Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Side 9
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
9
MEIRAPROF
_________________________________________Útlönd
Þingmaður Sambandsflokksins hættir stuðningi við landsstjórnina:
meirihluti í Færeyjum
Tæpur
Finnbogi Arge, þingmaður Sam-
bandsflokksins og formaður fjár-
laganefndar færeyska þingsins, hef-
ur sagt sig úr þingflokknum og hætt
stuðningi við færeysku landsstjóm-
ina. Þar með hefur fjögurra flokka
samsteypustjóm Færeyja einungis
eins þingmanns meirihluta í þing-
inu eða 17 þingmenn. Meirihlutinn
hefur ekki verið tæpari og er reynd-
ar i stórhættu þar sem annar þing-
maður Sambandsflokksins, Björn
Heygum, er tvístígandi í stuðningi
sínum.
Ástæðu þessarar afstöðu þing-
mannanna má rekja til óánægju
með niðurstöðu samningaviðræðna
Færeyinga og Dana fyrir siðustu
helgi þar sem fjallað var um efha-
hagsástandið á eyjunum. Þar var
ákveðið að Færeyingar fengju tæpa
1,2 milljarða íslenskra króna að láni
hjá Dönum auk þess sem Færeying-
ar kröfðust þess að Danir greiddu
ríflega 30 milljarða íslenskra króna
sem það kostaði að bjarga færeyska
bankakerfmu. Arge telur að lánið
upp á 1,2 milljarða muni verða til
þess að fólksflóttinn frá eyjunum
muni ekki einungis halda áfram
heldur aukast til muna.
Ritzau
jyy^jíÍLLJ
Siqurðar Gísl^Mar
IWMIMjWJiMMMIilil
• LEIGUBIFREIÐ •
• VÖRUBIFREIÐ •
• HÓPBIFREIÐ •
Skráning í símum:
581 1919 eða 852 4124
Paul McCartney, Bítillinn fyrrver-
andi, braut enn einu sinni blað í
sögu breskrar tónlistar í gær þegar
hann var gerður að félaga í konung-
lega tónlistarskólanum. Það er ein-
hver mesti heiður sem breskum tón-
listarmanni getur hlotnast og í fyrsta
sinn sem hann fellur í skaut popp-
ara. Hér heilsar Paul upp á Karl
Bretaprins. Símamynd Reuter
Ekkert jólatré
frá Sandnes til
Parísar í ár
Bæjarstjómin í Sandnes í Noregi
ákvað með naumum meirihluta á
þriðjudagskvöld aö senda ekki jóla-
tré til listamannahverfisins Montm-
artre í París í ár í mótmælaskyni
við kjarnorkutilraunir Frakka í
Suður- Kyrrahafi.
Þar með er rofin hefð sem skapaö-»
ist árið 1988, þegar fyrsta jólatréð
frá Sandnes fór til Parísar. Stór
sendinefnd Norömanna hefur ávallt
verið viðstödd tendrun ljósanna og í
fyrra var utanríkisráðherrann með-
cd viðstaddra. NTB
Flugræningi tek-
inn í Aþenu
Sérsveitir grísku lögreglunnar
gerðu áhlaup á flugvél Olympic
Airways á Aþenuflugvelli í morgun
og handtóku eþíópískan mann sem
hafði rænt vélinni skömmu áður en
hún lenti. Flugvélin var á leið frá
Bangkok með 110 farþega um borð.
Ekki urðu nein slys á fólki.
Lögreglan sagði að Eþíópíumað-
urinn hefði tekið flugfreyju i gísl-
ingu og hótað henni með hnífi.
Hann vildi tala við fréttamenn eða
einhvem frá Sameinuðu þjóðunum.
Flugræninginn kom um borð í
Ástralíu þar sem vélin hóf ferð sína
en áströlsk yfirvöld höfðu visað
honum úr landi. Reuter
INNBYGGT
ORYGGI FYRIR BORNIN!
Innbyggði barnabílstóllinn í Renault 19 veitir barninu öryggi án
þess að vera fyrir þegar barnið er ekki í bílnum. En Renault 19 RN
er fleiri góðum kostum búinn:
Ajlstýri, rafdrifnum rúðum, fjarstýrðri samlasingu á hurðum,
Jjarstýrðu útvarpi og segulbandstteki með þjófavöm, tvískiptu
niðurfellanlegu ajtursati með höfuðpúðum og styrktarbitum í
hurðum svo fátt eitt sé talið.
Renault 19 RN er því örugglega góður kostur fyrir alla fjölskylduna
því verðið er nú aðeins 1.265.000 kr. kominn á götuna.
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ
ÁRMÚLA 13
SlMI: 568 1200
BEINN SlMI: 553 1236
%
RENAULT
fer á kostum
SÓIMUUG
EINS OG MJÚK SUMARDEKK
Prófaðu eða spurðu einhvern sem hefur reynt Continental
vetrardekk. Continental hefur í 15 ár þróað tækni sem dregur úr
hávaðamyndun frá hjólbörðum án þess að draga úr veggripi,
með sérstakri staðsetningu munsturblokka og nagla.
Continental - einu hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir fyrir
norrænar vetraraðstæður.