Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1995, Síða 7
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995
23
Messur
Árbæjarkirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Jólastund sunnudagaskólans. Börn ur tónlist-
arnámi leika á hljóðfæri. Barnakór Árbæjar-
safnaðar sýnir helgileik. Jólasöngvar sungnir.
Prestarnir.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Ami Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Jólasöngvar Ijölskyldunnar
kl. 11. Barnakórinn syngur. Tekið við söfnunar-
baukum Hjálparstofnunar kirkjunnar. Sam-
koma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli
Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Foreldrar hvattir til þátltöku með börnunum.
Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 14. Fjölbreytt
tónlist. Helgileikur. Barna- og bjöllukórar. Kjör-
in stund fyrir alla fjölskylduna. Pálmi Matthías-
son.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga.
Messunni verður útvarpað. Aðventustund í
kirkjunni kl. 20.30. Gunnar Sigurjónsson.
Dómkirkjan: Aðventuhálíð bamanna kl. 11.
Skírn, Prestur sr. María Ágústsdóttir. Kór Vest-
urbæjarskóla flytur helgileik. Lúðrasveit Laug-
arnesskóla leikur.
Fella- og Hólakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Jólatrésfagnaður barnanna eftir guðsþjón-
ustuna. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guömundur
Karl Ágústsson þjónar fyrir altari, sr. Hreinn
Hjarlarson prédikar. Kóraldraðra í Gerðubergi
syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Prest-
arnir.
Fríkirkjusöfnuðurinn f Reykjavík: Laugar-
dag, í Safnaðarheimilinu kl. 13, jólaskemmtun
yngri barnanna. Kl. 16.30 jólaskemmtun eldri
barnanna, kl. 20 jólaskemmtun Æskulýðsfé-
lagsins. Sunnudag kl. 17 jólavaka í kirkjunni.
Ræðumaður Guðrún Helgadóttir rithöfundur.
Kirkjukórinn syngur, einsöngvarar: Arndís
Fannberg, Elísabet Hermundardóttir, Erla B.
Einarsdóttir, Sigríður Snorradóttir oq Svava
Ingóllsdóttir. Jólavökunni lýkur með Ijosahátíð
og almennum söng. Cecil Haraldsson.
Grafarvogskirkja: Barna- og fjölskyiduguðs-
þjónusta kl. 11. Barnakórinn syngur undir
stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur. Aðventuljós-
in tendruð. Prestarnir.
Grensáskirkja: Jólafagnaður barnanna kl.
10.30. Jólasöngvar og sögur. Óvænl heim-
sókn. Jólatónleikar kl. 14. Fjölbreytt dagskrá.
Stjórnandi Árni Arinbjarnarson. Helgistund. Sr.
Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja: Barna- og fjölskyldumessa
kl. 11. Tekið við söfnunarbaukum Hjálparstofn-
unar kirkjunnar. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Ensk
jólamessa kl. 16. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Frið-
arhátíð Æskulýðssambands kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmum. Fata- og skó-
söfnun vegna Bosníu við Hallgrímskirkju kl.
12-20. Ævintýraleg messa kl. 20.30 með þátt-
töku Háskólakórs, kórs Menntaskólans við
Sund, unglingakórs Grensáskírkju, strengja-
og blásarasveitar frá TR, gospelbands, götu-
leikhúss, Hins hússins, Shakespíranna. Prest-
ur Hildur Sigurðardóttir o.fl.
Hafnartjarðarkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11.
Munið skólabflinn. Jólavaka við kertaljós kl.
20.30. Flytjendur tónlistar Elín Ósk Óskars-
dóttir sópran, Ingunn Hildur Hauksdóttir píanó-
leikari, Gunnar Gunnarsson flautuleikari,
Barna- og unglingakór Hafnarfj. Stjórnandi
Hrafnhildur Blomsterberg. Kór Hafnarfjarðar-
kirkju. Ólafur W. Finnsson. Prestar sr. Þórhild-
ur Ólafs og Gunnþór Ingason.
Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Hátiðarmessa kl.
14. Biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason prédik-
ar í messunni og blessar nýtl safnaðarheimili
Háteigskirkju að lokinni messu. Prestarnir.
Hjallakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Kór Smáraskóla syngur. Barnaguðsþjónusta
kl. 13. Kristján Einar Þorvarðarson.
Keflavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. í
síðasta skipti fyrir jól. Létt jólasveifla í kirkjunni
kl. 20.30. Einsöngvarar Einar Júlíusson, Ólöf
Einarsdóttir, María Baldursdóttir, Rúnar Júlfus-
son og Einar Örn Einarsson ásamt Kór Kefla-
víkurkirkju. Bassa- og gítarleikarar: Þórólfur
Ingi Þórsson og Sigurður Guðmundsson.
Bjöllukór Bústaðakirkju kemur í heimsókn
ásamt stjórnanda sínum, Guðna Þór Guð-
mundssyni organista. Sr. Sigfús Baldvin
Ingvason flytur ávarp.
Kópavogskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Leikskólabörn flytja helgileik. Jólaskemmt-
un barnastarfsins í Borgum strax að lokinni
guðsþjónustu. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarm-
an.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups:
Sunnudagaskóli kl. 11. Kl. 14. Skaftholtsfólk
kemur i heimsókn og flytur helgileik. Jóla-
söngvar Kórs Langholtskirkju kl. 20.
Laugarneskirkja: Jólasöngvar fjölskyldunnar
kl. 11. Þátttakendur í, TTT-starfi kirkjunnar
sýna helgileik. Börn úr Álftamýrarskóla leika á
blokkflautur. Jólaskemmtun barnanna kl. 12.
Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfsbjargarhúsinu, Há-
túni 12. Ólafur Jóhannsson.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Jólasöngvar kl. 14. Dagskrá um
jólin f tali og tónum. Sr. Halldór Reynisson.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli
sunnudaginri 17. des. kl. 13. Tekiö á móti söfn-
unarbaukum fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar.
Smákökur og djús á boðstólum. Síðasta skipt-
ið á þessu ári. Baldur Rafn Sigurðsson.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli
sunnudaginn 17. des. kl. 11. Tekiö á móti söfn-
unarbaukum fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar.
Smákðkur og djús á boðstólum. Síðasta skipt-
ið á þessu ári. Aðventukvöld kl. 20.30. Sr. Arn-
grímur Jónsson flytur ræðu kvöldsins og ferm-
ingarbörn sýna helgileik. Einsöngvarar eru
Kristján Jóhannsson, Ingólfur Ólafsson og
Sveinn Sveinsson. Kristín Kristjánsdóttir leikur
á fiðlu. Sungnir verða aðventu- og jólasöngvar
sem kirkjukórinn leiðir. Tekið verður á móti
framlögum til Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédik-
ar. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur. Kl. 20: Jólatónleikar kóra
Seljakirkju. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Jólasöngvar allrar fjöl-
skyldunnar kl. 11. Barnakórinn leikur helgileik.
Mikill almennur söngur. Prestur sr. Hildur Sig-
urðardóttir.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11.
Búast má við annríki í verslunum næstu daga enda fólk í óða önn að kaupa jólagjafir. Líf og fjör verður því trúlega
víða og ekki minnkar gleðin þegar sjálfir jólasveinarnir mæta á staðinn. DV-mynd ÞÓK
Jólainnkaupin í fullum gangi:
Afgreiðslutími verslana
Tími jólainnkaupa fer nú að kom-
ast í hámark enda ekki nema rúm-
lega vika til aðfangadags. Helgina
nota því væntanlega margir lands-
menn til að kaupa jólagjafir og ann-
að sem þá vanhagar um.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
er afgreiðslutími langflestra versl-
ana frá kl. 10-22 á morgun. Þetta
gildir t.d. um Kringluna, verslanir
við Laugaveginn og Austurstræti og
nágrenni þeirra og sömuleiðis um
Miðbæ í Hafnarfirði. Á sunnudag-
inn er opið skemur, ýmist til kl. 17
eða 18, og verslunarmenn eru mis-
jafnlega árrisulir en enginn þeirra
opnar þó trúlega seinna en kl. 13.
Auk þessara staða sem hér eru
nefndir má vitaskuld leggja leið sina
í fjölmargir aðrar verslanir, hvort
heldur þær eru á höfuðborgarsvæð-
inu eða úti á landsbyggðinni. Góðar
verslanir er víða að finna og sem lít-
ið dæmi um það má nefna Grímsbæ,
Austurver, Hamraborg i Kópavogi,
Garðatorg í Garðabæ, Eiðistorg,
Miðbæ, Háaleitisbraut og Mjóddina.
Jólasveinar verða auðvitað á ferð-
inni um allt land um helgina en DV
hefur m.a. fengið það staðfest að
þeir verða í Miðbæ í Hafnarfirði og
á Laugaveginum. Á síðartalda
staðnum verða einnig á morgun
barnakór Melaskóla, barnakór Æf-
ingadeildar KHÍ og Lúðrasveit
verkalýðsins.
Söngkonurnar ásamt píanóleikaran-
um. Þær eru jafnframt allar meðlim-
ir í Mótettukór Hallgrímskirkju.
Sólon íslandus:
Pallíettur
og píanó
Sönghópurinn Pallíettur og píanó
heldur tónleika á efri hæð veitinga-
hússins Sólon íslandus á sunnudag-
inn kl. 20.
Pallíetturnar þrjár eru Anna Hin-
riksdóttir, Elísabet Vala Guðmunds-
dóttir og Kirstín Erna Blöndal en
við píanóið situr Brynhildur Ás-
geirsdóttir. Allar eru þær meðlimir
í Mótettukór Hallgrímskirkju.
Á tónleikum þessum verður þó
ekkert sem minnir á klassíska kór-
tónlist heldur eru á efnisskránni
klassísk dægurlög frá millistriðsár-
unum fram á sjöunda áratuginn.
Tónleikar í ís-
lensku óperunni
■ Á tónleikum ís-
lensku óperunn-
ar, sem styrktar-
félag þess heldur,
verður boðið upp
á atriði úr óper-
um með jólaívafí.
Einsöngvarar tón-
leikanna eru ein-
valalið: Sigrún
Hjálmtýsdóttir,
Ólöf Kolbrún
Harðardóttir,
Rannveig Fríða
Bragadóttir, Berg-
þór Pálsson og Þorgeir Andrésson
en að vanda er Kór íslensku óper-
unnar í aðalhlutverki. Garðar
Cortes mun halda á tónsprotanum
og við píanóið er Davíð J. Knowles.
Kórinn og einsöngvararnir syngja
þekkt atriði úr óperunum La Bo-
heme, Á valdi örlaganna, Nabucco,
Carmen og Ævintýrum Hoffmanns',
svo að eitthvað sé nefnt. Meðal jóla-
söngva má nefna Gloria tibi, Hátíö
fer að höndum ein og Ó helga nótt.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 á morg-
un, laugardagskvöld.
Kaffistígur:
Stemningar
Ómars Smára
I dag opnar Ómar Smári Kristins-
son sýningu á verkum sínum á
Kaffistíg á Rauðarárstíg 33.
Ómar Smári, sem kallar sýning-
una „Persónulegar stemningar fyrir
allra augum“, er að ljúka námi frá
Myndlista og handíðaskóla Islands í
vor. Hann nam myndlist einn vetur
í Þýskalandi og er útskrifaður
myndmenntakennari frá Kennara-
háskóla íslands.
Myndirnar sem hann sýnir á
Kaffistíg geta verið gjaldgengar jafnt
í hefðbundið sem óhefðbundið sýn-
ingarrými. Þetta eru innrammaðar
ljósmyndir. Sýningin stendur til
áramóta.
Hallgrímskirkja:
Fatasöfnun og
aðventumessa
Á sunnudaginn mun ÆSKR
(Æskulýðssamband kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmum) gang-
ast fyrir uppákomu fyrir ungt fólk í
Reykjavík.
Hátíðin hefst kl. 12 á hádegi með
fata- og skósöfnun vegna ástandsins
í fyrrum Júgóslavíu. Söfnunin, sem
er samstarfsverkefni nokkurra að-
ila, stendur til kl. 20 og verður gám-
ur og tjöld við Hallgrímskirkju en
hálftíma eftir að henni lýkur hefst
aðventumessu í kirkjunni. Hópferð-
ir verða í messuna frá öllum félags-
miðstöðvunum í Reykjavík sem og
kirkjum borgarinnar.
Prestur verður sr. Hildur Sigurð-
ardóttir, yngsti prestur landsins, og
um tónlistina sjá Háskólakórinn, fé-
lagar úr kór Menntaskólans við
Sund, unglingakór Grensáskirkju,
hljómsveit undir stjórn Sigurðar
Ingimarssonar, strengja- og blásara-
sveit frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og orgelleikari úr Tón-
skóla Þjóðkirkjunnar. Aðalstjórn-
andi kórsins verður Egill Gunnars-
son.
Þá eru nokkrir leikhópar sem
hjálpa til í messunni, m.a. félagar úr
Götuleikhúsinu og Shakespírurnar
úr Kramhúsinu.
Stöðlakot:
Tll sjöunda
regnbogans
Sýningu Messíönu Tómasdóttur í
Stöðlakoti, Til sjöunda regnbogans,
lýkur á morgun. Messíana gengur
út frá litum regnbogans. Á sýning-
unni eru sjö verk en eitt þeirra sam-
anstendur af sjö litlum verkum.
Gallerí Geysir:
Ungir myndlist-
armenn
í Galleríi Geysi stendur nú yfir
sýning á verkum þeirra Söru Maríu
Skúladóttur og Ásdísar Sifjar Gunn-
arsdóttur. Sara María sýnir þrjú
verk en Ásdís Sif fjögur. Þær eru
báðir við nám á myndlistarbraut
FB.
Skólakrakkar á Húsavík, sem og
aðrir bæjarbúar þar, fá ástæðu til að
kætast á morgun en þá verður boð-
ið upp á fjölbreytta jóladagskrá á
Húsavík. Myndin er úr myndasafni
DV.
Jóladagskrá
á Husavík
Mikið líf verður á Húsavík á
morgun en þá verður boðið upp á
fjölbreytta jóladagskrá í bænum og
ætti engum að þurfa að leiðast. Tón-
Þorgeir Andrés-_
son er einn
þeirra söngvara
sem kemur
fram á tónleik-
unum.
íþróttir
Körfubolti
Heil umferð er á dagskrá í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudaginn. Leikirnir eru þess-
ir:
Skallagrímur-ÍA Sd. 20.00
Þór-Grindavík Sd. 20.00
Njarðvík-Haukar Sd. 20.00
Tindast.-Keílavík Sd. 20.00
Breiðablik-ÍR Sd. 20.00
Valur-KR Sd. 20.00
Á sunnudagskvöld eru sex leikir
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Handbolti
1. deild kvenna
Fylkir-ÍBA Fd. 20.00
Fram-ÍBA Ld. 14.00
Víkingur-FH Sd. 17.00
2. deild karla
BÍ-Fjölnir Ld. 13.30
Fram-HK Ld. 16.00
Bikarkeppni karla
Víkingur b-ÍBV Ld. 15.00
Ferðir
Feröafélagiö:
Vetrarsól-
stöðuferð
Á sunnudaginn kl. 10.30 verð-
ur hin árlega vetrarsólstöðuferð
Ferðafélagsins á Esju. Gangan
hefst á melunum austan við bæ-
inn Esjuberg og liggur leiðin
upp á Kerhólakamb (852 m) milli
Hestagils og Sauöagils. Komið
sömu leið til baka.
Litbrigðin í Esjunni vekja at-
hygli og er hún gerð úr basalt-
og móbergslögum á víxl. Mikiö
er þar af innskotslögum og eiga
litbrigði Esjunnar rót sína að
rekja til þessara breytilegu berg-
myndana og ljósi liturinn stafar
af ummynduðu móbergi. Nafnið
Esja er talið vera dregið af þessu
ummyndaða bergi.
Brottför í ferðina er frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin,
og Mörkinni 6. Minnt er á að
hitastig breytist ótrúlega þegar
hækkun frá sjávarmáli er rúm-
lega 800 m og hafa ber það í
huga.
list og söngur mun hljóma og hægt
verður að gæða sér á kaffi og kræs-
ingum í sal verkalýðsins.
Slysavarnakonur gæta yngstu
barnanna og þeim eldri verður boð-
ið í bíó. Jólasveinar verða á ferð og
gauka einhverju að börnum en
verslanir eru opnar til kl. 22.
Þorgerður
í Listasafn
Kópavogs
Sýningu Þorgerðar Sigurðardótt-
ur í Listasafni Kópavogs lýkur á
sunnudaginn. Myndir Þorgerðar
eru þrykktar á pappír, í einu eintaki
hver, eftir tréristum sem allar voru
unnar á þessu ári.