Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996
23
Messur
Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari
Sigrún Steingrímsdóttir. Prestarnir.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Katfi eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Barnakórinn syngur. Börn
sem verða 5 ára á þessu ári sérstaklega
boðin velkomin. Samkoma ungs fólks
með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður
Eðvarð Ingólfsson guðfræðinemi. Org-
anisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi
Matthíasson.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur messar. Organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Sunnudagaskóli kl.
11. Léttur hádegisverður að lokinni
messu. Gunnar Sigurjónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur.
Organleikari Marteinn H. Friðriksson.
Barnastarf í safnaðarheimilinu á sama
tima og í Vesturbæjarskóla kl. 13. Bæna-
guðsþjónusta kl. 14.00. Prestursr. Jakob
A. Hjálmarsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Ein-
söngur Hanna Björk Guðjónsdóttir. Org-
anisti Kjartan Ólafsson.
Eyrarbakkakirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Org-
anisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma í umsjón Ragnars
Schram. Guðsþjónusta með altarisgöngu
kl. 18. Prestarnir.
Frikirkjan í Reykjavík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.15. Guðsþjónusta kl. 14. Órg-
anisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna.
Barnaguðsþjónusta í Rimaskóla kl. 12.30
í umsjón Jóhanns og, Ólafs. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Ágúst Ármann Þor-
láksson.
Grensáskirkja: Fjölskyldumessa kl. 11.
Barnakór Grensáskirkju syngur. Kórstjóri
Margrét Pálmadóttir. Messa kl. 14. Prest-
ur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Árni
Arinbjarnarson.
Hallgrímskirkja: Fræðsluerindi kl. 10.
Dr. Jakob Jónsson, presturinn, fræðimað-
urinn og skáldið. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Barnasamkoma og messa kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Ensk messa kl.
14. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudagaskóli kl.
11. Umsjón séra Þórhildur Ólafs. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur
séra Gunnþór Ingason. Fermingarbörn
aðstoða, barnakórinn syngur, stjórnendur
Hrafnhildur Blomsterberh og Helga Lofts-
dóttir. Organleikari Ólafur W. Finnsson.
Háteigskirkja: Messa kl. 11 (útvarps-
messa). Organisti Pavel Manasek. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Barnaguðs-
þjónusta í safnaðarheimilinu á sama
tíma. Messa kl. 14. Organisti Pavel
Manasek. Sr. Tómas Sveinsson.
Hjallakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prest-
ar kirkjunnar þjóna. í framhaldi af guðs-
þjónustunni mun dómprófastur, sr. Guð-
mundur Þorsteinsson, formlega opna og
helga neðri hæð safnaðarheimilis kirkj-
unnar. Eggert Hauksson, formaður sókn-
arnefndar, flytur ávarp og kór kirkjunnar
syngur undir stjórn organistans, Oddnýjar
J. Þorsteinsdóttur.
Keflavíkurkirkja: Bænadagur að vetri.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Munið skóla-
bílinn. Messa kl. 14 (altarisganga). Beðið
fyrir einingu kristinna manna. Prestur:
Olafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur. Organisti: Einar Örn Einars-
son. Prestarnir.
Kópavogskirkja: Barnastarf í safnaðar-
heimilinu Borgum kl. 11. Sjómannaguðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Altaris-
ganga. Organisti Orn Falkner. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands bisk-
ups: Messa kl. 11. Prestursr. Flóki Krist-
insson. Almennur safnaðarsöngur.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Báru Friðriksdóttur og Sóleyjar Stefáns-
dóttur. Kaffisopi eftir messu.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Væntan-
leg fermingarbörn aðstoða. Félagar úr
Kór Laugarneskirkju syngja. Organisti
Gunnar Gunnarsson. Barnastarf á sama
tíma. Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12. Ólafur Jóhannsson.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Opið
hús frá kl. 10. Munið kirkjubílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Messa (altaris-
ganga) sunnudaginn 28. jan. kl. 11.
Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðar-
söng.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli
sunnudaginn 28. jan. kl. 12. Baldur Rafn
Sigurðsson.
Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 14. Altarisganga. Kaffi og
meðl. eftir messu.
Seijakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Sr.
Ágúst Einarsson prédikar. Organleikari
Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Prest-
ur sr, Solveig Lára Guðmundsdóttir. Org-
anisti Vera Gulasciova. Barnastarf á
sama tíma.
Dýrabær er byggður á skáldsögu eftir George Orwell en þetta er í fyrsta sinn sem verkið er flutt hérlendis.
DV-mynd GS
Frumsýning í Tjarnarbíói:
Dýrabær
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýnir annað kvöld
leikverkið Dýrabæ sem byggt er á
skáldsögu eftir George Orwell
(Animal Farm) en leikgerð þessi er
frá árinu 1984 og er eftir breska leik-
stjórann Peter Hall.
í leikritinu er mikil tónlist sem
samin er af Richard Peaslee en
söngtextarnir eru eftir Adrian
Mitchell. Þessi sýning var frumsýnd
í breska þjóðleikhúsinu í London og
hlaut þar mjög góðar viðtökur en
ingar fyrir börn
Kvikmyndasýningar fyrir börn
og unglinga eru hafnar að nýju í
Norræna húsinu. Sýndar verða nor-
rænar barna- og unglingamyndir
alla sunnudaga kl. 14 fram í byrjun
maí.
Á sunnudaginn verður sýnd
danska myndin Karlsvognen. Irma,
mamma Tiasar, 15 ára, og Lindu, 10
ára, erfír hús í Svíþjóð eftir gamla
frænku sína. Fjölskyldan flytur
þangað og byrjar nýtt líf. En þegar
þau koma seint um kvöld á þennan
eyðistað heyra þau undarleg hljóð.
Það er einhver sem er að reyna að
fæla fjölskylduna burtu. Myndin er
byggð á sögu Ulf Stark, Kærlighed
og flagermus.
Bíósalur MÍR
„Fresturinri rennur út í dögun“
er heiti myndarinnar sem sýnd
verður í bíósal MfR að Vatnsstíg 10
á sunnudaginn kl. 16.
Kvikmyndin er byggð á skáldsögu
eftir bandaríska höfundinn William
Irish. Unga stúlku, sem komin er til
stórborgarinnar utan af landi,
dreymir um frama á sviði leiklistar.
En þegar henni tekst ekki að fá
hlutverk í leikhúsi verður hún að
taka að sér starf dansfélaga á
skemmtistað til þess að sjá sér far-
borða. Á heimleið frá barnum eina
nóttina kynnist hún ungum manni
og þau kynni draga dilk á eftir sér.
þetta er í fyrsta sinn sem verkið er
flutt hérlendis. Melkorka Thekla
Ólafsdóttir þýddi leiktexta og Krist-
ján Þórður Hrafnsson þýddi söng-
texta og bundið mál.
Leikstjóri er Andrés Sigurvins-
son og stýrir hann þarna hvorki
meira né minna en fimmtíu leikend-
um sem allir eru nemendur
Menntaskólans við Hamrahlíð. Tón-
listarstjórn er í höndum Gústavs
Sigurðssonar, ungs einleikara á
klarínett. Stigur Steinþórsson sér
Gítartónleikar verða haldnir í
Safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju
kl. 17 á sunnudaginn. Þar mun gít-
ardúettinn Icetone 4 2 leika verk frá
ýmsum tímabilum tónlistarsögunn-
ar. Dúettinn mynda gítarleikararnir
Símon H. ívarsson og Michael Hil-
lenstedt.
Á efnisskránni er m.a. að finna
Á Sóloni íslandusi stendur nú
yfir sýning á verkum Birgis Andrés-
sonar. Þar sýnir listamaðurinnn
þrjátíu teikningar ásamt fánaborg-
um úr íslenskri ull. Sýningin er
hluti þess sem var sýndur á Tvíær-
ingnum í Feneyjum síðastliðið sum-
um leikmynd og búninga en hann
hefur m.a. starfað fyrir atvinnuleik-
húsin, nú síðast við Rocky Horror í
Loftkastalanum. Sigurður Káiser,
sem einnig hefur unnið við Rocky
Horror, hannar lýsingu og
kóreógrafíu stjórnar Lára Stefáns-
dóttir, dansari og danshöfundur hjá
íslenska dansflokknum.
Sýningar verða í Tjarnarbíói eins
og fyrr greinir og standa þær til 15.
febrúar.
verk eftir mexíkanska tónskáldið
M. Ponce, Spánverjann F. Sor, Frak-
kann C. Debussy, Gunnar Reyni
Sveinsson og syrpu af lögum frá
Suður-Ameríku. Á tónleikunum
koma einnig fram nemendur tónlist-
arskólanna og í lokin verður fjölda-
söngur.
ar en Birgir var fulltrúi íslands á
þessari hámessu myndlistar sem
haldin er á tveggja ára fresti.
Birgir, sem hefur stundað mynd-
list í tvo áratugi, hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í nokkr-
um samsýningum.
íþróttir
Bikarhelgi
Sú helgi, sem nú fer í nönd, er
sannkölluð bikarhelgi. Úrslita-
leikimir í bikarkeppni karla og
kvenna í körfuknattleik fara
fram á laugardag og sunnudag,
og á laugardag eru leikin undan-
úrslitin í bikarkeppninni í hand-
knattleik, bæði í karla- og
kvennaflokki.
Körfubolti
Bikarúrslit kvenna eru leikin
í Garði í fyrsta skipti. Þar mæt-
ast Keflavík og Njarðvík á morg-
un, laugardag, og hefst viður-
eignin klukkan 16.
Bikarúrslit karla fara fram á
sama tíma á sunnudaginn, en í
Laugardalshöll. Þar eigast við
Haukar og í A.
Aðrir körfuboltaleikir helgar-
innar eru sem hér segir:
1. deild karla:
ÍH - Þór, Þ. F. 20.00
KFÍ - Reynir, S.L. 13.30
1. deild kvenna:
ÍA - KR F. 20.00
Handbolti
Selfoss og KA leika í undanúr-
slitunum í bikarkeppni karla á
Selfossi klukkan 16 á laugardag-
inn. Klukkan 16.15 verður síðan
flautað til leiks Fram og Víkings
í Framhúsinu.
í kvennaflokki mætast ÍBV og
Stjaman í Eyjum klukkan 13.30
á laugardag og Fylkir mætir
Fram í Árbænum klukkan 14.
Aðrir handboltaleikir helgar-
innar:
2. deild karla:
Fiölnir - BÍ F. 20.00
Þór, A. -HKF. 20.30
Sund
Stórmót í sundi verður haldið
í Sundhöll Hafnarfjarðar um
helgina og er það á vegum SH.
Flest besta sundfólk landsins
verður á meðal þátttakenda og
búast má við góðum afrekum,
ekki síst hjá þeim sem stefna á
að komast á ólympíuleikana i
Atlanta.
Nýjung í Úti-
vistarferðum
Á sunnudaginn verður farið í
dagsgöngu á vegum Útivistar um-
hverfis Kjalarnes. Ferðin er með ný-
stárlegu sniði þar sem göngufólk
getur bæði komið í ferðina á eigin
bílum og með rútu sem fer frá BSf
kl. 10.30.
Gangan hefst við Hofsvík kl. 11 og
er genginn hringur á nesinu að
Brautarholtsborg og komið er aftur
að upphafsstað kl. 15. Þetta er létt og
skemmtileg gönguferð við allra
hæfi. Fararstjóri er Helga Jörgen-
sen.
Þorrablótsferð
í kvöld kl. 20 er lagt af stað í
þorrablótsferð Útivistar og nú er
forinni heitið í Hvalfjörð. Gist er í
glæsilegu húsnæði Norræna
menntasetursins og slegið verður
upp þorraveislu á laugardagskvöldi.
Tvenns lags gönguferðir eru í
boði á laugardegi. Annars vegar í
kringum Eyrarvatn í Svínadal og
hins vegar strandganga hjá Saurbæ.
Farið verður í sund að gönguferðum
loknum. Fararstjóri er Lovísa
Christiansen.
Uppákomur
klæðaskiptinga
Inga Sólveig opnar ljósmyndasýn-
ingu á veitingastaðnum 22 á morg-
un. Myndir hennar eru teknar á
uppákomum klæðaskiptinga á
Spáni. Sýningin stendur til 17.
febrúar.
Þorrablót og dans-
leikur í Ártúni
Veitingahúsið Ártún verður opn-
að á ný annað kvöld. Þar verður
þorrablót en kynnir á því er Heiðar
Jónsson snyrtir. Jóhanna Ella og
Þorvaldur, sem eru margfaldir fs-
landsmeistarar í dansi, sýna listir
sínar á meðan á borðhaldi stendur.
Að þessu loknu verður almennur
dansleikur en hljómsveit hússins,
með söngkonuna Mattý Jóhanns í
fararbroddi, leikur undir.
Kvikmyndasýn-
Gítarleikararnir Michael Hillenstedt og Símon H. ívarsson
Dúettinn Icetone 4 2:
Gítartónleikar í Ólafsvík
Sýningargestur virðir fyrir sér verk Birgis. DV-mynd GVA
Birgir á Sóloni íslandusi