Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1995, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1995, Page 6
22 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995 ^ftíngar Sýningar Argentína, steikhús Barónsstíg 11 a Jóhann G. Jóhannsson sýnir rúmlega lutt- ugu myndir, unnar með blandaðri tækni. Sýningin stendur til 23. nóvember. Ásmundarsalur Freyjugötu 41 Ásdís Kalman sýnir málverk unnin með olíu á striga. Sýningin er opin alla daga kl. 14-18 og stendur til 19. nóvember. Gallerí Art-Hún Stangarhyl 7, Rvík Þar stendur yfir sýning á verkum Ertu Ax- elsdóttur, Helgu Armannsdóttur, Elínborg- ar Guðmundsdóttur, Sigrúnar Gunnars- dóttur og Margrétar Salome. Galleríið er opið alla virka daga kl. 12-18. Deiglan, Akureyri 18. nóv. verður opnuð Ijósmyndasýning Ingu Sólveigar Friðjónsdóttur. Sýnlngin í Deiglunni hefur hlotið titilinn Af klettum og steini". Gallerí Fold Laugavegi 118d Sibba (Sigurbjörg Jóhannesdóttir) sýnir málverk. í kynningarhomi gallerísins sýnir Adam Nichols vatnslitamyndir. Sýningin er opin kl. 10-18 nema á sunnudaginn kl. 14-18, en þá lýkur sýningunni. Gallerí Greip Sýning á verkum Tinnu Gunnarsdóttur. Á sýningunni eru sófar, borð og hillur. Sýn- ingin stendur til 26. nóvember og er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Gallerí Guðmundar Ánanaustum 15, sími 21425 Galleríið er opið virka daga kl. 10-18. Gallerí Helga Árnanesi Homafirði Laugard. 18. nóv. nk. verður opnuð sam- sýning. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14-17 og stendur til 3. des. Þátt í sýn- ingunni taka nokkrar af fremstu leiriista- konum landsins. Þær eru Kogga, Stein- unn Marteinsdóttir, Kolbrún S. Kjarval, Inga Elín, Rannveig Tryggvadóttir, Britta Berglund, Þóra Sigurþórsdóttir og Helga Jóhannesdóttir. Helga Eriendsdóttir sýnir málaöa kertastjaka úr tré. Gallerí, Ingólfsstræti 8 Hreinn Friðfinsson sýnir verk sín. Sýning- in er opin alla daga nema mánudaga kl. 26. nóvember. Gallerí List Skipholti 50b Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema laugardaga kl. 11-14. Sýningar í gluggum á hverju kvöldi. Æja, Þórey Magnúsdóttir er þar með sýningu. Gallerí Ríkey Hverfisgötu 59 Sýning á verkum Rfkeyjar. Opið kl. 13-18 virka daga en laugardaga og sunnudaga kl. 13-16. Gallerí Stöðlakot Bókhlöðustíg 6 Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður er með sýningu, sem hún nefnir Steinblóm. Þar sýnir hún áþrykkt efni úr hðr, silki, bómull og viscose. Sýningin verður opin alla daga kl. 14-18 til 26. nóvember. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 Vignir Jóhannsson sýnir innsetningu sem heitir .Sérstðk þögn" og er úr stáli og lita- dufti. Sýningin er opin á verslunartíma kl. 10-18 virka daga. Gallerí Úmbru Amtmannsstfg 1 Iréne Jensen, grafíklistakona, opnar sýn- ingu fimmtud. 16. nóv. kl. 17-19. Sýningin er opin þriðjud. til laugard. kl. 13-18, sunnud. kl. 14-18 og lokað á mánudög- um. Sýningin stendur til 6. desember. Ketill Larsen Fríkirkjuvegi 11,1. hæð. Sýning dagana 18.-19. nóv. Sýninguna nefnir hann „Skinn frá öðrum helmi'. Sýn- ingin verður opin báða dagana frá kl. 14.00-22.00. Kirkjuhvoll Kirkjuhvoli, Akranesi. Laugardaginn 18. nóv. kl. 17.00 opnar Daði Guðbjömsson sýningu á verkum sln- um. Sýningunni lýkur 26. nóvember og er opin virka daga frá 16-18 og um helgar frá 15-18. Hafnarborg Eria B. Axelsdóttir listmálari opnaði sl. laugardag tíundu einkasýningu sina en um er að ræða pastelmyndir - náttúru- stemningar og minningabrot. Sýningin er opin kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga. Síðasti sýningardagur er 27. nóvember. Kaffi Mílanó Faxafeni 11 Markús Sigurðsson sýnir olíumálverk. Opið mánud. kl. 9-19. þriðjud., miðvikud. og fimmtud. kl. 9-23.30, föstud. kl. 9-1 og laugard. kl. 9-18. Ketill Larsen hefur haldið yfir tuttugu einkasýningar en sú nýjasta stendur aðeins yfir um þessa helgi. DV-mynd S Einkasýning Ketils Larsen: Skin frá öðrum heimi „Flestar myndimar á þessari sýn- ingu era nýjar af nálinni en það er ein og ein eldri mynd með af því að mér finnst svo gaman að hafa þær með. Þetta eru mest blóm og lands- lag og svo eru líka fljúgandi skip og ýmislegt sem minnir á annan heim en nafn sýningarinnar er dregið af því. Fyrir lifandi löngu sá ég í hug- skoti mínu alls konar myndir og ég fór að reyna að koma þeim niður á léreft. Það tókst nú ekki til að byrja með en þetta er landslag sem ég þekki ekki úr raunveruleikanum. Fljúgandi geimskip eru mér sérstak- lega hugleikin og ég hef mjög gaman af því að teikna þau,“ segir listam- aðurinn Ketill Larsen sem á morgun opnar einkasýningu á verkum sín- um að Fríkirkjuvegi 11,1. hæð. „Ég hef aldrei rekist sjálfúr á svona hluti (geimskip) en ég var einu sinni á Snæfellsnesi og þá hitti ég konu sem var meö fyrirlestur um fljúgandi furðuhluti og ég sýndi henni teikningamar mínar og hún benti á nokkur sams konar skip og hún hafði séð,“ segir listamaðurinn og bætir við að kannski hafi þetta nú bara verið tilviljun. Ketill hélt síðast einkasýningu á verkum sínum fyrir tveimur árum en sýning hans nú stendur aðeins yfír þessa einu helgi, 18.-19. nóv- ember. Hann segir stuttan sýningar- tíma samt ágætan og að sumir kalli þetta ör-sýningu. í verkum lista- mannsins nú ber aðeins á nýjum keim en myndimar hans eru frekar litlar en hvort svo verður áfram er alveg óráðið. Ketill segist hafa sinnt myndlistinni töluvert á þessu ári og verið sérstaklega duglegur að teikna en á sýningu hans að Fríkirkjuvegi 11 eru um 100 akrýl- og olíumyndir. Skissur Magnúsar Á morgun opnar Magnús Ólafúr Kjartansson mynd- listarmaður sýningu á verkum sínum í verslun Jens Guðjónssonar gullsmiðs að Skólavörðustíg 20 í Reykja- vík. Magnús kallar sýningu sína Skissur/Undirbúnings- vinna og þar sýnir hann vatnslitamyndir sem eru drög að málverkum sem hann sýndi á Kjarvalsstöðum árið 1994. Sú sýning vakti athygli en þau verk eru með trúar- legu ívafi. Magnús er fæddur í Reykjavík 1949 og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og Kommglegu dönsku listaakademíuna. Hann hefúr haldið fjölda einka- sýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum, bæði heima og erlendis. Hann rekur nú eigin vinnustofu að Álafossi í Mosfellsbæ. Sýning Magnúsar stendur til 2. desember og er opin á verslunartíma. Gallerí List: Einkasýning Æju í Gallerí List við Skipholt 50b stendur nú yfir sýning á verkum Æju, Þóreyjar Magnúsdóttur. Æja, sem lauk stúdentsprófi af listasviði Ejölbrauta- skólans í Breiðholti 1981, stundaði nám í Myndlistaskóla Reykjavíkur 1979-414. Hún hóf nám við Myndlista- og handíðskólaskóla íslands 1982 og lauk prófi úr myndmót- unardeild þremur árum síðar. Þá var Æja við nám í gler- steypu 1994 hjá Jónasi B. Jónassyni glerlistarmanni. Á síðustu árum hefur hún unnið að list sinni. Æja hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningmn hérlendis. Sýning hennar í List stendur út mánuðinn. Við Hamarinn: Takt'ana heim Fjöldi listamanna og hönnuða opnar sýningu í sýning- arsalnum Við Hamarinn, Hafnarfirði, á morgun. Um er að ræða sölusýningu með því fyrirkomulagi að seljist t.d. mynd er hún tekin niður og önnur sett upp og er nafn- gift sýningarinnar, Takt’ana heim 95, þannig til komin. Listasetrið Akranesi: Daði sýnir í Kirkjuhvoli Daði Guðbjömsson opnar sýningu á verkum sínum í listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi, á morgun. Hann sýn- ir þar aquarellur, ólíumálverk og grafik. Daði er fæddur í Reykjavík 1954 og stundaði myndlist- amám í Myndlistaskólanum I Reykjavik, Myndlista- og handíðaskóla íslands og í Ríkisakademíunni í Amster- dam. Hann hefur kennt við Myndlistaskólann í Reykja- vík og Myndlista- og handíðaskóla íslands. Daði var for- maður í Félagi íslenskra myndlistarmanna um skeið og sat í safnráði Listasafns íslands. Hann hefur haldið á þriðja tug einkasýninga hérlendis og erlendis og tekið þátt í meira en 50 samsýningmn víða um heim. Sýningunni lýkur 26. nóvember. -DÓ Benedikt, Gréta Ósk, Elín Perla, Gréta Mjöll og Kristberg- ur taka þátt í sýningunni. DV-mynd BG Samtímis Fimm myndlistarmenn opna samsýningu með heitinu „Samtímis" í kjallara Norræna hússins á morgun. Lista- mennimir eru Benedikt G. Kristþórsson, Elín Perla Kolka, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Gréta Ósk Sigurðardótt- ir og Kristbergur Ó. Pétursson. Á sýningu þeirra eru grafíkverk, m.a. ætingar og þurmál í kopar og ál, stein- þrykk og blönduð þrykktækni. Gréta Mjöll notar tákn sem í uppröðun sinni mynda sögur og vinnur hún m.a. á þessari sýningu út frá mjög hefðbundnum íslenskum sagnaformum, þ.e. ævisögum og minningargreinum. Kristbergur hefúr yfirskriftina viðstöðulausar myndir á verkum sinum og fjalla þau um rótleysi og óstöðugleika í dansi línu og flatar, margvís- legum árekstrum þeirra og sambúðarformum á mynd- fletinum. Elín vinnur út frá tengingu á milli himins og jarðar eða anda og efiiis. Gréta Osk notar texta í mynd- um sínum og býr þannig til frásögn. Benedikt vinnur út frá hugmyndum um micro, macro, þar sem sköpunin leiðir til eyöingar, tortímingar en um leið til ákveðinnar endumýjunar. Hugleiðing Iréne Iréne Jensen grafiklistakona hefur opnað sýningu í Gallerí Úmbru. Listakonan stundaði myndlistamám í Stokkhólmi 1976-77 og í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands 1990-94 og útskrifaðist úr grafikdeild. Iréne hefur áður haldið einkasýningar á Sauðárkróki og í Stokkhólmi, samsýningu í Boston og í Hafnarborg á þessu ári. Myndir hennar eru unnar í koparætingu og blandaðri tækni. Heiti sýningarinnar er „Bautasteinar Islands fyrr og nú“ og er persónuleg hugleiðing um sögu og menn- ingu íslands. Sýningar Kjarvalsstaðir í vestursal er sýning á íslenskri samtíma- list sem ber yfirskriftina Eins konar hver- dagsrómatík. 16 listamenn sýna. Þá er f miðrými og forsölum yfiriitssýning á verk- um Einars Sveinssonar arkitekts (1906-1973). Sýningin Kjarval - mótunar- ár 1885-1930 verður opin fram í desem- ber. Opið kl. 10-18. Kaffistofa og safn- verslun opin á sama tíma. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn erop- inn alla daga. Inngangur er frá Freyjugötu. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Listasafn Kópavogs Hamraborg 4 Pétur Gautur Svavarsson sýnir á þriðja tug málverka. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-18 og lýkur henni 19. nóvember. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga Sýning á völdum andlitsmyndum eftir Sig- urjón Ólafsson „Þessir kollóttu steinar" mun standa í allan vetur. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum kl. 14-17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Listhús 39 Strandgötu, Hafnarfirði Myndhöggvaramir Einar Már Guðvarðar- son og Susanne Christensen halda sýn- ingu á skálum sem flestar eru hoggnar í fslenskar steintegundir. Sýningin verður f sýningarrýminu baka til í Listhúsi 39. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Listhúsið í Laugardal Engjateigi 17 Þar stendur yfir myndlistarsýning á verk- um eftir Sjöfn Har. Sýningin ber yfirskrift- ina „(slensk náttúra, fslenskt landslag." Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16. Danski listamaðurinn Jargen Larsen sýnir f Katel til 18. nóvember. Sýn- ingin er opin virka daga kl. 10-18, laugar- daga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Menningarmiðstöðin Gerðuberg Skúlptúrsýning Ingu Ragnarsdóttur stend- ur til 26. nóvember. Myndlistarsýning Hlyns Hallssonar f Effinu fram til áramóta. Sýningamar eru opnar kl. 13-19 mánu- daga til fimmtudaga og kl. 13-17 föstu- daga til sunnudaga, Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Safnið opið á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13-17. Norræna húsið I anddyri hússins er sýning á grafíkverkum eftir dönsku listakonuna Bertu Moltke. Sýningin verður opin daglega kl. 9-19, nema á sunnudögum kl. 12-19. Sýning- unni lýkur 3. desember. „Samtímis" Dagana 18. nóv. til 3. des. verður hakfin sýning 5 myndlistarmanna. Listamennimir eru Benedikt G. Kristþórsson, Elín P. Kolka, Gréta Mjöll Bjamadóttir, Gréta Ósk Sigurðardóttir og Kristbergur Pétursson. Nýlistasafnið vA/atnsstíg Guðný Richards og Thomas Ruppel sýna málverk og grafík. Gestur safnsins f setu- stofu er þýski listamaðurinn Martin Leien- setter frá Ludwigsburg. Martin sýnir mál- verk. Sýningamar eru opnar daglega kl. 14-18 og þeim lýkur 26. nóvember. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11, Hafnarfirði Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18. Þjóðminjasafnið Opið sunnud, þriðjud. fimmtud. og laug- ard. kl. 12-17. Verslun Jens Guðjónssonar Skólavörðustíg 20 Þann 18. nóv. opnar Magnús Ólafur Kjartansson myndlistarmaður sýningu á verkum sínum. Sýningin stendur til 2. desember og er opin á verslunartíma. Málverkasýning á Akranesi Friðrik Jónsson heldur málverkasýningu f Listahomi Upplýsingamiðstöðvar Ferða- mála á Akranesi og stendur sýningin frá 15. otkóber til 31. nóvember. Á sýningunni eru aðallega vatnslitamyndir auk þriggja olfumálverka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.