Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1996, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996
GÓÐAR VINKONUR
Þarna slaka þær á, vinkonurnar Hjördís Pétursdóttir og Birna Óskarsdóttir.
Þær eru að sjálfsögðu bekkjarsystur og eru í Helluskóla. Stundum slettist þó
upp á vinskapinn en það er sárasjaldan og heyrir til algerra undantekninga!
Afmælisfélagi
mánaðarins
Nafn: Sandra Ýr Geirmundsdóttir
Afmælisdagur: 1. janúar 1992
Aldur: 4 ára
Klúbbfélagi: 05474
Skóli: Álftaborg
Systkini: Nei
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Pitsa
Hver er versti matur sem þú hefur
smakkað? Paprika.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Leika.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Fara að sofa.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hákarl.
Áttu eitthvert gæludýr? Nei.
Stundar þú einhverjar íþróttir? Nei.
Hvaða mynd sástu síðast í bíó?
Hundalíf.
Besta vinkona: Steinunn Sif og Rósa.
Hvað lestu helst í DV? Skoða
Krakkaklúbbshornið.
Hvað gerðir þú á afmælisdaginn? Hélt
afmælisveislu.
Umsjón Krakkaklúbbs DV:
Halldóra Hauksdóttir