Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1995, Qupperneq 8
24
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995
Menning
Þétt og létt
Klink heitir nýjasta ljóðabók
Braga Ólafssonar og dregur nafn
sitt af tilvitnun í ljóð eftir Dag Sig-
urðarson en bókin er tileinkuð
minningu hans. „Á morgun koma
krónur undan snjónum" segir í
ljóði Dags og áfram: „verðlausar
krónur undan snjónum skál . . .“
Varla er Bragi að líkja ljóðum sín-
um við verðlaust Mink, fremur
hann sé að vísa til hugmynda sem
hafa legið lengi í dái og líta nú loks-
ins dagsins ljós. Eða til hugmynda
sem eru ólíkar að stærð og lögun
eins og smáaurarnir, sumar litlar
og léttar eins og krónan, aðrar
þyngri eins og nýi hundraðkallinn!
Smáaurar þvngjast í vasa en það
sem fyrst og síðast einkennir ljóð
Braga er léttleiki og kátína, glettin
sýn á heiminn og manninn sem
hann byggir. Þar minnir fátt á ljóö Dags, nema ef
vera skyldi hinn þekkti hálfkæringur skáldsins sem
einnig gætir í ljóðum Braga þótt á
ljúfari nótum sé. Dæmi um slíkt
má sjá í Ijóðinu „Heimboð" (33)
sem fjallar um manninn sem þorir
ekki að bjóða neinum heim því
hann þarf að standa vörð um dag-
bækurnar sínar sem hann vill ekki
að neinn komist í. Ljóðið endar svona: „og hver er
svo fullkominn/að standast dyr/sem annar hefur
skilið eftir opnar“. Þessar ljóðlínur verður hver að
dæma fyrir sig
Ljóðmælandinn er sposkur og stundum dálítið
ruglaður, eða réttara sagt óöruggur, og efast um sjálf-
an sig og tilveruna eins og glöggt má sjá í prósaljóð-
inu „Að trúa“ (12). Þar situr ljóðmælandi inni á veit-
ingahúsi, les dagblað og ákveður að trúa ekki orði af
því sem hann les. Bíður síðan þolinmóður eftir að
gengilbeinan afgreiði pöntun hans. En þegar stúlkan
lítur loks til hans sér hann í augum hennar að hún
hefur ekki tekið orð hans góð og gild. Hunsar pöntun-
ina af því hún trúir ekki heldur! Þessa sýn birtir
skáldið stundum á skondinn hátt,
ljóðmælandi er ofur venjulegur
maður, kannski á heimleið úr
sjoppu að kvöldlagi og verður þá
vitni að einhverju sem hann veit
ekki alveg hvernig hann á að túlka.
(„Haustmyrkrið“ bls. 13). Umhverf-
ið tekur á sig framandlegan blæ
hvort sem ljóðmælandi er staddur í
Reykjavik eða erlendri borg og til-
finningin um að hann eigi hvergi
heima sækir stundum á. En sú til-
finning er þó hvorki sár né sting-
andi, hún er miklu fremur óhjá-
kvæmilegur og ásættanlegur hluti
af því að vera til. Æðruleysið er
einmitt sterkt einkenni á ljóðum
Braga þó óttinn við hið óþekkta
eða óttinn við að heyra það sem
ljóðmælanda langar ekki tO að
heyra læðist að í Ijóðinu „Þegar
þau birtast" (34). Ljóðið birtir óttann við „þau“ sem
gætu komið og svívirt allt sem manninum er kært,
brotið og bramlað en sá óhugnaður
sem textinn boðar skilar sér ekki
til lesandans. Þetta ljóð er dæmi
um sjálfhverfni höfundar sem örlar
fyrir á stöku stað, t.d. í ljóðinu
„Kæri Viteslau": „er það furða/þótt
mér hafi brugðið úti á Seltjarnar-
nesi þegar/allt í einu blasti við mér búðarskiltið Ne-
sval.“ (51) Þetta ljóð mætti svo sem flokka undir áð-
urnefndan framandleika en það virkar fremur sem lé-
legur brandari. Ljóð af þessu tagi eru þó ekki mörg í
bók Braga. Yfirleitt dregur hann upp skýrar og lif-
andi myndir af fólki og atburðum og nær meira að
segja að höfða til lyktarskyns lesanda í ljóðinu „Þrjár
systur í Salamanca"! (54) Þessi hæfileiki höfundar er
hans helsti styrkur og í Klinki birtist hann lesandan-
um sem skarpur, skemmtilegur og athugull skoðandi.
Klink
Bragi Ólafsson
Bjartur 1995
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
Bernardel-kvartettinn kom fram með Selkórnum.
Hreingerningar og kaupæði
Um þessar mundir
virðast íslenskir tón-
leikagestir ekki hafa
mikinn áhuga á öðru
en sálmum og
annarri kirkjutón-
list. Það er skiljan-
legt; fólk vill láta
minna sig á helgi jól-
anna, nú þegar allt
ætlar að drukkna í
hreingerningum og
kaupæði. Því eru svokallaðir aðventutónleikar vinsælir og voru einir
slikir haldnir í Kristskirkju síðastliðið miðvikudagskvöld. Þar kom
Selkórinn fram ásamt Bernardel kvartettinum og nokkrum öðrum hljóð-
færaleikurum. Einnig söng Þuríður G. Sigurðardóttir einsöng og var
stjórnandi Jón Karl Einarsson.
Tónleikarnir hófust á laginu „Jól“ eftir Báru Grímsdóttur við ljóð eft-
ir Grím Lárusson. Síðan komu fimm önnur áþekk lög og voru þau öll
prýðilega flutt af kórnum. Selkórinn hefur greinilega verið ágætlega
þjálfaður af Jóni Karli en heldur þykir mér vanta karlaraddirnar þar.
Kórinn er dálítið kvenlegur og þarfnast
meira jafiivægis. Vonandi verður bætt úr
því.
Eftir lögin sex var komið að nokkrmn
verkum eftir Mozart. Fyrst var leikið
Adagio fyrir óbó og orgel en það var
prýðilega spilað af þeim Peter Tompkins
og Jakobi Hallgrímssyni. Að vísu voru þeir ekki alltaf fyllilega samtaka.
Öllu verri var „í dag er glatt í döprum hjörtum“ en það var sungið af
þeim Hafdísi Hafsteinsdóttur, Soffíu Óskarsdóttur, Guðrúnu Gunnars-
dóttur, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Jónu Jónsdóttur og Þóru Álfþórsdótt-
ur. Á mörkunum var að þær stöllur réðu við tónhæð lagsins og vantaði
þar hinn himneska léttleika sem einkennir Mozart. Hrynjandinn var
fremur klunnalegur og hér virtist því vera um lærlinga að ræða sem
eiga örugglega eftir að gera betur þegar fram líða stundir.
Agnus Dei var næst en það er fyrir kór og hljómsveit. Það var ágæt-
lega flutt af söngvurum og hljóðfæraleikurum þó kórinn yfirgnæfði oft
hljómsveitina. Á svipuðum nótum voru reyndar verkin sem á eftir
komu en það voru Laudate dominum, Ave verum corpus, Exultate jub-
ilate og Te Deum. Þar bar hæst Exultate jubilate en það er töluvert krefj-
andi fyrir einsöngvarann. Þuríður G. Sigurðardóttir söng það vel og
gerði margt mjög fallega. Undirritaður veit reyndar engin deili á henni,
enda engar upplýsingar að finna í efnisskránni - sem var í fátækari
kantinum. Trúlega er hún efnilegur söngnemandi sem á örugglega eftir
að marka spor sín í íslenskt tónlistarlíf.
í öllu falli voru þetta nokkuð góðir tónleikar og hafa þeir örugglega
kynnt undir jólaskapið hjá mörgum áheyrandanum.
Tónlist
Jónas Sen
.
TZONE BUBBI CIGARETTE ROCKY EMILÍANA BORGAR-
n ir\ a UUAU FÖSTUDAG FÖSTUDAG HORROR TORRINI DÆTUR
>• 1 KL 14 KL. 15 FÖSTUDAG FÖSTUDAG FÖSTUDAG
KL 16 KL. T7 KL. 17
GEIRMUNDUR
VALTÝSSON
LAUCARDAG
KL 14
AGGI SLÆ &
TAMLASVEITIN
LAUGARDAG
KL' 16
BORGAR*
DÆTUR
LAUGARDAG
KL 17
JÓLAGESTIR
BJÖRGVINS
SUNNUDAG
KL 14
IVL.