Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Fréttir Stuttar fréttir i>v
Colin Powell útilokar þátttöku í forsetakosningunum:
Ekki haldinn nægilegri
ástríðu á stjórnmálum
- íhaldssamir repúblikanar fagna ákvörðuninni
Colin Powell tilkynnir að hann ætli ekki að gefa kost á sér í
forsetakosningunum á næsta ári. Símamynd Reuter
ísraelsstjórn reynir að
hafa hemil á starfsemi
öfgasinnaðra gyðinga
Colin Powell, fyrrum yfirmaður
herafla Bandaríkjanna, tilkynnti á
blaðamannafundi í gær að hann
gæfi ekki kost á sér í forsetakosn-
ingunum á næsta ári né nokkrum
öðrum kosningum. Hann sagðist
ætla að ganga í Repúblikanaflokk-
inn og starfa innan vébanda hans.
Hann útilokaði þátttöku í kosning-
unum sem varaforsetaefni en útilok-
aði þó ekki þátttöku í kosningum í
framtiðinni.
Með yfirlýsingu Powells lauk
margra vikna vangaveltum um
hvort hann gæfi kost á sér í forseta-
kosningum. Fylgi hans hafði mælst
verulegt í skoðanakönnunum und-
anfarnar vikur en almenningur
virtist hrífast að miðjutilhneiging-
um hans i stjórnmálaumræðunni.
Samkvæmt könnunum var hann
eini maðurinn sem gat ógnað Bill
Clinton í komandi kosningum.
„Að bjóöa sig fram í forsetakosn-
ingum, taka þátt í þaráttunni og ná
árangri, krefst þæði skuldbindingar
og ástríðu á verkefninu, sömu
ástríðu og skuldbindingar og ég
upplifði hvern dag í 35 ára hérþjón-
ustu. Þó ég legði mig allan fram er
ég ekki haldinn nægilegri ástríðu á
stjómmálum,“ sagði Powell á fund-
inum. Powell, sem er 58 ára, hætti
herþjónustu 1993.
Powell neitaði því að ákvörðun
sín tengdist ótta við öryggi sitt og
fjölskyldu sinnar en þær spumingar
vöknuðu í kjöflar morðsins á Rabin,
forseta ísraels. Almennt er talið að
eiginkona Powells, Alma, hafi haft
veruleg áhrif á ákvörðun hans. Hún
mun hafa lagst gegn framboði, ekki
síst vegna miskunnarlausrar af-
hjúpunar á öllu einkalífi sem slíku
fylgir. Powell mun hafa þénað millj-
ónir dollara á sjálfsævisögu sinni
sem hann hefur kynnt undanfarið.
Meðan stuðningsmenn Powells
létu í ljós vonbrigði kættust íhaldss-
amir repúblikanar sem fannst Pow-
ell of frjálslyndur. Með ákvörðun
Powells þykir Bob Dole öldunga-
deildarþingmaður vera með pál-
mann í höndunum sem helsti fram-
bjóðandi repúblikana. Phil Gramm,
fylkisstjóri frá Texas, sem einnig
hefur haft augastað á útnefningu
sem frambjóðandi tlokksins, fagnaði
ákvörðuninni. Sagði hann nú
komna upp óskastöðu þar sem tveir
kandídatar væru eftir, hann og
Dole. Þá sagði Newt Gingrich að
með ákvörðun Powells hefðu líkurn-
ar á framboði sínu aukist.
Bill Clinton sá ekki sjónvarpsút-
sendingu frá blaðamannafundinum
þar sem hann var upptekinn á fundi
og ætlaöi til tedrykkju með Beatrix
Hollandsdrottningu. En fögnuður-
inn og léttirinn þótti ekki leyna sér
i Hvíta húsinu. Reuter
ísraelsk stjómvöld reyna nú að
hafa hemil á starfsemi samtaka
harðlinugyðinga, sem sökuð eru um
aö hafa skapað það andrúmsloft hat-
urs sem leiddi til morösins á Itzhak
Rabin forsætisráðherra en um leið
að tryggja að ekki verði traðkaö á
lýðréttindum landsmanna.
Símon Peres, starfandi forsætis-
ráöherra ísraels, skipaði í gær sér-
staka rannsóknarnefnd til aö rann-
saka morðið eftir að ríkisstjórnin
hafði farið yfir skýrslu frá yfir-
manni Shin Bet leyniþjónustunnar.
Hver sá maður er er ríkisleyndar-
mál.
Yfirmaður þeirrar deildar Shin
Bet sem sér um að vemda stjórn-
málamenn sagði af sér eftir aö
skýrslan leiddi í ljós alvarlega bresti
í öryggisgæslu Rabins síðastliðið
laugardagskvöld þegar hann var
myrtur í Tel Aviv. Þrír lægra settir
yfirmenn vom leystir frá störfum.
í skýrslunni er athyglinni ekki
aðeins beint að slælegri öryggis-
gæslu heldur bent á að leyniþjónust-
an hafi ekki staðið sig sem skyldi í
að safha upplýsingum um moröingj-
ann og þá öfgahópa gyðinga sem
hann umgekkst.
Sérfræðingar í 'öryggismálum
hafa gagnrýnt leyniþjónustuna fyrir
að hunsa eða gera litið úr hættunni
sem stafaði af hægrisinnum og land-
nemum gyðinga þar sem athyglin
hafi aðallega beinst að arabískum
hryðjuverkum.
Leiðtogi öfgahópsins Eyal, Avis-
hai Raviv, var úrskurðaður í Viku
gæsluvai-ðhald í gær vegna gruns
um aö hafa tekið þátt í samsæri um
að myrða Rabin og fyrir að hafa
ekki komið i veg fyrir glæp. Raviv
neitaði að eiga aðild að morðinu og
sagði handtökuna af pólitískum
toga. Reuter
Ríkinu bjargað
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings samþykkti fjáraukalög
sem halda ríkisapparatinu gang-
andi til næstu mánaðamóta.
Fordæming Nígeríu
Herstjórnin í Nígeríu hefur
verið fordæmd fyrir að staðfesta
dauðadóma yfir níu mönnum
sem börðust fyrir réttindum
minnihluta í landinu.
Banna
Repúblikan-
ar í fulltrúa-
deild Banda-
ríkjaþings
hafa lýst yfir
stuðningi sín-
um við laga-
frumvarp sem
bannar Clint-
on forseta að
senda hersveitir til Bosníu
nema þingið samþykkti fyrst
fjármögnun fyrir þær.
Stefnir í friðarsamning
Leiðtogar ríkja fyrrum
Júgóslavíu, sem lokaðir eru inni
í herstöð í Ohio, þokast í átt til
friðarsamkomulags, að sögn
embættismanns.
Flugvél hrapaði
Argentísk herflugvél meö 50
manns, þar á meðal böm, hrap-
aði í miðhluta Argentínu en
ekki er vitað um manntjón.
Sjö deyja í eldi
Sjö manns að minnsta kosti
fórust í eldsvoða í athvarfi fyrir
heimilislausa í bænum Detmold
i Þýskalandi.
Áfram refsaö
Öryggisráð SÞ ákvað í gær-
kvöldi að framlengja refsiaö-
gerðum gegn írak þar sem
sfjómvöld í Bagdad hefðu ekki
uppfyllt skilyrði um eyðingu
hættulegra vopna.
Harðstjóri á flótta
Fyrrum harðstjóri á Haítí
flúði til sendimanns Kólumbíu
og leitaði hælis eftir að upp
komst um þátt hans í morði á
þingmanni.
Vitorösmaður fyrir rétt
Maður, sem grunaður er um
aðild að sprengjutilræðunum í
París, kemur fyrir rétt í London
í dag.
Major borubrattur
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, sagðist
viss um að
samkomulag
næðist milli
deiluaðila á
Norður-
írlandi, þrátt fyrir þrátefli um
skilyrði fyrir þátttöku Sinn
Fein, pólitísks arms IRA, í við-
ræðunum.
Jeltsín að hressast
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
er farinn að hressast eftir vægt
hjartaáfall og rak yfirmann
seðlabankans rússneska.
Löggunni leiöist
Vikingasveit sænsku löggunn-
ar leiðist svo vegna aðgerðar-
leysis að sumir hafa hótað upp-
sögnum. Reuter
( ~>
Blaðbera vantar
í miðbæinn og á Eyrina,
Akureyri.
I Uppl. í síma 462-7494.
Stakkholti 4 (inng. frá Brautarholti). S. 5631631
Clmton