Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
5
******?&&
LAB AíJ^I
\StA^°S
Fréttir
Landsfundur Kvennalistans:
Óhjákvæmilegt
að við íhugum
stöðu okkar
- segir Kristín Halldórsdóttir þingkona
Landsfundur Samtaka um
kvennalista verður haldinn í Nes-
búð á Nesjavöllum um helgina. Á
dagskrá eru meðal annars umræður
um stöðu Kvennalistans í kjölfar
kosningaúrslitanna síðastliðið vor
og hvemig kvennapólítík verði best
borgið.
„Það er náttúrlega óhjákvæmilegt
að við íhugum stöðu okkar. Úrslit
kosninganna voru auðvitað mikil
vonbrigði. Við höfum heldur ekki
fyllilega gert okkur grein fyrir því
hvemig á þeirri niðurstöðu stóð,“
segir Kristín Halldórsdóttir, þing-
kona Kvennalistans.
Undir liðnum breytingatillögur er
meðal annars útskiptareglan um-
deilda, fjölgun í framkvæmdaráði og
starfsreglur þingflokks. Ekki verður
farið mikið í ákveöna málaflokka á
A myndarlegu Novembertilboöi Japis færð þu geisladiska með
þinni uppáhaldstónlist með 20% afslátti.
landsfúndinum þar sem það var ný-
lega gert í undirbúningnum fyrir
kosningarnar.
„Á landsfundi á eftir kosningum
er meira rætt um stöðu okkar í ljósi
kosningaúrslita og í ljósi þess sem
er að gerast í stjórnmálunum,“
greinir Kristín frá.
Hún kveðst hafa orðið vör við
mikla umræðu um kvennapólítísk
sjónarmið að undanfomu. „Ég veit
ekki alveg hvert það leiðir okkur.
Ég hef ekki trú á að tekin veröi af-
gerandi ákvörðun um framtíð
Kvennalistans eða eitthvað slíkt. Ég
held að það sé varla timabært en
það er aldrei að vita. Mér finnst ég
heyra það meira og meira hversu
mikilvægt það sé að konur standi
saman til að reyna að rétta stöðu
sína.“ -IBS
Framkvæmdasýsla ríkisins:
Upplýsingar um eignir á
Internetinu til ráðuneyta
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur
tekið nýjustu margmiðlunartækni í
þjónustu sina og er að hefja sending-
ar á Internetinu til ráðuneyta og
stofnana um eignir og viðhald
þeirra. Framkvæmdasýsla ríkisins
er fyrsta ríkisstofhunin sem tekur
Intemetið í þjónustu sína beint í
viðskiptum sínum við aðrar stofii-
anir.
„Áherslur í mannvirkjagerð á ís-
landi eru að breytast. Minni áhersla
er nú lögð á nýframkvæmdir en
þess í stað verður væntanlega meira
fjármagn veitt i viðhald, aðlögun og
endurbyggingu þeirra mannvirkja
sem nú þégar eru fyrir hendi í land-
inu. Vegna þessa fórum við að at-
huga hvaða áhrif þessar staðreyndir
hefðu á rekstur stofnunarinnar og
hvernig hún gæti aðlagað sig breytt-
um áherslum og breyttri tækni,“
sagði Steindór Guðmundsson, for-
stjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, á
hugmyndaráðstefnu fjármálaráðu-
neytisins sem haldin var í fyrradag.
Að sögn Steindórs gerir eignaum-
sýslukerfið, sem byggist á nútíma-
tölvutækni, mögulegt að hafa alltaf
nýjustu upplýsingar um stöðu verk-
efnanna. Hægt er að fá á tölvuskjá-
inn landsvæði það sem viðkomandi
bygging er á, bygginguna sjálfa og
jafnvel sprangur í húsvegg ef um
slikt er að ræða. Upplýsingar verður
meðal annars að finna um hönnuð,
byggingarár, byggingarefni, stærð
og verðgildi eignarinnar.
„Eignaumsýslukerfið auðveldar
okkur að henda reiður á sívaxandi
upplýsingamagni sem umsjón eigna
nú á tímum fylgir. Kerfið nýtir sér
þá tækni sem margmiðlun býður
upp á,“ sagði Steindór einnig. -IBS
Hafnarfjarðarbær:
Væntir góðs af
stækkun álvers
„Væntanlega verður uppbygging
iðnaðarsvæðisins í námunda við
Straumsvík hraðari en gert var ráð
fyrir og það sama gildir líklega um
íbúðarhverfin í námunda við álver-
ið. Stækkun álversins eykur bjart-
sýnina núna þegar viö erum að
vinna að fjárhagsáætlun næsta árs,“
segir Kristinn Ó. Magnússon, bæjar-
verkfræðingur Hafnarfjarðar.
Kristinn segir ljóst að fram-
kvæmdimar við stækkun álversins
í Straumsvík muni kalla á aukna
þjónustu sem efla muni hag bæjar-
ins. Enn liggi þó engar tölur fýrir í
því sambandi enda skammt liðið frá
ákvörðun um stækkun. -kaa
Steindór Guðmundsson, Guðni
Walderhaug og Björn H. Gíslason
frá Framkvæmdasýslu rtkisins og
Júlíus Sæberg Ólafsson, forstjóri
Ríkiskaupa, í bás Framkvæmdasýsl-
unnar á Hugmyndaráðstefnunni.
DV-mynd GVA
NYR 2000 KRONA PENINGASEÐILL
OG 100 KRÓNA MYNT
í umferð 9. nóvember
r k
Sl A N ^
Kynningarörk liggur frammi
í bönkum og sparisjóðum
NÓVEMBERTILBOÐ