Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Page 7
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
23
Messur
Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Barnakór Árbæjar syngur. Guðsþjón-
usta kl. 14. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sóknarpresti. St. Georgsgildis
skátar koma i guðsþjónstuna.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
■ Guðsþjónusta kl. 14.00. Kirkjubíllinn ekur.
Kaffi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnss.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Samkoma Ungs fólks með hlutverk
kl. 20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Rangæ-
ingafélagsins syngur við guðsþjónustuna.
Kirkjukaffi Rangæingafélagsins. Pálmi
Matthíasson.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sunnudagaskóli á sama tíma.
Gunnar Sigurjónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur sr.
María Ágústsdóttir. Dómkórinn syngur.
Barnastarf i safnaðarheimilinu kl. 11 og f
Vesturbæjarskóla kl. 13. Messa kl. 14.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkór-
inn syngur.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Ferming 'og altarisganga. Fermd verður
Þórhildur Maria Kristinsdóttir, Keilufelli 3.
Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Barnaguðs-
þjónusta á sama tíma. Prestarnir.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11 I kirkjunni og 12.30 I Rimaskóla.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Fundur með for-
eldrum fermingarbarna úr Foldaskóla eftir
guðsþjónustuna. Prestarnir.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11.
Messa kl. 14. Kynning á fermingunni.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra komi til
messu. Prestar Halldór S. Gröndal og sr.
Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl.
11.00. Helgistund i Víðihlíð kl. 12.45.
Barnakórinn syngur. Guðsþj. kl. 14.00.
Fermingarbörn aðstoða.
Hallgrimskirkja: Fræðsluerindi kl. 10.
Þegar maður missir tökin. Um örvæntingu.
Sr. Jón Bjarman. Barnasamkoma og
messa kl. 11.00. Drengjakór Grimsby Par-
ish Church syngur. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Kl. 17.00 tónleikar, drengjakór
Grimsby Parish Church syngur.
Háteigskirkja: Kl. 11. Barnaguðsþjón-
usta. Messa kl. 14. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
Hjallakirkja: Safnaðarfélag Hjallakirkju
efnirtil messuheimsóknar í Digraneskirkju.
Áætlað er að fara fótgangandi frá Hjalla-
kirkju kl. 10.30 ef veður leyfir. Messa hefst
kl. 11 I Digraneskirkju. Sóknarprestar
kirknanna þjóna. Kór Digraneskirkju syng-
ur. Barnaguðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 13.
Kristján Einar Þorvarðarson.
Keflavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11
árd. Þema: Jesús læknar. Starfsmenn:
Málfríður, Ragnar, Laufey, Eva, Bryndís,
Guðmunda, Ólína og Ölöf. Foreldrar eru
hvattir til að sækja kirkju með börnum sln-
um. Munið skólabílinn. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Vænst er þátttöku ferm-
ingarbarna og foreldra þeirra. Prestur:
Sigfús Baldvin Ingavason.
Kirkja Óháða safnaöarins: Messa og
barnastarf kl. 14. Kaffi og meðlæti.
Kópavogskirkja: Barnastarf i safnaðar-
heimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Arni Eyjólfsson
héraðsprestur. Kór Kópavogskirkju syngur.
Guðsþjónustunni verður útvarpað. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10.
Langholtskirkja.Kirkja Guðbrands bisk-
ups: Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Kór Langholtskirkju (hópur V).
Barnastarf á sama tíma. Kaffi eftir messu.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11.00.
Væntanleg fermingarbörn aðstoða. Barna-
starf á sama tima. Félagar úr Laugarnes-
kirkju syngja. Guðsþjónusta kl. 141 Sjálfs-
bjargarhúsinu, Hátúni 12. Ólafur Jó-
hannsson.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Kór Melaskóla syngur. Guðs-
þjón., kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson.
Innri-Njaróvikurkirkja: Guðsþjónusta
22. okt. kl. 14.00. Haldið verður upp á 20.
ára vigsluafmæli Safnaðarheimilis Innri-
Njarðvikurkirkju. Helga Óskarsd. með-
hjálpari kvödd. Sr. Björn Jónsson prédik-
ar. Nemendur úr Tónlistarskóla Njarðvík-
ur. Afmælishátíð framhaldið í safnaðar-
heimili. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudskóli 22. okt. kl. 13. Baldur Rafn
Sigurðsson.
Ytri-Njarðvikurkirkja: Sunnudagaskóli
22. okt. kl. 11.00. Baldur Rafn Sigurðss.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Barnakór Seljakirkju syngur. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Valgeir Astráðsson prédik-
ar. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Pró-
fastur, sr. Ragnar Fjalar Lárusson, setur sr.
Hildi Sigurðard. inn i embætti. Sr. Solveig
Lára Guðmundsd. Barnastarf á sama tima.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00.
Kvennaráðstefnan í Kína vakti athygii um heim allan nýverið en myndin hér að ofan er einmitt tekin á henni. A
haustvöku K.í. á morgun verður fjallað um þessa sömu ráðstefnu en forseti sambandsins segir frá för sinni á hana.
Haustvaka Kvenfélaga-
sambands íslands
„Ég var á óopinberu ráðstefnunni
í Kína í haust og ætla að segja frá
minni upplífun og reynslu frá henni.
Ég sótti þarna marga áhugaverða
fundi og æfla að segja frá þeim og
einnig hvað ég tel hafa áunnist með
þessari ráðstefnu. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég kom til Kína og ég varð
afskaplega hrifin, bæði af landinu og
fólkinu. Ég heimsótti líka kínverska
kvenfélagasambandið, sem eru mjög
öflug samtök," segir Drífa Hjartar-
dóttir, forseti Kvenfélagasambands
Útivist:
Gengið í
Húshólma
Á sunnudaginn efnir Útivist til
dagsferðar fyrir alla fjölskyldima
og verður lagt af stað kl. 10.30 frá
BSÍ, bensínsölu.
Gengið verður niður í Hús-
hólma, gömlu Krísuvík og skoð-
aðar sérstæöar minjar um byggð
í Ögmundarhrauni sem fór undir
hraun á síðari hluta tólftu aldar
aö því er talið er.
Tónleikar
í Njarð-
víkur-
kirkju
Karlakór Akureyrar/Geysir
heldur tónleika í Njarövíkur-
kirkju á morgun kl. 16 og í Borg-
arneskirkju á sunnudaginn kl. 16.
Söngskrá kórsins er fjölbreytt,
lög eftir innlenda sem erlenda
höfunda. Einsöngvari með kóm-
um er barítonsöngvarinn Micha-
el J. Clarke, stjórnandi Roar
Kvam og undirleikari Richard
Simm. í kvöld tekur karlakórinn
þátt í eyfirsku kvöldi á Hótel ís-
landi en frá því er sagt annars
staðar í blaðinu í dag.
íslands, en sambandið heldur haust-
vöku sína á Grand Hótel í Reykjavík
á morgun. Yfirskrift hennar er
„Mannréttindi - hagur fjölskyldunn-
ar“ en Drífa er einn framsögumanna
og talar um kvennaráðstefnuna í
Kína eins og fyrr segir.
Haustvakan veröur annars sett í
fyrramálið kl. 9.30 og síðan taka við
fyrirlestrar fram til hádegis en í hópi
fyrirlesara er Friðrik Sophusson
íjármálaráðherra. Erindi Drifu
Hjartardóttur er að loknum hádegis-
verði og síðan segja nokkrir einstakl-
ingar frá reynslu sinni af störfum
sem teljast hefðbundin kvenna- eða
karlastörf. Þetta eru þau Rannveig
Guðmundsdóttir alþingismaður,
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR, Árni
Garðarsson, leikskólastjóri á Vestur-
borg, og Rannveig Rist, verkfræöing-
ur hjá Álverinu.
Haustvakan er öllum opin en um
kvöldið verður kvöldvaka í Skíða-
skálanum í Hveradölum sem er ein-
göngu æfluö félagsmönnum.
Ljóöatónleikar í Gerðubergi
Ljóðatónieikar hafa verið fastur
hður í starfsemi Menningarmið-
stöðvarinnar Geröubergs allt frá ár-
inu 1988. Á fyrstu tónieikunum í vet-
ur, sem haldnir verða á morgun kl.
17, flytur Rannveig Fríða Bragadóttir
messósópran íslensk sönglög við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar
píanóleikara.
Á efnisskránni eru lög eftir mörg
okkar þekktustu tónskáld, m.a. Jón
Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Sigfús
Einarsson, Jórunni Viðar, Jón Nord-
al og Hjálmar H. Ragnarsson. Auk
þess syngur hún íslensk þjóölög. Hér
kveður við rammíslenskan tón og
gefa tónleikamir góða mynd af ís-
lenskri sönghst aUt frá þjóðlögum til
verka tónskálda samtímans.
Ráðstefna í HÍ:
íslenskar kvennarannsóknir
Um helgina býður Rannsóknar-
'stofa í kvennafræðum við Háskóla
íslands til ráðstefnu um íslenskar
kvennarannsóknir. Ráðstefnan
verður haldin í Odda, hugvísinda-
húsi Háskólans. Efni ráðstefnunnar
er afar íjölbreytt: fræðilegir fyrir-
lestrar, erindi úr kvennabaráttunni
og umræður um kvennaráðstefnurn-
ar í Kína.
Ráðstefnan verður sett í Odda í
kvöld kl. 20.30 og heldur síðan áfram
á laugardag og sunnudag frá kl. 9-17.
Aðgangur er ókeypis en öllum er
heimil þátttaka.
Hvammstangakirkja:
Tónlistarmenn frá fjórum löndum
Tónhstarfélag Vestur-Húnvetn-
inga efnir tíl tónleika í Hvamm-
stangakirkju á morgun kl. 14 en þar
koma fram tónhstarmenn frá fjórum
löndum. Þetta eru þeir HUmar Örn
Agnarsson, organisti í Skálholti, Pet-
er Tompkins, óbóleikari frá Eng-
landi, Michael HUlenstedt, gítarleik-
ari frá Þýskalandi, og Mette Ras-
mussen, flautuleUiari frá Danmörku.
Þau ætla að flytja verk eftir Bach,
Hándel og ýmis önnur tónskáld.
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni
fimmtíu ára afmæhs SÞ og árs um-
burðarlyndis og friöar.
Handbolti:
Nissandeildin
Selfoss-FH......Skl. 20.00
ÍR-KA...............Skl. 20
Haukar-Stjarnan..S kl. 20.00
Valur-KR.............S kl. 20
Afturelding-Grótta.S kl. 20.00
Vikingur-lBV.......S kl. 20.00
2. deild karla
Fjölnir-ÍH.........Lkl. 16.00
Þór-BreiðabUk......L kl. 13.30
BÍ-HK..............Lkl. 13.30
Ármann-Fylkir......S kl. 20.00
Körfubolti:
1. deild kvenna
ÍR-ÍS..............Fkl. 20.00
ÍA-Keflavík........Lkl. 15.30
Grindavík-KR.......L kl. 14.00
Valur-Njarðvík.....Lkl. 14.00
UBK-TindastóU......L kl. 16.30
l.deild karla
Reynir-Höttur.....Fkl. 20.00
KFÍ-Snæfell........Lkl. 13.30
Stjarnan-Höttur...S kl. 15.00
Selfoss-Leiknir...S kl. 20.00
Öskjuhlíðarhlaup
Öskjuhfíðarhlaup ÍR fer fram á
laugardaginn og hefst kl. 14.
Hlaupiö er frá Perlunni og eru
vegalengdimar 4 km og 7,6 km.
Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu
þrjá í hverjum aldursflokki.
Badminton
Liðakeppní TBR í badminton
verður haldin i húsum TBR á
laugardag og sunnudag. Kepp-
endum verður skipt í allt að sex
lið. Keppt verður í einliðaleik og
tvíliðaleik. Keppni hefst klukkan
13 á laugardag og verður fram-
haldið klukkan 10 á sunnudag-
inn.
Ferðafélagið:
Gengið
á Keili
Á sunnudaginn veröa tvær
dagsferðir hjá Feröafélaginu og
er brottfór í þær kl. 13.
Annara vegar er ganga á Keili
og hins vegar auðveldari ganga
aö Sogaselsgig og Selsvöllum.
Brottfór er frá BSÍ, austanmeg-
in, og Mörkinni 6.
Kynning hjá
Félagsmála-
stofnun
„Þjónusta og úrræöi" er yfir-
skrift kynningar á starfsemi Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar sem fram fer á nokkrum
starfstöðvum stofnunarinnar á
sunnudaginn frá kl. 13-17.
Eftirtaldar starfsstöövar verða
opnar: aðalskrifstofur, öldrunar-
þjónustudeild og hverfisskrif-
stofa í Síöumúla 39, hverfaskrif-
stofa og skrifstofa unglingadeild-
ari Skógarhlið 6, hverfaskrifstofa
og skrifstofa heimilishjálpar i
Álfabakka 12, aðstaða útideildar
í Tryggvagötu 12 og félags- og
þjónustumiðstöðvar aidraöra að
Aflagranda 40, Vesturgötu 7,
Lindargötu 59, Bólstaöarhlíö 43,
Hvassaleiti 58, Norðurbrún l og
Seljáhlíö, Hjallaseli 55.
í Síðumúla 39 verður fluttur
fyrirlestur um bamavemdarmál
kl. 14 en á mánudaginn verður
opinn fundur félagsmálaráðs
haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur
kl. 17.