir úr mótorhjóla-
ferð til vítis, enda náðu þeir upp
ógnvænlegri stemmningu með
hráu og kraftmiklu bylgjurokki.
Birtan Hinumegin hét næsta
sveit. Þar er aðalsprautan Helgi
Pétursson, organisti bæjarins og
áður meðlimur í Dá, Með Nökt-
um og Haugnum. Þeir fluttu bara
eitt lag, „Poison", nýbylgjupopp í
anda Joy Division og Bauhaus, og
var útkoman einstaklega góð.
Síðasta sveit fyrir hlé kallað-
ist Dauði, og var e.k. samsuða
upp úr hljómsveitinni EXIT ffá
Akureyri. Dauði skartaði tveimur
söngvumm, gítarleikara og
trommuleikara. Tónlistin var auð-
vitað dauðarokk, en fór í að mestu
leyti fyrir ofan garð og neðan, þar
sem gítarinn kafnaði í trommum
og söng.
Irritation Ltd. hét fyrsta sveit
eftir hlé og flutti mönnum hljóð-
geming mikinn, en það var næsta
sveit, Ræsið, sem margir höfðu
beðið eftir og naut hún einna
mests fylgis áhorfenda. Ræsið
flutti hardcore-rokk með metal-
áhrifum og var mjög skemmtileg
og þétt þrátt fyrir ungan aldur. Af
gefnu tilefni er rétt að benda á að
hér er um að ræða aðra sveit en þá
sem keppti nýverið á Húnaveri
undir sama nafni.
Keldusvínin ffá Húsavík og
Reykjavík vom næst á svið og
kvað þá við annað tón. Tónlist
Keldusvínanna má helst lýsa sem
blöndu af Pixies og King Crim-
son (er það hægt?), og vom lög
þeirra vönduð og velhugsuð. Þéir
náðu að halda skemmtilega hrá-
um blæ og náðu hæst í laginu
„Eva“, sem er hrein perla.
Þungarokksveitin Blóðmör
steig næst á fjalimar. Blóðmör er
eitt besta nafn á þungarokksveit
sem undirritaður hefur heyrt, og
mættu fleiri þungarokksveitir
taka upp þessa málhreinsunar-
stefnu, fremur en að velja fárán-
leg nöfh sem þeir skilja varla
sjálfir.
Drengimir í Blóðmömum
vom annars ekkert að rembast við
frumleikann, heldur tóku sem
flestar tegundir þungarokks, eitt
dauðarokklag, eitt í anda Iron-
Maiden, annað í anda Boin Jovi
og einn slagara í ætt við Stones og
AC/DC. Þeir vom vel þéttir og
tókst mjög vel upp í öllum lögun-
um.
Lokatónana átti auðvitað Rot-
þróin. Stemmningin var þá orðin
dæmalaust góð og náðu Rotþróar-
menn að halda henni til enda.
Hæst reis stuðið þegar Rotþróin
lék slagarann E1 Condor Pasa,
sem ailur salurinn söng með í.
Mér er til efs að þetta gamla
sullupopp njóti nokkursstaðar
jafnmikilla vinsælda og á Húsa-
vík. Rotþróin er orðin ótrúlega
þétt á tónleikum og stefnir tví-
mælalaust í röð fremstu sveita
landsins.
Eins og sjá má var mikil fjöl-
breytni í tónlistarstefnum þetta
kvöld, og einnig vakti athygli hve
sveitimar vom yfirhöfuð góðar
og vel spilandi. Fyrir þá sunnan-
menn sem ekki hafa fengið nasa-
sjón af þessari Húsavíkur rokk-
bylgju má benda á að nokkrar
þessara sveita munu halda tón-
leika í vetur, m.a. Rotþróin, Ræs-
ið, Keldusvínin, Hrafnar og
Down & Out. Einnig munu
nokkrar þessar sveitir eiga efni á
væntanlegri safnspólu, Snarl 3,
sem kemur út í haust.
Síðastliðinn laugardag vom
haldnir árlegir rokktónleikar á
Húsavík. Þar komu fram 13
hljómsveitir, þar af 10 úr pláss-
inu. Dmlla átti að spila líka, en
forfallaðist á síðustu stundu. Þetta
er fjórða árið í röð sem þessir tón-
leikar em haldnir og nú sem
endranær vom þeir skipulagðir af
„Æskulýðshreyfingunni sem Guð
gleymdi". Þessi mikla gróska í
tónlistarlífí staðarins hefur spurst
suður um heiðar, sérstaklega eftir
frægðarför hljómsveitarinnar
Rotþróarinnar til höfuðborgarinn-
ar í vor, enda má þetta teljast
harla merkilegt i 2500 manna bæ.
Sökinni á þessu má að mestu leyti
skella á meðlimi fyrmefndrar
æskulýðshreyfingar, en starfsemi
hennar hefur aðallega snúist um
þetta tónleikahald. Fyrstu tónleik-
amir vom haldnir 1988, þar scm
fram komu fimm sveitir sem hafa
gengið aftur í ýmsum myndum á
seinni ámm. Það var svo í þynn-
kunni eftir tónleikana 1989 sem
„Æsklýðshreyfingin sem Guð
gleymdi“ var formlega stofnuð.
Aðalmarkmið hennar er að
drekka og skemmta sér, en óhjá-
kvæmilega blandast tónleika-
vafstur í málið af og til, auk þess
sem einstaka meðlimir eru ekki
lausir við myndlistarbakteríuna.
Og enn er æskulýðshreyfingin á
hreyfingu, þó í ár hafi fleiri aðilar
komið nálægt tónleikunum.
Það var greinilega mikill
áhugi meðal ungmenna á Húsavík
fyrir tónleikunum. Mikið líf var í
kringum samkomuhúsið meðan
verið var að undírbúa veisluna á
laugardeginum. Þegar tónleikam-
ir hófust svo, kl. 20.30, var salur-
inn orðinn troðfullur og mikil
stemmning í salnum. Flestir
áhorfenda voru i yngri kantinum,
og öfugt við reykvíska æsku bar
lítið á hip-hop-liði og hippa- eftir-
líkingum (sem er auðvitað gleði-
efni).
Fyrsta sveit kvöldsins nefnd-
ist Geimharður og Helena, og
flutti sumarpopp af mikilli innlif-
un. Eftir tvö Iög, „Sumar í
sjoppu" og „Sumar á skautum",
fór trommuheili þeirra kumpána
út af laginu og urðu þeir því að
sleppa lögunum „Sumar í sveit“
og „Sumar um vetur". Kassagít-
ardúettinn Down & out steig næst
á stokk. Erfitt er að lýsa tónlist
sveitarinnar, helst að um sé að
ræða blöndu af Tom Waits og
Spilverki þjóðanna. Þrátt fyrir
það að tveir kassagítarar bjóði
ekki upp á mikla fjölbreytni vom
þeir ótrúlega lúnknir við að ná
skringilegum hljóðum úr gítumn-
um. Lögin vom góð og textamir
skemmtilegir, og hljómsveitin
tvímælalaust ein besta sveit
kvöldsins.
Þmmur og eldingar komu
næst og spiluðu gamla Q4U-lagið
„Creeps" við góðar undirtektir
áhorfenda. Flulningurinn var
góður, jafnvel betri en fyrirmynd-
in.Hljómsveitin BRA er skipuð
nokkuð yngri meðlimum en áður
höfðu komið fram. Tónlistin sem
þeir flytja er blanda af hardcore-
pönki og þungarokki, og þrátt fyr-
ir ungan aldur em þeir velspilandi
og þéttir, sérstaklcga þótti mér
trommarinn efnilegur. BRA naut
greinilega mikilla vinsælda í saln-
14.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. ágúst 1991
VAGGTÍÐINDI
venju notast Stewart við undirleik
hljómsveitarinnar The Spíritual
Cowboys...
Aætlanir útgáfufyrirtækjanna
um útgáfur það sem eftir er af árinu
em orðnar nokkuð mótaðar. Frá
Steinum má búast við upp undir
þijátíu titlum og kennir þar margra
grasa. Sólóplata Karls örvarssonar
hefúr verið nokkuð lengi á döfinni
en nú er hún I lokafrágangi. Sálin og
Todmobile em langt komnar af stað
með plötur, en plata Ný Dönsk strák-
anna er enn aðeins á umræðustigi.
Blúskompaníið em rétt hálfnaðir
með sina plötu og svona mætti lengi
telja. Steinar munu halda endurút-
gáfunum áfram, von er á nýjum
.Aftur til fortíðar" plötum, og enn
ánægjulegri em þau tíðindi að löngu
ófáanlegar plötur Þursaflokksins em
væntanlegar í fyrsta skipti á disk.
Sömu sögu er að segja um tvær
fyrstu plötur Stuðmanna sem Steinar
hyggst cndurgcfa á disk...
RS. Músik, fyrirtæki Péturs
Kristjánssonar, hefur þegar sannað
sig á íslenska plötumarkaðinum með
þremur plötum sem allar hafa geng-
ið vel. A.m.k. níu útgáfúr em fyrir-
hugaöar hjá fyrirtækinu sem eftir er
árs. Þar má nefna Eyjólf Kristjáns-
son og Geirmund Valtýsson sem
báðir verða með plötur, blúsplötu frá
KKBand, nýja plötu frá Magnúsi og
Jóhanni, og stóra plötu frá hljóm-
sveitinní Hendes Verden, sem Valdi-
mar Flygenring er í forsvari fyrir. Að
auki mun P.S. Músik sjá um að koma
lögum úr Landslaginu 1991 á fram-
færi, og gefa út þriðju plötu Gamm-
Nú hafa klassískir grískir skúlp-
túrar i fyrsta skipti verið bannaðir í
Bandaríkjunum. Fjórar allsberar
grískar styttur áttu að prýða umslag
nýjustu píötu Bowie og félaga í Tin
Nýja Tin Machine umslagið: Bann-
að f Bandarikjunum.
Todmobile þremenningarnir em langt
anna sem án efa verður fúll af úrvals
bræðingi...
Von er á nýrri Public Enemy
plötu í október. Hún mun heita
Apocalypse '91. í september kemur
þó út forsmekkur af nýju plötunni
þegar lagið „Cant truss it“ kemur á
smásklfú...
Nýja U2 platan hefúr verið fáan-
leg i nokkum tíma og þá aðeins sem
illfáanlegur „bútlegguri*. Nú er hins-
vegar von á plötunni í október,
mörgum aðdáandanum eflaust til
mikillar gleði. Líkur eru á að U2 tón-
leikaferð um heiminn hefjist
snemma árs 1992...
Paul McCartney platan CHOPA
B. CCCP sem upprunalega kom að-
eins út í Sovétríkjunum verður faan-
leg í vestrinu I i í lok september.
Platan varð fyrsta gull-mctsöluplat-
an í Sovétríkjunum og inniheldur 13
rokk og ról standarda sem McCartn-
ey tók upp á tveim dögum...
önnur sólóplata Dave Stewart úr
Eurythmics kemur út í næsta mán-
uði. Platan heitir „Honest“ og að
komnir með nýja plötu.
Machine, en þegar í ljós kom að um
60% plötubúða myndu ekki selja
piötuna vegna umsiagsins var brugð-
ið á það ráð að klippa tippin burt. Þvf
fá Ameríkanar tippa-lausa plötu, en
ailar aðrar þjóðir fá umslagið f heilu
lagi. Talsmaður hljómsveitarinnar
hafði þetta að segja inn málið:
„Sveitinni fmnst þetta mál faránlegt.
Þegar umslagið var hannað í byrjun
datt ekki nokkrum manni í hug að
það yrði gert mál út af þvi. Þetta er i
fyrsta skipti sem viðurkennd sigild
list er bönnuð 1 Bandaríkjunum og
okkur finnst breytingamar hræðileg-
ar. Staðreyndin að þetta breytta um-
slag er taiið viðunandi i Bandaríkj-
unum segir meira um siðferðið þar i
landi en þúsund orð“...
Fönkrokkhljómsvetin fiábæra,
The Red Hot Chili Peppers, hafa
lokið við að hljóðrita nýja plötu sem
er enn ónefhd. Platan var unnin af
Rick Ruben og kemur út seint í
september. Hljómsveitin tók svo
mikíð upp að platan verður jafnvel
tvöföld.