Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1995, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1995, Síða 3
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 17 Bruce Willis: Getur alltaf treyst á John McClane Die Hard myndirnar þrjár hafa verið gullnáma fyrir Bruce Willis og í raun hafa þessar þrjár myndir ver- ið þær einu, þar sem hann er í aöal- hlutverki, sem hafa gefið eitthvað af sér. Staðreyndin er nefnilega sú að aðrar kvikmyndir sem Wiilis hefúr leikið aðalhlutverk i hafa verið meira og minna misheppnaðar og sumar hverjar afleitar, má þar nefna Sunset, The Bonefire of Vanities, Hudson Hawk, The Last Boy Scout, Death Becomes Her og Color of Night. Undantekning er In Country þar sem Willis sýndi hvað í honum býr, lék þar fyrrum Vietnamhermann eftirminnilega. Bruce Willis hefur tekist mun bet- ur upp í smáum hlutverkum og hans bestu stundir sem leikari hafa verið í, auk In Country, Billy Bat- hgate, Pulp Fiction, Nobody’s Fool og rödd ungbarnsins í Look Who’s Talking. Þrátt fyrir mörg mistök er Bruce Willis einn eftirsóttasti leik- arinn í Hollywood og alltaf talinn meðal þeirra Stærstu. Það hafa margir sagt um Willis að það sé eitt- hvað við hann sem aldrei sé hægt að fá leiða á. Síðastliðin tíu ár hefur Bruce Willis verið milli tannanna á fjöl- miðlafólki og ekki minnkaði áhug- inn eftir að hann giftist Demi Moore. Þrátt fyrir spádóma um að þau myndu ekki endast lengi saman hafa þau verið gift í átta ár og eiga orðið þrjú böm. Willis segir sjálfur um umfjöllun fjölmiöla að það sé orðið honum eðlilegt að lesa eitt- hvað slæmt um sig: „Blaðamenn eru yfirleitt á þeirri línu að slæmt um- tal selji meira en gott umtal svo ég er hættur að æsa mig yfir því þótt alltaf birtist það í blöðum sem mið- ur fer, en geri ég eitthvað sem mér finnst áhugavert og gott þá er áhug- inn minni.“ Vann fyrir sér í ýmsum störfum Bmce Willis fæddist í New Jersey í mars 1955. Hann var ekki mikill námsmaður og hætti strax námi eft- ir gagnfræðaskóla, og fór að vinna hin ýmsu störf. Hann sá þó að sér og innritaðist inn í Montclair State College, sem hefur á að skipa góðri leiklistardeild. Með skólanum fór hann að reyna fyrir sér í New York og fékk að lokum hlutverk í leikriti sem hét Heaven and Earth. Þetta var árið 1977. Eftir að hafa fengið hlutverk hætti hann öllu skólanámi og leigði sér litla íbúð í einu illræmdasta hverfi New York’ borgar „Hell’s Kitchen" og vann sem barþjónn á nóttunni og reyndi að fá hlutverk í leikritum á daginn. Erfíði hans bar þó nokkurn árangur og fékk hann smám saman hlutverk í leikritum sem sýnd vom utan Broadway og í auglýsingum. Auk þess vann hann stundum fyrir sér sem munnhörpu- leikari og lék þá með hinum ýmsu blúshljómsveitum. Umskiptin á ferli hans urðu 1984 þegar hann tók við aðalhlutverki af öðrum leikara í leikriti Sam Shep- ard’s, Fool for Love. Eftir að hafa Bruce Willis I sínu frægasta hlutverki, John McClane í Die Hard with a Vengeance. leikið 100 sinnum í leikritinu fór hann til Los Angeles og lék i prufu fyrir sjónvarpsþáttinn Moonlightn- ing, en stjarna í þáttunum átti að vera Cybill Shepard, var hennar hlutverk að vera eigandi að leyni- þjónustufyrirtæki. Wills hafði betur gegn 3000 öðrum sem sóttu um hlut- verkið og það er skemmst frá því að segja að Moonlighting var vinsæl- asti sjónvarpsmyndaflokkurinn í fjögur ár og átti Bruce Willis ekki lítinn þátt í vinsældunum, en fljótt fór hann að skyggja á Cybill Shepard, henni til mikillar gremju. Fyrir hlutverk sitt sem einka- spæjarinn David Addison fékk Will- is bæði Golden Globe verðlaunin og Emmy-verðlaunin og þegar hætt var aö gera þættina var leiðin greið yfir í kvikmyndimar. Fyrsta stóra hlut- verkið í kvikmynd var á móti Kim Basinger í Blind Date. Leikstjóri myndarinnar var Blake Edwards og Edwards valdi einnig Willis til að leika aðalhlutverkiö í misheppnaðri kvikmynd, Sunset. Þessar tvær kvikmyndir gerðu ekki mikið fyrir feril Wiflis. Næsta kvikmynd hans var aftur á móti Die Hard, sem kom honum í einum grænum upp í flokk stóm leikaranna þar sem hann hef- ur verið síðan þrátt fyrir brokk- gengan feril eins og áður hefur kom- ið fram. Leiklistin er ekki eini vettvangur Bruce Willis í listinni. Hann er lið- tækur söngvari og hljóðfæraleikari og er með eigin hljómsveit í hjá- verkum og hefur gefið út tvær plöt- ur undir eigin nafni og komst eitt lag með honum í efstu sæti vin- sældalistans, var það útgáfa hans á hinu þekkta lagi Under the Board- walk, þá er hann i viðskiptum með Arnold Schwarzenegger og Sylvest- er Stallone, en saman eiga þeir Planet Hoflywood veitingahúsakeðj- una. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Bruce Wiflis hefur leikið í: The First Deadly Sln, 1980 The Verdict, 1982 Blind Date, 1987 Sunset, 1988 Dle Hard, 1988 Look Who’s Talking, 1989 In Country, 1990 Dle Hard 2,1990 Look Who's Talklng Too, 1990 The Bonetlre of the Vanities, 1990, Mortal Thoughts, 1991 Hudson Hawk, 1991 Bllly Bathgate, 1991 The Last Boy Scout, 1991 The Player, 1992 Death Becomes Her, 1992 Striking Distance, 1993 North, 1993 Color of Nlght, 1994 Pulp Rctlon, 1994 Nobody’s Fool, 1994 Dle Hard wlth a Vengeance, 1995 I Color of Night lék Bruce Willis niðurdreginn sálfræðing sem á í heitu ástarævintýri með Jane March. The Bonfire of Vanities var eitt allsherjar „flopp". I henni lék Bruce Willis blaðamanninn Peter Fallow. Uppreisnin í Attica Snemma á áttunda áratugnum átti sér stað mesta og blóðugasta fangauppreisn sem orðið hefúr í Bandaríkjunum, uppreisnin í Attica fangelsinu í New York fylki. Uppreisn þessi vakti heimsathygli. Uppreisnin, sem endaði i blóðugri slátrun her- manna sem gerðu engan greinarmun á fóngum og gíslum, hafði þau áhrif að tekið var á málum fanga og fækkað i fangelsum. Sá sem átti mesta sökina á því að til blóðugra átaka kom var þáverandi ríkis- stjóri í New York, Nelson Rockefeller, gagnslaus milljónamæringur, sem þorði ekki að verða við beiðni fanganna um að mæta í fangelsið til samn- inga. Um þessa atburði hefur John Frankenheimer gert sterka og áhrifamikla mynd, sem fer nokkuð hægt af stað. Hefði hún sjálfsagt orðið enn betri ef ekki hefði verið eytt of miklum tíma í vandamálin utan rimlana hjá nýliðanum í fangavarðastéttinni og þess í stað einbeitt sér að samskiptum hans og fanga, sem var í framvarðar- sveit Svörtu hlébarðanna. Hvaö um það, Frankenheimer sýnir gamla takta og Kyle MacLaglan og Samuel L. Jackson eru góðir í hlutverkum sínum. AGAINST THE WALL - Útgefandi: Bergvík. Lelkstjóri: John Frankenhelmer. Aðalhlutverk: Kyle MacLaglan, Samuel L. Jackson og Harry Dean Stanton. Bandarísk, 1994. Sýningartími 106 mín. Bönnuð börnum Innan 16 ára. -HK Þrjóska og vilji jíHaN aS-WN A TrixSt ^ Það er hægt að komast langt á þrfóskunni og viljanum. Það sannaði hinn smávaxni Rudy. Hans æðsti draumur er að komast í ruðningslið Notre Dame háskólans. Gaflinn er að Rudy er smávaxinn og það þykir ekki liklegt til árangurs i ruðningi og námsmaður er hann enginn. Hann fær inngöngu í hliðarskóla við Notre Dame og leggur mikið á sig til að ná góðum einkunnum svo að hann fái inn- göngu í Notre Dame og það tekst. En þá er eftir að láta drauminn rætast. Hindranimar eru margar, þótt fyrst og fremst sé það stærðin sem háir hon- um. Þrautseigja hans og vilji vekja athygli í skólan- um og þótt þjálfarinn sjái ekki í byijun neinn til- gang með að hafa hann í liðinu þá getur hann ekki annað en dáðst að honum og segir liösmenn sína geta mikið lært af Rudy. Rudy er bæði ljúf og spennandi. Hún er byggð á sönnum atburðum sem áttu sér stað snemma á áttunda áratugnum og það er ekki annað hægt en að dást að þeim mikla viljastyrk sem Rudy sýnir og þótt aldrei yrði hann ruðn- ingsstjarna þá er hann lifandi í minningu allra sem fylgdust með honum. RUD,Y - Útgefandl: Skifan. Lelkstjóri: Davld Anspaugh. Aðalhlutverk: Sean Astln, Ned Beatty og Llll Taylor. Bandarísk, 1993. Sýnlngartíml 110 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK Jörðin í hættu Einhverra hluta vegna hefur leikstjórinn Ric- hard Sarafian ekki verið sáttur með útkomuna á Solar Crisis, því myndinni er skrifuð á Alan Smit- hee, en það er nafh sem leikstjórar fá að nota, telji þeir að brotið hafi verið á rétti þeirra og geti fært sönnur á. Solar Crisis er samt þrátt fyrir aflt hin skemmtilegasta afþreying meö feikigóðum og trú- verðugum tæknibrellum. Fjallar myndin um leiö- angur sem sendur er til sólarinnár árið 2050, þar sem talið er að ef ekki takist méð öflugri spreng- ingu að breyta eldtungu sem beinist að jörðinni muni hún hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir lífið á jörðinni. Það togast á öfl á jörðu niðri um tilgang- inn. Um leið er fylgst með áhöfninni um borð í geimfarinu Helios, sem lendir í ýmsum erfiðleikum og skipstjóranum þykir ljóst að um borð sé einhver sem vilji ekki aö ferðin heppnist. Solar Crisis er hreinn vísindaskáldskapur og ágætur sem slíkur, myndin er spennandi og ágætir leikarar með Charlton Heston í broddi fylkingar gera hlutverkum sínum góð skil. SOLAR CRISIS - Útgefandl: Bergvík. Lelkstjóri: Alan Smithee. Aðalleikarar: Tim Matheson, Charlton Heston og Jack Palance. Bandansk, 1993. Sýnlngartími 101 mín. Bönnuð bömum Innan 16 ára. -HK Arlð 7050 »r bjrrlst mllljönir kilomrtrn úti Draumóramaður Stutt er siðan Frank Sinatra hætti að koma fram en hann hélt röddinni ótrúlega lengi. Margir eru á því að hann sé besti dægurlagasöngvari ald- arinnar og benda á mörg afrek og satt er það'að mörg þekkt dægurlög hfjóma best í hans flutningi. Þeir sem vilja sjá hann i toppformi syngja Lady and the Tramp, Bewitched og fleiri stórgóð lög í kvikmyndaútgáfu af hinum skemmtilega söngleik, Pal Joey, ættu að fara út á næstu myndbandaleigu, því myndin, þótt komin sé til ára sinna, er góð skemmtun. í myndinni leikur Frank ævintýra- manninn Joey Evans sem er næturklúbbasöngvari, alltaf blankur, en uppfullur af hugmyndum og sannfærður um eigið ágæti. Ekki er hægt að segja að mótleikarar Franks séu af verri endanum, þokkagyðjumar Rita Hayworth, sem leikur rika frú með fortíð og Kim Novak, sem leikur dansara á næturklúbbi. Söguþráðurinn er ekki merkilegur, en þaö er góður húmor i myndinni og tónlistin stórgóð og „Frankie Boy“ í toppformi. PAL JOEY - Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: George Sldney. Aðalhlutverk: Rita Hayworth, Frank Sinatra og Klm Novak. Bandarísk, 1995. Sýningartími 105 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.