Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1996, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 T 6 N L I S l A R LJlÍIJ JiVjJ J Ýmsir flytjendur - Rokklokkar i i mTmT Bestu lögin? Rokklokkar er tveggja diska útgáfa með mörgum þekktum er- lendum lögum frá frumbemsku rokksins, svo og íslenskum lög- um frá sjötta og sjöunda áratugn- um. Undirtitill platnanna er Fjörutíu bestu lög rokktímans með íslenskum og erlendum flytjendum. Það er og verður alltaf smekksatriði hver eru bestu lög þess ágæta tíma og hefði áreiðanlega mátt finna fjörutíu lög til viðbótar sem sómt hefðu sér vel á plötunum. Nokkur laganna hafa raunar verið flokkuð til annars en rokks. Reet Petite með Jackie Wil- son er til dæmis oft haft á soulsafnplötum og My Baby just Cares for Me hefur stundum veriö talið með djasslögum. Þá er vafasamt hvort hægt er að flokka Fjóra káta þresti með rokktónlist. Það sem rýrir gildi Rokklokka er að nokkur erlendu laganna eru end- urhljóðritanir. At the Hop með Danny and the Juniors varð til að mynda vinsælt árið 1957 en upptakan á Rokklokkum er frá 1976. Upptaka Sing- ing the Blues er frá 1974 og Rock Around the Clock með BUl Haley and His Comets er frá 1963 svo að dæmi séu tekin. Útgefandinn fær hins veg- ar plús fyrir að skýra skilmerkilega frá upptökuárum laganna. Það ger- ist allt of oft að erlendir útgefendur trassa að láta slíkar upplýsingar fýlgja með á plötum sínum og kaupir fólk því köttinn í sekknum þegar það er að leita sér eftir frumútgáfum. Hins vegar setja ekki allir slíkt fyrir sig og fyrir þá eru Rokklokkar ágætustu kaup. Ásgeir Tómasson Og The Cardigans - Life ★★★ Frísklegt þægilegt popp Svíar hafa löngum verið lunknir tónlistarmenn og sú Norðurlandaþjóð sem hvað lengst hefur náð í alþjóðlegu poppi. Og þeir eru enn að fram- leiða hljómsveitir sem vekja alþjóðlega athygli, ein sú nýjasta er hljóm- sveitin The Cardigans frá Malmö. Sveitin leikur frísklegt og þægilegt popp og sækir megináhrif sín nokkra áratugi aftur í tímann; soultónlist sjöunda áratugarins er hljómsveitinni hugleikin og þá er líka léttur jasskeimur af sumum laga sveitarinnar. Fyrir utan hefðbundin hljóð- færi krydda The Cardigans hljóðfæraleikinn með notkun ýmissa blást- urshljóðfæra auk þess sem selló, flautur og fiðlur setja sinn svip á lög- in. Útsetningar laganna eru mjög smekklega unnar og þrátt íyrir fjöl- breytta hljóðfæranotkun er hvergi um of hlaðið. The Cardigans skarta stórgóðri söngkonu sem augljóslega hefur heyrt í Björk einhvem tíma á lífsleiöinni. Þó er alls ekki hægt að segja að hún stæli Björk en áhrif- in eru greinileg í sumum laganna. Fróðlegt verður að fylgjast með fram- vindu mála hjá The Cardigans því hljómsveitin er allrar athygli verð og kemur að mörgu leyti með nýjan ferskan tón inn í poppflóruna. Sigurður Þór Salvarsson David Bowle - Outside ★★★ Á heimleið Á meðan David Bowie er einn helsti áhrifavaldur hinn- ar nýju Brit pop bylgju og ein- staklingar og hljómsveitir keppast við að stæla það sem hann var að gera á gullaldará- ram sínum milli 1970 og 1980 er sjálfur „hái granni greifinn" enn á hálfgerðri eyðimerkur- göngu. Ýmis teikn eru þó á lofti um að hann sé á heimleið og ber þessi plata hans ótvíræð merki þar um. Þar er líklegt að Brian Eno hafi sitt að segja en hann er nú sestur á ný við upptökustjómvölinn hjá Bowie eftir áralanga fjar- veru. 1 það minnsta er tónlist Bowies mun melódískari og aðgengilegri á þessari plötu en verið hefúr um langa hríð og ef fram heldur sem horf- ir verður verulega spennandi að bíða næstu plötu frá Bowie. Reyndar hefði Bowie getað gert þessa plötu mun sterkari að minu mati með því að beita niðurskurðarhnífnum margfræga. Platan er einfaldlega allt of langdregin; tekur heilan klukkutíma og kortér í flutningi sem er á við tvær meðalplötur. 1 sjálfu sér hefði lengdin verið í góðu lagi ef platan héldi dampi allan þennan tíma en það gerir hún því miður ekki. Inni á milli margra mjög góðra laga missir Bowie sig i langar og flóknar pæl- ingar sem draga plötuna niður að mínu mati. En batnandi manni er best að lifa og það er kominn tími til að Bowie hristi af sér slenið. Sigurður Þór Salvarsson Bítlavinafélagið: Tíu ár frá því að það var stofnað til að leika undir með kór Verslunarskóla íslands. Vinsældir hljómsveitarinnar Sixties sýna það.“ Hljómleikaupptökum sleppt Liðsmenn Bítlavinafélagsins voru duglegir við að hljóðrita tónleika sína og dansleiki. Talsvert af erlendum og innlendum lögum er til sem ekki hef- ur verið gefið út. Jón Ólafsson segir að þeir fimmmenningamir hafl velt þvi fyrir sér að gefa út eitthvað á nýju plötunni sem ekki hefði komið út áður en að vandlega athuguðu máli hefði verið ákveðið að láta það eiga sig. „Við verðum þó reyndar með hljóm- leikaútgáfu af Alveg orðlaus," segir hann. „Ástæðan fyrir því er sú að okk- ur fannst hún betri en sú sem við tók- um upp í stúdíóinu og gáfum út á fyrstu plötunni okkar. Við hefðum til dæmis getað gefið út okkar útgáfu af laginu Vor í Vaglaskógi. Það kom hins vegar út með Sixties í fyrra og varð vinsælt og þar af leiðandi þótti okkur ekki ástæða til að bæta við öðra lagi. Eins fannst okkur það skemma heild- armyndina á safnplötunni ef við hefð- um farið að bæta á hana lögum með enskum textum þannig að niðurstað- an varð sú að láta sextán lög duga.“ -ÁT Ein af fyrstu plötum nýja ársins - ef ekki sú fyrsta - verður með Bítla- vinafélaginu. Ekki nýjar upptökur heldur sextán lög sem gefin voru út á þeim fimm plötum sem hljómsveitin sendi frá sér á fimm ára ferli sínum. Mörg þessara laga hafa verið ófáanleg í mörg ár. „Við erum með þessari útgáfu að halda upp á það að tíu ár eru liðin síð- an hljómsveitin var stofnuð," segir Jón Ólafsson hljómborðsleikari. „Hún varð einmitt til í ársbyrjun 1986. Þá var ég stjómandi kórs Verslunarskóla íslands og fékk nokkra menn til að leika með kórnum á nemendamóti skólans. Við voram jafnframt beðnir að spila íyrir dansi um kvöldið og urð- um við því og tókum einnig að okkur að leika á Lennonkvöldi á Gauki á Stöng og áður en við vissum af höfð- um við orðið nóg aö gera við að spila Bítlalög og aðra tónlist frá sjöunda ára- tugnum." Fimm ára ferill Með Jóni í Bítlavinafélaginu vora Stefán Hjörleifsson og Eyjólfur Krist- jánsson gítarleikarar, Rafn Jónsson trommuleikari og Haraldur Þorsteins- son sem sá um bassaleikinn. Hljóm- sveitin starfaði í rétt fimm ár, hætti einmitt í janúar 1990. Á ferlinum sendi hún frá sér tvær plötur í fullri lengd, Tólf íslensk Bítlalög og Konan sem stelur Mogganum. Þá komu út tvær „hálfvaxnar" plötur og ein smáskífa. Af fyrstu plötunni verður lagið Þrisvar í viku á safnplötunni og hljóm- leikaútgáfa lagsins Alveg orðlaus. Öll sex lögin af næstu, plötu hljómsveitar- innar verða á safnplötunni, bæði lög smáskífunnar, ijögur af Tóif íslensk- um Bítlalögum og tvö af síðustu plöt- unni sem kom út nokkrum vikum áður en hljómsveitin hætti. Hljóm- sveitin var þá í fullu fjöri og hafði nóg að gera við dansleikjahald víða um land. „Okkur fannst bara komið að tíma- mótum og rétt að fara að gera eitthvað annað," segir Jón. „Til dæmis hafði mikið af tíma mínum farið í að vinna að plötum með hljómsveitinni Nýdönsk og ég hafði á tilfinningunni að það starf ætti eftir að verða meira sem kom líka á daginn. Alla tíð síðan við hættum höfum við verið beðnir að endurreisa hljómsveit- ina. Á þessari stundu er ómögulegt að segja hvort af því verður í tilefni tíu ára afmælisins og plötuútgáfunnar. Það verður bara að koma í ljós. En greinilegt er að það er markaður fyr- ir hljómsveit eins og Bítlavinafélagið. Bitte nú — Borgardætur ★★★ Þeim sem höfðu gaman af tónlist Borgardætra á plötunni Svo sannar- lega ætti ekki síður að hitna um hjartarætumar við að hlusta á Bitte nú. -ÁT Stóri draumurinn — Orri Harðar: ★★★ Orri sýndi á Drögum að heim- komu að hann er lunkinn textasmið- ur og honum tekst einnig ágætlega upp að þessu sinni. Orri Harðarson er tvímælalaust til afreka fallinn í framtíðinni. -ÁT Croufie d'ou lá — Emiliana Torrini: ★★★Á Söngurinn er ótrúlega fjölbreytt- ur og hreint meö ólíkindum hversu margvíslegum söngstíl Emilíana hefur yfir að ráða. -SÞS Út og suður — Bogomil Font ★★★i Það er ekki spurning að herra Font syngur betur á þessari plötu en nokkra sinni fyrr. Röddin er ekki eins daufleg og hlutlaus og áður var, breidd hennar og tónsvið meira. Þrek ogtár —Ýmsir: ★★★ Flytjendur laganna eru fjölmarg- ir og það verður að segjast eins og er að það er makalaust hve mikið af hæfileikaríku og frambærilegu söngfólki leynist í Þjóðleikhúsinu. -SÞS Þitt fyrsta bros — Gunnar Þórðarson: ★★★Á Á plötunni má heyra þversniðið Eif ferli Gunnars Þórðarsonar sem popptónlistarmanns, allt frá Fyrsta kossinum og Bláu augimum þínum með Hljómum til endurútgáfu Stjórnarinnar og Jet Black Joe á gömlum Hljóma- og Trúbrotslögum. -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.