Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Side 5
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
21
DANSSTAÐIfí
Áslákur
Mosfellsbæ
Lifandi tóniist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Café Amsterdam
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Café Royal
Hafnarfirði
Rúnar Þór og hljómsveit spila sína
tónlist í bland við aðra föstudags- og
laugardagskvöld.
Café Ópera
Berglind Björk ásam Tríói Pálma Sig-
hvats föstudapkvöld. Bryndís Ás-
mundsdóttir asamt Kjartani Valdi-
mars og Þórði Högnasyni laugardags-
kvöld.
Duus-hús
v/Fischersund, s. 551-4446
Opið kl. 18-1 v.d., 18-3 föstud. og
laugard.
Feiti dvergurinn
Höfðabakka 1
Hljómsveitin Texas „two step" með
eldhressa rokk- og kántrý tónlist
föstudags- og laugardagskvöld.
Fógetinn
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Gaukur á Stöng
Hljómsveitin* Skítamórall leikur
föstudags- og laugardagskvöld.
Gullöldin
Hverafold 1-5, s. 587-8111
Heiðar Jónsson, snyrtir, skemmtir
gestum frá kl. 21 laugardagskvöld.
Okeypis aðgangur.
Hafnarkráin
Lifandi tónlist á hverju kvöldi.
Hótel ísland
„Skagfirsk sveifla" með Hljómsveit
Geirmyndar Valtýssonar föstudags-
kvöld. Laugardag er lokað, í aðalsal
vegna einkasamkvæmis. f Ásbyrgi
(austursal) skemmtir Gabriel Garcia
San Salvador, spánskur söngvari og
hljómborðsleikari.
Hótel Saga
Mímisbar:
Ragnar Bjarnason og Stefán Jökuls-
son föstud. og laugardagskvöld.
f|p|wðwr:
Föstud. og laugd. hlaðborð í hád. og
á kvöldin.
Súlnasalur:
Laugardagur: Einkasamkvæmi.
Kaffi Reykjavík
Hálft í hvoru föstudagskvöld. Hljóm-
sveitin Sóldögg laugardagskvöld.
Kringlukráin
André Bachmann og Carl Möller
föstudag og laugardag í Leikstofunni.
Óskalög spiluð.
LA-Café
Laugavegi 45, s. 562-6120
(Jm helgina: Maturkl. 18-22.30 með
léttri tónlist, síðan diskótek til kl. 3.
Hátt aldurstakmark.
Ingólfscafé
Diskótek föstudags- og Iaugardags-
kvöld.
Jazzbarinn
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Leikhúskjállarinn
Diskótek um helgina.
Naustkjallarinn
Lifandi tónlist um helgina.
Óðal
Hljómsveitin Ýktir leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld. Eng-
inn aðgangseyrir.
Óperudraugurinn
Hljómsveitin Extra frá Ólafsvík frá kl.
23.30-03.00.
Skálafell
Mosfellsbae
Lifandi tónlist um helgina.
Ölver
Glæsibæ
Karaoke um helgina. Opið alla virka
daga frá kl. 11.30 til 1 og til 3 föstu-
dag.
Selið
Hvammstanga
Raggi, Kalli og Þórir spila laugardags-
kvöld frá 23-03.
Sveitasetrið
Blönduósi
Amerískt steikarkvöld laugardags-
kvöld. Hljómsveit Ingu Eydal.
Hljómsveitin Hálft í hvoru skemmtir föstudagskvöldið 19. janúar á Kaffi Reykjavík.
Kaffi Reykjavík:
Hálft í hvoru
Sóldögg
og
Á Kafíl Reykjavík er að jafnaði lif-
andi tónlist öll kvöld vikunnar og
kennir þar margra grasa. Föstudags-
kvöldið 19. janúar verður það hljóm-
sveitin Hálft i hvoru sem sér um að
spila fyrir gesti en laugardagskvöld-
ið 20. janúar tekur hljómsveitin Sól-
dögg að sér það hlutverk. Á sunnu-
dagskvöldið verða það Grétar Örv-
arsson og Sigríður Beinteinsdóttir
sem sameina krafta sína í skemmtun
fyrir gesti staðarins.
Meðlimir hinnar nýstofnuðu hljómsveitar, Ýktir, frá vinstri Birgir Jóhann Birg-
isson, Hafsteinn Hafsteinsson og Rúnar Þór Guðmundsson.
Ýktir á
Óðal
Hljómsveitin Ýktir leikur fyrir
dansi á Óðali föstudagskvöldið 19.
janúar og laugardagskvöldið 20. jan-
úar. Hljómsveitin hefur starfað í 46
daga og sjást engin þreytumerki á
henni þrátt fyrir það. Hana skipa
þeir Hafsteinn Hafsteinsson, söng-
ur, kassagítar og stuðegg, Rúnar Þór
Guðmundsson, söngur og trommur,
og Birgir Jóhann Birgisson sem spil-
ar á píanó, rafgítar og bassa. Ein-
kunnarorð hljómsveitarinnar eru,
að eigin sögn, hógværð og yfirnátt-
úrulegir hæfileikar til að koma fólki
í stuð.
Café Royal:
Rúnar
Þór og
hljóm-
sveit
Rúnar Þór og hljómsveit, sem
skemmt hafa úti á landsbyggðinni
undanfarnar vikur, ætla nú að
bregða út af vananum og spila á höf-
uðborgarsvæðinu um þessa helgi.
Þeir félagarnir spila á Café Royale i
Hafnarfirði föstudagskvöldið 19. jan-
úar og laugardagskvöldið 20. janú-
ar. Þeir munu spila tónlist sína í
bland við aðra og taka meðal annars
við óskalögum gesta. Rúnar Þór hef-
ur nóg að gera þessa dagana því
hann er að undirbúa plötuútgáfu á
komandi sumri.
Rúnar Þór og hljómsveit spila á Café Royale um helgina.
Selið, Hvammstanga:
Raggi Kalli
og Þórir
Næsta laugardagskvöld, 20.
janúar, verður lifandi tónlist í
Selinu á Hvammstanga og verða
það félagamir Raggi Kalli og Þór-
ir sem sjá um að skemmta gest-
um frá klukkan 23 til 03 eftir mið-
nætii.
Berglind
og Bryndís
á Óperu
Það verður mikið um að vera
á Café Óperu um helgina. Föstu-
dagskvöldið 19. janúar verða það
Berglind Björk ásamt tríói Pálma
Sigurhjartar sem sjá um að
skemmta gestum frá klukkan
23-03. Á laugardagskvöldið tek-
ur söngkonan Bryndís Ásmunds-
dóttir ásamt Kjartani Valdimars-
syni og Þórði Högnasyni að
skemmta gestum.
Á Óperudraugnmn verður það
hljómsveitin Extra frá Ólafsvík
sem heldur uppi fjörinu laugar-
dagskvöldið 20. janúar.
Hótel ísland:
Spánskur
söngur
og leikur
Laugardagskvöldið 20. janúar
verður lokað í aðalsal Hótel ís-
lands vegna einkasamkvæmis en
í Ásbyrgi (Austursal) kemur
spánskur söngvari og hljóm-
borðsleikari, Gabriel Garcia San
Salvador, og skemmtir gestum
með einstæðum tónlistarflutn-
ingi. Á föstudagskvöldið verður
það hins vegar hinn sívinsæli
Geirmundur Valtýsson sem sér
um skagfirsku sveifluna í aðal-
salnum á Hótel íslandi. Húsið
verður þá opnað klukkan 22.
Raggi og Stef-
án á Sögu
Það verða hinir sívinsælu
Ragnar Bjarnason og Stefán Jök-
ulsson sem sjá um fjörið á Mímis-
bar á Hótel Sögu bæði föstudags-
oglaugardagskvöld, 19. og20. jan-
úar. Súlnasalurinn verður hins
vegar lokaður á laugardags-
kvöldið vegna einkasamkvæmis.
Pönktónleikar
ÍMH
Ef einhverjir skyldu halda að
pönkið sé liðið undir lok þá vaða
þeir hinir sömu í villu og svima.
Föstudagskvöldið 19. janúar
verða haldnir pönktónleikar í
MH, nánar tiltekið í norðurkjall-
ara hússins, og hefjast þeir
klukkan 19.00. Á tónleikunum
koma fram allar helstu neðan-
jarðarhljómsveitir Islands: Sakt-
móðigur, Forgarður helvítis, Ör-
kuml, Maunir, Kuml, Fallega
gulrótin, Kúkur og Hundraðkall-
arnir.
Gleöigjafinn á
Kringlukránni
Gleðigjafinn André Bachmann og
Carl Möller ætla að sjá um að
skemmta gestum í Leikstofunni á
Kringlukránni föstudagskvöldið 19.
janúar og laugardagskvöldið 20. jan-
úar. André og Carl munu spila mörg
af sínum eigin lögum, vinsæl dægur-
lög og spila óskalög gesta á staðnum.