Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Qupperneq 22
34
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Afmæli
Páll Sigurðsson
Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri, Stigahlíð 89, Reykjavik, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Páll fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Sogamýrinni og á Suð-
urlandi. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1946, læknaprófl frá HÍ
1952, öðlaðist almennt lækninga-
leyfi 1956, öðlaðist sérfræðings-
leyfi í bæklunarskurðlækningum
1956, í embættislækningum 1972
og hefur Diploma of Public Health
frá University of Bristol í
Englandi frá 1970. Páll stundaði
nám og starfsþjálfun til lækninga-
leyfis i Reykjavík 1952 og til sér-
fræðileyfis i Svíþjóð 1953-56.
Páll var aðstoðarlæknir á
Landakoti og Kvenlækningadeild
Landspítalans 1952, á Ortopediska
Kliniken í Gautaborg 1953-56, var
sérfræðingur á slysadeild Borgar-
spítalans 1956-60, var tryggingayf--
irlæknir 1960-70, jafnframt starf-
andi læknir í Reykjavík með að-
stöðu á Landakoti 1956-71, er
ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu frá
1970, var yfirlæknir í hlutastarfi
hjá Vinnu- og dvalarheimili
Sjálfsbjargar 1973-80 og ráðgjafi
hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni í Kaupmannahöfn 1982-83.
Páll sat í stjórn Læknafélags
Reykjavíkur 1958-60, í stjórn
Læknafélagsins Eirar 1960-64, for-
maður Skurðlæknafélags íslands
1961-64, í stjórn Gigtarfélags ís-
lands 1963-64, borgarfulltrúi Al-
þýðuflokksins í Reykjavík
1966-70, í Almannavarnanefnd
Reykjavíkur 1962-66, í Fræðs-
iuráði Reykjavíkur 1962-66, í Fé-
lagsmálaráði Reykjavíkur 1968-70,
formaður stjórnarnefndar Ríkis-
spítala 1973-83, formaður
Daggjaldanefndar sjúkrahúsa
1972-92, í yfirstjórn mannvirkja-
gerðar á Landsspítalalóð 1973-80,
í stjórn íslenskrar endurtrygging-
ar frá 1973 og formaður 1973-93, í
norrænu embættismannanefnd-
inni um félags- og heilbrigðismál
frá 1971, einn af stofnendum
Rotaryklúbbsins Reykjavík-Aust-
urbær 1963, ritari þar 1964-65 og
forseti 1981-82 og i Umferðarráði
1987-90. Þá hefur hann verið for-
maður fjölda opinberra nefnda
um heilbrigðis- og almannatrygg-
ingamál.
Páll hefur skrifað fjölda greina
um heilbrigðis- og almannatrygg-
ingamál í islensk og erlend blöð
og tímarit og hefur haft umsjón
með ritum heilbrigðis- og trygg-
ingamaálaráðuneytisins frá byrj-
un. Hann var sæmdur hinni ís-
lensku fálkaorðu 1978 og er Paul
Harris Fellow frá 1988.
Fjölskylda
Páll kvæntist 19.8. 1949 Guð-
rúnu Jónsdóttur, f. 6.10. 1926, geð-
lækni. Hún er dóttir Jóns Júníus-
sonar stýrimanns og Jónínu Jóns-
dóttur húsmóður sem bæði eru
látin.
Börn Páls og Guðrúnar eru
Jónína, f. 14.12.1949, tannlæknir í
Reykjavík, gift Magnúsi Guð-
mundssyni lækni og eiga þau tvö
börn; Ingibjörg, f. 14.12. 1949,
lyfjafræðingur í Reykjavík, gift
Helga Þórhallssyni efnaverkfræð-
ingi og eiga þau tvo syni; Dögg, f.
2.8.1956, lögfræðingur í Reykja-
vík, gift Ólafi ísleifssyni hagfræð-
ingi og eiga þau einn son; Sigurð-
ur Páll, f. 15.11.1960, geðlæknir í
Gautaborg, kvæntur Ásthildi Þor-
steinsdóttur leikskólakennara og
eiga þau þrjú böm; Jón Rúnar, f.
15.11. 1960, lögfræðingur i Reykja-
vík.
Páll Sigurðsson.
Systkini Páls eru Sigrún, f. 2.4.
1923, fyrrv. deildarstjóri, gift Guð-
mundi Guðmundssyni skipstjóra;
Jón, f. 29.10. 1934, forstjóri, kvænt-
ur Bergljótu Jónatansdóttur.
Foreldrar Páls voru Sigurður
Jónsson, f. 4.5. 1894, d. 1.7. 1957,
sjómaður i Reykjavík, og Ingi-
björg Pálsdóttir, f. 7.11. 1900, d.
26.9. 1975, húsmóðir.
Guðbrandur
Guðbrandur Einar Hlíðar dýra-
læknir, Álfheimum 66, Reykjavík,
er áttræður í dag.
Starfsferill
Guðbrandur fæddist á Akureyri
og ólst þar upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA 1935 og dýra-
læknaprófi frá Dýralæknaháskól-
anum í Kaupmannahöfn 1944.
Guðbrandur var skipaður dýra-
læknir í Norðlendingafjórðungi
1944, varð héraðsdýralæknir þar
1947, var aðstoðardýralæknir við
Statens Veterinármedicinska
Anstalt í Stokkhólmi í Svíþjóð
1952-58 og 1960-63, auk þess sem
hann gegndi þar um skeiö starfi
tilraunastjóra, var héraðsdýra-
læknir í Skagafjarðarumdæmi
1958-60 og forstöðumaður Rann-
sóknarstofu Mjólkursamsölunnar
1963-82 er hann lét af störfum fyr-
ir aldurs sakir.
Guðbrandur sat í stjóm Dýra-
vemdunarfélags Akureyrcu:
1948-52, í stjórn hliðstæðra sam-
taka í Skagafirði 1958-60 og var
formaður Dýralæknafélags íslands
1965-70.
Fjölskylda
Systkini Guðbrands: Brynja
Hlíðar, f. 9.11. 1910, lést í flugslys-
inu í Héðinsfirði 29.5. 1947, for-
stjóri Lyfjabúðar KEA á Akur-
eyri; Skjöldur, f. 6.6.1912, lést í
Kaupmannahöfn 1983; Gunnar, f.
20.5. 1914, lést af slysfórum 22.12.
1957, póst- og símstjóri í Borg-
arnesi; Jóhann Hlíðar, f. 25.8.
1918, prestur.
Foreldrar Guðbrandsr voru Sig-
urður Einarsson Hlíðar, f. 4.4.
1885, d. 18.12. 1962, yfirdýralæknir
og alþm., og k.h, Guðrún Louisa,
f. 18.9. 1887, d. 6.6. 1963.
Ætt og frændgarður
Föðursystir Guðbrands var
Guðfinna, móðir Jóhanns Pálsson-
ar, garðyrkjustjóra Reykjavíkur.
Sigurður var sonur Einar Ein-
arssonar, smiðs í Hafnarfirði, Ein-
arssonar, b. í Laxárdal í Gnúp-
verjahreppi, Einarssonar, b. í
Laxárdal, Jónssonar, ættfoður
Laxárdalsættarinnar. Móðir Ein-
ars smiðs var Rannveig Einars-
dóttur á Urriðafossi, Magnússon-
ar, ættföður Urriðafossættarinnar.
Móðir Sigurðar var Sigríður
Jónsdóttir, b. í Hörgsholti í
Hrunamannahreppi, Jónssonar,
ættfoður Hörgsholtsættarinnar.
Móðir Sigríðar var Guðrún, systir
Til hamingju með afmælið 9. nóvember
95 ára
Jón Einar Jónsson,
Skálanesi I, Reykhólahreppi.
85 ára
Jens Guðmundsson,
Kirkjubæ, ísafirði.
80 ára
Þorsteinn Kristjánsson,
Uppsölum I, Svarfaðardalshreppi.
Guðrún Þ. Hörgdal,
Skarðshlíð 17, Akureyri.
Jóhannes Jónsson,
Ennisbraut 18, SnæfeUsbæ.
Kristinn Guðjónsson,
Hrafnistu við Skjólvang, Hafnar-
firði.
75 ára
Kristján Stefánsson,
Skólavegi 76, Fáskrúðsfirði.
70ára
Jensína Guömundsdóttir,
Reynihvammi 29, Kópavogi.
Friörik Guðmundsson,
Kleppsvegi 34, Reykjavík.
Sverrir Olsen,
Fumgrund 48, Kópavogi.
60 ára________________________
Sólveig Ámadóttir,
Eskihlíð 12, Reykjavík.
María Guðmundsdóttir,
starfsmannahúsi 4, Reykjalundi,
Mosfellsbæ.
Jónas Jóhannsson,
Sigtúni 27, Reykjavík.
50 ára___________________________
Helga G. Ólafsdóttir,
Eyrarholti 6, Hafnarfirði.
Margrét H. Jónsdóttir,
Ytri-Skógum II, A-Eyjafjallahreppi.
Berþóra Jóhannsdóttir,
Þúfubarði 11, Hafnarfirði.
Sigurður H. Magnússon,
Furagrund 79, Kópavogi.
Hrefha Jónsdóttir,
Hlíðarbyggö 29, Garðabæ.
40 ára
Sigurður Magnússon,
Setbergi 14, Þorlákshöfh.
Leó Reynir Ólason,
Öldugötu 48, Hafnarfirði.
Guðbjörg Úlfsdóttir,
Botnahlíð 15, Seyðisfirði.
Oddný Halla Haraldsdóttir,
Ástúni 8, Kópavogi.
Gísli Karlsson,
Sólheimum 2, Breiðdalshreppi.
Margarita R. Raymondsdóttir,
Hraunbraut 3, Kópavogi.
Guðmundur K. Erlendsson,
Austurbergi 14, Reykjavík.
Einar Hlíðar
Guðlaugar, ömmu Ásgríms Jóns-
sonar listmálara. Guðrún var
dóttir Snorra, b. á Kluftum, bróð-
ur Helgu, ömmu Einars Jónsson-
ar myndhöggvara. Snorri var son-
ur Halldórs, b. í Jötu, Jónssonar,
ættföður Jötuættarinnar.
Guðrún Louisa var dóttir Guð-
brands, verslunarstjóra í Reykja-
vík, Teitssonar, fyrsta lærða dýra-
læknisins hér á landi, Finnboga-
sonar, bróður Jakobs, langafa
Vigdísar forseta. Móðir Guð-
brands var Guðrún Guðbrands-
dóttir, járnsmiðs í Reykjavík,
Stefánssonar og Ástríðar Guð-
mundsdóttur, systur Helga Thord-
ersen biskups.
Móðir Guðrúnar var Louise
Zim- sen, af ætt hollenskra skóg-
ræktarmanna sem settust að á
Jótlandi, systir Christians, föður
Knuds Zimsen borgarstjóra. Móð-
ir Lóuise var Johanne Duedóttir
Havsteen, talin afkomandi Heina
hafreka og skyldur færeysku
Heinesen-ættinni, kaupmanns í
Reykjavík, bróður Jakobs, afa
Hannesar Hafstein ráðherra og
langafa Júlíusar, föður Jóhanns
Hafstein forsætisráðherra. Móðir
Johanne var Johanne Birch, syst-
ir Marenar, konu Jakobs, bróður
Due.
Guðbrandur Einar Hlíðar.
Þórarinn Magnússon
Þórarinn Magnússon, verkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri Bú-
seta, Bakkaflöt 5, Garðabæ, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Þórarinn fæddist að Ytri-Ósi í
Hrófbergshreppi í Strandasýslu.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1965, lauk fyrrihlutaprófi í bygg-
ingaverkfræði frá HÍ 1968, lauk
lokaprófi í byggingaverkfræði frá
Lunds Teckniska Högskola í Sví-
þjóð 1971, stundaði nám í snjó-
flóðavömum í Sviss og Noregi
1976- 79 og hefur farið ýmsar
náms- og kynnisferðir til Norður-
landanna og víðar.
Þórarinn var verkfræðingur við
gatnadeild borgarverkfræðings í
Reykjavík 1971-73, var deildar-
stjóri Hreinsunardeildar hjá borg-
arverkfræðingi 1973-75, bæjar-
verkfræðingur og byggingafúlltrúi
í Neskaupstað 1975-77, sérfræðing-
ur og deildarstjóri á Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins
1977- 89, sjálfstætt starfandi verk-
fræðingur í Reykjavík 1989-90 og
er framkvæmdastjóri Búseta í
Reykjavík frá 1990.
Þórarinn sat í stjóm Bygginga-
verkfræðingafélags íslands
1973-75, í stjóm Stéttarfélags
verkfræðinga 1975-76, í stjóm Líf-
eyrissjóðs verkfræðinga 1973-76
og varaformaður þar 1979-84, í
stjóm Samtaka tæknimanna sveit-
arfélaga 1976-79, í Almannavam-
amefnd Neskaupstaðar 1975-77,
starfsmaður Snjóflóðanefndar
Neskaupstaðar 1976-77, var próf-
dómari við Iðnskólann í Reykja-
vík 1975, kennari við Meistara-
skólann 1978, fulltrúi íslands í
Nordtest Brand 1985-90, hefur set-
ið í stjómskipuðum nefndum
varðandi snjóflóðavanda 1983-95, í
stjóm Verkfræðingafélags íslands
1989-91, varaformaður félagsins
1989-90 og formaður 1990-91, í
rústanefnd VFÍ 1992-94, í neyðar-
nefnd VFÍ frá 1994 og siðanefhd
VFÍ frá 1994, varaformaður gæða-
ráðs byggingariðnaðarins 1991-94
og formaður 1994-95 og formaður
stjórnar landssambands Búsetafé-
laga 1990-94.
Fjölskylda
Þórarinn kvæntist 14.6.1975
Sigríði Austmann Jóhannsdóttur,
f. 10.10.1948, hjúkranarfræðingi
og aðstoðardeildarstjóra á Borgar-
spítalanum. Hún er dóttir Jó-
hanns Eymundssonar, fyrrv.
kaupmanns, og Þórhöllu Karls-
dóttur húsmóður.
Dóttir Sigríðar er Halla Jó-
hanna Magnúsdóttir, f. 14.3. 1967,
hjúkranarfræðingur en sambýlis-
maður hennar Ágúst Skúlason.
Börn Þórarins og Sigríðar era
Magnús Gunnlaugur Þórarinsson,
f. 22.11. 1976, menntaskólanemi;
Tinna Ósk Þórarinsdóttir, f. 30.4.
Þórarínn Magnússon.
1983, nemi.
Systur Þórarins: Sigríður Þóra
Magnúsdóttir, f. 19.8. 1932, hús-
móðir í Reykjavík; Marta Gunn-
laug Magnúsdóttir, f. 27.6. 1936,
húsmóðir í Garðabæ; Nanna .
Magnúsdóttir, f. 28.6. 1938, bóndi
við Hólmavík.
Foreldrar Þórarins: Magnús
Gunnlaugsson, f. 28.2. 1908, d. 10.9.
1987, b. og hreppstjóra á Ytri-Ósi,
og Aðalheiður Þórarinsdóttir, f.
14.5. 1905, húsfreyja, sem nú dvel-
m- á elliheimili.
Þórarinn tekur á móti gestrnn í
Akoges-salnum, Sigtúni 3, Reykja-
vík, í dag milli kl. 17.00 og 19.00.
•• 903 • 5670 ••
Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn.