Þjóðviljinn - 12.10.1991, Síða 7

Þjóðviljinn - 12.10.1991, Síða 7
ERLENBAK FKETTIK A Umsión: Ólafur Gíslason Flokksþing á barmi hengiflugsins Kúbanska þjóðin ber sögu- lega og altæka ábyrgð sem fánaberi hugsjóna sósíal- ismans og mun halda áfram ein á þeirri braut ef svo vill verða. Eitthvað á þessa leið komst Fi- del Castro aðalritari Kúbanska kommúnistaflokksins, forseti ríkis- ráðs Kúbu, forsætisráðherra og æðsti yfirmaður heraflans að orði í 5 klst. ræðu sem hann hélt í gær við setningu IV. flokksþings Kommúnistaflokksins í Santiago. Var ræða aðalritarans hlaðin til- fmningahita, þar sem höfðað var til sögulegra örlaga og sögulegs hlutverks svo þjóðin mætti ganga með uppreist höfuð í gegnum þær þrengingar sem fyrirsjáanlegar eru. „Það eru ekki bara hugmyndir okkar sem eru í veði, heldur örlög- in, sjálfstæðið og byltingin,“ sagði þessi hetja kúbönsku byltingarinn- ar, sem leitt hefur þjóð sína í gegn- um súrt og sætt í 32 ár. Þótt þingið hafi lengi verið í undirbúningi, þá hefur atburðarás síðustu vikna og mánaða gert það að verkum að þingið fær á sig yfir- bragð neyðarfundar, þar sem gera eigi úrslitatilraun til þess að mæta þeim ytri áíollum sem Kúba hefur orðið fyrir með falli kommúnista- flokkanna í A-Evrópu og ríkis- valds þeirra. Þannig er þingið nú lokað fyrir fréttamönnum og landsmenn fá ekki að vita um það sem þar fer fram nema í opinberum fréttatil- kynningum dagblaðsins Granma. En ræðu leiðtogans var sjónvarpað þar sem hann lýsti með dramatísk- um orðum efnahagslegum afleið- ingum breyttra samskipta við Sov- étríkin. Þannig hefði innflutningur á olíu frá Sovétríkjunum minnkað úr 13 í 10 miljón tonn á árinu 1991 og engin vissa væri um olíuinn- flutning á næsta ári eða á hvaða verði. Sagði Castro að ef Kúbanir þyrftu að kaupa olíu á heimsmark- aðsverði myndi öll sykuruppskeran ekki duga fyrir meiru en 10 miljón tonnum af olíu, sem væri lág- marksþörf. Auk þess hefur inn- flutningur brugðist á vélum, vara- hlutum, hráefnum og komi og skapað margvísleg vandamál í kú- bönskum iðnaði, sem byggður er upp með sovéskiri aðstoð að mestu leyti. Castro sagði að sykurræktin og ferðamannaþjónustan yrðu áffam megintekjulindir þjóðarinnar og varði þá skipan ferðaþjónustunnar að hafa sérstakar dollaraverslanir og þjónustu fyrir ferðamenn, sem kúbanskur almenningur hefði ekki aðgang að. Verkefni þingsins verður að leggja línumar fyrir hvemig þjóðin eigi að mæta þessum áföllum, og hvemig stjómvöld eigi að mæta vaxandi óánægju innanlands og vaxandi þrýstingi utanfrá um að breytt verði um stefnu. Castro sagði í ræðu sinni að hann vildi sem opnasta og hrein- skilnasta umræðu á þinginu. Þó var haft eftir háttsettum embættismönnum flokksins að ekki yrði til umræðu á þinginu að afhema flokkseinræðið og koma á fjölflokkakerfi. Castro sagði blátt áfram í ræðu sinni að landsmenn yrðu að vinna kraftaverk: að auka þyrfti ffam- leiðsluna með minni tilkostnaði í orku, áburði, skordýraeitri og tækjabúnaði. Þá lýsti hann eftir er- lendri fjárfestingu i ferðamanna- þjónustu og iðnaði og sagði Kú- bana eiga bæði hráefhi og vinnu- afl. Hann boðaði bráðabirgðaráð- stafanir til þess að bregðast við skortinum sem nú gerði vart við sig á öllum sviðum og lýsti eftir samvinnu við önnur ríki Róm- önsku Ameríku. Eitt af verkefnum þingsins verður einnig að endumýja flokks- forystuna og kjósa nýja miðnefnd, sem skipuð er 100 mönnum. Þótt andstaða við stjóm Ca- stros sé ekki áberandi enn á Kúbu, þá fer hún þó vaxandi, einkum í borgunum. Sex hópar stjómarandstæðinga Fidel Castro, „leader maximo" ( aldarþriöjung. sem starfa leynilega tóku sig sam- an fyrir flokksþingið og gáfu út sameiginlega yfírlýsingu til flokks- þingsins. I yfirlýsingunni er talað um að kúbanska þjóðin gangi nú í gegn- um tímabil upplausnar og örbirgð- ar og síðan segir að „maðurinn sem í aldarþriðjung hafí ákveðið örlög þjóðarinnar virðist enn einu sinni hafa ákveðið að hundsa óskir meirihluta Kúbana og halda ótrauður þá leið, sem einangrað hafi hann frá þjóðinni". Farið er fram á að flokksþingið geri það sem óhjákvæmilegt er að gera, ef forða eigi þjóðinni ffá hörmungum: Tafarlausa sakampp- gjöf fyrir alla pólitíska fanga. Boð- un nýs þings allra þeirra samtaka sem endurspegla þann nýja þjóðfé- lagsveruleika sem við blasir til þess að koma á raunverulegum þjóðarsáttum. Ogilding 5. greinar stjómarskrárinnar, en hún er svo- hljóðandi: „Kommúnistaflokkur Kúbu, skipulögð marxísk-leninísk framvarðarsveit verkalýðsstéttar- innar, er æðsta stjómvald þjóðfé- lagsins og ríkisins." Þá er farið ffam á að lýðræði verði komið á í áföngum, fjöl- flokkakerfí, þingræði o.s.frv. Segir i yfirlýsingunni, að ef flokksþingið fái ekki framgengt þessum markmiðum nú verði eitt síðasta tækifærið til þess að bjarga þjóðinni frá efnahagslegri og fé- lagslegri upplausn og blóðsúthell- ingum glatað. Fréttaritari ítalska blaðsins La Repubblica á Kúbu segir áhyggj- umar af blóðsúthellingum ekki ástæðulausar, því óánægja kraumi undir í þjóðfélaginu, þótt hún komist óvíða út á yfirborðið. Olögleg mannréttindasamtök á Kúbu sögðu að á miðvikudag hefðu sex ungmenni verið hand- tekinn í Havanna fyrir að dreifa dreifiriti því sem vitnað var í hér að ofan. Þá hefur kaþólska kirkjan á Kúbu einnig varað við hættunni af því, að ofbeldisalda bijótist út. Fréttaritarinn segir að á síðustu sex mánuðum hafi mátt merkja breytingu á mannlífi í Havanna sem rekja megi til dýpkandi efha- hagslegrar og hugmyndalegrar kreppu stjómvalda. Þannig sjáist nú ljöldi vændiskvenna á götum úti, sem leiti eftir viðskiptum við akandi útlenda gesti, útlendingar fái nú engan ffið fyrir eftirspum al- mennings effir dollumm og ffam- boði á smyglvamingi fyrir dollara. Algengara sé einnig að almenning- ur, einkum yngra fólk, hallmæli stjómvöldum á almannafæri. Þessi nýju hegðunarmynstur em þó að sögn fréttaritarans einvörðungu bundin við stórborgimar. I sveitun- um er Fidel enn óumdeildur leið- togi. Það hefur vakið athygli að Manuel Fraga, leiðtogi hægri- manna á Spáni og fyrrverandi ráð- herra í ríkisstjóm Francos er ný- kominn úr heimsókn ffá Havana, þar sem honum var fagnað eins og þjóðhöfðingja. Fraga segir eftir heimkomuna til Madrid að þrátt fyrir allt sjái hann í Fidel Castro manninn til þess að leiða Kúbu út úr núverandi kreppu. Hann segir að Castro hafi gert sér grein fyrir því að grípa þurfi til róttækra og áhrifarikra að- gerða og að hann muni koma á óvart. „A Kúbu ríkir ekki upp- reisnarástand, heldur er eins og að fólkið sé að bíða...það ríkir almenn tilfinning fyrir því, að nú þurfi fljótt að finna lausn. Og ég held að hún verði frekar í takt við sam- komulagið í E1 Salvador en innrás- ina í Panama... því Castro muni fallast á nauðsyn víðtækra breyt- inga.“ Vonandi verður þessi óvænti stuðningsmaður Castros sannspár. Serbar storka Króötum og EB Hermenn sambandshersins miða út skotmark. Júgóslavneska forsætisnefndin hefur staðfest að júgóslav- neski sambandsherinn getur ekki fallist á að hverfa frá hér- uðum í Króatíu þar sem Serbar búa, þar sem slíkt myndi bjóða útrýmingu þeirra heim. Þess vegna hefur júgóslavneska for- sætisnefndin ákveðið að allt her- lið verði áfram á þeim stöðum þar sem það hefur haldið sig þangað til pólitísk lausn hefur fengist á deilumálum og varan- legt vopnahlé er komið á.“ Þannig hljómaði bréf það sem stjómvöld í Serbíu sendu Hans van den Broek, utanríkisráðherra Hol- lands og samningsfulltrúa EB um miðjan dag í gær. Bréfið gengur þvert á vopna- hléssamkomulagið sem gert hafði verið daginn áður, þar sem gert var ráð fyrir því að sambandsherinn hyrfi frá Króatíu á einum mánuði. Yfirlýsingin setur allar friðamm- leitanir í uppnám og vopnahléið í algjöra tvísýnu. Sambandsherinn rauf vopnahléið í gær þegar skotið var á bílalest með neyðarhjálp og henni snúið við frá borginni Vuko- var nálægt landamærum Serbíu. Yfirstjóm sambandshersins í Za- greb hafði áður lofað fulltrúum EB að 50 vagna bílalest yrði heimilað að fara til Vukovar til þess að sækja um 200 særða og 2000 böm sem búið hafa undir umsátri og skotárásum vikum saman. Fyrr í gær hafði heimavamarlið Króata staðið við sinn hluta vopna- hléssamkomulagsins með því að aflétta umsátri um herbækistöð sambandshersins í Zagreb, höfuð- borg Króatíu. Sambandsherinn hafði einnig aflétt hafnbanni á hafnarborgir Króata við Adríahafs- ströndina. Forsætisnefndin sem sendi frá sér ofangreinda yfirlýsingu á að vera skipuð lulltrúum lýðveldanna 7 sem mynda Júgóslavíu. Fulltrúar íjögurra lýðvelda tóku þó ekki þátt í' fundinum, en hins vegar yfir- menn sambandshersins, sem em Serbar. Stipe Mesic, forseti Júgó- slavíu, sem er Króati, var í París í gær. Hann hefur ásakað serbnesk yfirvöld um valdarán í forsætis- nefndinni, en hún hefur ekki haldið fundi fullskipuð í yfir mánuð. 1 bréfi nefndarinnar, sem frétta- stofan Tanjug birti í gær, er gildi vopnahlésviðræðnanna í Haag dregið í efa. Þá em sjálfstæðisyfir- lýsingar Slóveníu og Króatíu for- dæmdar og sagt að þær feli í sér „grófa árás á landfræðilega einingu Júgóslavíu og landamæri hennar og verði mætt með þeim gagnað- gerðum sem stjómarskrá Júgóslav- íu geri ráð fyrir.“ Þá em önnur ríki vömð við því að viðurkenna sjálf- stæði Króatíu og Slóveníu, þar sem slíkt yrði talin gróf íhlutun í innan- ríkismál Júgóslavíu. Alþjóðleg viðleitni til að stilla til friðar mun halda áfram yfir helgina. Þannig var Cyms Vance, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og sérlegur sendi- fulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóð- anna væntanlegur til Júgóslavíu um helgina. Þá sagði Tanj- ug-fréttastofan í gær að forsetar Króatíu og Serbíu hefðu þekkst boð Mikaíl Gorbatsjovs um að ræða deilumál sín í Moskvu á næstu dögum. Næsti fundur friðar- ráðstefnu EB í Haag hefur verið boðaður á mánudag undir forsæti Van den Broek. RALA RANNSÓKNASTOFNUN LANDBÚNAÐARIN S Fóðurfræðingar, búfræðikandidatar, dýralæknar og líffræðingar, takið eftir! Rannsóknastofnun landbúnaðarins auglýsir eftir sérfræðingi á Tilraunastöðina á Möðruvöllum í Hörgárdal. Aðalviðfangsefni verða fóðurtilraunir með nautgripi. Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun í fóðurfræði eða skyldum greinum. Skriflegar umsóknir skulu berast Rannsóknastofnun landbún- aðarins, Keldnaholti, 112 Reykjavík eigi síðar en 15. nóvem- ber. Nánari uppiýsingar gefa Þóroddur Sveinsson, tilrauna- stjóri Tilraunastöðvarinnar á Möðruvöllum, í síma 96-24477 og Þorsteinn Tómasson forstjóri í síma 91-812230. Dómhús í Reykjavík Forval Fjármálaráðuneytið mun á næstunni láta bjóða út endurnýj- un innanhúss í „Útvegsbankahúsinu við Lækjartorg". ( for- vali verða valdir 6 verktakar til að taka þátt í lokuðu útboði. Um er að ræða fullnaðarfrágang á ca. 1600 fm svæði, aöal- lega á 1. og 2. hæð, auk endurbóta á lagnakerium i öðrum hlutum hússins. Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, og skal skila umbeðnum upplýsingum á sama stað eigi siðar en kl. 15.00 miðviku- daginn 23.október 1991. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, simi 26844 Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. október 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.