Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Blaðsíða 8
24 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 É vw '''^ézaátdfiítc Gleðigjafinn André Backman ætlar að spila á Kringlukránni í kvöld og annað kvöld. André verður þó ekki alveg einn á ferð því Carl Möller spilar meö honum. ými Tónlistar- dagskrá í Möguleik- Gerðarsafn í Kópavogi: Sýning á bestu blaðaljósmyndun- um frá síðastliðnu ári verður opnuð formlega í Gerðarsafninu í Kópa- vogi á morgun. Við opnunina verða afhent verðlaun fyrir bestu mynd- imar í einstökum efnisflokkum og jafnframt útnefnd besta blaðaljós- mynd árins 1995. ' Alls em myndir á sýningunni eft- ir sextán blaða- og fréttaljósmynd- ara. Þriggja manna dómnefnd valdi bestu myndirnar á sýninguna en um 600 myndir bárust i forkeppni. Þetta er í sjötta sinn sem Blaða- mannafélagið og Blaðaljósmyndara- félagið standa saman að sýningu sem þessari. Áhugafólk um ljósmyndir og fréttir er hvatt til að að koma á sýn- inguna í Gerðarsafni en hún er opin cilla daga nema mánudaga fram til 11. febrúar. Á annað hundrað myndir em á sýningunni sem opnuð verður al- menningi kl. 15 á morgun. Á sýningunni í Gerðarsafni gefur að lita bestu blaðaljósmyndirnar sem teknar voru á síðasta ári. DV-mynd ÞÖK Helgi Björnsson verður á fleygiferð um helgina en auk þess að leika í Rocky Horror-sýningunni í Loft- kastalanum ætla hann og félagar hans í SSSól að troða upp á skemmtistaðnum 1929 á Akureyri í kvöld. Með hljómsveitinni í för norðan heiða verða nokkrir leikend- ur úr fyrrnefndri sýningu. Orgeltónleikar í HaUgr ímskirkj u Orgeltónleikar verða í Hallgríms- kirkju á sunnudaginn kl. 17. Þar mun Hörður Áskelsson, organisti Hallgrímskirkju, leika íslenska org- eltónlist eftir tónskáldin Jón Leifs, Jón Nordal og Jónas Tómasson. Aðalviðfangsefni tónleikanna er nýtt verk eftir þann síðastnefnda sem er tónskáld á ísafirði. Nefnist það „Dýrð Krists“ og var frumflutt í tilefni af vígslu nýs orgels ísafjarð- arkirkju fyrr í þessum mánuði. Verkið skiptist í sjö hugleiðingar um texta úr guðspjöllum Matteusar og Jóhannesar. Auk hins nýja orgelverks flytur Hörður verkið Preuldiae organo, op- us 16, eftir Jón Leifs en það eru þrír stuttir forleikir við gömul sálmalög sálmanna „Sá ljósi dagur liðinn er“, „Mín lífstíð er á fleygiferð" og „Allt eins og blómstrið eina“ en síðast- taldi forleikurinn var notaður í kvikmynd Hilmars Oddssonar, Tár úr steini, sem fjallar um Jón Leifs. Eftir Jón Nordal verður leikið orgelverkið „Sálmforleikur um sálm sem aldrei var sunginn" sem algengt er að íslenskir orgelleikarar hafi á efnisskrá sinni. Hörður Áskelsson organisti leikur íslenska orgeltónlist í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. DV-mynd GVA Kompudagar í Kolaportinu Kolaportið efnir til sérstakra kompudaga um helgina. Opið frá kl. 11-17 bæði laugardag og sunnudag. Ólafur Már í Fold Sýningu á akrýlmyndum Ólafs Más Guðmundssonar í Gaflerí Fold lýkur á sunnudaginn. Þar kynnir Sigrún Eldjárn einnig grafíkmyndir. Opið hús Bahá’íar eru með opið hús að Álfabakka 12 í Mjódd kl. 20.30 annað kvöld. Laugardagsganga Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt er af stað frá Gjá- bakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlistasafnið Á sunnudaginn lýkur í Ný- listasafninu sýningu á verkum Guðmundar Thoroddsen, Jóns Sigurpálssonar, Ástu Ólafsdóttur og Nínu Ivanovu. Burns Supper Edinborgarfelagið á íslandi heldur sinn 19. Burns Supper í Dugguvogi 12 kl. 20 annað kvöld. Veislustjóri er Súsanna Svavars- dóttir og ræðumaður kvöldsins verður Guðni Guðmundsson, fyrrv. rektor. húsinu Tónlistardagskráin „Berrössuð á tánum“ verður flutt í Möguleikhús- inu við Hlemm kl. 14 á morgun. Hér er á ferðinni dagskrá með nýjum ljóðum, lögum og sögum sem tengjast veðri, árstíðum, dýrum, lit- um og ýmsu fleiru sem börn á aldr- inum 2-6 ára brjóta gjarnan heilann um. Höfundar og flytjendur eru þau Anna Pálína Árnadóttir og Aðal- steinn Ásberg Sigurðsson. Aðalsteinn Asberg Sigurðsson og Anna Pálína Árnadóttir. DV Sigurjón Ólafsson á vinnustofu sinni. Myndin er úr myndasafni DV. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Andlits- myndir Sig- urjóns Undanfarið hafa verið tfl sýnis í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar valdar andlitsmyndir eftir Siguijón. Breytingar hafa verið gerðar á sýn- ingunni þar eð bætt hefur verið við verkum, bæði þrívíðum andlits- myndum og skúlptúrum eftir Sigur- jón og málverkum af þjóðkunnum íslendingum. Málverkin hafa verið fengin að láni úr öðrum söfnum. Á sýningunni verður þannig hægt að skoða málverk Jóns Stef- ánssonar og Kristjáns Davíðssonar af Halldóri Laxness við hliðina á brjóstmynd þeirri sem Sigurjón mótaði. Hin þekkta sjálfsmynd Ás- gríms Jónssonar mun kaflast á við bronsmynd Sigurjóns af þessum fyrsta myndlistarkennara hans og eru báðar myndirnar frá árinu 1947. Af öðrum aðfengnum listaverkum má nefna portrett Nínu Tryggva- dóttur af Ragnari í Smára og mynd- ir Sigurjóns af Páli ísólfssyni og Guðmundi Thoroddsen prófessor. Á meðan sýningin stendur yfir, til 19. maí, verður aðstaða til að skoða myndbandið „Þessir kollóttu steinar" sem fjallar um portrett- myndir Sigurjóns. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-17 og fyrir hópa á öðrum tíma eftir samkomulagi. I I i Kynnisferð í Fræðasetrið Náttúruvemdarfélag Suðvest- urlands (NVSV) mun standa fyr- ir vettvangsferðum á laugardög- um líkt og gert var fyrir nokkram árum. Fyrsta ferðin nú verður farin á morgun í Fræða- setrið i Sandgerði. Mæting er við Fræðasetrið kl. 14. Kynningin mun taka um klukkutíma og að henni lokinni gefst kostur á stuttri skoðunar- ferð um hafnarsvæðið. Verk sr. Jakobs Jónssonar Á sunnudaginn kl. 10 f.h. verð- ur dagskrá í Hallgrímskirkju við opnun sýningar á verkum sr. Jakobs Jónssonar sem um 35 ára skeið var sóknarprestur í Hall- grímssókn í Reykjavik. Sýningin í Hallgrímskirkju mun standa í tvær vikur. Bestu blaðaljós- myndirnar '95

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.