Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1995, Side 4
20
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995
T Ó N L I S l A R
HlíM ’/v
Súkkat - Fjap
'kick
Á svipuðum
slóðum og síðast
Dúettinn Súkkat vakti á sér athygli fyrir nokkrum misserum fyrir sér-
stakan og bráðskemmtilegan tónlistarflutning sem samanstóö eingöngu af
kassagítarleik og söng. Þá þóttu textar dúettsins bráöfyndnir og i þeim var
iðulega dálítill broddur.
Fyrir tveimur árum kom svo út plata meö þeim Súkkatmönnum sem
þótti mikill fengur aö enda kvaö þar við nýjan tón í íslenskri dægurtónlist.
Nú er komiö aö plötu númer tvö hjá þeim félögum Hafþóri Ólafssyni og
Gunnari Emi Jónssyni en þeir hafa ekki veriö ýkja sýnilegir síöan fyrsta
platan kom út.
Nýja platan Fjap ber þaö meö sér aö þeir Súkkatmenn leggja ekki mik-
iö upp úr því aö þróa tónlist sína; platan er mjög svipuö þeirri sem á und-
an er komin;, samastendur af einfóldum lögum þar sem textarnir leika aðal-
hlutverkiö. Út af þessu bregður í tveimur lögum og þaö eru þau lög sem
upp úr standa á þessari plötu aö mínu mati. Þaö fyrra er lag eftir Gunnar
Örn viö texta Gilsbakka Jóns og Káins um Fóstruna. Lagið er í rappstíl
með skemmtilegum takti og tvímælalaust besta lag plötunnar. Hitt lagiö er
lokalag plötunnar, lagiö Reykjavíkurpakk þar sem rifinn rafmagnsgítar
styöur snilldarlega við beittan textann og gefur laginu ferskan blæ.
Sigurður Þór Salvarsson
Bogomil Font
í i i i
Út og suður
Smekkleysa 1995
Hinar leyndardómsfullu og oft marg-
slungnu laglinur Kurts Weill hafa hvatt marg-
an flytjandann til dáöa. Weill er ekki auðveld-
ur í meðfórum og aflnokkurt sjálfstraust þarf
til aö leggja til atlögu við lög hans. Þaö gerir Bogomil Font alveg sveflkald-
ur og fetar þar með í fótspor ýmissa ágætra söngvara. Nefna má úr hópi
fjölmargra þýsku söngkonuna Ute Lemper og hina íslensku Sif Ragnhildar-
dóttur. Ekki er þaö tilvfljun aö báðar eru þær leikkonur aö mennt, því aö
mikiö af verkum Weifls er einmitt leikhús- og söngleikjatónlist. Hin leik-
ræna ímynd Bogomil Fonts á alls ekki ifla viö þessa tónlist. Evrópskur
unnruni (!) Bogomils á einhvern veginn betur við Weill en ameríska dæg-
ur- og salsamúsík. Það er ekki spurning aö herra Font syngur betur-á þess-
ari plötu en nokkru sinni fyrr. Röddin er ekki eins daufleg og hlutlaus og
áöur var, breidd hennar og tónsviö meira. Lög eins og „Speak Low“, „Yo-
ukali“, Salómon söngurinn og mörg önnur eru flutt af tilfmningu og öryggi.
Sigtryggur Baldursson er skráöur sem útsetjari og upptökustjóri, auk
þess að leika á trommur og ýmis slagverkshljóöfæri. Hann á lof skfliö fyrir
útsetningar sínar sem sumar hverjar minna eilítið á Tom Waits. Eöa eru
það útsetningar Waits sem minna á Kurt Weill? Harla óvenjulegt er aö
heyra einleik á sög eins og heyra má í því ágæta lagi „Speak Low“, en þaö
hefur löngum verið vinsælt meðal djassleikara. Ein frægasta útgáfa þess er
með píanistanum Sonny Clarke og hljómsveit frá árinu 1957 og þykir meist-
araleg. Minningin um þann flutning truflar þó ekki ánægjuna sem hafa má
af verki Sigtryggs og Bogomils. Og í fyrrnefndri sög heyrist ekki bara í
þessu eina lagi. - Ef til vill er hætt við aö hin djarfa meðferö í útsetningu á
Makka hnífi kunni aö enda með því að fara í taugarnar á einhverjum
hlustendum meö tímanum. Þaö á eftir aö koma í ljós hvort hún þolir mikiö
endurtekna hlustun.
Upptökur hljómdisksins fóru fram í Chicago í Bandaríkjunum. Hljóö-
færaleikarar eru þarlendir að ég held, utan Sigtryggur. Dave Adler hljóm-
borðs- og trompetleikari sér um blásturs- og strengjaútsetningar. í lokin má
svo geta þess að Bogomil syngur ýmist á íslensku eða ensku, auk þess aö
bregöa fyrir sig þýsku í einu lagi og frönsku í ööru.
Sælgætisgerðin - Acid Jazz & Funk:
★★
Bragðgott nammi
en ekki bragðmikið
Sælgætisgerðin er hljómsveit sem á und-
anfömum misserum hefur getið sér orö fyrir
góðan tónlistarflutning og hressilega fram-
komu. Þaö að Sælgætisgeröin hefur náö eyr-
um ungs fólks er töluvert afrek, þar sem þeir eru langt í frá aö vera á hefö-
bundinni línu hljómsveita, sem unga fólkið hlustar helst á í dag. Sælgætis-
geröin er nefnilega blásarasveit fyrst og fremst, hljómsveit, sem hefur fært
djassinn og funkið yflr í taktfasta sveiflu sem hefur hina ýmsu anga, Acid
Jazz er nýleg skilgreining á tónlistinni og það er eins gott nafn og hvert
annað fyrst þarf að kalla tónlistina eitthvaö, en þá hafa líka margir á undan-
fórnum tuttugu árum veriö í sýrudjassinum án þess aö vita nokkuð af því.
Acid Jazz og Funk nefnir Sælgætisgeröin sína fyrstu plötu og inniheld-
ur hún tólf lög sem koma sitt úr hverri áttinni og fyrirfram heföi maður
talið aö þau ættu lítt sameiginlegt og lítiö aö gera saman á plötu, en strák-
arnir í Sælgætisgerðinni hafa náö aö skapa áheyrileg heild, en ekki get ég
sagt að fyrsta lagið 2001 (Also Sprach Zarathustra) hafi gefiö góöa von, það
er orðin þvílík ofnotkun á þessu stórkostlega stefi Richard Strauss, (sem er
smáhluti af stóru verki, og Stanley Kubrick uppgötvaði fyrir meistarverk
sitt 2001, A Space Odyssey), að það liggur viö aö þaö eigi aö setja lögbann á
nýjar útsetningar á því. Meö næstu lögum gefur hljómsveitin aftur á móti
til kynna hvað koma skal og lyftist þá heldur á manni brúnin. Lögin í heild
eru misgóð og misvel flutt, stundum eru útsetningar einhæfar og spila-
mennskan óspennandi, en Sælgætisgerðin er afltaf áheyrileg og maður hef-
ur alltaf á tilfinningunni að þetta séu strákar sem kunna að skemmta sér
og öðrum. Hvergi tekst þeim betur upp en í Mo Better Blues, sem er ein-
staklega grípandi blúsóöur og í því lagi er hljómsveitin einnig jafnbest. Eitt
frumsamiö lag er á plötunni Kobbi Skæler, sem er eins konar leikur aö
stefjum og er ágætlega heppnaö, án þess þó að vera neitt stórvirki.
Sælgætisgeröin sækir efni sitt í ýmsar áttir, djassmeistarar eins og Her-
bie Hancock og Horace Silver eiga lög og einnig soulmeistarar á borð viö
James Brown og Kool and the Gang. Kannski er þaö helst sameiginlegt meö
lögunum á plötunni að þau eru flest komin vel til ára sinna. Ekki er hægt
aö taka neinn spilara fram yfir annan í Sælgætisgeröinni, þeir eiga aflir
sína góöu stundir, en þaö sem gerir hljómsveitina skemmtilega er gott og
jafnt samband á mifli hljóðfæra og ryþmasveitin feflur aldrei í skuggann af
blásurunum heldur tekur stundum völdin þegar viö á. Acid Jazz og Funk
er góö frumraun en með meiri þroska mun sveitin örugglega ná betri tök-
um á því sem hún er að gera og verður gaman aö fylgjast meö framhaldinu.
Hilmar Karlsson
Jóla hvað?
- nýir jóladiskar og nokkrir eldri
Hvað eru jól án jólalaga? Alla vega
ekki jólaleg jól, það er eitt sem víst er.
Á hverju ári koma út nokkrir glæ-
nýir alíslenskir geisladiskar með nýj-
um jólalögum, erlendum jólalögum í
íslenskum búningi og gömlum jólalög-
um í nýjum útsetningum. Lítum á það
helsta sem er í boði.
Nýtt jólaefni
Sú jólaplata sem hefur fengið hvað
mesta umíjöllun í fjölmiðlum upp á
síðkastið er platan Kósý jól. Platan
inniheldur kósý lög, jólalög og íslensk
lög sem koma jólunum lítið sem ekk-
ert við (fjölmiðlamatur). Platan er
sögð hin kímnasta á allan hátt og er,
eins og komið hefur fram, ekki bönn-
uð enn. Unglingasveitin gefur plötuna
út sjálf.
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórs-
son (sem heldur enn úti sýningunni
Þó líði ár og öld, auk þess að vera dag-
skrárstjóri Bylgjunnar) býður til sin
söngelskum gestum á plötunni Jóla-
gestir 3. Gestasöngvarar á plötunni
eru Helgi „Frankenfurter" Björnsson,
Sigríður Beinteinsdóttir (sem gefur
einnig út barnamyndband á þessu
ári), Berglind „borgardóttir", Björk
Jónasdóttir og Bubbleflies- söngvar-
inn Svala Björgvinsdóttir. Öll lögin-
eru að uppruna erlend en eru sett fram
i útsetningum Jóns Kjell á íslensku.
Skífan gefur plötuna út.
Fyrsta sólóplata Ólafs „Labba“ Þór-
arinssonar, sem söng meðal annarrs
lagið Undir bláhimni, var í Mánum,
Glóru og er í hljómsveitinni Karmam,
ber nafnið Jólabaðið. Platan er öll hin
jólalegasta en eins og gefur að skilja
eru lögin eftir Labba sjálfan. Sérstak-
ir gestir á plötunni eru grínbræðurn-
ir Halli og Laddi en Ólafur sér sjálfur
um útgáfu.
Bítlahljómsveitin Sixties
þeysti um land síðastliðið sumar
til að fylgja eftir útkomu plötunn-
ar Bítilæði. Strákarnir hafa
greinilega fengið útgáfuæði og
gefa nú út jóláplötu sem nefn-
ist einfaldlega Jólaæði.
Platan inniheldur jólalög í
anda hljómsveitarinnar,
jafnt hröð sem hæg. Þetta
eru „öðruvísi"
jólaplata sem
er gefin út af
Rym ehf.
Sólstranda-
gæjarnir
virðast
hafa
smitast
af sama
æði og
Sixties en eft-
ir gott gengi í sum-
ar senda þeir nú frá
sér ein-
staka
jólaplötu
sem ber
nafnið
Uglujól.
Platan
er ein-
staklega
ugluleg, þó
sérstaklega umslagið.
sígildu jólalaga ásamt stúlknakór en
Geimsteinn gefur út.
Það er að vísu verðmunur platn-
anna á milli.
Kvartettar
Tveir kvartettar gefa út jólaplötur
þessi jól. Fyrstan skal telja Tjarnar-
kvartettinn sem gaf út sína fyrstu
plötu um síðustu jól. Öll lögin á plöt-
unni eru flutt án undirleiks og eiga að
tryggja hátíðarstemningu á hverju
heimili. Platan heitir Á jólanóttu en
útgefandi er Japis.
Söngkvartettinn Rúdolf kveður sér
hljóðs með útgáfu plötunnar Jóla-
söngvum. Á plötunni er að finna 20
þekkta erlenda og íslenska jólasöngva
sem margir hafa verið raddsettir á nýj-
an leik en aðrir hafa fengið nýja texta
og hljóma ferskari en nokkru sinni
fyrr.
Eldra efni
Af eldra efni, sem er á markaðnum
í formi geislaplötu, má nefna: 11 jóla-
lög, Hvít jól með Sinfóníuhljómsveit
íslands, Jólaball með Dengsa og félög-
um, Hátíð fer að höndum með þjóð-
lagasveitinni Þremur á palli, leikritið
Verkstæðijólasveinanna, Strumparn-
ir bjóða gleðileg jól, safnplöturnar
Senn koma jólin, Hvít jól, í hátíðar-
skapi, Jólasnær, Jólasijömur, Rokk
og jól og Jól alla daga. Edda Heiðrún
Bachmann syngur Barnajól og Ellý og
Vilhjálmur syngja jólalögin. Desem-
ber með Siggu Beinteins og
Ómar íinnur Gáttaþef.
Að sjálfsögðu má
iinna margar fleiri al-
íslenskar jólaplöttu- ef
að er gáð því allir eiga
jú sína uppáhaldsjóla-
plötu. Gleðileg jól.
GBG
Það er stórútgáfufyrirtækið Aþþó sem
sér um útgáfu gripsins.
Gengið kringum
jólatréð
Lengi hefur vantað jólaplötu sem
hægt er að nota á jólaböflum, jafnt
heima sem að heiman. íslendingar eru
heppnir þetta árið því nú eru komnar
út tvær sem þjóna þessum tilgangi.
Báðar innihalda þær sígild þramm
lög, dans- og jólalög sem tilvaíin eru
til þess að ganga í kringum jólatréð.
Fyrri platan ber nafnið Göngum við
í kringum. Það er hljómsveit Magnús-
ar Kjartanssonar, Örn Ámason, Laddi
og bamakór sem flytja þessi sívinsælu
lög en Leppalúði sér um útgáfu.
Seinni platan heitir Jólaball með
Giljagaur. Þórir Baldursson (sá hinn
sami og sér um all-
ar útsetningar á
plötunni í skugga
Morthens) sér um
úsetningar. Það er
fyrrum Hljóma-
söngvarinn
Einar
Júlíus-
sonsem
sér um
flutning
þessara
MA-kvartettinn — MA-kvartettinn;
★★★"i
Það ber að fagna því að þau allt of
fáu lög MA-kvartettsins sem varð-
veitst hafa skuli komin á geisladisk.
Fjórmenningarnir, sem skipuðu
kvartettinn, voru sannarlega „popp-
stjörnur" síns tíma.
-ÁT
Ásgeir Tómasson—Veröld stór og
smá;
★★★ '
Það þarf að hlusta á tónlistina til
að njóta hennar og sér í lagi slag-
verksleiks höfundarins sem auð-
heyrilega velur ekki auðveldustu
lausnirnar þegar hann útsetur fyrir
sjálfan sig. -ÁT
Gleðifólkið —- KK:
★★★
Með Gleðifólkinu geta aðdáendur
KK tekið gleði sína á ný og hún set-
ur KK aftur í fremstu röð þar sem
hann á heima. -SÞS
Palli — Páll Óskar:
kick
Þessi nýja plata Páls Óskars styrk-
ir stöðu hans sem eins besta söngv-
ara landsins og sýnir hve fjölhæfur
hann er. Hljóðfæraleikur er eins og
best verður á kosið. -SÞS
Croucie d'oú lá — Emilíana Torrini:
A L 1 l
kkfCK
Söngurinn er ótrúlega fjölbreyttur
og hreint með ólíkindum hversu
margvíslegum söngstílum Emilíana
hefur yflr að ráða.
-SÞS
Sundin blá - Ýmsir flytjendur:
ickk
Þormar Ingimarsson er að koma
fram á sjónarsviðið með plötunni
sem lagasmiður og vægt til orða tek-
ið lofar hann góðu.
-ÁT