Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Side 3
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
23
DV
Frábærthlaup
lyáChristie
Breski ólympíuraeistarinn í 100
metra hiaupi, Linford Christie,
sýndi á laugardaginn að hann er
ekki dauöur úr öllum æðum þeg-
ar hann sigraði á sterku boðs-
móti í Jóhannesarborg og fékk
tímann 9,97 sekúndur. Það er
hans besti tími í ár og sá besti sem
hann hefur náð í Afríku á ferli
sinum.
Christie bar sigurorð af Frankie
Fredericks, Namibíiunanninum
fótfráa, sem naut gíflirlegs stuön-
ings heimamanna en varð annar
á 10,03 sekúndum.
„Ég heyrði móttökurnar sem
Frederieks fékk og sagði við sjálf-
an mig að ég skyldi sko sýna þeim
hvað ég gæti,“ sagði Christie eftir
hlaupið. „Ég vissi að þetta var
tapað eftir 60 metra," sagði Fred-
ericks.
Irina Privalova frá Rússlandi
sigraði í 100 metra hlaupi kvenna
á besta tíma sem náðst hefur í
Suöur-Afríku, 11,01 sekúndum,
og samskonar metféil í lOOmetra
grindahlaupi kvenna þar sem
Aladefa Tawo frá Nígeríu sigraði
á 12,87 sekúndum.
Becker hætti
vegna meiðsla
Boris Becker varð að hætta
keppni með Þjóðveijum gegn
Rússum vegna meiðsla í baki þeg-
ar þjóðirnar mættusí í Davis-
bikamum i tennis í Moskvu um
helgina. Hann hafði tekið þátt í
sigurleikjum í einliðaleik og tví-
liðaleik en gat síðan ekki mætt
Rússanum Evgeni Kafelnikov í
gær. Becker kenndi lélegum velh
um meiðslin og sagði aö það hefði
verið eins og að hlaupa í sandi
að spila á rökum leirvellinum.
Þjóðverjar komust í 2-0 en
Rússar sneru leiknum sér í hag
og sigruðu óvænt, 3-2. Þjóðverjar
ætla að kvarta yflr því við Al-
þjóða tennissambandiö að völlur-
inn var rennbleyttur kvöldið áð-
ur en leikurinn hófst.
Óvænttap
hjá Króötum
Króatar töpuðu mjög óvænt
fyrir Indverjum í Nýju-Delhi í
Davis-bikamum í tennis í gær,
3- 2. Það var sjálfur Goran Ivan-
isevic sem klúðraði leiknum þeg-
ar hann tapaöi fyrir óþekktum
mótheija, Leander Paes, eftir að
hafa komist 2-0 yfir.
Önnur helstu úrslit í Davis-
bikamum um helgina: Ungveija-
land-Ástralía 3-2, Frakkland-
Marokkó 5-0, Finnland - Lúxem-
borg 4-1, Tékkland - Zimbabwe
4- 1, Rúmenía-Portúgal 3-2,
Úkraína - Egyptaland 4-1.
Pierce lagði
SanchezVicario
Mary Pierce frá Frakklandi
vann Aröntxu Sanchez Vicario í
úrslitaleik á Nichirei kvennamót-
inu í tennis sem lauk í Tókíó í
Japan i gær, 6-3 og 6-3. Pierce
hlaut 5,2 milljónir króna í sigur-
laun.
DanaBarrostil
Boston Celtics
Bandaríska körfuknattleikslið-
ið Boston Celtics gekk á föstudag-
inn frá samningi við Dana Bar-
ros, hinn öfluga bakvörð frá
Philadelphiu 76ers. Samningur-
inn er til sex ára og að sögn um-
boðsmanns Barros er hann tæp
lega 1.400 milljón króna virði.
Barros er frá Boston og lék þar
með háskólaliði á sínum tíma en
hann var kjörinn sá leikmaður í
NBA-deildinni sem tók mestum
framförum á síðasta tímabili.
írinn Philip Walton fagnar innilega ásamt fyrirliða Evrópuúrvalsins, Bern-
hard Gallacher, þegar Ijóst var aö Bandarikjamenn höfðu verið lagðir að
velli. Simamynd/Reuter
Evrópa sigraði Bandaríkin:
Bikarinn
íþróttir
Úrslitin í Ryder-bikarnum
Bandaríkin - E vrópa
Fjórmenningur á föstudag:
Pavin/Lehman - Faido/Montgomerie.................................1-0
Haas/Couples - Torrance/'Rocca...................................0-1
Love/Maggert-Clark/James.................................. ...1-0
Crenshaw/Strange - Johansson/Langer............................. 0-1
Staðan 2-2.
Fjórleikur á föstudag:
Faxon/Jacobsen - Gilford/Ballesteros.............................0-1
Maggert/Roberts - Torrance/Rocca................................ 1-0
Couples/Love - Faldo/Montgomerie.................................1-0
Pavin/Mickelson - Johansson/Langer...............................1-0
Staðan 5-3 fyrir Bandaríkin.
Fjórmenningur á laugardag:
Strange/Haas - Faldo/Montgomerie..............„..................0-1
Love/Maggert - Torrance/Rocca....................................0-1
Roberts/Jacobsen - Woosnam/Walton............................... 1-0
Pavin/Lehman - Langer/Gilford....................................0-1
Staðan 6-6.
Fjórleikur á laugardag:
Faxon/Couples - Torrance/Montgomerie.................................1-0
Crenshaw/Love - Woosnam/Rocca........................................0-1
Haas/Mickelson-Ballesteros/Gilford...................................1-0
Pavin/Roberts - Faido/Langer.........................................1-0
Staðan 9-7 fyrir Bandaríkin.
Einvígin í gær:
Tom Lehman - Severiano Bailesteros (Spáni)...........................1-0
Peter Jacobsen - Howard Clark (Bretlandi)............................0-1
JeffMaggert - Márk Jaraes (Bretlandi)................................o-i
Fred Couples - Ian Woosnam (Bretlandi)............................1/2-1 /2
Davis Love - Costantino Rocca (Ítalíu)...............................1-0
Brad Faxon - Ðavid Gilford (Bretlandi)...............................0-1
Ben Crenshaw - Colin Montgomerie (Bretlandi)...........................O-l
Curtis Strange - Nick Faldo(Bretlandi)............................. 0-1
Loren Roberts - Sam Torrance (Bretlandi).............................0-1
Corey Pavin - Bemhard Langer (Þýskalandi)............................1-0
Jay Haas - Philip Walton (írlandi)............'......................0-1
Phil Mickelson - Per-Ulrik Johansson (Svíþjóð)................ ....1-0
Lokaúrslit: Bandarikin - Evrópa 13,5 -14,5
Akranesvöllur
Evrópukeppni félagsliða
íA-Raith Rovers
þriðjudaginn 26. september, kl. 16.00.
sóttur yf ir
Ath. Breyttar ferðir Akraborgar á leikdag:
Frá Reykjavík kl. 14.30.
Frá Akranesi kl. 18.15.
sæinn
Knattspyrnufélag
Glæsilegur endasprettur færði
Evrópu sigur á Bandaríkjunum, 14,5
gegn 13,5, í keppninni um Ryder-
bikarinn í golfi sem lauk á Oak Hill
vellinum í Rochester í New York-
fylki í gær. Bandaríkin höföu varð-
veitt bikarinn í fjögur ár en nú verð-
ur hann geymdur héma megin Atl-
antsála næstu tvö árin að minnsta
kosti.
Þetta er aðeins í annað skiptið sem
Evrópu tekst að vinna bikarinn í
Bandaríkjunum en áður gerðist það
árið 1987. Bandaríkin hafa alls sigrað
23 sinnum og Evrópa 6 sinnum en
tvisvar hafa liðin skipt sigrinum.
Bandaríska sveitin leiddi nær allan
tímann og þegar kom að einvígjun-
um í gær var staðan 9-7. Sem hand-
höfum bikarsins dugði Bandaríkja-
mönnum jafntefli til að halda honum
og staðan var því vænleg, Evrópa
varð að fá 7,5 vinninga af 12 möguleg-
um á lokadeginum til að sigra.
En einmitt það gekk eftir. Frábær
leikur Nick Faldo á tveimur síðustu
holunum gegn Curtís Strange gerði
útslagið, Strange hafði veriö yfir all-
an leikinn en Faldo sneri dæminu sér
í hag.
Þetta var mitt
besta pútt á ævinni
„Þetta var mitt besta pútt á ævinm,“
sagði Faldo og félagi hans, Spánveij-
inn Seve Baliesteros, tárfelldi af
fögnuði þegar hann hljóp og faðmaði
Faldo að sér.
Þar með var Evrópa komin yfir í
fyrsta sinn, 13,5 gegn 12,5, og írinn
Philip Walton, nýhði í Evrópuhðinu,
hélt út í taugastríðinu og vann sinn
leik gegn Jay Haas eftir æsispenn-
andi baráttu á síöustu holunni.
„Ég vil ekki nefna neinn öðrum
fremur. Þeir spiluðu allir stórkost-
lega,“ sagði Bernard Gallacher, fyrir-
hði evrópsku sveitarinnar, sem hljóp
fyrstur út á völlinn og fagnaði Wai-
ton.
Pavin frábær
á laugardaginn
Corey Pavin tryggði Bandaríkjunum
9-7 forystu á síðustu holunni í loka-
leiknum á laugardag þegar hann og
Loren Roberts náðu að sigra Nick
Faldo og Bemhard Langer á einu
höggi í fjórleiknum. Pavin átti glæsi-
legt lokahögg og fór holuna á „fugh“,
sem geröi útslagið.
„Þetta er toppurinn hjá mér í Ryd-
er-bikamum frá upphafi," sagði Pa-
vin, himinlifandi, og félagi hans, Ro-
berts, sagði: „Þessi náungi er orðinn
að goðsögn í lifanda lífi!“
Högg Pavins var Bandaríkjamönn-
um afar dýrmætt í stöðunni því það
þýddi að þeim dugði að vinna 5 leiki
af 12 í gær til að halda bikarnum
næstu tvö árin. Þegar upp var staðið
dugöi það þó ekki til.
Tveir Evrópubúar
fóru holu í höggi
Fyrir þessa keppni haföi það aðeins
gerst tvívegis í 30 ára sögu Ryder-
bikarsins að kylfingur færi þar holu
í höggi. Nú gerðist það hins vegar
tvívegis og í bæði skiptin voru Evr-
ópubúar á ferð. ítaiinn Costantino
Rocca afrekaði það á laugardaginn í
fjórmenningnum og síðan lék Bret-
inn Howard Clark sama leik þegar
hann sigraði Peter Jacobsen á loka-
sprettinum í gær.
'BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
? Akranesi
luritc ®
Allir flokkar eru fyrir basði kynin.
YfirbjálfarFSankudo er Senoei Jean
Frenette, 6. DAN, fimmfaldur
heimsmeistari.
Aðalbjálfari Fylkis: Vicente Carrasco. 2
DAN, 17 ára reynsla.
Innritun á staðnum
Allar upplýsingar má fá
í eftirfarandi símum:
Fylkishöllin: 567-6467
Vicente Carrasco: 567-3593
Garðar b. Guðgeirsson: 567-6217
Sankudo International Karate-do Organisation
Karatenámskeið eru að hefjast í nýrri og stórglæsilegri
aðstöðu í Fylkishöllinni við 5undlaug Arbasjar.
Flokkur mámid. þríðjud. miðvikud. fimmtud. föstud. laugard.
6-12 ára - Byrjendur 17:30-18:30 17:30-18:30 17:30-18:30
6-12 ára - Framhald 18:30-19:30 18:30-19:30 18:30-19:30 16:00-17:00
Fullorðnir - Framhald 19:30-21:00 19:30-21:00 19:30-21:00 17:00-19:00
Fullorðnir - Byrjendur 21:00-22:00 21:00-22:00 21:00-22:00
Karate er ?óð íþrótt fyrir alla. Eflir sjálfstraust, eykur styrk.
Andle? o? líkamle? uppbv??in?.