Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 2
30 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 ferðir Ferðaáætlun Ferðafálags íslands komin út: Fjölbreyttar ferðir um allt land Ferðaáætlun Ferðafélags íslands fyrir árið 1996 er nýlega komin út með á þriðja hundrað ferðum um ís- land. í boði eru fjölbreyttar dags-, helgar og sumarleyfisferðir og einnig eru kynntar ferðir nokkurra deilda FÍ úti á landi. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytni í ferðum þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Dagsferðir eru alla sunnudaga árið um kring, oft fleiri en ein á dag, og einnig ýmsa aðra daga og stuttar kvöldferðir eru á miðvikudags- kvöldum frá maí og fram í ágúst. Meðal nýjunga í dagsférðum er 8 ferða raðganga sem hefst 14. apríl og nefnist minjagangan. Leiðin ligg- ur um nokkra áhugaverða minja- og sögustaði innan borgarmarka Reykjavíkur og í næsta nágrenni hennar. Hengilssvæðið nýtur vax- andi vinsælda til gönguferða og eru ferðir þangað fleiri en áður. Þá má nefna átta ferða raðgöngu um Reykjanesskagann eftir svokölluð- um „Reykjavegi". Fjögurra daga páskaferð I helgarferðunum skipa skíða- og jöklaferðir veglegan sess framan af, t.d. verður fjögurra daga páskaferð farin í Landmannalaugar og páska- skíðagöngur bæði um Kjalveg og Laugaveginn. Yfir sumarmánuðina er mikil áhersla lögð á ferðir inn í óbyggðir svo sem Þórsmörk, Land- mannalaugar og Hveravelli. Göngu- ferðir eru fjölmargar og meðal nýj- unga eru skíðagönguferðir með gist- ingu í Hrafntinnuskersskálanum UTANLANDSFERDIR í BOÐI Á NÆSTUNNI SKÍÐAFERO TIL SVISS 29. MARS Tíu daga skíðaferð til Crans Montana núna um páskana. BEIIMT FLUG TIL ZURICN 4. APRÍL Fimm daga páskaferð til Sviss. BEINT FLUG TIL PRAG 25. MAf Vikudvöl í ævintýraborginni Prag, skipulögð hópferð um Tékkland eða flug og bíll um Austur-Evrópu. STÓRA EVRÓPUFIRÐIN 26. MAÍ 19 daga ferð um Lúxemborg, Þýskaland, Sviss, Ítalíu, Austurríki, Slóveníu, Danmörku, Noreg, Færeyjar og ísland. LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ UTANLANDSDEILD OKKAR. Ferdaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf. Borgartúni 34, Reykjavík, sími 511-1515 Ferðaféiag Islands býður upp á fjölbreyttar ferðir um landið. Þessi mynd er tekin í veðurblíðu í Þórsmörk. ' DV-mynd JAK nýja. Fjölskylduhelgin í Þórsmörk verður 28.-30. júní. Af sumarleyfisferðum njóta gönguferðir um óbyggðaleiðir sívax- andi vinsælda og er þar gönguleiðin frá Landmannalaugum til Þórs- merkur efst ú blaði en Hvítár- nes-Hveravellir (Kjalvegur hinn forni) og Snæfell- Lónsöræfi sækja fast á eftir. Meðal nýjunga í sumar- leyfisferðum eru náttúruskoðunar- og fræðsluferðir, m.a. ferð á Strand- ir í júní og um innanvert Snæfells- nes í júlí. Nýjar sumarleyfisferðir Af öðrum nýjum sumarleyfisferð- um eða ferðum neð nýju sniði má nefna Austfjarðaferð í júní, öku- og skoðunarferðirnar Vestfjarðastiklur seint í júní, Þingeyjarsýslur í júlí og ferð um miðhálendið í ágúst, Lónsöræfaferð í júlí og nýstárlega ferð frá Borgarfirði eystra til Seyð- isfjarðar í byrjun ágúst. Nokkrar ferðir tengjast efni ár- bókar F.í. 1996 er fjallar um svæðið milli Hvítár og Þjórsár ofan byggða og síðast en ekki síst skulu nefndar Hornstrandaferðir. Sæluhús Ferða- félagsins eru 34. Frá því í fyrra hef- ur bæst við hús Ferðafélags Skag- firðinga að Þúfnavöllum og hús í Norðurfirði nyrst á Ströndum. Um 7000 farþegar hafa ferðast með Ferðafélaginu árlega undanfar- in ár. Félagsmenn eru um 8000. Ár- gjaldið er 3300 krónur og því fylgja ýmis fríðindi, t.d. afsláttur af helg- arferðum og lengri ferðum, gistingu í sæluhúsum og árbók sem kemur út í maí. Allir eru velkomnir í ferð- ir Ferðafélagsins. -ÞK Áhugi á hestakerru- ferðum á íslandi Þýskur hestamaður, Dieter Kolb að nafni, var staddur hér á landi ný- lega. Hann hefur mikinn áhuga á Is- landi og islenskum hestum og hefur oft komið hingað til lands. Kolb langar að fara með ferða- menn í stuttar ferðir á hestakerrum á íslandi, til dæmis milli Hafnar- fjaröar og Grindavíkur með við- komu í Bláa lóninu, einnig milli Gullfoss og Geysis. Dieter Kolb kemur aftur til ís- lands í júní í sumar til að kanna þessi mál frekar. Hann er ekki enn búinn að gera neina samninga eða ákveða hvernig þessu yrði háttað, málið er allt á byrjunarstigi. -ÞK Afsláttur í innanlandsflugi í boði er 40% afsláttur af al- mennu fargjaldi í innanlands- flugi Flugleiða í tengslum við allar ferðir í bæklingi Úrvals- Útsýnar. Trygging gegn verlhækkun Fram kemur í ferðabæklingi Úrvals-Útsýnar ^að með því að gera ferðir upp sem fyrst er hægt að koma í veg fyrir að verð þeirra hækki af völdum gengisbreytinga, hækkunar flug- og fargjalda eða eldsneytis. Ferðakostnaður miðast við verðútreikninga á greiðsludegi og hækkar ekki eftir það. Skoðunarferðir um London Þeir sem fara til London ættu að nýta sér úrval skoðunar- ferða um borgina. Ein er hálfr- ar annarrar klukkustundar ferð sem farin er á tíu mínútna fresti daglega á sumrin. Hún nefnist London Original Sight- seeing Tour. Farið er frá Piccadilly Circus, Victoria Street, Baker Street og Marble Arch. Forfajlagjaid Hjá Úrvali-Útsýn er forfalla- gjald innifalið í verði ferða og í staðfestingargjaldi til Mallorca og Portúgals eingöngu. I aðrar ferðir er hægt að kaupa forfalla- tryggingu. Píramídar til sýnis Egyptar hafa í hyggju að opna fjóra píramída fyrir ferða- mönnum til viðbótar þeim sem fyrir eru í júní næstkomandi. Einn þeirra er Bent píramídinn í Dahshur, í um tuttugu kíló- metra fjarlægð frá Kaíró. Hing- að til hefur ferðamönnum ekki verið leyft að skoða hann þar sem hann er á svæði hersins. Það eru aðeins þrír mánuðir síðan herinn leyfði ferðamönn- um að fara um þetta svæði. Reykingabann Flugfélagið British Airways hyggst banna reykingar á flest- um flugleiðum til Bandaríkj- anna og Karíbahafsins frá og með fyrsta maí næstkomandi. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.