Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1995, Blaðsíða 2
16 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 sJbönd The Shawshank Redemption Aðalhlutverk: Tim Robbins ogMorgan Freeman Myndin segir frá bankamanninum Andy Du- fresne sem árið 1947 er dæmdur saklaus í tvöfalt lífstíðarfangelsi iyrir morð á eiginkonu sinni og elskhuga hennar. Andy tekur ut refsingu sína í Shawshank öryggisfangelsinu oger um flestólík- ur öðrum föngum. Hann eignast þó góðan vin, „reddarann“ Red sem situr einnig inni fyrir morð. Ásamt félögum sinum takast þeir Andy og Red á við lifið innan fangelsismúranna og Andy varðveitir það mikilvægasta sem manns- sálinni er gefið; vonina. ZJustCause Aðalhlutverk: SeanConnery, Laurence Fishburne og BlairUnderwood Paul er virtur lagaprófessor sem berst fyrir af- námi dauðarefsinga. Hann fær áhuga á 8 ára gömlu morðmáli í Flórída-iylki en sá dæmdi bíður þess nú að verða tekinn af lífl. Fanginn heldur fram sak- leysi sínu. Paul freistar þess að finna nýjar sannan- ir og heldur til Flórída. Þar mætir honum mikil andspyma. Bráðlega fara óhugnanlegar staðrejmdir málsins og nýjar upplýsingar að grafa um sig í huga hans og hann flækist í margslunginn vef blekkinga og svika sem ógna sannfæringu hans, fiölskyldu og að lokum lífi hans. 30ropZone Aðalhlutverk: Wesley Snipes, Yancy Butler og Gary Bushey Lögreglumönnunum Pete Nessip og bróður hans Terry er falið að fylgja dæmdum tölvusnill- ingi í fangelsi. Farkosturinn er þota í áætlunar- flugi. Sprenging verður um borð og gat myndast á skrokk vélarinnar. Út um það hverfa m.a. Terry og fanginn. Fjölmiðlum er sagt að um hermdar- verk hafi veriö að ræða. Nessip er viss um að tilgangurinn hafi verið sá að frelsa fangann. í kjölfariö er hann leystur frá störfum en um leið hefur hann rannsókn upp á eigin spýtur, staðráð- inn í aö finna þá sem eru ábyrgir fyrir dauða bróður hans. 4The Rlver Wild Aðalhlutverk: Meryl Streep, Kevin Bacon ogDavid Strathairn Hjónin Gail og Tom fara með ungum syni sín- um 1 ævintýrasiglingu niður fljót í miðjum óbyggðum. Þau sigla í rólegheitum á gúmbát og njóta náttúrufegurðarínnar þar til þau hitta fyrir hóp manna sem í fyrstu virðast venjulegir ferða- menn. En annað kemur á daginn og þeim verður ljóst að þau eru á valdi harðsvíraðra glæpa- manna sem svífast einskis. Líf þeirra er í hættu því að ef áin gengur ekki frá þeim munu glæpa- mennirnir gera það. Leon Aðalhlutverk: JeanReno, GaryOldman, Natalie Portnran og Danny Aiello heila fiölskyldu en einn úr fiölskyldunni, 12 ára stúlka, sleppur. Lögreglumaðurinn gerir sér grein fyrir að það þarf að þagga niður í henni en hún leggur á flótta. Hún hittir leigumorðingj- ann Leon og svo fer að hún fær húsaskjól hjá honum. Hann er sérvitur einfari og virðist vera hinn vænsti maður en i starfi sínu er hann mis- kunnarlaus. Ekki líður á löngu uns hann er far- inn H bera sig að. Myndbandalisti vikunnar ____V , n. c/rTI FYRRI VIKUR VIKA Á LISTA NÝ ■ 1 19. sept - 25. sept. '95 TITILL ÚTGEF. TEG. 2 2 4 I JustCause Warner-myndir Spenna ° 3 1 "r" i 4 ] Drop Zone J J ClC-myndir Spenna 4 3 IHi 6 RiverWild ClC-myndir Spenna i Sam-myndbönd j | ^T . 5 i 4 6 J i Leon j Spenna 6 5 4 Nell Háskólabíó Drama ; SÍÍKiÍSll !|T 7 6 ! 2 ! Quiz Show j Sam-myndbönd Drama 8 NÝ 1 Star Trek Generations ClC-myndir Spenna 9 8 2 Death and the Maiden Myndform Spenna 10 7 8 Terminal Velocity Sam-myndbönd Spenna 11 9 3 1 Blue Sky Skífan Spenna 12 12 9 Only You Skrfan Gaman 13 NÝ 1 ! Seperate Lives Sam-myndbönd Spenna 14 14 5 Road to Wellville Skrfan Gaman 15 NÝ 1 La Machine 1 Háskólabíó Spenna 16 10 4 In the Mouth of Madness Myndform Hrollur 17 11 4 Wagon's East Skifan Gaman 18 13 5 Höfuð upp úr vatni Háskólabíó Spenna 19 NÝ 1 1 Op Centre ) Myndform Spenna 20 16 With Honors Warner-myndir Gaman DV . *' t m Æ ílm Myndbandalistinn: Sekur eða saklaus Eftir aö sömu kvikmyndir hafa einokað efstu sæti myndbandalist- ans undanfamar vikur kemur fangelsisdramað The Shawshank Redemption á fleygiferð beint í efsta sætið. í öðru sæti er áfram önnur sakamálamynd, Just Cause. Þessar tvær kvikmyndir eru mjög ólíkar að gerð og uppbyggingu en eiga það þó sameiginlegt að fjalla báðar um fanga í fangelsum sem kunna að hafa verið dæmdir sak- lausir. Just Cause er sakamála- mynd í harðari kantinum en The Shawshank Redemption er hins vegar að mörgu leyti mjúk og þar kemur til sérlega góð persónusköp- un. Fjórar aðrar nýjar myndir koma inn á listann. í áttunda sæti er síð- asta Star Trek myndin: Star Trek: Generation, en þessi myndaflokkur er mjög vinsæÚ, hvort sem um er að ræða sjónvarpsseríu eða kvik- myndir. í þrettánda sæti er enn ein sakamálamyndin, Seperate Lives, þar sem James Belushi leikur einkalögreglumann sem fenginn er tíl að fylgjast með sálfræðingi, en það er sálfræðingurinn, sem er kona, sem sjálf ræður einkalögg- una. Franskar myndir eru sjald- séðar á listanum. Nú bregður svo við aö La Machine kemur inn á list- ann í fimmtánda sæti. í aðalhlut- verki er Gerard Depardieu. í nítj- Lögfræðingurinn Paul Armstrong (Sean Connery) yfirheyrir fjöldamorðingjann Blair Sullivan (Ed Harris). ánda sæti er svo spennumyndin OP Centre sem gerð er eftir sögu Tom Clancy. Nokkrar athyglisverðar kvik- myndir eru að koma út á mynd- bandi þessa dagana, þar ber fyrst að telja Disclosure, með þeim Mic- hael Douglas og Demi Moore í aðal- hlutverkum, en hún er gerð eftir skáldsögu Michaels Crichtons. Það eru Sam-myndbönd sem gefa út. Sam-myndbönd gefa einnig út The Nutcracker, sem er ný útgáfa af ballettinum fræga, og þar leikur meðal annarra Macauley Culkin. ClC-myndbönd gefa út I.Q, sem er gamansöm kvikmynd um tvö ung- menni og kynni þeirra af Albert Einstein. Aðalhlutverkin leika Meg Ryan, Tim Robbins og Walter Matt- hau. Immortal Beloved er athyglis- verð kvikmynd um tónskáldið Beethoven og ástina í lífi hans, Skifan gefur út. Þá má að lokum geta umdeildrar kvikmyndar, Go Fish sem lýsir á gamansaman máta lífi nokkurrar lesbískra kvenna. Háskólabíó gefur út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.