Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1996, Page 8
24 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 19% i/i ýmislegt Pólstj arnan af kvenskassinu og reiði Heru ásamt fleiru - Sá misskilningur er almennt útbreiddur að Pólstjarnan sé í hvirfilpunkti himin- hvolfsins, það er að segja í lóðlínu beint yfir höfði athugandans frá sjónbaug. Svo er þó ekki heldur er pólhæðin nálægt 64° norð- lægrar breiddar í Reykjavík, eða jöfn breidd staðarins. Sjálfur hvirfilpunkturinn er hins vegar í stjömumerkinu Drekanum eins og sjá má á kortinu hér að neðan. Pólstjarnan, sem einnig er nefnd Norðurstjaman eða leiðarstjarna, er bjart- asta stjaman í stjörnumerkinu Litlabimi og er talin vera í 700 ljósára fjarlægð frá jörðu. Fyrrum studdust sæfarendur mjög við þessa leiðarstjömu á ferðum sínum um úthöfin vegna þess að hún sýnir ávalit norðurstefn- una. Þar sem jörðin er ekki nákvæmlega hringlaga gætir hringhreyfingar á jarö- möndlinum sem nefnd er pólvelta, Þessi breyting er hægfara en eftir tólf þúsund ár er það blástjarnan Vega sem verður pólstjarna og á því tímaskeiði sem Móse leiddi ísraelsmenn út úr Egyptalandi var þaö stjaman Tuban í Drekamun sem gegndi hlutverki leiðarstjömunnar. Auðveldast er að finna Pólstjörnuna með því að hugsa sér línu dregna úr sfjörnunum Dubhe og Merak i Karlsvagninum. Karls- vagninn er eitthvert auðþekktasta stjömu- merkið á himni sem fjölmargir þekkja, en er þó einungis hluti af enn stærra stjömu- merki, Stórabirninum. Hann var reyndar bima hjá Grikkjum og í raun hin akkedíska prinsessa Kallistó í bjamdýrsham. Sam- kvæmt goðsögninni var hún ástkona Seifs og þegar Hera, eiginkona Seifs, komst að ástarsambandi þeirra varpaði hann Kailistó upp á stjörnuhimininn i þessu líki. Arabar töldu hins vegar að Karlsvagninn væri líkkista og nefndu stjömurnar um- hverfis hann grátkonumar. Ystu stjömuna, Alkar, neftidu þeir hins vegar skassið eða gribbuna. Rómverjar töldu hins vegar að Karlsvagninn væri sjö dráttaruxar sem gengju í eilífri hringferð um pólinn en okkar norrænu áar sáu hér vagn sjálfs Óðins á ferð. Drekinn er einstakur aö því leyti að hann er ávallt á sama stað þar sem hann snýst um miðpunkt himinhvolfsins. Þegar stjömufræðingurinn James Bradley (1693-1762) reyndi að meta fjarlægðina til stjömunnar Gamma í hægra auga Drekans árið 1725, öðlaðist hann frægð fyrir að upp- götva og skýra ljósviilu (aberration) en það var fyrsta sönnun þess að jörðin gengi í kringum sólina en ekki öfugt. Nokkrir lesendur blaðsins hafa haft sam- band við umsjónarmann þessarar síðu og beðið um upplýsingar hvað varðar aðgengi- leg gögn til stjömuathuguna. Auk stjörnu- kíkis, helst meö áttarhomi (azimutii) og gráðuboga, er nauðsynlegt að eiga í fómm sínum stjömukort. Hentugusta ritið á ís- lensku er hin ágæta stjömufræði Þorsteins Sæmundssonar Ph. D. sem kom út á vegum Alfræði Menningarsjóðs árið 1972. Þar eru góð yfirlitiskort með íslenskum heitum stjarnanna. Þeir sem eiga aðgang að tölvum ættu ekki að láta undir höfuð leggjast að verða sér úti um stjörnufræðiforrit. Með tilkomu geisladrifa hefur orðið ör þróun í gerð þessara forrita. Skal hér einungis bent á forritið Voyager frá Carina í Bandaríkjun- um. Auk ágætra stjömukorta fylgja forrit- inu tjölmargar ljósmyndir teknar úr öflug- um stjömusjónaukum og úr gervitunglum. Með slíku forriti er auðvelt að átta sig á hæð og áttarhorni einstakra stjarna miðað við staðartíma og breidd athuganda. - JRJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.