Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Qupperneq 24
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Geislaplötur voru brenndar f
Vestmannaeyjum.
Af hverju er ekki
búið að kveikja í
plötum Gylfa?
„Ég skil ekki af hverju þeir
voru að brenna þessa diska.
Fannst þeim tónlistin svona lé-
leg? Af hverju eru þeir þá ekki
fyrir löngu búnir að kveikja í öll-
um plötum Gylfa Ægissonar?"
Andrés Magnússon, í Alþýðublaðinu.
Nýfrelsaður
heilagsandahoppari
„Ég, segir hann, var kommún-
isti, ég var félagi í Alþýðubanda-
laginu. En ég skipti um skoðun.
Og hann talar eins og nýfrelsað-
ur heilagsandahoppari."
Svavar Gestsson um Jón Baldvln
Hannlbalsson í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Linkumenn og pólitískir
rasssleikjarar
„Þetta er eins og þegar ís-
lenskt Alþingi hefur verið verst,
samsett af linkumönnum og póli-
tískum rasssleikjurum.“
Gunnar Bjarnason, f DV,
um Samelnuðu þjóðlrnar.
Hagkvæmasti kostur
í heiminum
„Það er enginn vafi á að þessi
kostur að stækka ÍSAL er hag-
kvæmasti kostur sem til er í
heiminum."
Slghvatur Björgvinsson, í DV.
Stéttaskipting hefur fylgt Ind-
landi frá örófi alda.
Indland Aríanna
Nasistar á sinum tíma hófu að
túlka orðið arískur sem ekki
gyðingur og í þrengri skilningi
germanskur. Upprunalega þýddi
orðið aríar aftur á móti „hinir
hágöfugu" og var heiti á indó-
evrópskum þjóðflokki sem kom
að vestan til Punjab, beggja
vegna viö Efri-Indus, nokkru fyr-
ir mitt árþúsund f. Kr. Þeir
fikruðu sig svo þaðan um alda-
mótin 1000 f. Kr. austur yfir
Ganges-sléttuna sem þeir ruddu
síðan smám saman og ræktuðu
með járnverkfærum. Ríkin tóku
við hvert af öðru og stækkuðu og
að síðustu náði Maurya-ríkið um
200 f. Kr. yfir hluta þess sem nú
er Indland og Pakistan. Stétta-
greining Aríanna og kúgun
þeirra á því fólki sem fyrir var
mótaði indverska stéttaskiptingu
til frambúðar.
Blessuð veröldin
Indversku hetjukvæðin
Hin fornu indversku hetju-
kvæði, Mahabhárata og Ramá-
yana, eru að vissu marki að efni
til sambærileg við kviður
Hómers. Eins og Ilíonskviða
snýst um bardagana við Trjóu er
aðalefnið í Mahabháta stríð milli
tveggja skyldra konungsætta um
völdin í Kuru-ríkinu en það var
nálægt því sem nú er Delhi.
Víðast vægt
í dag og nótt verður norðvestan-
og norðanátt víkjandi um allt land.
Allhvöss norðan- og norðaustan-
lands með éljum en mun hægari
vindur víðast hvar annars staðar. Á
Suður- og Suðausturlandi verður
bjartviðri. Skýjað vestanlands, ann-
Veðrið í dag
ars staðar smáél eða slydduél. Víð-
ast hvar verður vægt frost, þó má
búast við 3 til 5 stiga hita sunnan-
og suðaustanlands yfir hádaginn. Á
höfuðborgarsvæðinu verður hæg-
viðri og skýjað meö köflum í fyrstu
en norðankaldi og léttskýjað þegar
líður á morguninn. Stinningskaldi
eða allhvass norðan og skýjað síð-
degis og fram á nóttina en lægir þá
töluvert og léttir heldur til. Vægt
frost í fyrstu en 2 til 4 stiga frost yfir
hádaginn.
Sólarlag í Reykjavík: 16.47
Sólarupprás á morgirn: 9.33
Síðdegisflóð f Reykjavík: 19.34
frost
Árdegisflóð á morgun: 7.50
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö 0
Akurnes léttskýjaó 2
Bergsstaóir alskýjaö -1
Bolungarvík alskýjaö 1
Egilsstaöir skýjaö 0
Keflavíkurflugvöllur léttskýjaö 0
Kirkjubœjarklaustur heiöskírt 1
Raufarhöfn snjókoma -1
Reykjavík skýjaö -1
Stórhöfði léttskýjaö 0
Bergen hálfskýjaö 4
Helsinki snjókoma 1
Kaupmannahöfn súld 6
Ósló léttskýjaó 1
Stokkhólmur skýjaö 3
Þórshöfn léttskýjað 5
Amsterdam rign/súld 11
Barcelona léttskýjaö 10
Feneyjar þokumóða 6
Frankfurt þokumóöa 6
Glasgoui skýjaö 1
Hamborg þokumóóa 10
London þokumóöa 11
Los Angeles þokumóöa 16
Lúxemborg þoka 6
Madrid skýjað 9
Malaga skýjaö 12
Mallorca hálfskýjaö 6
New York heiöskírt 3
Nice léttskýjaó 9
Nuuk skýjaó 3
Orlando skýjaö 11
París léttskýjaö 4
Róm þokumóða 6
Valencia mistur 11
Vín alskýjaó 0
Winnipeg alskýjaö -10
Benedikt Rúnar Guðmundsson, körfuboltaþjálfari:
Gaman að hitta Pat Riley
og Don Nelson í eigin persónu
„Ég hef sökkt mér niður í körfu-
boltann síðustu árin og verið að
þjálfa í nokkur ár, hef núna verið
með yngri flokkana í KR og þjálf-
aði drengjalandsliðið í sumar,“
segir Benedikt Rúnar Guðmunds-
son, sem í vikunni var ráðinn
þjálfari Úrvalsdeildarliðs KR og er
langyngsti þjálfarinn í Úrvalsdeild-
inni, tók hann við þjálfarastööunni
af Axel Nikulássyni.
Benedikt segist hafa í gegnum,
tíðina farið á námskeið fyrir þjálf-
ara í útlöndum: „í sumar fór ég til
Maður dagsins
að mynda til Grikklands á nám-
skeið, þar sem ekki voru ómerkari
leiðbeinendur en Par Riley og Don
Nelson auk annarra þekktra þjálf-
ara og þaö var virkilega gaman að
komast í návígi við þessa menn og
hitta í eigin persónu.
Benedikt er búinn að lifa og
hrærast í körfuboltanum alveg frá
því hann var smástráku: „Ég var
tíu ára þegar ég byrjaði að æfa og
1 .................
Benedlkt Rúnar Guömundsson.
hef alltaf verið í KR, en ég hef þjálf-
að aðra en KR-inga, ég bý í Njarð-
vík og þar var ég með körfubolta-
skóla í sumar. Þegar þú býrð í
Njarðvík þá ertu með körfuboltann
aflt í kringum þig, enda bærinn al-
gjör körfuboltabær.“
Benedikt var spurður hvemig
starfið legðist í hann: „Mér líst vel
á starfið, gengi KR-liðsins hefur
verið um 50% og er stefnan sett á
að bæta það. Ég hef góðan mann-
skap, unga og efnilega stráka í
bland við eldri spilara."
Nú er spilað tvisvar í viku í úr-
valsdeildinni og var Benedikt
spurður hvort það væri ekki of
mikið: „Persónulega finnst mér
vera of mikið að spila tvo leiki í
viku. Það gefast fá tækifæri til að
kenna á æfingum, allur tíminn fer
í að undirbúa fyrir næsta leik.
Þetta hentar betur reynslumiklum
liðum á borð við Njarðvíkurliðið,
en þar sem eru ungir leikmenn þá
þurfa þeir einnig að fá tækifæri til
að fá kennslu."
Benedikt er einhleypur og er
aðalstarf hans þjálfun. Um önnur
áhugamál sagði hann það vera
boltaíþróttir almennt: „Ég fylgist
vel með fótboltanum og svo smitað-
ist ég af golfiþróttinni og þá var
ekki aftur snúið og spila ég golf á
sumrin.“
Sex leikir í Úr-
valsdeildinni
í kvöld verður leikin heil um-
ferð i Úrvalsdeildinni í körfu-
bolta og fara leikimir fram víða
um land. Á Akranesi leika ÍA og
Valur, Skallagrímur og Þór leika
í Borgarnesi, Grindvíkingar
leika á heimavelli gegn KR, I
Njarðvíkum leika heimamenn
við Breiðablik, í Reykjavík fer
fram viöureign ÍR og Tindastóls
íþróttir
og í Hafnarfirði leika Haukar og
Keflavík. Allir leikimar hefjast
kl. 20.00.
Einn leikur er í 1. deild
kvenna og fer hann fram i Vest-
mannaeyjum, ÍBV leikur gegn
Víkingi ld. 21.00.
Skák
Stórmeistarinn Miguel Illescas
sigraði glæsilega á spænska meist-
aramótinu sem fram fór í
Matalscanas fyrir skömmu. Hann
hlaut 8,5 v. - tveimur meira en
næstu menn.
Þessi staða er frá mótinu. Illescas
hafði hvítt og átti leik gegn Magem:
23. Rxf6! Bxel Ef 23. - DxfB 24.
Hxe5+ og drottningin fellur. 24.
Dxe5+ Kd8 25. Hxel Hc4 26. d6 og
svartur gaf - hótunin er 27. De8+! og
mát í næsta leik.
Jón L. Árnason
Bridge
Ice-Relay sagnkerfi Jóns Baldursson-
ar og Sævars Þorbjörnssonar þykir
vera sérlega nákvæmt ef opnanir eru á
báðum höndum spilafélaganna og frið-
ur gefst til að segja á spilin. I móts-
blaði, sem gefið var út vegna Politiken-
tvímenningsmótsins í Danmörku í síð-
ustu viku, var drepið á kerfi þeirra fé-
laga. Þeir Jón og Sævar sögðu á spil
austurs og vesturs í sagnkeppni tíma-
ritsins European Bridge, fyrsta tölu-
blaði ársins 1995. Sagnir gengu þannig:
4
«*
♦
*
4 K843 —
8732 v
♦ ÁDG87
* L_
4
44
♦
*
Vestur Norður Austur Suður
Sævar Jón —
14 pass 1G pass
3*4 pass 34 pass
44 pass 444 pass
4G pass 5* pass
54 pass 5G pass
6* pass 64 pass
64 pass 74 p/h
Tígulopnunin lýsti 11-15 punktum
ójafiiskipta hendi, eitt grand var út-
tektarkrafa (game). Allar næstu sagnir
vesturs voru nákvæmari lýsing á
hendinni en sagnir austurs voru
spurnarsagnir. Þrjú hjörtu lýstu 4
spöðum og eyðu í laufi, 3 grönd sýndu
4-4-5-0 skiptingu. Fjórir tíglar sagði frá
þremur kontrólum og íjögur grönd lof-
uðu kontróli í tígli en neituðu hjarta-
kontróli. Fimm spaðar lofuðu kontróli
í spaða og tíguldrottningu en neituðu
hjártadrottningu. Sex lauf neituðu
spaðadrottningu og 6 spaðar lofuðu
tígulgosa! og neitaði hjartagosa. Af-
gangurinn var auðveldur og eins og
sést er alslemma í tígli góður samning-
ur með trompinu ekki -verr en 4-2 og
spöðum 3-1. Ef trompin liggja 3-3 úti
væri hægt að ráða við 4-0 spaðalegu ef
vömin tekur ekki trompun í byrjun.
Óneitanlega áhrifaríkt sagnkerfi og
nákvæmni í sögnum.
ísak Örn Sigurðsson
4 A9765
44 ÁK94
♦ K6
* ÁK