Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Page 7
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995
27
Iþróttir
TRYGGjNGA
Ái # »t?: ■<> s
íslandsmeistarar Njarðvíkinga höfðu betur gegn bikarmeisturum Grindvíkinga í meistarakeppni karla á laugardag-
inn og urðu þar með fyrstir til að hampa bikarnum. DV-mynd Ægir Már
Gjörðu
svo
vel,
400
þúsund
Hjáfmar Árna-
son, formaður
undirbúnings-
nefndar melst-
arakeppninnar,
afhendir Bene-
dikt Axelssyni,
formanni Styrkt-
arfélags krabba-
meinssjúkra
barna, ávisun að
upphæð 400 þús-
und krónur en
það var hagnaö-
urinn af körfu-
boltaleikjunum í
Keflavík á iaug-
ardaginn.
DV-mynd Ægir
*Égf| rSn
íslandsmeistarar Breiðabliks í kvennaflokki sigruðu bikarmeistarana úr Keflavík i meistarakeppninni og greinilegt
er að Kópavogsstúlkurnar verða áfram í toppbaráttunni í vetur. DV-mynd Ægir Már
Meistarakeppnin 1 körfuknattleik:
Njarðvíkog
Breiðablik
sigruðu
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Njarðvík og Breiðablik sigruðu í
meistarakeppni KKÍ í körfuknattleik
í karla- og kvennaflokki sem haldin
var í fyrsta skipti í Keflavík á laugar-
daginn. Keppnin var haldin til stuðn-
ings börnum með krabbamein og
söfnuðust 400 þúsund krónur til sam-
taka styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna.
íslandsmeistarar Njarðvíkinga
lögðu bikarmeistara Grindvíkinga,
95-89, í karlaflokki. Staðan í hálfleik
var 40-34. Grindvíkingar byrjuðu
betur en Njarðvíkingar náðu að snúa
leiknum sér í hag undir lok fyrri
hálfleiks og héldu fengnum hlut.
Leikurinn var ekki vel spilaður en á
köflum sáust skemmtilegir taktar.
Njarðvíkingar verða öflugir í vetur
og hafa góða breidd. Teitur Örlygs-
son og Rondey Robinson voru góðir
og Kristinn Einarsson og Páll Krist-
insson léku vel.
Grindvíkingar, sem misst hafa
nokkra góða menn, geta stillt upp
sterku byrjunarliði en breiddin er
ekki eins góð og hjá Njarðvíkingum.
Bandaríkjamaðurinn virkaði þungur
og var fljótur að komast í villuvand-
ræði. Hjörtur Harðarson, Helgi Guð-
fmnsson og Guðmundur Bragason
voru bestir hjá Grindavík.
Finnst við vera
á réttri leið
„Þetta var þokkalegur leikur en bæði
liðin eiga að getur spilað betur. Það
var gaman að vera fyrsta liðið sem
vinnur þennan bikar og mér finnst
við vera á réttri leið. Það voru van-
kantar á leik okkar á Reykjanesmót-
inu en við náum vonandi aö slípa af
þá hægt og bítandi og verða sterkir
í vetur,“ sagði Hrannar Hólm, þjálf-
ari Njarðvíkinga, eftir leikinn.
Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson
30, Rondey Robinson 26, Kristinn
Einarsson 10, Jón Júlíus Ámason 8,
Jóhannes Kristbjörnsson 8, Páll
Kristinsson 7, Friðrik Ragnarsson 6.
Stig Grindavíkur: Hjörtur Harðar-
son 20, Helgi Guðfmnsson 19, Guð-
mundur Bragason 17, Hermann My-
ers 9, Páll Vilbergsson 8, Unndór Sig-
urðsson 8, Marel Guðlaugsson 8.
Blikasigur
eftir hörkuieik
í kvennaflokki unnu Blikastúlkur lið
Keflvíkinga í hörkuleik, 68-72. Leik-
urinn var spennandi og síðustu mín-
úturnar voru æsispennandi. Það var
fnga Dóra Magnúsdóttir sem tryggði
Blikum sigur á lokamínútunum með
því að skora 6 síðustu stig liðsins.
Bandaríska stúlkan Betsy Harris lék
mjög vel með Breiðabliki og sagði
Einar Bollason körfuboltasérfræð-
ingur að hún væri svo góð að hún
gæti þess vegna spilað á meðal karl-
manna. Bæði liðin eiga örugglega
eftir að verða í toppbaráttunni í vet-
ur.
„Ég er mjög ánægður. Þetta er góð
byrjun og eykur sjálfstraustið hjá
stelpunum. Kvennakarfan lofar góðu
í vetur og verður örugglega þræl-
spennandi," sagði Sigurður Hjör-
leifsson, þjálfari Blika, eftir leikinn.
„Við erum ekki búin að æfa nema
viku saman. Það hafa verið nokkrar
stelpur í fótboltanum. Þetta er breytt
liö sem ég er með núna og ég hef trú
á að þessi tvö lið ásamt KR, Grinda-
vík, Njarðvík og ÍR eigi eftir að
blanda sér í toppbaráttuna í vetur,“
sagði Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflvíkinga, eftir leikinn.
Stig Breiðabliks: Betsy Harris 31,
Hanna Kjartansdóttir 14, Inga Dóra
Magnúsdóttir 11, Elísa Vilbergsdóttir
6, Hildur Ólafsdóttir 6, Birna Val-
garðsdóttir 5.
Stig Keflavíkur: Anna María
Sveinsdóttir 30, Erla Þorsteindóttir
13, Erla Reynisdóttir 12, Björk Haf-
steinsdóttir 4, Kristín Þórarinsdóttir
4, Guðlaug Sveinsdóttir 3, Ingibjörg
EmOsdóttir 2.
Þakklát öllum sem
að þessu stóðu
„Við finnum að þjóðin stendur meö
okkur og börnunum okkar. Þetta er
einn liðurinn í því að styrkja þau
börn sem þurfa á þessu að halda. Við
erum geysilegá ánægð með alla fram-
kvæmdina og getum ekki sett út á
nokkurn skapaðan hlut. Við erum
þakklát öflum sem aö þessu stóðu,“
sagði Benedikt Axelsson, formaður
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna.
Sænska knattspyrnan:
Ósigur hjá Örebro
Eyjólftir Harðarsan, DV, Sviþjóð:
Örebro tapaði fyrir Degerfors,
2-1, í sænsku úrvalsdeOdinni 1
knattspyrnu um helgina. Arnór
Guðjohnsen og Hlynur Stefánsson
voru bestu menn Örebro í leOcnum
en Hlynur Birgisson var ekki í leik-
mannahópnum að þessu sinni.
Örniur úrslit urðu þau að Malmö
tapaði fyrir Norrköping, 1-3, Hels-
ingborg vann 2-3 sigur á Frölunda
og Halmstad tapaði fyrir Trelleborg
1-2.
Helsingborg er efst með 38 stig,
Gautaborg og Djurgárden eru með
34 en þau eiga leik tO góða, Halm-
stad er meö 33, Örebro 30 og Ör-
gryte 30.
Hateley í úrvalsdeildina
QPR hefur keypt Mark Hateley,
fyrrum landsliðsmann Englands í
knattspyrnu, fyrir 1 mOljón punda.
Hateley skrifar undir hjá Lundúna-
liðinu í dag og verður með gegn Tott-
enham í kvöld. Hann hefur leikið
með Glasgow Rangers í Skotlandi
undanfarin 5 ár en lék þar áður með
Monaco og AC Milan. Ellefu ár eru
síðan Hateley lék síðast með félagi á
Englandi en hann lék þá meö
Portsmouth og hann hefur aldrei
áður spOað í efstu deild ensku knatt-
spyrnunnar.