Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Page 6
26 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995 l w jm Olegt Sýningar Gallerí Art-Hún Stangarhyl 7, Rvík Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu Axelsdóttur, Helgu Armannsdóttur, Elínborgar Guðmundsdóttur, Sigrún- ar Gunnarsdóttur og Margrétar Sal- ome. Galleríið er opið alla virka daga kl. 12-18. Gallerí Birgir Andrésson Vesturgötu 20 Gunnar M. Andrésson sýnir ný verk, nokkurs konar lýriska hljóðskúlptúra, þar sem unnið er með upprunatengsl og vitnað er í þjóðleg minni. Galleríið er opið kl. 14-18 á fimmtudögum en aðra daga eftir samkomulagi. Gailerí Fold Laugavegi 118d Nú stendur yfir í baksal Gallerísins árleg jólasýning. Þar eru til sýnis og sölu verk nokkurra þeirra listamanna sem Galleríið selur fyrir. í kynningar- horni sýnir nú kínverski listmálarinn Shen Ji olíumyndir. Þá stendur yfir sölusýning á gler- og keramikverkum eftir þekkt listafólk. Sýningunum lýk- ur 7. janúar. Gallerí Geysir Aðalstræti 2 Þar stendur yfir sýning tveggja ungra myndlistarmanna, þeirra Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur og Söru Maríu Skúladóttur, en þessi sýning er jafn- framt þeirra fyrsta sýning. Galleríið er opið alla virka daga kl. 9-23 og um helgar kl. 12-18. Sýningin stendur til 7. janúar. Gallerí Guðmundar Ánanaustum 15. Galleríið er opið virka daga kl. 10-18. Gallerí List Skipholti 50b Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema laugardaga kl. 11-14. Sýning- ar í gluggum á hverju kvöldi. Gallerí Ríkey Hverfisgötu 59 Sýning á verkum Ríkeyjar. Opið kl. 13-18 virka daga en laugardaga og sunnudaga kl. 13-16. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 „Straumar", sýning Þórs Elís Páls- sonar stendur yfir í Galleríi Sævars Karls. Opið á verslunartíma frá kl. 10-18 virka daga. Hafnarborg Þar stendur yfir sýning á silfur- og gullsmíðaverkum eftir Hannu Tuom- ala, Timo Salsola og Sigríðar Á. Sig- urðardóttur. Kaffi Mílanó Faxafeni 11 Hildur Waltersdóttir sýnir olíumál- verk, unnin á striga og krossvið, og einnig nokkrar kolateikningar. Sýn- ingin stendur til 26. janúar. Opið mánud. kl. 9-19. þriðjud., miðvikud. og fimmtud. kl. 9-23.30, föstud. kl. 9- 1 og laugard. kl. 9-18. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Næsta sýning hefst í janúar 1996. Safnverslunin opin alla daga kl. 10- 18. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu. Safnið er lokað í desember og janú- ar. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga. Inngangur er frá Freyju- götu. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar Laugarnestanga Sýning á völdum andlitsmyndum eft- ir Sigurjón Ólafsson, „Þessir kollóttu steinar", mun standa í allan vetur. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum kl. 14-17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma-. Jólasveinarnir hafa komið hver af öðrum í desember í Þjóðminjasafnið. Eins og kunnugt er kemur Kjötkrókur á morgun og Kertasníkir á aðfangadag. DV-mynd GS Þj óðminj asafnið: Kertasníkir kem- ur á aðfangadag Nú er verulega farið að styttast til jóla. Kjötkrókur kemur á morgun, Þorláksmessu, klukkan 14 í Þjóð- minjasafnið. Þá verður heilmikið um að vera og aldrei að vita hvað hann hefur í pokahominu. Þá verð- ur sungið og það er Guðni Fransson sem stjórnar söngnum. Að sögn Lilju Árnadóttur safn- stjóra verður sérstakt andrúmsloft í Þjóðminjasafninu á aðfangadag. „Þá kemur Kertasníkir klukkan ellefu. Hann er dálítið sérstakur per- sónuleiki. Hann er svo góður, ekki svona hrekkjóttur eins og hinir jóla- sveinarnir. Svo er hann prúðbúinn. Vegna þess að það er aðfangadagur verður mun hátíðlegra en hina dag- ana og allt verður búið klukkan tólf. Börnin gefa Kertasníki gjarnan kerti. Það kemur gjarnan heilmikið af fólki og góð stemning skapast á að- fangadaginn. Fólk kemur oft í leið- inni, jafnvel heilu fjölskyldurnar, þegar það er að keyra út jólagjaflrn- ar. Krakkarnir eru stundum búnir að koma áður og draga pabba og mömmu að sjá Kertasníki því að hann er í uppáhaldi hjá mörgum þeirra. Síðan drífur fólk sig heim enda komið hádegi á aðfangadag," sagði Lilja. -ÞK Sérstök messa fyrir barnafjölskyldur verður klukkan fjögur á aðfangadag í Neskirkju. Neskirkja: Jólaguðsþjónusta barnafj ölsky ldunnar Á aðfangadag munu fermingar- börnin leika á hljóðfæri og leiða sönginn í aftansöngnum klukkan fjögur sem er einkum ætlaður fjöl- skyldum barna og unglinga. Þessi guðsþjónusta er að því leyti frábrugðin þeim seinni, klukkan sex og náttsöngnum klukkan hálf- tólf, að í stað hefðbundinnar prédik- unar kemur jólasaga og ætlast er til Kór Aðventkirkjunnar í Reykja- vík heldur aðventukvöld í kvöld, 22. desember, klukkan 20 í Aðventkirkj- unni, Ingólfsstræti 19 í Reykjavík. Kórinn mun syngja nokkur jóla- lög. Páll Sigurðsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, flytur hugvekju og fjölbreytt tónlistaratriði verða á dagskránni ásamt almennum söng. Kórstjóri og undirleikari hjá kórn- að allir kirkjugestir taki undir söng jólasálmanna. Þá verða hin fyrstu jól sviðsett fyrir yngstu kirkjugest- ina. Eins og á undanfornum árum verður tekið á móti framlögum til Hjálparstofnunar kirkjunnar við fjárhúsið sem staðsett er í anddyri kirkjunnar. -ÞK um er Krystyna Cortes en hún hef- ur verið stjórnandi kórsins undan- farin ár. Kórinn býður upp á heitt súkkulaði og piparkökur á eftir. Tilvalið er fyrir fólk að koma og njóta helgistundar mitt í amstri jól- anna nú þegar jólin eru á næstu grösum. Allir eru hjartanlega vel- komnir. -ÞK Áskirkja í kvöld: Friðarstund fiölskyldunnar ‘Sólstöðuhópurinn heldur friðar- stund fjölskyldunnar í Áskirkju á vetrarsólstöðum í dag, fóstudaginn 22. desember, klukkan 20. Barnakór Grensáskirkju og Tóna- kórinn syngja, Dröfn Jónsdóttir leikur einleik á þverflautu, Guðrún Ásmundsdóttir leikari les jólasögu, leikhópurinn Perlan leikur Síðasta blómið og Inga Stefánsdóttir sál- fræðingur flytur hugvekju. Þá mun kórinn leiða samsöng og séra Árni Bergur Sigurbjörnsson bæn. Hugmyndin er að þetta verði kyrrlát stund með söng og íhugun og til að fólk njóti friðar og nálægð- ar hvað við annað, sjálft sig og Guð nú þegar jólin nálgast. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er 500 krónur og frítt fyrir böm. Allur ágóði rennur til Umhyggju, félags til stuðnings langtímaveikum börnum. Grindavík: Sigríður Vala og Tryggvi Gunnar sýna Myndlistarsýning Sigriðar Völu Haraldsdóttur og Tryggva Gunnars Hansen verður opnuð formlega á Hafurbiminum og í Gamla Kvennó í Grindavík þriðjudaginn 26. desemb- er, annan í jólum. í Gamla Kvennó verður opnað klukkan 17 og klukkan 18 á Hafur- birninum. Tryggvi og Vala sýna á þessum tveimur stöðum yfir 50 olíu- málverk, olíueggtempera og vatns- litamyndir. Myndefnið er framar öðru tengt náttúrunni, fólkinu, fomum stein- hringjum eða því véi sem verða mun. Sýningin stendur til 6. janúar 1996, þrettándans. Nær allar myndirnar á sýning- unni eru til sölu og allir eru vel- komnir. -ÞK Aðventukvöld í Aðventkirkjunni DV Sýningar Listhúsið í Laugardal Engjateigi 17 Þar stendur yfir myndlistarsýning á verkum eftir Sjöfn Har. Sýningin ber yfirskriftina „íslensk náttúra, íslenskt landslag". Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16. Þá stendur einnig yfir í Listhúsinu sýning á glerl- ist Píu Rakelar Sverrisdóttur og sýn- ing á kertastjökum í aðalsal. List- speglar Tryggva Árnasonar verða jafnframt kynntir og á veggjum sýn- ingarsalarins eru Avant Art silkiþrykk og eftirmyndir frá Hirti. Opið verður í Listhúsinu alla daga fram að jólum. Listhús 39 Strandgötu, Hafnarfirði Þar stendur yfir samsýnining 13 lista- manna sem ber heitið Englar og eró- tík. Á sýningunni eru myndverk unn- in í margvísleg efni, m.a. fjaðrir, gler, stein, brons, leir, olíu, pastel og hör. Sýningunni lýkur 31. desember. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14—18. Listhús Ófeigs Skólavörðustíg 5 Þar stendur yfir sýningin Skíma. Eft- irtaldir listamenn sýna: Hringur Jó- hannesson, Magnús Tómasson, Ófeigur Björnsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigurður Þórir, Þorbjörg Höskuldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Sýningin stendurtil 14. janúar. Menningarmiðstöðin Gerðu- berg Breiðholti Þar stendur yfir sýning á verkum margra heimsþekktra listamanna sem sýnt hafa hjá málaranum Helga Þorgils Friðjónssyni í Gallerí Gangi undanfarin 15 ár. Alls eiga 19 lista- menn verk á sýningunni. Sýningin stendur til 8. janúar. Myndlistarsýn- ing Hlyns Hallssonar í Effinu stendur fram til áramóta. Sýningarnar eru opnar kl. 13-19 mánudaga til fimmtudaga og kl. 13-17 föstudaga til sunnudaga. Mokka kaffi Skólavörðustíg Þar stendur yfir sýning Magnúsar Pálssonar sem hann kallar Hundrað- árastríðið. Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Safnið opið á sunnudögum, þriðju- dögum, fimmtudögum og laugardög- um kl. 13-17. Norræna húsið Rebekka Rut sýnir 30 olíumálverk. Sýningin er opin daglega kl. 14-19. Póst- og símamihjasafnið Austurgötu 11, Hafnarfirði Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18. Sparisjóðurinn í Garðabæ Garðatorgi í tilefni 20 ára kaupstaðarréttinda Garðabæjar 1. janúar 1996 stendur yfir yfirlitssýning á myndlistarverkum í eigu bæjarins. Um er að ræða myndir sem Garðabær hefur eignast í gegnum tíðina. Sýningin er opin á opnunartíma Sparisjóðsins frá kl. 8.30 til 16 alla virka daga til 19. janú- ar. Þjóðminjasafnið Opið sunnud, þriðjud. fimmtud. og laugard. kl. 12-17. Sýning í Grindavík Myndlistarsýning Sigríðar Völu Har- aldsdóttur og Tryggva Gunnars Han- sen verður opnuð formlega á Hafur- birninum og í „Gamla Kvennó", í Grindavík þriðjudaginn 26. des. kl. 17 í „Gamla Kvennó" og kl. 18 á Haf- urbirninum. Tryggvi og Vala sýna á þessum tveimur stöðum yfir 50 olíu- málverk, olíueggtempara og vatns- litamyndir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.