Þjóðviljinn - 12.10.1991, Síða 1

Þjóðviljinn - 12.10.1991, Síða 1
Fólk verði kaskótryggt rétt einsog bílar Ríkisstjórnin ætlar að Ieita leiða til að gefa fólki tækifæri til að tryggja sig fyrir kostnaði vegna þeirrar heilbrigðisþjónustu sem það kynni að þarfnast. Þannig yrði um mismikla sjálfs- áhættu að ræða gegn breytilegu tryggingariðgjaldi í einhverri mynd, stendur í hvítbók ríkisstjórnarinnar. Svavar Gestsson Alþýðubanda- lagi líkti þessu við að stjórnin liti á fólk sem bíla í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á fimmtudag. Enda er hér um að ræða orðalag viðskipta með tryggingar á bifreiðum. „Þegar komið er inn úr umbúð- son formaður BSRB. „Menn létu unum á öfúgmælabæklingi ríkis- stjómarinnar um velferðina þá er ljóst að þar á bæ vilja menn búa þannig um hnútana að heilbrigðis- kerfið verði notað í þágu þeirra sem hafa góð fjárráð. Hinir sem eiga í erfiðleikum ffeistast eflaust til að láta tryggingar mæta afgangi og veldur það þá án efa sjálfs- áhættu,“ sagði Ogmundur Jónas- þannig eflaust dagvistun bama sinna ganga fyrir tryggingu á eigin heilsufari, eigin skrokki. Og þegar heilsuna þrestur verður væntanlega við þá sagt: Þvi miður, þú átt ekki rétt á aðhlynningu, samkvæmt okkar skrám þarft þú að borga þína hálfu miljón í sjálfsábyrgð áður en þér er veitt aðhlynning. Þetta er fmmstæð hugsun,“ sagði Ögmund- ur. Ólafur Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins tók undir gagnrýni á þessa hugmynd ríkisstjómarinnar og kallaði hana furðulegan boðskap stjómarinnar um sjálfsábyrgð fyrir sjúka og aldraða, ættaða úr faðirvori frjáls- hyggjunnar. „Samkvæmt þessu á læknisþjónustan að fara eftir því hvað hefur verið borgað í sjálfs- ábyrgð rétt einsog með bílana,“ sagði hann. „Hugmyndin er óréttlát vegna þess að þeir sem em veikastir fyrir þurfa að greiða mest,“ sagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir þingkona Kvennalista og bætti við að í þess- ari hugmynd um sjálfsáhættu væri falin gmndvallarbreyting á heil- brigðiskerfmu, breyting sem stjómvöld hefðu ekkert Ieyfi til þess að gera án þess að hafa náð víðtækri sátt um það í þjóðfélag- inu. Ríkisstjómin hyggst reyna að ná meiri hagkvæmni í heilbrigðis- kerfinu með því að kanna mögu- leika á því að bjóða út þætti henn- ar, enda verði um leið skilið á milli einkareksturs og starfa lækna á sjúkrastofnunum. Það á að endur- skoða alla samninga við heilbrigð- isstéttimar og , jafnframt því að al- menningi verður gefinn kostur á fjölbreyttari læknisþjónustu en nú er verður að veita aðhald með því að hann taki beinan þátt í kostnað- inum,“ stendur í stefhuyfirlýsingu stjómarinnar. -gpm Nafnvextir lækka lítillega Bankar og sparisjóðir utan íslandsbanki lækkuðu vexti í gær. Hinn 1. október voru vext- ir einnig Iækkaðir en þá lækk- aði Landsbankinn ekki sína vexti. Um er að ræða nafna- vaxtalækkun tilkomna vegna lækkandi verðbólgu. Raunvext- ir eru áfram háir og dæmi eru um að ávöxtun á ríkisverðbréf- um jafngildi 18 prósenta raun- vöxtum. Landsbankinn lækkaði útláns- vexti um 2-3 prósent í gær en hin- ir minna. Þrátt fyrir það em út- lánsvextir íslandsbanka og Lands- banka 1-3 prósentum hærri en hjá Búnaðarbanka og sparisjóðunum. Bankar og sparisjóðir hafa verið tregir við að lækka vextina þar sem þeir telja sig hafa orðið fyrir tapi á fyrri hluta árs vegna lágra nafnvaxta. Hraði lánskjara- vísitölunnar er um 3,3 prósent á ársgrundvelli en hraði fram- færsluvísitölunnar um 8,8 pró- sent. Á sama tíma em forvextir víxillána bankanna 16,5-19 pró- sent og vextir almennra skulda- bréfalána 17-20 prósent. Vextir almennra sparisjóðsbóka em 3,5- 4 prósent. Sé tekið mið af vöxtum á rik- isverðbréfúm sem skila 22 pró- sent ársávöxtum og lánskjaravísi- tölunni bera bréfin 18 prósent raunávöxtun. Rikið selur hinsveg- ar ekki mikið af þessum bréfum, salan er mest í ríkisvíxlum og ávöxtun á ári þar er 16,4-17 pró- sent eftir lækkanir undir síðustu mánaðamót. Meðan lánskjaravísi- talan er þetta lág er um 13-14 pró- sent raunávöxtun að ræða en áður en að lækkuninni kom vom vextir ríkisvíxlanna hærri en ríkisbréf- anna. Útistandandi í ríkisvíxlum em um 12 miljarðar króna. Af þessu má sjá hvað það kostar ríkissjóð að fá þessa peninga að láni frá þjóðinni. Ef við gefum okkur að útistandandi séu að meðaltali 10 miljarðar króna og að raunávöxt- un þeirra sem kaupa víxlana sé 15 prósent þá kostar það rikið 1.500 miljónir króna að fá þessa pen- inga að láni í eitt ár. -gpm Þegar síðustu tvær lotur úrslitaleiksins I bridge fóru fram, aðfaranótt föstudagsins, safnaðist múgur og margmenni saman í húsi Bridgesambands íslands. Þegar Ijóst var að heimsmeistaratitillinn var (slendinga fögnuðu menn ákaft með húrrahrópum og klappi. - Mynd: Sveinki Islendingar kafsigldu Pólverja °g tryggðu sér meistaratitilinn Hús Bridgesambands ís- lands nötraði undan áköf- um fagnaðarhrópum og klappi hundraða bridgeáhuga- manna þegar Ijóst var að ls- lendingar höfðu tryggt sér heimsmeistaratitilinn í bridge. Landsliðið hafði borið sigurorð af sterku liði Pólveija 415-376 í 160 spila úrslitaleik um heims- meistaratitilinn. Islenska landsliðið, sem skipað er þeim Jóni Baldurssyni og Aðalsteini Jörgenssyni, Guðmundi Páli Amarssyni og Þorláki Jónssyni, Emi Amþórssyni og Guðlaugi R. Jóhannssyni, spilaði allt mótið af geysilegu öryggi undir styrkri stjóm fyrirliðans, Bjöms Eysteinssonar. Siðasta umferðin var þar engin undantekning, þó byrjað hafi verið að fara um menn sem fylgdust með síðustu lotunni er Pólveijar fóru að skora grimmt undir miðbik hennar. Það voru Pólverjar sem unnu níundu Iotuna 44-37. Sá sigur var að mati manna ekki nógu stór fyrir þá til að ná upp því forskoti er Islendingar höfðu. I upphafi tíundu lotunnar byijaði íslenska liðið að hala inn stig og eftir þriðja spilið í lotunni var munurinn milli liðanna orðinn 99 stig. Þegar þama var komið fóm Pólverjar að spila mjög djarft og gengu eins langt í samningum eins og hægt var og dobluðu samninga íslendinganna. Er leið á lotuna minnkaði það forskot er íslenska liðið hafði smátt og smátt og þegar íjögur spil vom eftir var munurinn milli liðanna kominn niður í 36 stig og allt gat gerst miðað við sveiflumar í lotunni. Stjórn og trúnaðarmannaráð Sjómannafélags Reykjavík- ur hefur boðað til verkfalls undirmanna á kaupskipaflotan- um í vikutíma, eða frá og með föstudeginum 18. október til og með 25. október. Birgir Björgvinsson stjómar- maður í Sjómannafélaginu segir að til verkfallsins sé boðað til að leggja áherslu á kröfur undirmanna sem em að fá umsamdar kaup- hækkanir, bónusgreiðslur og sam- ræmingu á kauptöxtum sem samið var um í siðasta kjarasamningi. Frá miðjum síðasta mánuði hefúr verið Þegar þama var komið sögu sögðu íslensku spilaramir stopp, hingað og ekki lengra. - Bridge- áhugamenn í húsi Bridgesam- bandsins vörpuðu öndinni léttar er Guðmundur Páll og Þorlákur unnu þrjú grönd í lokaða salnum er Pólveijar höfðu doblað. Næstu tvö spil unnu Islendingamir einnig og menn fögnuðu ákaft hér á landi. Heimsmeistaratitillinn í bridge var orðinn staðreynd. -sþ í gildi yfirvinnubann undirmanna á kaupskipaflotanum án þess að við- semjendur sjómanna hafi virt þá viðlits. Það hefúr haft það í för með sér að kaupskipin hafa aðeins getað látið úr höfn á dagvinnutíma, en viðbúið er að þau muni stöðvast að öllu óbreyttu í lok næstu viku. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari hefur boðað deiluaðila til sáttafúndar klukkan 14 næst- komandi þriðjudag. Þetta mun vera fyrsta kjaradeilan sem kemur inn á borð ríkissáttasemjara í haust, en kannski ekki sú síðasta. -grh Farmenn boða verkfall Að gefnu tilefni: Framtíð „litlu“ blaðanna

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.