Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1995, Blaðsíða 8
24 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 ýmislegt Nautið og Óríon - um kvensemi guðanna og ógæfu dauðlegra manna - Núna um mánaðamótin má sjá stjörnu- merkið Nautið á suðausturhimninum yfir Reykjavík kl. 12 á miðnætti. Nautið er ættað úr grísku goðafræðinni. Evrópa var undur- fogur prinsessa, dóttir Agenors konungs. Dag einn er hún að leik á sjávarströndinni þegar stór hvítur griðungur kemur aðvíf- andi. Hún hræddist i fyrstu en sannfærðist síðan um ljúfleika hans þar sem hann horfði til hennar með svo mikilli ástúð að henni hvarf allur ótti. Þegar hún áræddi að fara á bak honum umhverfðist hann skyndilega og stökk fhæs- andi til hafs og synti með Evrópu til eyjarinnar Krítar. Þá kom í ljós að griðungurinn var enginn annar en Seifur í dulargervi sem var gagntekinn af ást til Evrópu. Skammt frá Nautinu má sjá Sjöstirnið, en það voru sjö systur sem Óríón ann hugást- um án gagnkvæmni. Guðimir á Ólymps- fjalli aumkuðu sig yfir systumar og breyttu þeim í dúfur sem flugu síðan til himna, eins og glögglega má sjá enn í dag. Óríón er eitt þeirra stjörnumerkja sem flestir bera kennsl á. Egyptar til forna nefndu þetta stjömumerki Ósiris eftir guðn- um sem var heltekinn af ást til gyðjunnar ísisar. Breskir vísindamenn hafa nýlega komist að raun um að plramídarnir miklu á Nílarbökkum eru staðsettir nákvæmlega eft- ir stjörnunum þrem í belti Óríóns. Þetta kemur reyndar ekki svo mjög á óvart vegna þess að musterisprestarnir töldu heimkynni sólguðsins Ra vera í stjörnunni Rígel í hnéi Óríóns eða þar sem Spielberg og félagar létu heimkynni hans vera í kvikmyndinni Stjörnuhliðinu sem nýlega var sýnd hér á landi. Kappinn Óríón var víðfrægur fyrir veiði- mennsku sína og því skipuðu Grikkir hon- um sess á himnum í viðurkenningarskyni. Þrátt fyrir fengsælni sina beið hann að lok- um lægri hlut fyrir krabba sem stakk hann til bana og þvi eru stjörnumerkin Óríón og Krabbinn aldrei sýnileg samtímis á himni. í norrænni goðafræði töldu menn stjörn- urnar þrjár i belti Óríóns vera snældu og spunarokk Friggjar, ektakvinnu Óðins, en eftir að kristnin tók við voru þær nefndar eftir vitringunum þremur. Kínverjar sáu hins vegar fjölmargar myndir í þessum stjörnumerkjum til forna. Má þar nefna vatnsveitu, fjórar grafir, vínámu, aðalsmann og bam, vatnsgeymslu og hvorki meira né minna en níu stórfljót. Ofan við Nautið má sjá i fótinn á kappan- um Perseifi. Hann kom meðal annars til bjargar Andrómedu á neyðarstundu þegar átti að færa hana Vatnaskrímslinu að fórn til að forða Eþíópíu frá glötun. Hann breytti Vatnaskrímslinu i steingerving með því að beina að því hinu illræmda Medúsarauga sem umbreytti öllu í kaldan stein. Að launum fékk svo kappinn Andrómedu að kvonfangi. Hrúturinn góði sést til hliðar við Nautið en hann kom og flaug á hrott með systkinin Helfe og Friksos sem hin illgjama ínó ætlaði að fórnfæra. Hrúturinn kom að fórnar- stallinum og hreif börnin á brott en svo illa tókst til að Helle missti takiö á reifum hans og féll til sjávar þar sem Evrópa og Asía mætast í Tyrklandi og heitir það síðan Hellusund í minningu hennar. Eins og sjá má hafa stjörnumerki himin- hvolfsins höfðað mjög til fommanna og fyllilega jafnast á við sápuóperurnar í sjónvarpsdagskrám nútímans. -JRJ Sjostimiö augUr Aldebaran HRUTURINN ORION Bellatrix Betelgas Midbaugui OKUMAÐURINN . PERSEIFUR • * Breiddarbaugur +30' VATNASKRÍMSLIÐ r mp Rígel • f ‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.