Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Side 11
FIMMTUDAGUR 9. NOVEMBER 1995
11
1
Samningurinn um stækkun álversins í Straumsvík:
Fréttir
Skapar skilyrði fyrir
frekari vaxtalækkanir
- segir Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
„Samningurinn um stækkun ál-
versins eykur hagvöxt, bætir stöðu
ríkissjóðs og skapar skilyrði fyrir
frekari vaxtalækkun og auknum
fjárfestingum. Þessar framkvæmdir
virka eins og vítamínsprauta inn í
efnahags- og atvinnulífið, ekki sist í
byggingariðnaðinn, en þar hefur
töluverðrar svartsýni gætt að und-
anfómu," segir Finnur Ingólfsson
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
aðrir kaupendur raforku fái sama
samning og Alusuisse-Lonza.
„Það er ekkert þak né gólf í þess-
um samningi, raforkuverðið mun
algjörlega ráðast af álverðinu á
hverjum tíma. Iðnaðarnefnd Al-
þingis mun fá mjög nákvæma lýs-
ingu á samningnum en orkusamn-
ingurinn sem slíkur verður ekki
lagður fyrir Alþingi.“
Orkuverðið trúnaðarmál
Finnur segir að með samningn-
um sé rofin ákveðin kyrrstaða í
orkusölu til stóriðju sem ríkt hefur
í tvo áratugi. Aðspurður vill Finnur
ekki gefa upp orkuverðið þar sem
það geti spillt fyrir samningum
Landsvirkjunar við aðra kaupend-
ur. Finnur segir að stjórn Lands-
virkjunar hafi óskað eftir því að
með málið yrði farið sem trúnaðar-
mál enda sé það ekki sjálfgefíð að
Unnið að fleiri verkefnum
Að sögn Finns er unnið að fjöl-
mörgum öðrum verkefnum sem eflt
geta atvinnulífið hér á landi. Vænt-
anlega muni viðræður halda áfram
við Columbia Alumium Corpoarati-
on um hugsanlegt álver á Gnmdart-
anga og í athugun sé hagkvæmni
þess að stækka Járnblendiverk-
smiðjuna á Grundartanga. Þá sé
von á sendinefnd frá Kína í næstu
viku sem skoða vilji aðstæður hér á
Með stækkun álversins í Straumsvík segir Finnur Ingólfsson
iðnaðarráðherra að rofin sé ákveðin kyrrstaða sem ríkt hefur í orkusölu til
stóriðju undanfarna tvo áratugi.
Stækkun álversins:
Ekki teljandi
umhverfisáhrif
- segir í starfsleyfinu
Að mati umhverfisráðuneytisins
mun stækkun álversins í Straums-
vík ekki hafa í for með sér teljandi
umhverfisáhrif umfram núverandi
starfsemi íslenska álfélagsins í
Straumsvík. Þetta kemur fram í
starfsleyfi umhverfisráðherra sem
álverinu var veitt á þriðjudaginn
var.
Um er að ræða fyrsta starfsleyfl
fyrir álverið í Straumsvík sem geflð
er út af umhverfisyfirvöldum. Fram
til þessa hefur veriö stuðst við
ákvæði samnings milli ríkisstjórn-
arinnar og álversins frá árinu 1966
varðandi kröfur um umhverfis-
vemd vegna starfsemninnar.
Nýja starfsleyfið er sett að fengn-
um tillögum stjórnar Hollustu-
vemdar ríkisins og gildir fyrir allt
að 200 þúsund tonna ársframleiðslu
af fljótandi áli. Gildistími starfsleyf-
isins er 10 ár frá útgáfudegi.
-kaa
íslendingur í aksturskeppni í Belgíu
Torfærukappanum Gunnari
Pálma Péturssyni hefur verið boðin
þátttaka í aksturskeppni i Belgíu á
vegum spilframleiðanda.
„Ég er á ýktri útgáfú af Ford 42
sem smiðaður er úr áli. Hann er lög-
legur til aksturs á götum og það er
kannski líka þess vegna sem ég var
valinn," segir Gunnar sem er bif-
vélavirki á Höfn í Hornafirði.
Bilinn sendir hann í skipi til Belg-
íu 5. desember en keppnin fer fram
15. til 17. desember í Grand Bru í
Ardennes i Belgíu. „Það er farin
ákveðin leið á hverjum degi. Þetta
er akstur í gegnum skóg og vatn og
snýst um það að koma sér á leiðar-
enda með hjálp spils,“ greinir Gunn-
ar frá.
Keppendur verða um tuttugu tals-
ins. Það mega vera mest þrír menn
á bíl. „Við íslendingar eigum mann
þama úti sem keppti í fyrra, Snorra
Ingimarsson, og verður hann til að-
stoðar. Ég tek svo einn mann með
mér út,“ segir Gunnar sem hér
heima hefur margoft unnið til verð-
launa frá því að hann byrjaði að
keppa fyrir um sex ámm.
-IBS
landi, meðal annars með tilliti til
stóriðju og fjárfestinga í áliðnaði.
„Við höfum hins vegar gengið út
frá því að hafa ekki öll eggin i sömu
körfunni því ef eitthvað klikkar þá
verða vonbrigðin svo mikil. Sam-
hliða þessum verkefnum er til
dæmis starfandi nefnd sem kannar
möguleika lltilla og meðalstórra
fyrirtækja hér á landi til að nýta
sér þá kosti sem samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið gefur
okkur. í gangi er öflugt kynningar-
starf og í bígerð er að hrinda í fram-
kvæmd átaki til atvinnusköpunar í
tengslum við fjölmarga aðila.“
-kaa
Við höfum yfírstærðimar!
Fatnaöur viö allra hæfi
Kynniö ykkur okkar hagstæöa verö.
Munið 10% staðgreiðsluafsláttinn
búðin. Bíldshöfða 18
Opið: manud.-föstud. kl. 10-18
. ' -
INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESiT INDESiT INDESIT INDESit iNDESIT iNDESIT iNDESIT
^ I**
11
Verðin eru einstök og kaupir þú heimilistækin frá okkur, færðu
tryggingu fyrir góðri þjónustu við kaupin, á ábyrgðatímabilinu
og í mörg, mörg ár eftir það. Því endingin er einstök.
►
Eldavél
KN6046
Undir og yfirhiti.
Geymsluskúffa.
HæS: 85-90 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 60 cm
Verft kr.46.211,-
A Þvottavél
/IV 860
Vindur 800 sn.
14 þvottakerfi.
Stiglaus hitastillir.
Orkunotkun 2,3 kwst.
HæS 85 cm
Breidd 60 cm
Dýpt 60 cm
Verft kr. 52.527,-
A Uppþvottavél
D4S00
10 kerfa vél,
tekurl 2 manna matarstell,
6 falt vatnsöryggiskerfi
mjög hljóSlót og fullkomin.
Hæ5: 85 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 60 cm
Verð kr. 63.153,-
Verð
mm æ
Verd stgr.
32.95Óf-l
#índesít
Kæliskápur
GR 1860
HæS: 117 cm
Breidd: 50 cm
Dýpt: 60 cm
Kælir:140 I.
Frystir: 45 I.
1.15 kwst/24 tímum.
Verð kr.41.939,-
Kæliskápar með frystihólfi fyrir ofan
Þurrkarí SD510
Tromlan snýst í báðar
áttir,tvö hitastig.
Kaldur blástur.
Klukkurofi.
Barki fylgir
Verð kr.37.517,-
Undirborbsofn ▲
C/ M2W - Blástur
undir og yfirhiti, grill meS
eSa án blásturs. Klukkurofi
Verð kr. 34.684,-
Veggofn FlMl Blástur
undir og yfirhiti, grill meS
eSa án bfásturs. Klukkurofi
Verb kr. 29.950,-
Gerð HæðxBreiddxDýpt Kælirltr. Frystir ltr. Staðgr.
GR2260 117x50x60 140x50x60 152x55x60 180 45
GR 3300 170x60x60 225 76 55.433,-
BRÆÐURNIR
D1QRMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesl,
Kt. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi.
Guðni Hallgrímsson, Qrundartirði. Ásubúð.Búðardal
Vestfirðlr: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfirði.
Rafverk, Bolungarvlk.Straumur.ísafiröi.
. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar.Hólmavík.
’ Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blðnduósi.
^ Skagflrðlngabúð.Sauöárkróki. KEA byggíngavörur,
Lónsbakka, Akureyri.KEA. Dalvfk. Kf. Þlngeyinga, Húsavík.
, Urö, Raufarhöfn.
Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum.
» Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi. Stál, Seyöisfirði.
Verslunin Vík, Neskaupsstaö.
1 Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Hðfn
Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelll.
Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík.
Rafborg, Grindav/k. FIT, Hafnarfirði
INDESIT INDESIT INDESIT INDESW INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT