Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Qupperneq 28
FRETTASKOTIÐ
Sl'MINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Sérstakt sakamál sem lögregla og ríkissaksóknari hafa haft til meðferðar á árinu:
Læddist inn til 13 kvenna
og stal frá þeim nærfötum
andrúmsloftið i bæ á landsbyggðinni orðið lævi blandið þegar verst lét
Þrettán konur, flestar úr sjávar-
plássi á landsbyggðinni, hafa kraf-
ist hundraða þúsunda króna í
skaðabætur fyrir verulegt magn af
undirfötum og ýmsum öðrum
klæöum sem ungur maður hefur
orðið uppvís að að stela frá þeim
með því að fara óboðinn inn í hús-
næði þeirra á ýmsum tímum sólar-
hrings á síðustu árum. Lögregla og
ríkissaksóknari hafa haft þetta
sérstæða mál til meðferðar frá því
á fyrri hluta ársins.
Samkvæmt upplýsingum DV tók
fyrst að bera verulega á því að
maðurinn sýndi kvennærfötum
óvenjumikinn áhuga fyrir örfáum
árum. Hann bjó þá i bæ á Norður-
landi og gerði sér far um að fara
inn í ólæst húsnæði kvenna og
stela frá þeim nærfotum. Konum-
ar uppgötvuðu að ýmislegt úr fata-
hirslum þeirra hafði horfið en
vissu ekki hver þjófurinn var.
Á árinu 1994 var maðurinn flutt-
ur í bæ í öðrum landshluta. Hann
tók þá til við fyrri iðju. Þar sem
hús voru gjaman ólæst í bænum
fóru þjófnaðir nærfatamannsins
fram með þeim hætti að hann
sætti lagi við að fara inn hús til að
stela kvennærfotum. Einnig kom
fyrir að hann læddist inn í hús þar
sem fólk svaf til að stela nærföt-
um. Þegar heim kom safnaði hann
fötunum saman á einn stað á
heimili sínu.
Þegar líða tók á árið 1994 var
ástandið í bænum orðið þannig að
verulegur fjöldi kvenna átti það
sameiginlegt að einhver hafði
stolið frá þeim nærfötum. Var þá
kvartað eða kært til lögreglu. Svo
vildi tfl að einn lögreglumaður
embættisins haföi haft spurnir af
konu sem haföi greint frá nærfata-
þjófnaðinum á Norðurlandi. Með
þeim hætti var hægt aö rekja slóð-
ina til mannsins.
Eftir talsverðar vangaveltur
ákvað lögreglan að hafa tal af
manninum. Honum var sagt frá
ástandinu og hann spurður hvort
verið gæti að hann ætti hlut að
máli. Maðurinn viðurkenndi þá
nánast umyrðalaust hina óvenju-
legu söfnunaráráttu sína.
Samkvæmt heimildum DV ná
þjófnaðirnir yfir fimm ára tímabil.
Hann fór oftar en einu sinni óboð-
inn inn á heimili sumra kvenn-
anna og hjá ýmsum þeirra stal
hann ekki eingöngu nærfötum
heldur einnig stuttum pilsum,
undirkjólum, náttkjólum eða öðru.
Þegar lögreglan gerði húsleit
heima hjá manninum var hann með
svo mikið af nærfatavarningi að
menn höfðu á orði að verslun teld-
ist fullsæmd af sliku úrvali. -Ótt
4
4
4
4
4
4
Atlantsál-hópurinn:
Áformum
Heiðar Jónsson:
enn álver
„Eg er að
drukkna"
á Islandi
- segir forstjóri Gránges
„Tíðindin koma okkur ekki á
óvart. Það er hagstætt vegna raf-
orkunnar að reisa álver á íslandi.
Við höfum engu breytt um okkar
áform. Viö erum enn að skoða alla
möguleika og munum hittast í
Amsterdam í lok þessa mánaðar,“
sagði Lars Westerberg, forstjóri
Granges í Svíþjóð, í samtali við DV í
tilefni af ákvörðun Alusuisse-Lonza
að stækka álverið í Straumsvík.
Gránges er hluti af Atlantsál-
hópnum svokallaða sem um nokk-
^urra ára skeið hefur áformað að
""reisa álver á Keilisnesi. Auk
Granges eru í hópnum álfyrirtækin
Alumax í Bandaríkjunum og
Hoogovens í Hollandi. Tom Hagley,
blaðafulltrúi Alumax, sagði í sam-
tali við DV í gær að spurningin
væri ekki hvort heldur hvenær ál-
ver yrði reist á íslandi á vegum Atl-
antsál-hópsins. Sömu yfirlýsingu
gaf hann í Financial Times í gær.
„Við viljum hins vegar ekki gefa
neinar falsvonir. Þetta er stór
ákvörðun sem taka þarf að vand-
lega athuguðu máli,“ sagði Tom.
Eins og komið hefur fram er
bandaríska fyrirtækið Columbia
Aluminum einnig með áform uppi
um álver á Islandi. í því skyni hafa
fulltrúar fyrirtækisins komið í
•Tvigang til Islands en ætlun þeirra
er að vera með álverið á Grundar-
tanga. -bjb/kaa
Heiðar Jónsson snyrtir sagði í
samtali við DV í morgun að hann
hefði fengið nóg af umtali og of-
sóknum ýmissa aðila, opinberra
sem annarra. Heiðar kvaðst hafa
verið uppnefndur, hann væri að
missa eignir sínar og væri hrein-
lega að drukkna vegna umtals í
kjölfar nýlegra atburða en hann
hefur verið kærður fyrir blygðun-
arsemisbrot gagnvart ungum
manni á Akureyri.
Það sem fylgdi í kjölfar kærunn-
ar var mynd sem kærandi tók sjálf-
ur af Heiðari - henni var síðan
dreift víða á Akureyri og hún hefur
nú verið sett inn á Internetið -
mynd sem telja mætti að höfundar
haldi venjulega fyrir sjálfa sig.
„Ég er að drukkna. Þetta er bara
búið og ég líklega búinn. Ég veit
ekki hvað verður,“ sagði Heiðar og
baðst undan því að ræða málið
frekar að svo stöddu. -Ótt
Mettúr úr Smugunni:
Sléttanes með
100 milljónir
„Við erum búnir að fiska í Smug-
Handverksfólk af öllu landinu sýnir framleiðslu sína á sýningu í Ráðhúsinu sem Davfð Oddsson forsætisráðherra
opnar í dag. Aðstandendur Handverks, sem er reynsluverkefni á vegum forsætisráðuneytisins til þess að auka at-
vinnu í greininni, skipulögðu sýninguna. Á sýningunni eru sýnishorn af framleiðslu 66 aðila. Sérstök sýningarnefnd
valdi hluti á sýninguna og er þetta í raun fyrsta handverkssýningin þar sem ákveðið gæðamat er hluti af þátttöku-
skilyrðum. Allir hlutirnir á sýningunni eru til sölu í verslunum, galleríum, handverkshúsum eða beint frá framleið-
anda. Aðgangur er ókeypis. Á myndinni er Birna Kristjánsdóttir með nokkra munanna sem eru á sýningunni.
IBS/DV-mynd Sveinn
unní í ár sem nemur þreföldum
þorskkvóta okkar á íslandsmið-
um,“ segir Bergþór Gunnlaugsson,
yfirstýrimaður á Sléttanesi ÍS sem
er á heimleið með fullfermi, eða
sem nemur rétt tæpum 100 milljón-
um króna. Bergþór segir að aflinn
samsvari 1500 til 1600 tonnum af
þorski upp úr sjó. -rt
LOKI
Þetta er fremur
nærgöngult hobbí!
Veðrið á morgun:
Víöa létt-
skýjað
Á morgun verður norðangola
eða kaldi. Smáél - norðaustan-
lands en þurrt og víða léttskýjað
annars staðar.
Frost verður yfirleitt á bilinu
0—5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
4
Grensásvcqi 11
Sfmi: 5 886 886 Fctx: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886