Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Starfsmenn sorpbrennslunnar Funa á ísaflrði grunlausir um snjóflóðahættu:
Spurt um ábyrgð þeirra
sem réðu staðsetningu
- verktakar við byggingu stöðvarinnar reknir út vegna snjóflóðahættu
„Við vorum algjörlega granda-
lausir fyrir þvi að húsið stæði á
hættusvæði. Okkur var aldrei sagt
frá þvi að þarna væri snjóflóða-
hætta. Það var þó vitað og verktak-
ar voru á byggingartíma stöðvarinn-
ar reknir út vegna snjóflóðahættu,"
segir Þorlákur Kjartansson, stöðvar-
stjóri sorpbrennslunnar Funa á ísa-
firði, sem eyðilagðist í snjóflóði fyr-
ir nokkru.
Þegar snjóflóðið skall á sorp-
brennslunni björguðust þeir tveir
starfsmenn sem þar voru við vinnu
naumlega og nánast fyrir þá tilvilj-
un að þeir voru ekki á vinnusvæði
sínu. Þorlákur féllst á að ræöa þetta
mál við DV og segist mæla fyrir
munn allra fjögurra starfsmann-
anna sem séu samstiga í öllum að-
gerðum sínum. Auk hans störfuðu
við sorpbrennsluna þeir Bjarki Rún-
ar Skarphéöinsson, Skúli Skúlason
og Guðmuhdur Sigurðsson.
„Við höfum velt því fyrir okkur í
hvaða hættu við vorum allan þenn-
an tíma og hver sé ábyrgð þeirra
sem stóðu að byggingu stöðvarinnar
á þessum stað, vitandi það að þama
var snjóflóðahætta. Þeim hafði verið
greint frá því en við vorum aldrei
látnir vita af hættunni þegar við
vorum ráðnir í þessar stöður. Viö
veltum því nú fyrir okkur hver sé
réttur okkar,“ segir Þorlákur.
Hann segir að það hafi ekki að-
eins verið starfsmenn Funa sem
voru í hættu heldur allir þeir mörgu
Stuttar fréttir
Rýmkun á lögum
Lög um óbeina erlenda eigna-
raðild aö útgeröar- og fisk-
vinnslufyrirtækjum verða
rýmkuö, samkvæmt tillögum
nefndar um það mál. Þá verður
útlendingum heimilað að eígn-
ast orkufyrirtæki. RÚV greindi
frá þessu.
Villimenn í Landsvirkjun?
Össur Skarphéöinsson, fyrr-
verandi umhverfisráðherra,
sagði á Alþingi í gær að Lands-
virkjunarmenn höguðu sér oft
eins og villimenn gagnvart lífrí-
kinu.
Kínverjar vilja álver
Kínversk sendinefnd er vænt-
anleg til landsins til að skoða
möguleika á því að reisa álver á
íslandi. Samkvæmt frétt Mbl.
verða Kínveijarnir hér í viku.
Hrein ögrun
Emma Bonino, sjávarútvegs-
stjóri Evrópusambandsins, segir
það hreina ögrun ef Norðmenn
og íslendingar munu krefjast
allt að 80% kvótans í Síld-
arsmugimni. RÚV greindi frá
þessu.
Neysluvísitala lækkar
Vísitala neysluverðs lækkaöi
tun 0,3% milli október og nóv-
ember en það jafngildir 4% verð-
hjöðnun á ársgrundvefli.
Enn lækka vextir
Vextir á spariskírteinum í út-
boði Lánasýslunnar í gær héldu
áfram að lækka. Meðalávöxtun
samþykktra tilboða í 20 ára skír-
teini var 5,49% sem er hálfu pró-
sentustigi lægra en fyrir þremur
vikum.
-bjb
Þeir félagar fóru fyrst afl velta málinu fyrir sér eftir að hafa séfl mynd í Vestfirska fréttablaðinu þar sem sást að snjó-
flóð höfðu víða fallið úr hlíðinni ofan vifl Funa. Það kom þeim þó mest á óvart að lesa það að blaðið hafði á sínum
tíma verið beðifl um að birta ekki myndina þar sem slfkt gæti valdið óróa. DV-mynd Hlynur
Staðfest snjóflóðahættumat fyrir ísaQarðarkaupstað:
Hættulínan liggur langs-
um um hjónarúmið
- konan á rauðu svæði en karlinn á gulu
bæjarbúar sem áttu erindi í sorp-
brennsluna og á gámasvæðið hjá
henni.
„Það erum ekki bara við heldur
allflestir bæjarbúar sem eiga erindi
og þama er stanslaus umferð á sorp-
losunarsvæðiö og fólk í einhverjum
tilvikum lagt í hættu,“ segir Þorlák-
ur.
Hann segir að þeir félagar hafi
fyrst farið að velta málinu fyrir sér
eftir að hafa séð mynd i Vestfirska
fréttablaðinu þar sem sást að snjó-
flóð höfðu víða fallið úr hlíðinni
ofan við Funa.
„Það kom okkur þó mest á óvart
að lesa það að blaðið haföi á sínum
tíma verið beðið um að birta ekki
myndina þar sem slíkt gæti valdið
óróa,“ segir hann. Sorpbrennsla ís-
firðinga fer nú fram í gömlu sorp-
brennslustöðinni á Skarfaskeri. Það
eru þó ekki starfsmenn Funa sem
starfa þar heldur starfmaöur bæjar-
ins.
Hann segir að mönnum þyki hart
að þurfa skömmu eftir snjóflóðið að
sæta þvi að vera sagt fyrirvaralaust
upp störfum.
„Rétt eftir að menn skríöa út úr
snjóflóðinu er þeim rétt uppsagnar-
bréf án nokkurra skýringa. Þama
misstu menn eigur á borð við bíla
og fleira og það er enn ekki farið að
ræða við nokkum okkar um bætur
vegna þess nú hálfum mánuði síð-
ar,“ segir Þorlákur. -rt
„Þetta er hálfskondið. Það er
dregin lína þvert yfir svefnherberg-
ið og stofan er að hluta á gulu
svæði. Línan liggur langsum yfir
hjónarúmiö þannig að konan er á
rauöu svæði en ég á gulu. Maður
verður væntanlega að hnippa í hana
og segja henni að velta sér yfir á ör-
uggt svæði,“ segir Halldór Svein-
bjömsson, íbúi að Seljalandi 21 á
ísafirði.
Halldór, sem býr þar ásamt sam-
býliskonu sinni, Helgu Einarsdótt-
ur, og tveggja ára dóttur þeirra,
Hildi Maríu, fékk í hendur staðfest
hættumat vegna snjóflóða í vikunni
þar sem fram kemur aö hluti húss
hans er á rauðu svæði en hinn hlut-
inn á gulu svæði. Hús Halldórs er
nýlegt og á svæði þar sem nýbygg-
ingar hafa risið undanfarin ár.
Stærstur hluti svæðisins er nú á
hættusvæði ásamt stórum hluta
byggöar í Hnífsdal sem lendir ýmist
inni á rauöu eða grænu svæði. Hall-
dór segir það ekki óvænt að lenda
inni á skilgreindu hættusvæði.
„Maður vissi hálfþartinn af þvi aö
það væri yfirvofandi að hús mitt
lenti inni á rauðu svæði. Það er
ákveðinn léttir að þetta skuli nú
vera komið á hreint og það er þá
ljóst að eitthvað verður gert. Áður
var maður í óvissu," segir Halldór.
Hann segist álíta að næg þekking
á snjóflóðavömum sé til staðar til
að veija svæöið sem hús hans stend-
ur á og hann geri því ekki kröfu um
að hús hans verði keypt upp.
„Það verða gerðar kröfúr um úr-
bætur en ég krefst ekki uppkaupa.
Ég sé fyrir mér að það verði settar
upp vamir þarna fyrir ofan og
þannig tryggt öryggi íbúanna ,“ seg-
ir Halldór. -rt
Barátta á bílamarkaði:
Hekla hf.
seldi 45
bíla í gær
Baráttan um bílamarkaöinn
er í hámarki. Hekla hf. auglýsti
í DV í gær stórlækkaö verö á
notuöum bílum undir slagorð-
inu „sprengigos“. Þar með kem-
ur Hekla í kjölfar Toyota sem er
með útsölu á notuðum bílum
sem þeir kalla „æðiskast í kola-
portinu".
Gísli Vagn Jónsson, markaðs-
stjóri Heklu, segir að viðbrögð
almennings hafi ekki látið á sér
standa.
„Strax eftir að DV kom á göt-
una byijaði ballið og það var
strax mikið að gera í gær. Við
seldum um 45 bíla í gærdag,"
Orkusölusamningur Landsvirkjunar viö Alusuisse-Lonza:
Setiö á upplýsingum um raforku-
verö vegna stækkunar álversins
- sagt að þaö þjóni ekki viðskiptahagsmunum að gefa upp verðið
„Það þjónar ekki viöskiptahags-
munum Landsvirkjunar að gefa upp
orkuverðið. Þó framkvæmdirnar
kalli á tveggja til þriggja milljarða
lán á þá mun Landsvirkjun geta
greitt skuldir sínar hraðar niður
vegna aukinnar orkusölu til álvers-
ins. Að okkar mati er samningurinn
því mjög hagsstæður," segir Þor-
steinn Hilmarsson, upplýsingafull-
trúi Landsvirkjunar.
Þrátt fyrir að Landsvirkjun sé alf-
arið í eigu opinberra aðila hefur
stjóm fyrirtækisins neitað að gefa
upp það orkuverð sem samið hefur
verið um við Alusuisse-Lonza vegna
stækkunar á álverinu í Straumsvík.
Þá neitar Landsvirkjun að gefa upp
hversu ábatasöm raforkuviðskiptin
em talin vera miðað viö þær for-
sendur sem gengið er út frá.
Á síðasta ári nam orkusala
Landsvirkjunar samtals 4.250 gíga-
vattstundum. Orkuþörf nýja
kerskálans, sem á að reisa í
Straumsvík, verður um 947 gígavatt-
stundir. Ljóst er því að stækkun ál-
versins kallar á stóraukna orkusölu
sem skiptir hag Landsvirkjunar
miklu. Gert er ráð fyrir að orkusala
vegna stækkunarinnar hefjist í árs-
lok 1997 og að nýr orkusölusamning-
ur gildi til til 2014 en þá verður til
staöar gagnkvæm heimild til fram-
lengingar um 10 ár til viðbótar.
Samkvæmt frétt frá Landsvirkjun
mun umsamið orkuverð til stækk-
unarinnar ráðast á hvejum tima til
verðs á áli á heimsmarkaði. Gert er
ráð fyrir að nýja orkuverðið gildi
einnig fyrir verksmiðjuna í heild frá
og með 1. október 1004.
Stækkun álversins í Straumsvík
gerir það að verkum að öll umfra-
morka í raforkukerfi Landsvirkjun-
ar fullnýtist strax við gangsetningu
nýja kerskálans á síðari hluta árs-
ins 1997. Til að útvega viðbótarorku
þarf að ráðast í ýmsar framkvæmd-
ir, meðal annars stækkun Blöndu-
lóns, fimmta áfanga Kvíslárveitu og
endurbætur á Búrfellsstöð og Sogs-
virkjunum, auk þess sem settir
verða raðþéttar í háspennulínur.
-kaa