Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Marín Hafsteinsdóttir, sex mánaða hjartasjúklingur í Boston:
Hjartaaðgerðin ætti
að fara fram í dag
- segir Hafsteinn Hinriksson, faðir Marínar
„Marín er alger orkubolti. Hún
hefur sofið frá því að við komum,
voðalega þreytt eftir allar þessar
prufur en að öðru leyti hefur hún
það bara gott,“ sagði Hafsteinn Hin-
riksson, faðir sex mánaða Eskflrð-
ings, Marínar, i gær en hún gengst
að öllum líkindum í dag undir að-
gerð vegna sjaldgæfs hjartagalla á
barnasjúkrahúsinu Children’s
Hospital í Boston í Bandaríkjunum.
Marín þjáist af sjaldgæfum hjarta-
galla þar sem slagæðina frá hægra
hjartahólfi í lungu vantar og opið er
á milli hjartahólfa. í aðgerðinni,
sem getur tekið allt að níu klukku-
stundum, þarf að opna brjóstkass-
ann, taka tvo æðaranga, sem Marín
hefur myndað, úr ósæðinni og
tengja hægra-hjartahólfi. Svo verður
lokað milli hólfa. Eftir aðgerðina
verður hún látin sofa á gjörgæslu-
deild í nokkra daga og fer svo i önd-
unarvél þar til hún er búin að ná
sér.
„Þetta miðar allt í rétta átt. Mar-
ín er búin að fara í allar prufur, að
ég held, í sónar, hjartalínurit,
röntgen og ómskoðun, blóðprufur og
svo í hjartaþræðingu í gær. Við
erum ekki búin að fréttir af því enn
þá en þeir halda að hún fari í að-
gerðina á fimmtudaginn," sagði Haf-
steinn þegar DV hafði samband við
hann á sjúkrahúsinu í gærmorgun.
Marín er annað barnið sem
gengst undir aðgerð sem þessa á
sjúkrahúsinu í Boston. Fyrra barnið
var drengur sem þurfti að gangast
tvisvar undir aðgerðina með tveggja
daga millibili þar sem æðarnar lágu
mjög aftarlega. Ekki er búist við að
Marín þurfi að gangast undir fleiri
en eina aðgerð.
Hafsteinn segir að sjúkrahúsið sé
mjög gott og starfsfólkið sé reiðubú-
ið að aðstoða þau. Ekki sé verra að
læknir Marínar, Stanton Perry, tali
íslensku en hann er giftur íslenskri
konu og bjó hér á landi nokkur ár.
Marín og fjölskylda hennar á
pantað flug heim til íslands í lok
nóvember. Ekki er þó vitað hvenær
von er á þeim því að heimkoman fer
Nafn byggingarfulltrúans í Reykjavík var á dagskrárdrögum fyrir ráðstefnu:
Lýsir furðu sinni á nafnnotkun án ieyfis
„Ég lýsi furðu minni á þessari
leyfislausu notkun á nafni mínu og
krefst þess að umrætt blað verði sent
til þeirra aðila sem það hafa fengið
án þess að nafn mitt sé á blaðinu.
Það er lágmarkskurteisi að ganga úr
skugga um hvort viðkomandi, í
þessu tilfelli ég, sé reiðubúinn til
þess aö takast á hendur verk áður en
gefið er í skyn að svo geti verið.“
Þannig segir í bréfi sem Magnús
Sædal Svavarsson, byggingarfulltrúi
í Reykjavík, sendi skipuleggjendum
ráðstefnu um samræmt byggingareft-
irlit, sem haldin verður í Reykjavík í
dag. Skipuleggjendur ráðstefnunnar
höfðu sett upp drög að dagskrá ráð-
stefnunnar með nöfnum hugsanlegra
frummælenda innan sviga.
„Ég held að þetta hafi verið gert í
fljótfærni hjá Magnúsi. Ég þekki
hann fyrir góðan dreng og duglegan
en hann er að sýna vald sitt þarna.
Maður ansar ekki svona fiflalátum.
Ég veit ekki hvað hann er að hugsa,“
segir Kristján Ottósson, einn skipu-
leggjenda ráðstefnunnar.
Kristján segir að dagskrárdrögin
hafi verið send sem trúnaðarmál inn
á heimili annars manns þar sem
Magnús komst í þau. Hann segist
hafa heimsótt Magnús eftir að hann
fékk bréfið frá honum.
„Það var farið að dreifa nafni
mínu sem frummælanda án þess að
það hefði verið talað við mig. Mér
skilst að þetta hafi bara verið hug-
myndir og það mál er alveg búið.
Nafn mitt er hvergi nefnt í þessum
plöggum," segir Magnús Sædal Svav-
arsson.
Það er Lagnafélag íslands og Sam-
tök iðnaðarins sem standa að ráð-
stefnunni ásamt Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Félagi byggingarfull-
trúa, iðnaðarráðuneytinu og fleiri
aðilum.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík
mun ekki sækja ráöstefnuna vegna
anna í byggingamefnd.
-GHS
eftir því hversu fljót Marín verður lengi hún verður að vera á sjúkra-
að ná sér eftir aðgerðina og hversu húsinu í Boston. -GHS
Marín Hafsteinsdóttir, sex mánaða Eskfirðingur, gengst að öllum iíkindum
undir hjartaaðgerð á barnasjúkrahúsi í Boston í dag. Hafsteinn Hinriksson,
faðir Marínar, segir að litla stúlkan hafi sofið mikið að undanförnu en sé að
öðru leyti algjör orkubolti. Myndin var tekin á heimiii Marínar á Eskifirði fyr-
ir nokkru. DV-mynd Emil
Dagfari___________________________
Matur eða laun?
Svo sem kunnugt er af fréttum
hefur verkalýöshreyfingin lent í
ógöngum með launabaráttu sína
sem var háð undir merkjum lífs-
kjarajöfnunar. Alþýðusambandið
og flest sérsambandanna innan
þess sömdu um launakjör sem þau
skammast sín fyrir enda datt ekki
nokkrum öðrum viti bornum
launasamtökum í hug að semja um
viðlíka kjör. Hálaunafólkið hafði
vit á þvi að etja fíflunum á foraöið
og semja síðan um mun hærri laun
en ASÍ lét sig hafa. Svo komu þing-
mennirnir og ráðherramir og emb-
ættismennirnir og fengu jafn háa
hækkun á mánuði eins og launa-
fólkið fékk yfir árið.
Forystumenn Alþýðusambands-
ins og Verkamannasambandsins og
iðnverkafólks og annarra láglauna-
stétta rifu hár sitt og hótuðu að-
gerðum og létu samþykkja áskorun
til allra aðildarfélaga um að segja
upp samningum.
Þeir voru ekki fyrr búnir að sam-
þykkja áskorunina en vinnuveit-
endur bentu þeim góðfúslega á aö
samningar séu samningar og þeir
eru bindandi þangað til þeir renna
út. Menn geta ekki sagt upp samn-
ingum af því að þeir hafa samið af
sér. Það þýðir lítið að vera argur út
í samninga sem maður skrifar sjálf-
ur undir.
Nú vom góð ráð dýr og foringjar
Alþýðusambandsins gripu til þess
ráðs að krefjast lækkunar á matar-
verði í landinu og vinnuveitendur
gerðu þeim þann greiða í stöðunni
að taka undir þessa kröfu um lægra
matarverð og allt í einu vom allir
sammála um að lækka matarverð-
ið. Eina vandamálið er auðvitað
það að aðilum vinnumarkaðarins
kemur matarverðið lítið sem ekk-
ert við og matarverð hefur ekkert
með kjarasamninga að gera. Enda
lækkar hvorki kaupið né hækkar
hvort sem matur er dýr eða ekki.
Engu að síður hafa vinnuveitend-
ur og verkalýðsforingjar ákveðið að
skipa launanefnd og láta nefndina
setjast á rökstóla og þrátta um mat-
arverð á vörum sem er þessum
aðilum algjörlega óviðkomandi.
Ekki nóg með að matarverðið sé
þeim óviðkomandi, af því að það er
ekki samið um verð á matvælum
þegar gerðir eru kjarasamningar,
ekki frekar en um verð á bíómiðum
eða gjald í strætó. Þeir gætu eins
verið að ræða fargjaldið til tungls-
ins. Nei, matarverðið er þeim ekki
aðeins óviðkomandi heldur er ekk-
ert samkomulag um það Á .röðum
verkalýðsforingja hvort hagkvæmt
sé að matarverðið lækki. Það hefur
sem sé runnið upp fyrir þeim
verkalýösforingjunum að lækkun
matarverðs breytir engu um lífs-
kjarajöfnuðinn. Matarverðið lækk-
ar jafnt fyrir alla, sem þýðir að
sjálfsögðu að munurinn á kjörun-
um verður sá sami og áður. Riki
launþeginn getur lika keypt ódýrar
í matinn ef matarverðið lækkar.
Þannig að verkalýðurinn, sem
var svikinn með lélegum launa-
samningum, verður sennilega svik-
inn lika um lægra matarverð vegna
þess að verkalýðsforingjarnir, sem
sömdu um láglaunin, eru á móti
því að matarverð lækki ef það
lækkar líka hjá öðrum en þeim sem
hafa lágu launin.
Lækkun matarverðsins stríðir
nefnilega gegn lífskjarajöfnuðinum
enda hefur það verið stefna Alþýðu-
sambandsins að jafna lífskjörin
með því að halda þeim niðri. Það
væri mjög alvarlegt mál fyrir ASÍ
og launþegahreyfinguna ef lifskjör-
in bötnuðu jafnt yfir línuna.
Sá möguleiki er að sjálfsögðu
enn fyrir hendi að launanefnd
vinnuveitenda og verkalýðs komist
að þeirri niðurstöðu að matarverð
lækki einvörðungu hjá þeim sem
kaupa lítið í matinn af því að þeir
hafa ekki efni á að kaupa dýrt eða
mikið í matinn. Það væri auðvitað
í. þágu láglaunafólksins . Sömuleið-
is gæti það verið í þágu láglauna-
fólksins ef matarverð er hækkað
hjá þeim sem mest bera úr býtum
til að jafha lífskjörin og koma í veg
fyrir að aðrir hafi það betra heldur
en umbjóðendur verkalýðsforingj-
anna sem sömdu cif sér. Þaö væri
eftir öðru.
Dagfari