Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Page 5
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995 25 íþróttir íljaskolanum i gærkvöld og unnu sigur í mjög spennandi framlengdum leik. Stólarnir koma enn á óvart - lögðu Njarðvikinga í Ljónagryfjunni í hörkuleik Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; Hiö skemmtilega lið Tindastóls heldur áfram að koma á óvart í úr- valsdeildinni i körfuknattleik. í gær- kvöldi gerðu þeir sér lítiö fyrir og lögðu hið geysisterka lið íslands- meistara Njarðvíkinga, 85-88, í hörkuskemmtilegum leik í Njarðvík. Heimamenn, sem töpuðu ekki leik á heimavelh í fyrra, máttu játa sig sigr- aða á lokasekúndunni og fögnuður Stólanna var mikill eftir leikinn. Tindastólsmenn hafa sigraö í fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni. „í skýjunum eftir svona byrjun“ „Auðvitað er maöur í skýjunum eftir svona byrjun. Ég hef varla upplifað eins miklar sveiflur og voru í þessum leik. Mínir menn stóðu vel fyrir sínu,“ sagði Páll Kolbeinsson, þjálf- ari Tindastóls, eftir leikinn. Leik- menn Tindastóls fóru hreint á kost- um í byrjun ieiksins. Þeir breyttu stöðunni úr 6-5 í 6-23 og voru Njarð- víkingar sem smábörn í höndunum á Stólunum og virtist sem þeir væru hreinlega á taugum. Með hreint frábærri pressuvörn komust Njarðvíkingar aftur inn í leikinn og náðu aö laga leikinn sér í hag. Síðari hálfleikur var jafn og spennandi og stefndi í að Njarðvík- ingar ætluðu að hafa leikinn af. Stól- amir voru ekki á sama máli, náðu frábærum lokakafla. Það munaði mestu um að Rondey Robinson náði sér aldrei á strik og munar um minna. Friðrik Ragnarsson og Teitur Örlygsson léku þokkalega hjá Njarö- vík og Gunnar Örlygsson kom skemmtilega vel inn í leikinn. Tindastólsmenn hafa mjög gott fimm manna lið og átti Hinrik Gunn- arsson mjög góðan leik og hélt Rond- ey niðri. Torrey er að leika mun bet- ur en í fyrra. Pétur Guðmundsson, Ómar Sigmarsson og Lárus Pálsson áttu allir ágætan leik. „Slæmt að byrja á heimavelli með tapi“ „Þeir eru með hörkuleik og spiluðu mjög vel. Það var mjög slæmt aö byrja á aö tapa á heimavelli í okkar fyrsta leik,“ sagði Teitur Örlygsson hjá Njarðvík eftir leikinn. „Náðum að loka algerlega fyrir auðveldu skotin“ ÍA-KR (52-49) 88-101 9-11, 22-39, 27-36, 38-10, 44-44, (52-49), 61-61, 71-74, 83-91, 87-97, 88-101. # Stig Akraness: Milton Bell 24, Brynjar Karl Sigurðsson 18, Bjarni Magnússon 12, Haraldur Leifsson 11, Jón Þ. Þórðarson 8, Brynjar Sigurðsson 6, Sigurður E. Þórisson 5, Ðagur Þórisson 4. t Stig KR: Jonathan Bow 35, Ósvaldur Knudsen 17, Hermann Hauksson 16, Lárus Árnason 10, Ingvar Ormarsson 10, Óskar Kristjánsson 9, Atli Einarsson 4. Fráköst: Akranes 33, KR 32. 3ja stiga körfur: Akranes 6, KR 9. Dómarar: Kristinn Albertsson og Eggert Aðalsteinsson, dæmdu vel. Áhorfendur: Um 400. Maður leiksins: Jonathan Bow, KR. Næstu leikir í næstu umferð úrvalsdeildar á fimmtudaginn leika eftirtalin lið saman: Grindavík-Akranes, Keflavik-Njarðvík, Tindastóll- Breiðablik, KR-Þór, Haukar-ÍR og Valur-Skallagrímur. Allir leikimir hefjast klukkan átta á fimmtudagskvöld. Daniel Ókfsson, DV, Akranesd: „Við náðum að loka algerlega fyrir auðveldu skotin hjá þeim og loka vörninni á réttu augnabliki og ná tíu stiga forskoti. Óskar Kristjánsson kveikti í okkur í vörninni en hann átti mjög góðan leik,“ sagöi Axel Nikulássom, þjálfari KR-inga, eftir að KR hafði unnið góðan sigur hér á Akranesi gegn heimsmönnum. Loka- tölur urðu 88-101. „Maður er alltaf bjartsýnn fyrir hönd okkar KR-inga og ég held að í okkar riðli geti öll liöin unnið hvert annað. Það er alltaf erfitt að spila á móti Milton Bell og þetta er góður drengur," sagði Axel Nikulásson enn fremur. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en þó náðu KR-ingar 9 stiga for- skoti um tíma í fyrri hálfleik. Skaga- menn náðu að hrista af sér slenið og jafna metin. í seinni hálfleik byrjuðu heimamenn af miklum krafti með Brynjar Karl í fararbroddi en kraftur hans dugði ekki því KR-ingar lokuðu vörninni á réttu augnabliki. Ekkert gekk hjá Skagamönnum og KR-ingar gengu á lagið og sigruðu eins og áður sagði. Lið Akurnesinga á eftir að leika betur en gegn KR og munar miklu að Einar Þórisson hefur ekki náð sér eftir meiðsli. Bestir í liði Skaga- manna voru þeir Milton Bell, Brynj- ar Karl Sigurðsson og Haraldur Leifsson. Um KR-liðið er það að segja að það lék mjög vel og þá sérstaklega í vörn- inni. Bestir í liði KR voru þeir Jon- athan Bow, Ósvaldur Knudsen og Hermann Hauksson. lega hamingjusamur [avík eftir framlengdan leik í Seljaskólanum, 93-92 Arnarson einnig í miklu stuði í vel spi- landi liði heimamanna, en hann gerði 20 stig í hálfleiknum. Keflvíkingar mættu einbeittir til leiks í síðari hálfleik og voru fljótir að éta upp 6 stiga forskpt ÍR. Þeir komust síð- an yfir áður en ÍR-ingar áttuðu sig en næstu mínútur skiptust hðin á um að leiða. Lokamínútumar voru æsispenn- andi, ÍR-ingar þetta 2-5 stig yfir en Fal- ur Harðarson jafnaði með þriggja stiga körfu, 81-81. I síðustu sólui IR missti Herbert Arnarson boltann er hann steig út af vellinum en skot Jón Kr. á loka- sekúndunum fór ekki rétta boðleið. Framlengingin var æsispennandi, Ei- ríkur Önundarson kom ÍR-ingum yfir, 91-87, en Sigurður Ingimundarson og Guöjón Skúlason ininnkuðu muninn úr vítum, 91-90. Herbert svaraði 93-91 en Lenear Bums hitti síðan aðeins úr öðm vítaskoti sínu þegar 27 sekúndur I voru eftir. Herbert gaf langa sendingu fram sem Keflvíkingar komust inn í en skot Guðjóns á síöustu sekúndu fór ekki í körfuna og ÍR-ingar fögnuðu sigri. „Menn voru staðir í sókninni í síðari hálfleik og sóknin gekk því ekki upp. Undir lokin lékum viö of varfæmislega og þeir náðu að stela nokkrum sending- um. Við lentum í mjög erfiðum leik á fimmtudag, framlengdum leik sem við töpuðum og aftur framlengingu í kvöld. Þetta útheimtir mikla orku, 90 mínútur af hörkukörfubolta og menn verða þreyttir. Við lékum án Jóns Arnar sem var veikur í kvöld en Eiríkur stóð sig mjög vel og það er gott að geta stólað á hann. Ég vil þakka áhorfendum fyrir að koma og styðja við bakið á okkur þrátt fyrir tap í fyrsta leik,“ sagði Rho- des. Eiríkur stóö upp úr í hði ÍR, hélt haus allan leikinn. Herbert var mjög góður í fyrri hálfleik en sprakk í þeim síðari. Guðni Einarsson var góður í fyrri hálf- leik og Márus Arnarson skhaði mikil- vægu hlutverki af stakri prýði. Rhodes var frábær í fráköstunum en var orðinn nokkuð þungur í lokin og tvö víti í súg- inn hjá honum á ögurstund hefðu getað kostað sigurinn. IR-liðið á greimlega nokkuð í land þrátt fyrir þennan sigur en þegar allir eru komnir í sitt besta form verður erfitt að leggja þá í Selja- skóla. Guðjón Skúlason var bestur Keflvík- inga og Burns var sterkur að vanda. Falur átti góðan sprett í síðari hálfleik og Albert Oskarsson í þeim fyrri en fór síðan út af meiddur eftir hlé. Davíð Grissom hafði sig lítið í frammi eins og Jón Kr. sem átti þó góðan leik. •ÞREKTIMAR í HÁDEGINU ■ FITUBRENNSLA í HÁDEGINU • EINKAÞJÁLFUN FYRIR HÁDEGI ■ RÁÐGJÖF UM MATARÆÐI ..og svo á eftir - Ljós og Sauna íáttu sjáþig semjým Apmami Júdo GYM LkAMSRÆCT JÚDÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.