Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Side 21
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
33
Afmæli
Hermann Bjamason
Hermann Bjarnason, bóndi á Leið-
ólfsstöðum í Laxárdal í Dalasýslu,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Hermann fæddist í Búðardal og
ólst þar upp. Hann fór ungur að
vinna fyrir sér, var til sjós um skeið
en var lengst af í vinnumennsku á
sveitabýlum, s.s. í Ljárskógum og
á Hróðnýjarstöðum til 1954. Þá
keypti hann Leiðólfsstaði í Laxárd-
al þar sem hann hefur stundað
búskap þar til synir hans tóku við
búinu.
Fjölskylda
Kona Hermanns er Sigrún Guðný
Jóhannesdóttir, f. 9.11.1929, bónda-
kona. Hún er dóttir Jóhannesar
Skúlasonar, b. að Geirmundarhóli
í Hrolleifsdal i Fellahreppi, og Sig-
urlaugar Jónsdóttur húsfreyju.
Fósturbörn Hermanns eru Valdís
Siguijóna Óskarsdóttir, f. 26.2.1948,
búkona í Engihlíð, en maður henn-
ar er Ólafur Árni Pálmason, b. í
Engihlíð, og á hún þrjú börn; Pétur
Jóhannes Oskarsson, f. 3.10.1950,
sjómaöur í Stykkishólmi, og á hann
fimm börn með fyrrv. konu sinni,
Erlu Þórðardóttur, en kona Péturs
er Ása María Hauksdóttir fisk-
vinnslukona og á hún þrjú börn.
Börn Hermanns og Sigrúnar eru
Bjarni, f. 23.4.1958, b. á Leiðólfs-
stöðum, og á hann einn son með
Steinunni Ósk Jóhannsdóttur;
Bogdís Una, f. 7.8.1963, næturvörð-
ur í Stykkishólmi, gift Ólafi Þor-
valdssyni sjómanni og eiga þau
flögur börn; Unnsteinn Kristinn, f.
6.4.1972, b. á Leiðólfsstöðum, oger
unnusta hans Ásta Kristín Guð-
mundsdóttir og á hann einn son
með Guðrúnu Irisi Hreinsdóttur.
Hálfsystur Hermanns, samfeðra:
Hermann Bjarnason.
Volgerína Jóhanna, f. 26.12.1897,
d. 28.12.1897; Jóhanna, f. 31.12.1899,
húsmóöir í Reykjavík; Margrét, f.
29.11.1901, húsmóðir í Danmörku.
Hálfbróðir Hermanns, sam-
mæðra: Árni Sigurðsson, f. 14.9.
1913, d. 20.10.1950.
Alsystkini Hermanns eru Guð-
mundur, f. 6.1.1917, búsettur í
Stykkishólmi; Sigríður, f. 29.1.1919,
d. 17.12.1962, húsmóðir í Reykjavík;
Lilja, f. 24.10.1921, húsmóðir í
Reykjavík; Guðrún, f. 1.6.1923, d.
6.8.1987, húsmóðir í Reykjavík; tví-
burar, f. 1924, dóu í fæðingu; Krist-
inn Kristbjörn, f. 14.3.1928, búsett-
ur í Reykjavík; Ósk, f. 17.3.1931,
húsmóðir í Reykjavík; Jens Líndal,
f. 16.1.1933, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Hermanns voru Bjarni
Magnússon, f. á Sauðhúsum 24.11.
1878, d. 19.8.1960, bóndi á Leiðólfs-
stöðum í Laxárdal, og Sólveig Ólaf-
ía Árnadóttir, f. 9.8.1889, d. 19.8.
1973, bóndakona.
Hermann mun taka á móti gest-
um sínum í veiðihúsinu Þrándar-
koti við Þrándargil föstudaginn
10.11. eftirkl. 18.00.
Petrína Rós Karlsdóttir
Petrína Rós Karlsdóttir, Rauðarár-
stíg 38, Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Petrína Rós fæddist og ólst upp í
Kópavogi. Hún lauk stúdentsprófi
frá MT1975, stundaði nám við Uni-
versité de Provence í Aix-en-Pro-
vence í Frakklandi sem styrkþegi
frönsku ríkisstjórnarinnar, stund-
aði nám í frönskum bókmenntum
í Útlendingadeild 1975-76, lauk
D.E.U.G.-prófi í frönskum bók-
menntum 1979, Licence-gráðu í al-
mennum málvísindum 1980, Ma-
itrse-prófi annars vegar í kennslu-
fræði tungumála og kennslurétt-
indum og hins vegar í tilrauna-
hljóðfræði 1981, D.E.A.-prófi í til-
raunahljóðfræði 1983, stundaði
rannsóknir í tengslum við fram-
burðarkennslu í Institut de Pho-
nétique d’Aix-en-Provence C.N.R.S.
undir handleiðslu prof. Mario
Rossi, Albert Di Christo, Daniel
Hirst ofl. 1983-88, stundaði nám i
uppeldis- og kennslufræði við HÍ
1990-92, hefur leyflsbréf sem grunn-
og framhaldsskólakennari frá 1994
og leiðsögumannspróf frá 1974, er
löggildur skjalaþýðandi (úr
frönsku) frá 1989, auk þess sem hún
hefur sótt fjölda námskeiða varð-
andi tungumálakennslu hérlendis
og erlendis.
Petrína Rós var frönskukennari
við ýmsa framhalds- og grunnskóla
1988-95, kennari og prófdómari hjá
Alliance Franaise frá 1988, vann
við Fransk-íslenska orðabók 1991,
var talkennari við Heyrnleysingja-
skólann 1992 og stundakennari við
H.í. frá 1993.
Hún skipulagði í samvinnu við
Franska sendiráðið á íslandi kynn-
ingu á „Frakklandi nútímans" í 9.
og 10. bekk grunnskólans 1992 og
hefur verið leiðsögumaður hjá fjöl-
mörgum ferðaskrifstofum innan-
lands sem utan frá 1975.
Petrína Rós er formaður Félags
frönskukennara á íslandi frá 1991
og í stjórn Samtaka tungumála-
I
Petrina Rós Karlsdóttir
kennara, varaforseti Alliance
Franaise frá 1992, endurskoðandi
Fransk-íslenska verslunarráðsins
frá 1993, hefur skipulagt og haft
umsjón með námskeiðum fyrir
frönskukennara hérlendis og er-
lendis og tekið þátt í alþjóðlegu og
norrænu samstarfi frönskukenn-
ara.
Fjölskylda
Sambýlismaður Petrínu Rósar
var Geirlaugur Magnússon, f. 25/8
1944, skáld ogframhaldsskóla-
kennari. Þau skildu.
Dóttir er Móheiður Hlíf, f. 17.3.
1976, nemiviðMR.
Sonur Petrínu Rósar með Jó-
hanni D. Jónssyni, ferðamálafull-
trúa Suðurnesja, er Júlían Jóhann
Karlf. 25.1.1993.
Bræður Petrínu Rósar eru Jó-
hannes f. 25.11.1959, ságnfræðing-
ur; Pétur f. 14.4.1962, bifvélavirkja-
meistari og hrossabóndi.
Foreldrar Petrínu Rósar eru Ólöf
P. Hraunfjörð, f. 10/71932, bóka-
vörður, og Karl Ámason, f. 2.5.
1932, forstööumaður.
Leikhús
ÍSLENSKA ÓPERAN
__iiiii-
Sími 551-1475
Laud. 11/11 kl. 21.00, örfásætl laus,
og kl. 23.00, uppselt, laud. 18/11 kl.
21.00.
MAPAMA
BUTTERFLY
Frumsýning 10. nóv. kl. 20, uppselt.
Hátíðarsýning 12. nóv. kl. 20, uppselt.
3. sýn. 17. nóv. kl. 20.
Miðasalan er opinkl. 15-19
daglega nema mánudaga,
sýningardag til kl. 21.
SÍMI551-1475,
bréfasimi 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Hjónaband
Þann 24. júní voru gefin saman i
hjónaband í Þóroddsstaðakirkju í
Kinn af séra Sighvati Karlssyni Þór-
dis Stína Pétursdóttir og Friðrik,
Baldursson. Heimili þeirra er á
Húsavík. Með þeim á myndinni eru
synir þeirra: Sigurður Þór, Ámi Ól-
afur og Pétur Helgi.
Ljósmst. Péturs.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 551 1200
Stórasviðiðkl. 20.00.
^LERBROT
eftir Arthur Miller
Frumsýning á morgun föd. 10/11, nokkur
sæti laus, 2. sýn. mvd. 15/11,3. sýn. sud.
19/11,4. sýn.föd. 24/11.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Sud. 12/11, uppselt, fid. 16/11, uppselt, fös.
17/11, aukasýning, laus sæti, Id. 18/11, upp-
selt, fid. 23/11, aukasýning, laus sæti, Id.
25/11, uppselt, sud. 26/11, nokkursæti laus,
fid. 30/11, nokkur sæti laus.
STAKKASKIPTI
eftir Guðmund Steinsson
Ld. 11/11, siðasta sýning.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 11/11 kl. 14.00, uppselt, sud. 12/11 kl.
14.00, uppselt, Id. 18/11 kl. 14.00, uppselt,
sud. 19/11, kl. 14.00, uppselt, Id. 25/11 kl.
14.00, sud. 26/11 kl. 14.00, uppselt, Id. 2/12,
nokkur sæti laus, sud. 3/12, nokkur sæti laus,
ld.9/12, nokkursæti laus, sud. 10/12, nokkur
sæti laus. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Litla sviöiö kl. 20.30.
SANNURKARLMAÐUR
eftir Tankred Dorst
Föd. 10/11, Id. 11 /11, sud. 19/11, föd. 24/11,
Mvd. 29/11.
Smíöaverkstæðiö kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Sud. 12/11, uppselt, fid. 16/11, uppselt, föd.
17/11, aukasýning, laus sæti, Id. 18/11, upp-
selt, mvd. 22/11, fid. 23/11, aukasýning, laus
sæti, Id. 25/11, uppselt, sud. 26/11, uppselt,
fid. 30/11.
ATH.! Sýningum lýkur fyrri hluta desember.
Gjafakort i leikhús —
sígild og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýn-
ingardaga. Einnig simaþjónusta frá kl. 10
virkadaga.
Greiöslukortaþjónusta.
Fax: 5611200
Simi miðasölu: 551 1200
Simi skrifstofu: 5511204
VELKOMIN í ÞJÓDLEIKHÚSID!
t
Innilegar kveðjur og þakkir sendum við öllum þeim stóra
hópi ættingja og vina sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við skyndilegt andlát foreldra okkar, Geirþrúðar S.
Friðriksdóttur og Gunnlaugs P. Kristjánssonar, Flateyri.
Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölmörgu sem aðstoð-
uðu við björgun og leit eftir þetta hörmulega slys.
Við sendum Flateyringum öllum innilegar kveðjur og von-
um að mannlífið þar komist sem fyrst aftur í eðlilegt horf.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda.
Elísabet Alla Gunnlaugsdóttir
Ardís Gunnlaugsdóttir
Kristin Gunnlaugsdóttir
Ásthildur Gunnlaugsdóttir
María K. Gunnlaugsdóttir
Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Gísli Valtýsson
Bergmann Ólafsson
Pétur S. Þórðarson
Guðmundur Finnbogason
Þorbergur Dagbjartsson
Valur N. Magnússon
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMi 568-8000
' Stóra svið.
| LÍNA LANGSOKKUR
j eftir Astrid Lindgren
Laud. 11 /11, kl. 14, fáein sæti laus, sun.
12/11 kl. 14, uppselt, sun. 19/11 kl. 14, upp-
selt og sun. 19/11 kl. 17.
Litla sviökl. 20:
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Fös. 10/11, uppselt, iaud. 11/11, fáein sæti
laus, fös. 17/11, uppselt, lau. 18/11.
Stóra svið kl. 20:
TVÍSKINNUNGSÓPERAN
Gamanleikrit með söngvum eftir
Ágúst Guðmundsson
Sýn.lau. 11/11, fös. 17/11.
Stóra svið kl. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fös. 10/11.
ATH. TVEIR MIÐAR FYRIR EINN.
Aukasýnlng laugard. 18/11, siðasta sýning.
Samstarfsverkef ni við
Lelkfélag Reykjavikur:
Barf lugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Aukas. fim. 9/11, táeln sæti laus, fös. 10/11,
uppselt, laud. 11/11, uppselt, fös. 17/11,
uppselt, lau. 18/11, uppselt, fim. 23/11, fös.
24/11, uppselt, 25/11.
Stóra svið kl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
ettir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Laud. 11/11 kl. 23.30, fim. 16/11, uppselt,
fim. 23/11, lös. 24/11, fim. 30/11, tös. 1 /12,
siðustu sýningar.
Tónleikaröð LR Á stóra sviði,
alltaf á þriðjudögum kl. 20.30.
Tónleikar, Borgardætur, þri. 14/11. Miða-
verð 1.000 kr.
íslenski dansflokkurinn sýnir
á stóra sviði:
Sex ballettverk
Aðeins þrjár sýningar!
„Rags" e. Lafosse t. Scott Joplin, „Næstl
viðkomustaður: Álfastelnn" e. Ingibjörgu
Björnsdóttur, t. Sigurður Þórðarson,
„Blómahátiðin i Genzano" e. Bournonvllle
elnnlg kaflar úr „La Sylphide'1 e. Bournon-
vllle „Hnotubrjótnum" t. Tchalkovsky og
„Rauöum rósum“ e. Mills.
Frumsýning flm. 9. nóv. kl. 20.00, fáeln
sætl laus, sýn. sun. 12/11 kl. 20.00, lau.
18/11 ki. 14.00.
Önnurstarfsemi: Hamingjupakkiö
sýnir á litla sviöi kl. 20.30:
DAGUR
söng-, dans- og leikverk
eftir Helenu Jónsdóttur
Sýn.sun. 12/11.
Miðasalan er opin alia daga frá ki.
13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17,
auk þess er tekið á mótl miðapöntun-
um í sima 568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
EÐA í ÁSKRIFT í
SÍMA 563 2700