Þjóðviljinn - 16.10.1991, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 16.10.1991, Blaðsíða 11
Eilífðartúristinn Homo Faber (Þýskaland 1990) Leikstjóri: Voelker Schlönd- orff Aðalhlutverk: Sam She- pard, Barbara Sukowa og Julie Delpy Nýjasta mynd þýska leikstjór- ans Voelkers Schlöndorffs, gerð eftir skáldsögu Max Frisch, er enn ein sönnun þess að athyglis- verðustu og jafnbestu myndir nú- tímans koma frá Þýskalandi. Besta mynd síðustu kvikmynda- hátíðar kom einmitt þaðan, og á ég þar við „Himmel tiber Berlin“ eftir Wim Wenders. Það er nokk- ur eftirsjá í því að ekki skyldi reynast fært að sýna nýjustu mynd hans, hina stórkostlegu „Bis ans Ende der Welt“, á hátíð- inni nú. Homo Faber segir frá verk- fræðingnum Walter Faber, sem starfs sins vegna hjá UNESCO hefur neyðst til að gerast hálf- gerður eilfiðartúristi, flakkandi heimshoma á milli án þess að eiga nokkum tíma fastan sama- stað. Faber er óhemju jarðbund- inn maður og lífsviðhorf hans er þrungið raunsæjum hugsunar- hætti verkfræðingsins. Á einu af ferðalögum sínum hittir Faber unga og lífsþyrsta stúlku sem á eftir að breyta miklu í lífi hans. Kynni Fabers af stúlk- unni og ástarsambandið sem fylg- ir í kjölfarið, færa nýtt líf í æðar hans, og hann heldur í ferðalag með henni. Ferðin er í raun flótti Fabers frá innihaldslausu lífi hans, og jafnframt einhverskonar tilraun til þess að endurvekja æskuneistann í miðaldra skrokki hans. En ferðin reynist ekki sú lífsendumýjun sem Faber hafði hugsað sér, heldur verður hún til þess að fortíðin bankar óþyrmi- lega uppá, og gamlir draugar láta á sér kræla á ný. Myndin er tveggja stunda lát- laus veisla fyrir augað, þar sem Sham Shepard og Julie Delpy I Homo Faber áhorfandinn er leiddur heims- homa á milli. Kvikmyndataka er á köflum stórskostleg, þar sem eyðimerkur Mexíkó, stórborgir Vesturlanda og miðaldaborgir Frakklands og ltalíu em í aðal- hlutverkunum. Það er vart á nokkra mynd hallað þegar fullyrt er að Homo Faber sé áferðarfal- legasta mynd kvikmyndahátíðar- innar að þessu sinni. Persónusköpun er með hinum mestu ágætum, þar sem allir þætt- ir hennar hjálpast að; bragðmikið handritið, góð leikstjóm og fram- úrskarandi góður leikur aðalleik- aranna þriggja. Bandaríska leik- skáldið fræga, Sam Shepard, leik- ur Faber og á hann stórleik. Hann túlkar angist verkfræðingsins óaðfinnanlega, og á stuttum ham- ingjutíma Fabers er Shepard einn- ig sannfærandi. Julie Delpy leikur hina lífsglöðu, ungu stúlku sem Faber hrífst af, og gerir hún það á þann hátt að enginn efast um ástæður þess að Faber hrífst svo mjög af henni. Hin þekkta leik- kona Barbara Sukowa, sem einnig mátti sjá í Heimkomu Margarethu von Trotta, fer mjög vel með lítið en kjammikið hlutverk fyrrver- andi ástkonu Fabers. 1 Homo Faber er hvergi veik- an hlekk að finna, og allir þættir myndarinnar hjálpast að við að gera hana ein? eftirminnilegustu mynd Kvikmyndahátíðar í ár. Enginn unnandi þýskrar kvik- myndagerðar á síðari ámm má láta þessa mynd_ fram hjá sér fara. Árni Kristjánsson Óþægilegir kunnar Starfsmenn snyrtivöru- búða þurfa stundum að geta brugðist við ýmsu ein- kennilegu sem kann að koma uppá í amstri dags- ins og þá sérstaklega þeg- ar í hlut eiga viðskiptavinir með sérþarfir. Einn slíkur karlmaður mætti á dögun- um í snyrtivörubúð á höf- uðborgarsvæðinu og hafði mjög mikinn áhuga á brjóstahöldurum og nær- fötum kvenna sem þar voru á boðstólum. Eftir að hafa velt vöngum yfir vöru- úrvalinu nokkra stund spurði hann afgreiðslu- stúlkuna hvort hún væri ekki tilleiðanleg til að máta fyrir sig einn brjóstahaldara eða svo. Það fer ekki mörgum sögum af við- brögðum stúlkunnar en hitt er haft fyrir satt að augna- ráðið sem hún sendi þess- um kúnna hafi orðið til þess að hann sá sitt óvænna og hvarf á braut. Tveggja pela feið Gárungamir hafa verið að velta því fyrir sér af- hverju einstakir ráðamenn þjóðarinnar virðast vera „glaðari" en aðrir þegar þeir þurfa að mæta við móttökur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur- flugvelli. Einna vinsælust er sú skýring að eftir að Kiddi rót, einkabílstjóri ut- anríkisráðherra, var tekinn fyrir of hraöan akstur á Reykjanesbrautinni sé þessi vegalengd frá Reykjavík orðin að tveggja pela leið og afleiðingarnar eftir þvl. STÚNVAWP Al útvahp Sjónvarp 18.00 Sólargeislar (25) 18.30 Töfraglugginn (24) 18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Fimm á flækingi (4) 19.30 Staupasteinn (3) 20.00 Fréttir og veöur 20.40 Á tali hjá Hemma Gunn Aðalgestur þáttarins er Bald- vin Jónsson nýorðinn út- varpsstöðvareigandi, en auk hans koma fram söngvar- arnir Móeiður Júníusdóttir og Egill Ólafsson, afríski tónlistarmaðurinn Manu Di- bango og hljómsveit hans og Todmobile. Þá verður gert góðlátlegt grín að ungu fólki með hjálp földu mynda- vélarinnar, hugað að ungu fólki sem er aö gera það gott, auk þess sem afmælis- barn þáttarins veröur valiö. 16.45 Nágrannar 17.30 Litli Folinn og félagar. 17.40 Draugabanar. 18.05 Tinna Leikinn framhalds- myndaflokkur um þessa kot- rosknu stelpu. 18.30 Nýmeti Nýneti Ferskur þáttur um það nýjasta í tón- listarheiminum. 19.19 19.19 20.10 Á grænni grund Stuttur en fróölegur þáttur i umsjón Hafsteins Hafliðasonar. Framleiöandi Baldur Hrafn- kell Jónsson. 20.15 Heilun I þessum þætti verður fjallaö um heilun, en essi aldagamla og óviður- ennda laekningaaöferð hef- ur á siðustu árum notið auk- innar viöurkenningar á með- al almennings. Rætt er við fólk, sem stundar heilun, og fjallaö um rannsóknir sem geröar hafa verið á þessu fyrirbæri. 20.45 Réttur Rosie O'Neill 21.50 Nýjasta tækni og visindi I þættinum verður tjallað um sólknúnar bifreiðar, upphitun fyrir áreynslu, nýjar þýskar ofurhraðlestir, aðgerðir gegn ófrjósemi og um tölvuvogir og leifturfrystingu. Umsjón Sigurjón H. Richter. 22.05 Maðkur í mysunni Bresk bíómynd frá 1962. Myndin er i léttum dúr og segir frá hremmingum bófaforingja í Lundúnum. I hvert skipti sem hann fremur rán kemur lögreglan og hirðir af honum fenginn og þar kemur að hann fer að gruna sam- starfsmenn sina um græsku. Aðalhlutverk: Peter Sellers. 23.00 Ellefufréttir 23.10 Maðkur i mysunni frh. 23.55 Dagskrárlok Bandarískur framhaldsflokk- ur með Sharon Gless í aðal- hlutverki, en margir muna eftir henni úr framhaldsþátt- unum Gagney og Lacey. 21.35 Spender Sjöundi og næstsíðasti þáttur þessa breska spennumyndaflokks. 22.25 Tiska Sjöundi og næst- siöasti þáttur þessa breska spennumyndaflokks. 22.25 Tíska Haust- og vetrar- tískan frá öllum helstu hönn- uðum heims. 22.55 Bílasport. 23.30 Aö eilfífu, Lúlú Elaine Hine dreymir um að verða rithöfundur, en þar sem hún getur ekki lifað á draumum vinnur hún fyrir klósettsetu- framleiðanda og skrifar ást- arbréf fyrir timaritið Pent- house. Aöalhlutverk: Hanna Schygulla, Deborrah Harry og Alec Baldwin. Leikstjóri Amos Kollek. Rác 1 FM 92.4/93.5 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Þórsteinn Ragnarsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunþáttur Rásar 1 - Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór Sverrisson. 7.30 Fréttayfirlit. Gluggaö I blööin. 7.45 Krítík 8.00 Fréttir 8.10 Að utan 18.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir 9.03 Það var svo gaman... Af- þreying I tali og tónum. Um- sjón Sigrún Björnsdóttir. 9.45 Segðu mér sögu „Litli lá- varðurinn" eftir Frances Hodgson Burnett. Friðrik Friðriksson þýddi. Sigurþór Heimisson les (36). 10.00 Fréttir. 10.03 Morgunleikfimi með Halldóru Bjömsdóttur. 10.10 Veðurfregnir. 10.20 Samfélagið og við Um- sjón Ásgeir Eggertsson. 11.00 Fréttir. 11.03 Tónmál Tónlist miðalda, endurreisnar og barokktím- ans. Umsjón: Þorkell Sigur- björnsson. (Einnig útvarpað að loknum fréttum á mið- nætti). 11.53 Dagbókin 12.00 Fréttayfirlit á hádegi 12.01 Að utan (Áður útvarpað I Morgun- þætti). 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veöurfregnir. 12.48 Auðlindin Sjávarútvegs- og viðskiptamál. 12.55 Dánarfregnir. Auglýsing- ar. 13.05 I dagsins önn - Siöferði I opinberu lífi: Löggjafinn Umsjón: Halldór Reynisson. (Einnig útvarpað i næturút- varpi kl.3.00). 13.30 Létt tónlist 14.00 Fréttir 14.03 Útvarpssagan: „Fleyg og ferðbúin" eftir Chariottu Blay Bríet Héðinsdóttir les þýð- ingu slna (3.00) 14.30 Miödegistónlist „Systur I Garðshorni" eftir Jón Nordal. Sigrún Eðvaldsdóttir leikur á fiðlu og Selma Guðmunds- dóttir a þíanó. Kórlög eftir Jón Nordal og Atla Heimi Sveinsson. Hamrahllðarkór- inn syngur, Þorgerður Ing- ólfsdóttir stjómar. 15.00 Fréttir. 15.03 I fáum dráttum Brot úr llfi og starfi Nínu Bjarkar Árnadóttur. Umsjón: Friðrik Rafnson. (Áður á dagskrá 23. júll 1989.) 16.00 Fréttir. 16.05 Völuskrín Kristln Helga- dóttir les ævintýri og bama- sögur. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Sinfónía númer 104 I D- dúr K504 „Lundúnasinfón- lan" eftir Joseph Haydn Fil- harmoníusveit Lundúna leik- ur; Sir Georg Solti stjómar. 17.00 Fréttir. 17.03 Vita skaltu lllugi Jökuls- son sér um þáttinn. 17.30 Hér og nú Fréttaskýr- ingaþáttur Fréttastofu (Sam- sending með Rás 2) 17.45 Lög frá ýmsum löndum 18.00 Fréttir 18.03 Af öðru fólki Þáttur Önnu Margrétar Sigurðardóttur. 18.00 Auglýsingar. Dánar- fregnir. 18.45 Veðurfregnir. Auglýsing- ar. 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Kviksjá 20.00 Framvaröasveitin Frá Myrkum múslkdögum 9.-16. febrúar 1991. Sex lög fyrir strengjakvartett eftir Karól- Inu Eiríksdóttur og Hassel- by-kvartettinn eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Reykjavík- urkvartettinn leikur. Licht- bogen eftir Kaiju Saariaho. CAPUT-hópurinn flytur; Rolf Gupta stjórnar. Frá Norrænu tónlistarhátíðinni I Gauta- borg 4.- 10. febrúar 1991. „Nescio" fyrir einleiksflautu eftir Fredrik Österling. Anna Svensdotter leikur. „Lex" fyr- ir sópran og kammersveit eftir Thomas Liljeholm. Eva Zwedberg syngur með MO- DE-kammersveitinni; Carl Axel Hall stjórnar. Umsjón Una Margrét Jónsdóttir. 21.00 Húsfreyjur I sveit Um- sjón Guðrún Gunnarsdóttir. (Endurt. frá 10. sept.) 21.30 Sígild stofutónlist Flautu- sónötur númer 6 I e-moll og númer 11 I b-moll eftir Jean Marie Leclair. Berthold Kuijken, Wieland Kuilken og Robert Kohnen leika á upp- runaleg hljóðfæri barokk- flautu, gömbu og sembal. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Orð kvöldsins. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Út I náttúruna Umsjón Steinunn Harðardóttir. (Endurt. frá 25. sept.) 24.00 Fréttir 00.10 Tónmál (Endurt.) 01.00 Veöurfregnir. Rás 2 FM 90.1 01.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. 7.03 Morgunútvarpið - Vaknaö til lífsins Leifur Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson hefja daginn með hlustendum. - Inga Dagfinnsdóttir talar frá Tokyo. 8.00 Morgunfréttir - Morgunút- varpið heldur áfram. 9.03 9-fjögur Úrvals dægurtón- list I allan dag. Umsjón Þor- geir Ástvaldsson, Magnús R. Einarsson og Margrét Blöndal. 12.00 Fréttayfiriit og veður. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 9-fjögur Úrvals dægur- tónlist, í vinnu, heima og á ferð. Umsjón: Margrét Blón- dal, Magnús R. Einarsson og Þorgeir Ástvaldsson. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægurmálaút- varp og fréttir Starfsmenn dægurmálaútvarpsins, Anna Kristine Magnúsdóttir, Berg- Ijót Baldursdóttir, Katrín Baldursdóttir, Þorsteinn J. Vilhjálmsson, og fréttaritarar heima og erfendis rekja stór og smá mál dagins. 17.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin - þjóöfúndur f beinni útsendingu, þjóöin hlustar á sjálfa sig Sigurður G. Tómasson og Stefán Jón Hafsein sitja við sfmann, sem er 91-686090. 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Landsleikur Islands og Tékkóslóvaklu I handknatt- leik Iþróttamenn lýsa leikn- um úr Laugardalshöll. 21.00 Gullsklfan: „For the sake of mankind" Eirfkur Hauks- son syngur með og leikur með félögum sfnum f rokk- sveitinni Artch. 22.07 Frakkrokk - Manu Di- bango og Soul Makossa Gang Kvartett Sigurðar Flosasonar og Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði. Bein útsending frá tónleikum á Hótel Islandi. 00.10 I háttinn Umsjón Gyða Dröfn Tryggvadóttir. 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Stöð 2 Síða 11 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. október 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.