Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 23 Messur Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14 í umsjá félaga í æskulýðsfélagi kirkjunnar. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Áskirkja: Guðsþjónusta á æskulýðsdag- inn kl. 11.00. Félagar úr æskulýðsfélag- inu Ásmegin aðstoða. Hans Hafsteinsson guðfræðinemi prédikar. Léttur hádegis- verður í safnaðarheimilinu eftir messu. Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Barna- kórinn syngur. Kaffisala kirkjukórsins eftir guðsþjónustuna. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20.00 Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börn- unum. Æskulýðs- og fjölskylduguðsþjón- usta kl. 14.00. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa kl. 11.00. Altaris- ganga. Sunnudagaskóli kl. 11.00. Léttur hádegisverður eftir messu. Gunnar Sigur- jónsson. Dómkirkjan: Æskulýðsmessa kl. 11.00. Prestur sr. María Ágústsd. Gradualekór- inn syngur. Messa kl. 14. Ftæðumaður frú Salóme Þorkelsd., fyrrum forseti Alþingis. Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14.00. Fella- og Hólakirkja: Æskulýðsguðs- þjónusta kl. 11.00. Börn og unglingarsjá um ritningarlestur, pédikun og bæn. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Veitingar eftir guðsþjónustuna. Prestarnir. Fríkirkjan í Reykjavik: Laugardagur: Flautuskólinn kl. 11. Sunnudagur: Guðs- þjónusta. í tilefni 90 ára afmælis kvenfé- lags safnaðarins mun fyrrum formaður, Auður Guðjónsd., prédika og félagskonur annast ritningarlestur. Þriðjudagur: Kátir krakkar kl. 16.00, starf fyrir börn 8-12 ára. Cecil Haraldsson. Garðakirkja: Guðsþjónusta kl. 14.00. Kór Fjölbrautaskólans í Garðabæ syngur. Brynjúlfur Jónatansson flytur ræðu. Hér- aðsprestur þjónar fyrir altari. Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna. Barnaguðsþjónusta í Rimaskóla kl. 12.30 f umsjón Jóhanns og Ólafs. Æskulýðs- guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr æsku- lýðsfélagi kirkjunnar aðstoða við guðs- þjónustuna. Prestarnir. Grensáskirkja: Fjölskyldumessa kl. 11.00. Barnakór Grensáskirkju syngur. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Æskulýðs- messa kl. 14.00. Hallgrímskirkja: Fræðsluerindi kl. 10. Bænin - samfylgd Guðs og manns. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup. Æskulýðs- dagurinn. Bamasamkoma og messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Hjallakirkja: Æskulýðsþjónusta kl. 11.00. Unglingar úr Æskulýðsstarfinu og ferm- ingarbörn taka virkan þátt í guðsþjónust- unni. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Bryndís Malla Elídóttir. Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Æskulýðsmessa kl. 14.00. Unglingar koma fram í tónlist og ræðu. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Innri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli sunnudaginn 3. mars kl. 13.00. Keflavíkurkirkja: Æskulýðsdagurinn: Sunnudagaskóli kl. 11.00. Poppmessa kl. 14.00. Iris Kristjánsdóttir guðfræðinemi pédikar. Prestur Sigfús Baldvin Ingvason. Kópavogskirkja: Æskulýðs- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11.00. Börn úr barna- og æskulýðsstarfi taka þátt í guðs- þjónustunni. Dóra Guðrún Guðmunds- dóttir guðfræðinemi prédikar. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands bisk- ups: Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Krist- insson. Almennur safnaðarsöngur. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Báru Friðriksdóttur og Sóleyjar Stefáns- dóttur. Kaffisopi eftir messu. Laugarneskirkja: Guðþjónusta kl. 11 með þátttöku unglinga. Barnastarf á sama tíma. Félagar úr kór Laugarnes- kirkju syngja. Ólafur Jóhannsson. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Opið hús frá kl. 10. Munið kirkjubilinn. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Halldór Reynisson. Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Unglingar úr æsku- lýðsstarfinu flytja bænir. Sr. Agúst Einars- son prédikar. Kökubasar Kvenfélags Sel- jakirkju eftir guðsþjónustuna. Guðsþjón- usta í Seljahlíð laugard. kl. 11.00. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Æskulýðs- og fjöl- skylduguðþjónusta kl. 11.00. Börn og unglingar sjá um messuna. Prestur sr. Hildur Sigurðardóttir. Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Vídalínskirkja: Barna- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11.00. Skólakór Garðabæjar (yngri deild) syngur. Stúlkur úr KFUK- starfinu syngja, lesa bænir og sjá um helgileik. Héraðsprestur þjónar fyrir altari. Poppmessa kl. 20.30. Hljómsveitin Pré- látar. Sóknarprestur Vestmannaeyinga prédikar. Héraðsprestur þjónar fyrir altari. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 14.00. Æskulýðsdagur þjóð- kirkjunnar. Sunnudagaskóli kl. 12. Baldur Rafn Sigurðsson. Magnús Scheving og Anna Sigurðardóttir fögnuðu sigri á íslandsmótinu í þolfimi á síðasta ári. DV-mynd JAK Laugardalshöll á sunnudag: íslandsmótið í þolfimi íslandsmótið í þolfimi verður haldið í Laugardalshöll á sunnudag- inn. Unglingameistaramótið hefst kl. 15.30 en keppt verður í flokki ein- staklinga, tvenndarkeppni og í þrí- menningi. Um kvöldið, kl. 20, taka hinir eldri við og reyna með sér í þolfiminni en þess má geta aö fjöldi nýrra keppenda mætir til leiks í karlaflokki. Á sunnudagskvöldið verður jafn- framt boðið upp á fjölda skemmtiat- Dekurdagar á Akureyri Dekurdagar er yfirskrift dagskrár sem verður á Akureyri 1.-10. mars en með þeim er verið að hrinda af stað skíðatímabili norðanmanna. Margt verður í boði en nefna má að í Hlíðarfjalli hafa verið útbúnar sér- stakar brautir fyrir snjóbrettafólk og efnt verður til móts fyrir þau, sem og skíðagöngufólk, smáfólkið fær leikjagarð, skautadiskó og hokkíkeppni verður á skautasvell- inu. Þá verða ferðir fyrir vélsleða- menn og haldinn verður jeppadagur fjölskyldunnar að ógleymdri sýn- ingu á helstu fjallajeppum Eyja- fjaröar. Girnd og Glampar Af listviðburðum er af nógu aö taka. LA er með aukasýningu á Sporvágninum Girnd, Freyvangs- leikhúsið frumsýnir Sumar á Sýr- landi og Saumastofan verður frum- sýnd að Melum í Hörgárdal. Þá mun leikhópur Verkmenntaskólans á Akureyri ásamt hljómsveitinni Glömpum syngja og leika einþát- tungana Málum blandið og á vegum kirkjuviku verður í Akureyrar- kirkju einnig leikið leikritið Heim- ur Guðríðar. Miðnætursund Þá hefjast á morgun tvær mynd- listarsýningar í Listasafni Akureyr- ar. í austur- og miðsal verður sýn- ing á landslagsljósmyndum ljós- myndarans og bókagerðarmannsins Guðmundar P. Ólafssonar. Og í vestursal verður hin umdeilda sýn- ing á verkum rússnesku listamann- anna Komar og Melamid. Sama dag opnar Aðalsteinn Svanur myndlist- arsýningu á Café Karólínu og Már Magnússon heldur tónleika í Deigl- unni. í kvöld er svo boðið upp á mið- nætursund í Sundlaug Akureyrar, svo að fátt eitt sé nefnt. riða. Unglingameistararnir sýna sigurrútínu sína, keppendur í Feg- urðarsamkeppni Reykjavíkur sýna sportfatnað, danssnillingar sýna spánska dansa og hópdans, íslands- meistarar í frjálsum dönsum koma fram, fimleikameistarar sýna fim- leikaflipp, Norðurlanda- og íslands- meistarar í japönskum bardagalist- um berjast og aflmeistarar takast á. Einn af hápunktum kvöldsins verð- ur þó vafalaust þegar þrefaldur Skrúfudagurinn verður haldinn hátíðlegur í Vélskóla íslands á morgun frá kl. 13-16.30. Þá gefst áhugasömum kostur á aö kynnast nokkrum þáttum skóla- starfsins. Nemendur verða við störf í verk- legum deildum og veita upplýsingar um kennslutækin og skýra gang þeirra. Á bókasafni Sjómannaskólans verður sýning á bókum sem tengj- ast störfum vélstjóra og björgunar- Tónlistarmaðurinn KK verður með síðdegistónleika í Hinu húsinu í dag kl. 17. Tónleikamir eru í tengslum við umferðaþemamánuð Bifreiðatryggingafélaganna og Hins hússins. Veittar verða viðurkenningar fyr- ir bestu tillögumar í samkeppni um heimsmeistari kvenna 1995, Carmen Valderas frá Spáni, sýnir sigur- rútínu sína. Carmen Valderas verður enn fremur með tvo þolfimitíma í Laug- ardalshöll sem hefjast á morgun kl. 13. Sá fyrri verður þolfimi-mix að hennar hætti en í þeim seinni verð- ur boðið upp á salsa-þolfimi að hætti Suður- Ameríkubúa. þyrla Varnarliðsins mun verða til sýnis við skólann. Sjóminjasafnið Þá verður í Sjóminjasafni íslands í Hafnarfirði kynning á Vélskóla ís- lands næstu tvær helgar. Til sýnis verða ýmsir smíðagripir nemenda, kennslutæki og vélar, auk myndbands um starfsemi skól- ans sem sýnt verður á efstu hæð safnsins. áhrifaríka setningu tengda umferð- armálum og ungur ökumaður fjallar um hætturnar í umferðinni. Þá verður rætt við sjúkraflutninga- menn um störf þeirra og munu þeir m.a. klippa bíl í sundur og sýna hvemig fólki er bjargað úr bílflaki. íþróttir um helgina Handbolti Heil umferð fer fram í Nis- sandeildinni í handknattleik á sunnudagskvöld. KR leikur gegn ÍBV í Laugardalshöll, FH á heimaleik gegn Gróttu í Hafnar- firði, KA mætir Víkingi á Akur- eyri, Selfoss og Haukar eigast við á Selfossi, ÍR leikur gegn Stjörnunni i Seljaskóla og loks leika Valur og Afturelding að Hlíðarenda. Allir leikimir hefj- ast klukkkan átta. Körfubolti Ekkert verður leikið í úrvals- deildinni um helgina. Þrír leikir fara fram í 1. deild kvenna á fóstudagskvöld. Þá leika ÍA og ÍR, KR og ÍS og Tindastóll og Njarðvík. Allir leikirnir hefjast klukkan átta. Fjórir leikir eru á dagskrá í 1. deild karla. Höttur og Reynir, Sandgerði, leika á Eg- ilsstöðum á laugardag klukkan tvö, og sama dag leika ÍS og KFÍ í Fagaskóla klukkan hálffimm og Selfoss og Snæfell mætast á Selfossi klukkan fjögur. Á sunnudag leika Leiknir, Reykja- vík, og Þór, Þorlákshöfn, klukk- an átta. Fyrirlestraröð Animu: Brot úr frum- speki mið- taugakerfisins Þorvaldur Sverrisson, M.A. í vís- indaheimspeki, heldur fyrirlestur í sal 2 í Háskólabíói kl. 14 á morgun. Fyrirlesturinn, sem ber yfirskrift- ina „Brot úr frumspeki miðtauga- keifisins", er liður í fyrirlestraröð sem Anima, félag sálfræðinema, stendur fyrir um vísindahyggju og vísindatrú. í kynningu um fyrirlestur Þor- valds Sverrissonar segir m.a. þetta: „Vísindaleg sálfræði í nútímaskiln- ingi varð til ekki löngu fyrir síðustu aldamót. Frumherjar þessara vís- inda höfðu allgóðar ástæður til að ætla að ráðgátan um eðli hugsunar, þekkingar og tilfinninga, um anda og efni og um líf og dauða, væri loksins innan seilingar raunvísind- anna.“ Sunnudags- tónleikar í Óperunni Páll Jóhannesson óperusöngvari, sem er fastráðinn í Konunglegu Óp- erunni í Stokkhólmi, og Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari halda tónleika í Óperunni á sunnu- daginn kl. 17. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Pál Isólfsson, Karl O. Runólfsson, F.P. Tosti, G. Caccini, Franz LeHar og Verdi. Tónlist í grátónum Einar Óli Einarsson heldur ljós- myndasýningu í Ljósmyndamið- stöðinni Myndás, Laugarásvegi 1, 2.-22.mars. Þar sýnir hann tónleika- myndir frá síðustu fimm árum. Myndimar eru af innlendum og er- lendum tónlistarmönnum, þekktum óg minna þekktum listamönnum. Emar Óli stundaði nám í ljós- myndun við Bournemouth and Poole College of Art and Design og útskrifaðist þaðan 1995. Árlegur kynningar- og nemendamótsdagur Vélskólans er á morgun Skrúfudagurinn: Kynning á Vélskóla íslands KK í Hinu húsinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.