Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Side 3
J3"V LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
fréttir 35
Innfæddir reyna að selja bastkörfur, hatta og boli og það er lítið mál að prútta.
Bahamaeyjar:
Reyna að trekkja að ferðamenn
- íslendingar því kærkomnir gestir
„Þjóðverjar, Bretar, Kanada- og
Bandaríkjamenn hafa verið fjöl-
mennustu ferðamenn okkar á und-
anfomum árum. Við höfum þó heldur
átt í vök að veijast þar sem þessir
hópar sækja nú frekar til mið-Banda-
ríkjanna á kúrekaslóðir, það gera bíó-
myndirnar,“ sagði Jan Pittard, mark-
aðsstjóri Marriot hótelsins á Bahama-
eyjum, í samtali við DV. Hann bætti
því jafnframt við að innfæddir fógn-
uðu mjög komu íslendinga þvi um
leið væri nýr markaður að opnast.
„Við höfum ekki séð mikið af Norð-
ur-Evrópumönnum hér en Japönum
er alltaf að fjölga,“ sagði Jan.
Nú stefnir í að allt að tvö þúsund
íslendingar heimsæki Bahamaeyjar
fyrir jólin. Fyrsti hópurinn, tæplega
fimm hundruð manns, héldu utan 12.
október sl. með Boeing 747 breiðþotu
Atlanta flugfélagsins. íslendingarnir
dvöldu flestallir á Marriott hótelinu
sem hefur 867 herbergi og er sam-
byggt stærsta spilavítinu í öllu
Karíbahafinu.
Ekki ferða-
mannatími
Á Bahamaeyjum er ferðamanna-
tímabil frá desember og fram í apríl.
í september og október er rigninga-
tímabO og þá er ekki mikið um ferða-
menn á þessum slóðum utan þeirra
sem koma með skemmtiferðaskipum
og dvelja daglangt. Þó er nokkuð vin-
sælt að Kanadamenn komi í helgar-
ferðir enda munu þær bjóðast á góðu
verði á þessum árstíma.
Það eru 700 eyjar sem tilheyra Ba-
hama. íslendingamir bjuggu á eyju
sem nefnist New Providence en þar
er höfuðborgin Nassau. íbúar á öllum
eyjunum eru um 260 þúsund og um
helmingur býr á New Providence.
Bahama er stutt frá Kúbu en þó
koma flóttamenn ekki þaðan. Hins
vegar hafa eyjurnar tekið við all-
mörgum flóttamönnum frá Haiti.
Flórída er aðeins í um 97 km fjarlægð
frá Bahama og þangað sækja inn-
fæddir í verslunarleiðangra. Einnig
hafa þeir verið upp á Miamibúa
komna varðandi alvarleg slysatilfelli
þar sem sjúkrahús eru ekki nægilega
fullkomin á eyjunum.
Engir fell ibyljit
Það er mjög sjaldgæft að fellibyljir
komi yfir eyjarnar og í nýlegum
fréttum leggja eyjabúar mikið upp
úr því til að laða að ferðamenn. Þeir
hafa reyndar fengið heimsfrægar
stjömur eins og Barry White og Julio
Iglesias í hð með sér til að kynna
eyjarnar. Ákveðið hefur verið að
leggja 14 milljónir dala í að markaðs-
setja Bahamaeyjar á næstunni.
Fyrir ferðamenn er ýmislegt að
gera á Bahama. Sóhn er heit og
sömuleiðis sjórinn sem auk þess er
tandurhreinn. Þeir sem ekki nenna
að liggja við ströndina geta farið á
sæþotu, í golf, fiskveiðar eða köfun.
Nú er tœkifœri á EINSTAKRI...
...FÓTBOLTAFERÐ TIL
NEWCASTLE
Sérstök ferð á leik NEWCASTLE UNITED
og BLACKBURN ROVERS 6.-9. nóv.
Verðið er kr. 25.500 á mann
ítveggja manna herbergi.
INNIFALIÐ ER:
Flug, glsling, morg-
unverðut, lerð III
og frá flugvelli,
miðl á lelkinn,
kvöldverður á
griskum veltinga-
stað, skoðunar-
letð á leikvang
guðanna
St. James Park, ísl.
lararstjóm og flug-
vallaskaltar.
TAKMARKAÐUR
SÆTAFJÖIDI.
BÆJARHRAUNI 10,
SÍMI 565 2266
Þessi ungi drengur fékk að fara með foreldrum sinum til Bahama og naut sín í heitum sjónum.
Mest er lagt upp úr fiskveiöunum
enda er rík áhersla lögð á sjávarrétti
á matseðlum veitingahúsa. Fiskmet-
ið er nýtt og ferskt og þvi vel hægt
að mæla með því.
Rúmlega 80% íbúanna eru svart fólk.
Aðahifibrauð þessa fólks eru ferða-
menn og þeir leggja mikla áherslu á
að þeir selji guh, ilmvötn og áfengi á
tollfrjálsu verði. Áfengi og ilmvötn er
aðeins ódýrara en í fríhöfninni í Kefla-
vík. Hins vegar er áfengi á börum, bjór
og skrautlegir líkjörar eins og Pina
Colada og Bahama Mama á 4,50-5 dah.
Matur á veitingahúsum er frekar dýr
fannst íslendingunum í ferðinni en
menn geta borðað hamborgara eða
annað skyndifæði fyrir htinn pening
kjósi þeir svo.
í miðbæ Nassau hafa sölumenn
komið sér vel fyrir með alls kyns
Bahama-boli á allan aldur, basthatta
og körfur. Þá voru blökkukonurnar
iðnar við að setja perlufléttur í ís-
lenskar konur og karla.
Langt frá raunvirði
í þvi veðri sem hér hefur ríkt að
undanfórnu er ekkert skrítið að ís-
lendingar sæki í heita sól, strönd og
sjó og það fyrir hlægilega lítinn pen-
ing. Að sögn Arngríms Jóhannsson-
ar hjá Atlanta er raunvirði þessarar
ferðar um 120 þúsund krónur en hún
er seld á tæpar fjörutíu þúsund. Sólin
Bahama er þó mun sterkari en
Evrópusól og ættu væntanlegir far-
þegar að hafa meðferðis nægilega
mikið af sterkum sólarvörnum, ann-
ars er hætt við að illa fari.
Bahama er vissulega sólarströnd
þar sem hægt er að slappa af og njóta
lífsins lystisemda. Næturklúbbareru
nokkrir þar sem dansað er fram til
morguns en tónlist heimamanna er
mjög fjörug og skemmtileg. Spilavítið
heillar óneitanlega en það getur ver-
ið jafngaman að fylgjast með lífinu
þar eins og að leggja undir. í spilavít-
inu mátti sjá margan furðufuglinn
dæla smámynt úr peningakössum en
síðan komst maður að því að þetta
voru leynistarfsmenn sem ætlað er
að trekkja gesti í kassana.
Reyklaustflug
Það er tæpra átta tíma flug til Ba-
hamaeyja og íslensk lög heimila ekki
reykingar í flugvélum þannig að
margir farþeganna sem reykja,
höfðu plástrað sig í bak og fyrir til
að þola ferðina. Það vakti athygli að
eftir þetta langt flug, jafnt á útleið
sem heimleið, sást ekki vín á nokkr-
um manni. Sannarlega af sem áður
var.
Bahamaeyjar eru nýr valkostur
fyrir íslendinga í ferðahugleiðingum.
Það er ekkert hægt að versla á Ba-
hamaeyjum eins og menn gera í Du-
blin eða Glasgow en staðurinn er
kjörinn til afslöppunar og hvíldar.
Menn koma heim glaðir og vel hvíld-
ir - og beint í vetrarkuldann.
Elín Albertsdóttir
Tregar
samgöngur
Borist hafa fregnir af því að
ferðalög innan Indónesíu séu erf-
iðleikum bundin. Ferðamenn
hafi oft verið strandaglópar í allt
að tvo daga í bið eftir flugi milli
áfangastaða. Indónesía er geysi-
lega víðlent ríki og mestu fjar-
lægðir milli staða innanlands eru
á við flugleiðina milli London og
Kairó.
Vatnaveröid
Universal
Universal
kvikmyndafyr-
irtækið opnaði í
síðustu viku í
Hollywood
skemmtigarð-
inn Water-
World.
Skemmtitækin
í þeim garði draga dám af kvik-
myndinni Vatnaveröld sem er
dýrasta kvikmynd sögunnar. Að-
standendur skemmtigarðsins
lofa því að tækin í þessum garði
taki fram tækjum í öllum öðrum
vatnaskemmtigörðum.
Vetraráætlun
Flugleiða
Vetraráætlun Flugleiða tekur
gildi á morgun. í vetur verður
daglegt flug til London og tíðni
flugs til Baltimore verður aukin
úr 4 í 5 sinnum á viku. Flug til
Kanaríeyja verður vikulega frá
20. desember í vetur en áður var
aðeins flogið í samræmi við bók-
anir.
Röskun vegna
veðurs
Veðurraskaði
innanlands-
flugi Flugleiða
meira í sumar
en mörg und-
anfarin ár. Alls
þurfti að fella
niður 182 ferðir
sem er 12% af heildaráætlun. í
fyrra féllu niður 75 ferðir sem er
4% af áætlun. Flug til Vest-
mannaeyja raskaðist meira en
menn rekur minni til að áður
hafi gerst.
Töflur á bann-
lista
Melatonin-töflur, hormónarnir
sem notaðir hafa verið til að
koma í veg fyrir ,jet lag“ (flug-
þreytú vegna truflunar á dægur-
sveiflu líkamans) hafa verið
bannaðar í Bretlandi. Þarlend
heilbrigðisyfirvöld vilja hafa vað-
ið fyrir neðan sig vegna orðróms
um hugsanleg skaðleg áhrif
hormónsins.