Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1995, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995
3
T Ó N L I S J A R
66 -1 sveitinni
★★
Góðir sprettir en stefnan óljós
Þeir Birgir Haraldsson og Karl Tómasson hafa þraukað lengi saman í rokk-
inu og héldu hljómsveitinni Gildrunni úti um margra ára skeið. Hún lék
rokk í þyngri kantinum en hafði ekki erindi sem erfiði þrátt fyrir mikla
þrautseigju. Og nú er svo komið að þeir fóstbræður eru búnir að leggja
Gildruna niður og mesta þungarokkið á hilluna í bili að minnsta kosti og
teknir til við léttari tónlist undir nafninu 66.
Platan „í sveitinni" er önnur plata 66 og eins og nafn plötunnar gefur til
kynna er kominn sveitakeimur af tónlist sveitarinnar. Ekki er þó um hrein-
ræktað kántrí að ræða heldur er grunnurinn einhvers konar sveitarokk
með eilitlu blúsívafi. Á þessu eru ýmsir angar og útúrdúrar og greinilegt að
þeir Birgir og Karl eiga erfitt með áð finna sig á nýjum slóðum. Platan
verður þvl nokkuð sundurleit og við bætist að lögin eru afar misjöfn að
gæðum. Sum eru með því besta sem þeir félagar hafa gert eins og til dæmis
Móðir jörð, Gleymi lengstum að lifa og Flugbíllinn, en önnur eru lakari og
stundum virðist sem ekki hafi náðst að vinna lögin til fullnustu áður en
þeim var dembt inn á plötuna.
Textar eru allir á íslensku og líkt og lögin eru þeir afskaplega brokkgengir,
svo að ekki sé meira sagt. Söngur og hljóðfæraleikur er prýðisgóður en jafn-
góður söngvari og Birgir er ætti ekki að þurfa að beita jafnmikilli tilgerð í
söng og hann gerir. Hann er bestur þegar hann syngur af einlægni.
Sigurður Þór Salvarsson
Ásgeir Óskarsson - Veröld stór og smá
Trommuleikaraplata
Ásgeir Óskarsson spilar hvað sem er, rokk,
popp, blús, djass, polka, ræla og valsa. Hann fer
létt með suður-amerískan áslátt og vafalaust
einnig afrískan. Þar af leiðandi er hann sá
hljómlistarmaður sem fyrst kemur upp í hug-
ann þegar trommu- og ásláttarleikara vantar
við einhveija plötuupptökuna. Enda eru þær orðnar um hundrað og fimm-
tíu, plötumar sem hann hefur leikið inn á á rúmlega aldarfjórðungs ferli.
Það var því tími kominn til að Ásgeir sendi frá sér sína eigin plötu. Á Ver-
öld stór og smá er hann ekki einungis slagverksleikarinn. Hann semur öll
tíu lögin á plötunni, leikur á hljómborð og bassa og syngur og raddar auk
þess að forrita, útsetja og stýra upptökum. Platan ber þvi vitni að Ásgeir er
vel að sér í hljóðversvinnu (skárra væri það nú!) og að hans eigin stíll ligg-
ur einna næst Þursaflokknum af öllu því sem hann hefur fengist við af stfl-
um um ævina. Þessu gerir textahöfundur plötunnar, Ingólfur Steinsson,
sér grein fyrir enda eru yrkisefnin mörg í þeim anda sem hefði hæft Þurs-
um vel.
Lög Ásgeirs Óskarssonar eru ekki vinsældalistafóður. Þaðan af síður hæfa
þau lyftum, flugvöllum eða stórmörkuðum. Það þarf að hlusta á tónlistina
til að njóta hennar og sér í lagi slagverksleiks höfundarins sem auðheyri-
lega velur ekki auðveldustu lausnirnar þegar hann útsetur íyrir sjálfan sig.
Veröld stór og smá er plata fyrir pælara af gamla skólanum.
Ásgeir Tómasson
Emilíana Torrlnl - Croucie d’ou lá
ickirk
Ný stjarna fædd
Emilíana Torrini vakti fyrst athygli í fyrra með
hljómsveitinni Spoon fyrir óvenjugóðan og
þroskaðan söng af ekki eldri söngkonu að vera,
eða 17 ára. Nú er hún farin að starfa upp á eig-
in spýtur og það má ljóst vera að við Islending-
ar höfum eignast nýja söngstjörnu sem hefur alla burði til að ná miklum
frama ef rétt er haldið á spilum. Emilíana hefur sagt að söngur hennar með
Spoon hafi verið létt raul í sem hafi ekki fyllilega gefið rétta mynd af raun-
verulegu raddsviði hennar. Þegar hlustað er á þessa fyrstu sólóplötu henn-
ar fer þetta ekki milli mála og er engu líkara en að hún sé meðvitað að
sýna hvers hún er megnug. Söngurinn er nefnilega ótrúlega fjölbreyttur og
hreint með ólíkindum hversu margvíslegum söngstflum Emilíana hefur
yfir að ráða. Hún syngur rokk, hún syngur blús, hún syngur soul, hún
syngur djass, allt eins og að drekka vatn og með glæsilegum tilþrifum. Að
sama skapi sýnir þessi gífurlega fjölbrej’tni í lagavali á plötunni að Emilí-
ana er ekki búin að finna sér samastað á söngbrautinni. Hún er enn að
leita fyrir sér og á að gefa sér góðan tíma í það. Af því sem hún býóur hér
upp á finnst mér henni takast best upp í laginu Crazy Love, sem er gullfal-
leg soulballaða eftir Van Morrison, Today I Sing the Blues sein er ekta
blúsballaða og Miss Cele’s Blues (Sister) sem er gamalkunn jassballaða
sem Billy Holliday söng meðal annars endur fyrir löngu. Undirleikarar
Emilíönu á plötunni eiga líka mikið hrós skilið en þar eru á ferðinni þeir
Jón Ólafsson, Guðmundur Pétursson, Jóhann Hjörleifsson, Róbert Þór-
hallsson, Sigurður Sigurðsson, Haraldur Þorsteinsson, Snorri Valsson og
Magnús Jónsson. Croucie d’ou lá skipar Emilíönu Torrini á fremsta bekk
meðal dægurlagasöngvara þjóðarinnar og platan fer um leið sjálíkrafa í úr-
valsflokk. Sigurður Þór Salvarsson
í lummubakstri - Kartöflumýsnar
★★★
Bærilegasti bakstur
Kartöflumýsnar eru flokkur sjö karla og kvenna
sem fæst hafa komið við sögu í dægurtónlist eða
skemmtanaþjónustu, að frátöldum Þorsteini
Gunnarssyni trommuleikara. Hann gerði síðast
garðinn frægan með Stjóminni áður en hann
hvarf til náms. Við gerð plötunnar í lummu-
bakstri var hópur spilara og söngvara músunum til aðstoðar. Sumir í þeim
hópi teljast til landsliðsmanna í hljóðversvinnu og eiga þeir eflaust sinn
þátt í að tónlistin á plötunni er í mörgum tilvikum ágætlega heppnuð.
Lagasmíðar tveggja Kartöflumúsa, Lýðs Árnasonar og írisar Sveinsdóttur,
eru þó það sem fær eyrun fyrst og fremst til að sperrast. Laglínumar eru
oftar en ekki einfaldar en útsetningar bera vitni um góða hugmyndaauðgi
og eyra fyrir óvenjulegum lausnum. Ekki spillir fyrir að hér og þar má
greina hófleg djassáhrif í tónlistinni sem raunar er fremur erfitt að flokka
undir þessa stefnuna eða hina.
Af heildaryfirbragði plötunnar í lummubakstri má ráða að Kartöflumýsnar
hafi gert hana fyrst og fremst sjálfum sér til skemmtunar. Sú spila- og
sönggleði smitar ágætlega út frá sér og þegar á heildina er litið má hafa
gaman af plötunni, brosa oft út í annað en sjaldan eða aldrei grát’út í hitt.
Ásgeir Tómasson
nmsi
DV
Stórtónleikar verða haldnir í Loftkastalanum sunnudaginn 3. desember næstkomandi. Fjölmargir listamenn koma fram með
KK, en sjálfir tónleikarnir hefjast klukkan 21. DV-mynd ÞÖK
„Gleðifólkið"
- rökrétt framhald af „Lucky One'% segir KK
Það var byrjað að vinna lög fyrir
Gleðifólkið strax eftir að Hótel Föroy-
ar kom út með KK-bandinu 1993. í lok
árs 1994 var hins vegar ákveðið að bíða
með útgáfu til ársins 1995, KK var og
er nefnilega sinn harðasti gagnrýn-
andi og ákvað að það sem komið var
í lok árs ’94, væri hreinlega ekki nógu
gott. Á þessu ári er hann hins vegar
sáttur og ánægður meö útkomuna og
lifið. KK kynnir Gleðiðfólkið.
Þótt vænst um
að vinna með ...
Eins og áður segir var byrjað að
vinna lög á nýju plötuna strax í byrj-
un árs 1994. í stað þess að vinna með
KK-bandinu tók KK upp þráðinn þar
sem frá var horfið og byrjaði aftur að
vinna með Eyþóri Gunnarssyni mági
sínum sem var upptökustjóri á Lucky
One og er upptökustjóri nú. Það má
því með sanni segja að Gleðifólkið sé
aðeins önnur sólóplata KK, þar sem
bæði Bein leið og Hótel Föroyar voru
með KK-bandinu. Gleðifólkið er rök-
rétt framhald af Lucky One.
Aðspurður sagði KK að honum
hefði þótt vænst um að vinna með Ey-
þóri, Ellen og öUum tónlistarmönnun-
um sem koma nálægt gerð plötunnar.
I samanburði við síðustu tvær plötur
er hljómurinn á þessari aUt annar, án
þess þó að KK hafi misst hinn sjarmer-
andi stU götugítarleikarans er stUlinn
aUur mýkri. KK þótti líka mjög vænt
umaðspUaaUagít-
arana á plötunni
sjáifur (fyrir utan
einn rythmagítar
sem Eyþór Gunn-
ars spilaði, hann
spilar víst alltaf
einn rythmagítar
á þeim KK plötum
sem hann stjómar
upptökum á).
Hugsað
til engla
Auk KK syngur
Ellen systir hans
eitt lag á plötunni.
Lagið heitir I
Thinkof Angels og
var samið í minn-
ingu systurþeirra,
Inger Ágústu
Kristjáns, sem lést
af slysförum árið
1992.KKsamdilag-
ið uppi á lofti í
miðju útgáfuboði
sem var haldið
honum til heiðurs
áFlateyriþaðárið,
nýkominn að utan
frá jarðarfór syst-
ur sinnar. Lagið var frumflutt á minn-
ingartónleikunum um þá sem létust í
snjóflóðinu í Súðavík fyrr á þessu ári.
Hafþór Ólafsson, kokkurinn snjalli
úr Súkkat, syngur líka eitt lag á plöt-
unni og semur textann sjálfur. Lagið
heitir Saga villiandarinnar. Einnig
má fmna tvö instrumental gítarpikk-
lög á plötunni, Tunglskinsvalsinn og
Aðeins meira.
Hlj óðfæraleikur
Auk þess að stjóma upptökum spil-
ar Eyþór Gunnarsson á hljómborð,
kóngatrommur og syngur raddir,
Gunnlaugur Briem spilar á trommur,
Sigfús Óttarsson leikur á trommur,
Þórleifur Guðjónsson spilar á bassa,
Tómas M. Tómasson slær á sömu
strengi, Pálmi Gunnarsson spilar þá
líka á bassa, Dan Cassidy leikur á fiðlu
eins og honum einum er lagið og Berg-
lind Björk Jónasdóttir borgardóttir
syngur raddir á plötunni.
Stórtónleikar í
Loftkastalanum
Stórtónleikar verða haldnir í Loft-
kastalanum sunnudaginn 3. desember
næstkomandi. Fjölmargir listamenn
koma fram með KK, en sjálfir tónleik-
amir hefjast klukkan 21.
Aðspurður segist KK ekki vilja
túlka nafnið á plötunni, né heldur text-
ana. „Fólk verður að leggja sína túlk-
un í lögin og textana út frá eigin
reynslu. Fólk tengist tónlist svo mis-
munandi tilfinningalega að ég vil ekki
skemma þá upplifun fyrir fólki með
því að upplýsa mfna tfdkun.”
Eftir að hafa búið lengi erlendis og
upplifað lífsstíl blúsmannsins lýsir
KK sjálfum sér sem íslendingi búsett-
um í Reykjavík í dag. Það er hans
lífstíll. Hann er hættur að misnota
áfengi og eiturlyf, líður vel og er að
gefa út sitt persónlegasta verk til
þessa. Tólf laga plötu sem fjallar um
Gleðifólkið, mig og þig.
GBG
Auk KK syngur Ellen systir hans ertt lag á plötunni. Lagið
heftir I Think of Angels.
MA-kvartettinn — MA-kvartettinn:
★ ★★Á
Það ber aö fagna því að þau allt of
fáu lög MA-kvartettsins sem varð-
veist hafa skuli komin á geisladisk.
Fjórmenningarnir, sem skipuðu
kvartettinn, vom sannarlega „popp-
stjömur” síns tíma. -ÁT
Islandica — Römm er sú taug:
★★★
Þetta er áheyrileg plata, svolítið
skrýtin og skondin á köflum en grip-
im sem maður væri alveg til í að
mæla með við erlenda kunningja.
-ÁT
Halli Reynis — Hring eftir hring:
★★★
Textar plötunnar em í óvenjuhá-
um gæðaflokki miðað við það sem
gengur og gerist á íslenskum mark-
aði og laglínur era léttar og liprar og
auðvelt að grípa þær og þær eru
ósköp þægilegar á að hlýða. -SÞS
Palli — Páll Óskar:
★★★
Þessi nýja plata Páls Óskars styrk-
ir stöðu hans sem eins besta söngv-
ara landsins og sýnir hve fjölhæfur
hann er. Hljóðfæraleikur er eins og
best verður á kosið. -SÞS
Litir—Kristín Eysteinsdóttir:
★★★
Tónlistin á plötunni er vissulega
hrá á köflum. Það er bara af hinu
góða því að nóg kemur út af fullslíp-
uðum og jafhvel ofslípuðum afurð-
um á landi hér.
-ÁT
Sundin blá — Ýmsir flytjendur:
★★★
Þormar Ingimarsson er að koma
fram á sjónarsviðið með plötunni
sem lagasmiður og vægt til orða tek-
ið lofar hann góðu.
-ÁT