Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1996, Blaðsíða 2
TVEIR EINS Hvaöa TVEIR bílar eru alveg eins? Sendið svarið til: Barna-DV. BIGGI OG KETTLING- URINN Biggi litli vaknaði af værum blundi. Hann hugsaði um það að á morgun ætti hann að byrja í skólan- um. En í dag átti Biggi afmæli. Afmælið byrjaði klukkan tvö. Biggi fékk margar afmælisgjafir. Hann opnaði spenntur pakkann frá mömmu og pabba. í pakkanum var kettlingur. Biggi varð mjög glaður. Um kvöldið átti Biggi að fara að sofa. Hann og kettlingurinn sofnuðu vært. En morguninn eftir þegar Biggi vaknaði var kett- lingurinn horfinn. Biggi leit út og sá kettlinginn hlaupa burt úr garð- inum. Biggi kallaði til pabba og fóru þeir saman út í garð að leita. Ekki fannst kettlingurinn. Nú átti Biggi að fara í skólann. Á leiðinni þangað sá Biggi kettlinginn. Hann hljóp og náði honum og hafði hann með í skólann. Þegar þeir komu heim var Biggi búinn að ákveða nafn á kettlinginn. Hann átti að heita Brandur. Eftir þetta passaði Biggi Brand alltaf vel. Halla Mjöll Stefánsdóttir, 5 ára, Lerkihlíð 3, Sauðárkróki. HELGA OG ÁRAMÓTIN Helga vaknaði á gamlársdag og fann góðan matarilm úr eldhúsinu. Það var byrjað að elda fyrir kvöldið. Helga klæddi sig í snatri og hljóp fram. Þar beið hennar heitt kakó og ristað brauð. Helga borðaði í rólegheitum og dreif sig síðan út. Það var mikill snjór. Helga ætlaði á skíði upp í brekku. Hún var mjög dug- leg á skíðum. Helga fór út í bílskúr að ná í skíðin. Þar var pabbi og hann spurði hvort hún vildi koma með að kaupa flugelda. Helga vildi heldur fara með pabba sínum og settist upp í bílinn. Pabbi spurði Helgu hvað hana langaði í stóran flugeldapoka. „Mér er alveg sama . . . en mig langar í stærstu gerð af stjörnuljósum,“ svaraði Helga. Pabbi keypti síðan stærstu gerð af íjölskyldupakka og einn barnapakka. Þegar pabbi og Helga komu heim lagði Helga sig smástund. En síðan borð- uðu þau hamborgarhrygginn og horfðu á áramótaskaupið. „Þetta er besta skaup sem ég hef séð,“ sagði pabbi sem var í hláturskasti í sófanum. Svo fóru þau út og sprengdu alla flugeldana og Helga hélt á stærstu gerð af stjörnuljósum. Gleðilegt nýtt ár! Karen Ósk Lárusdóttir, Hjallabraut 37, 220 Hafnarfirði. í hvaöa blöðru er útkoman hærri en 40 en lægri en 50? Sendið svarið til: Barna-DV. BRANDARAR - Hafið þið heyrt um heitavatnskranann og kalda- vatnskranann sem ætluðu að gifta sig? - Því miður fór allt í vaskinn!! - Ég er alveg steinhættur að veðja! - Því trúi ég ekki. Þú hættir því aldrei! - Viltu veðja?! - Vitið þið af hverju Hafnfirðingar sitja alltaf á fremsta bekk í bíó? - Til þess að verða fyrstir til að sjá myndina! Hafnfirðingur fór til smiðs og bað hann um að smiða kassa sem væri 50 metrar á lengd og 5 sentímetrar á breidd. - Hvað ætlar þú að gera við svona kassa? - Ég þarf að senda vini mínum garðslöngu í pósti!! VANILLUKARAMELLUR 1 bolli sykur 1 bolli síróp 1 bolli rjómi V4 tsk. salt 2 msk. smjör 6 msk. mjólk 2 tsk. vanilla Látið sykur, síróp og rjóma í pott. Sett á vægan hita, þar til sykurinn hefur bráðnað. Soðið í 10 mínútur. Hrært í við og við. Þá er smjörinu, óbræddu, bætt í og mjólkinni, einnig smátt og smátt. Soðið áfram í 10-15 mín. Tekið af hitanum. Vanillan hrærð saman við. Hellt í smurða skúffu. Skorið í ferkantaða, litla bita þegar það er hæfilega volgt. Verði ykkur að góðu! OlMS K.ng Faaiunv SynttcaM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.