Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 25. MARS 1996
23
Iþróttir
Lilja Rós Jóhannesdóttir náði loks að sigra Evu Jósteinsdóttur eftir að hafa tapað fyrir henni f Guðmundur E. Stephensen er Islandsmeistari í einliðaleik karla þriðja árið í röð.
úrslitaleikjum tvö ár í röð.
DV-mynd Brynjar Gauti
íslandsmótið í borðtennis:
ÐV-mynd Brynjar Gauti.
Fermingardrengurinn
meistari þriðja árið í röð
- Guðmundur sigraði Kjartan í úrslitum - Lilja Jóhannesdóttir íslandsmeistari kvenna
Guðmundur E. Stephensen úr
Víkingi er enn aðeins 13 ára gamall
og fermist um næstu helgi. En hann
er besti borðtennismaður landsins.
Það sýndi hann og sannaði í gær
með því að sigra Kjartan Briem úr
KR í hörkuspennandi úrslitaleik í
TBR-húsinu, 3-2. Þar með hefur
Guðmundur orðið íslandsmeistari í
einliðaleik þrjú ár í röð og hann
hélt uppteknum hætti með því að
eiga líka aðild að sigrum í tvíliða-
leik og tvenndarkeppni.
Guðmundur hafði alltaf undirtök-
in í úrslitaleiknum en mátti hafa sig
allan við. Hann vann fyrstu lotuna
21-16 en Kjartan svaraði með því að
vinna þá næstu, 22-20. Guðmundur
vann þá þriðju tiltölulega örugg-
lega, 21-12, en Kjartan jafnaði metin
með sigri í þeirri fjórðu, 21-18. Úr-
slitalotan var jöfh framan af en síð-
an tók Guðmundur öll völd og vann,
21-11, og þar með var íslandsmeist-
aratitillinn í höfn. Frábær frammi-
staða hjá þessum unga. afreks-
manni.
Þetta var fyrsta viðureign Guð-
mundar og Kjartans, óumdeilanlega
bestu borðtennismanna landsins, í
heilt ár, eða síðan Guðmundur lagði
Kjartan tvívegis í fyrravetur. Kjart-
an æfir og keppir með danska félag-
inu Bronshoj en kom heim til að
freista þess að endurheimta titilinn
úr höndum Guðmundar.
Lilja stöðvaði sigurgöngu
Evu
Lilja Rós Jóhannesdóttir vann
vinkonu sína, Evu Jósteinsdóttm- úr
Víkingi, í hörkuspennandi úrslita-
leik í kvennaflokki. Eva hafði unnið
Lilju í úrslitum tvö undanfarin ár.
Lilja virtist með titilinn í höndun-
um, hún vann 21-19 og 21-18 og
hafði síðan yfir, 18-17, undir lok
þriðju lotu. Þá tók Eva við og vann
lotuna, 21-18, og síðan þá fjórðu
með miklum yfirburðum, 21-9. í úr-
slitalotunni voru þær yfir til skiptis
en Lilja náði undirtökunum á loka-
sprettinum og vann 21-16.
Lilja vann Ingibjörgu Ámadóttur,
Víkingi, 3-2, í undanúrslitum og
Eva vann öruggan sigur á hinni
gamalkunnu Ástu Urbancic úr Em-
inum, 3-0.
í tvíliðaleik og tvenndarkeppni
var alls staðar um endurtekið efni
að ræða því meistararnir frá því í
fyrra vörðu titla sína. Guðmundur
E. Stephensen og Ingóttúr S. Ingótts-
son sigruðu Sigurð Jónsson og
Markús Ámason, Víkingi, í úrslit-
um í tvíliðaleik karla. Eva og Lilja
unnu Ingibjörgu og Ástu í úrslitum
í tvíliðaleik kvenna og þau Guð-
mundur og Eva unnu Ástu og
Tómas Guðjónsson, KR, í úrslitum í
tvenndarkeppni.
Sigurður Jónsson, Víkingi, sigr-
aði Þorvald Pálsson, HSK, í úrslita-
leik í 1. flokki karla, Kolbrún
Hrafnsdóttir, Víkingi, vann Ingi-
björgu S. Ámadóttur í úrslitum í 1.
flokki kvenna og Amþór Guðjóns-
son, Stjömunni, vann ívar Hróð-
marsson, KR, í úrslitum í 2. flokki
karla. Amþór var því eini sigurveg-
arinn á mótinu sem ekki kom úr
Víkingi.
-VS
Fyrsta opna sprettsundsmótið:
Ægisstulkurnar slogu atta
ára gamalt íslandsmet
Eitt íslandsmet féll á fyrsta opna
sprettsundsmótinu hér á landi sem
KR og Ármann stóðu að í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina. Kvenna-
sveit Ægis sló átta ára gamalt met
Sundfélagsins Suðumess í 4x50
metra fjórsundi með því að synda
vegalengdina á 2:09,50 mínútum.
Fyrra metið var 2:11,81 minútur.
Metsveitina skipuðu Lára
Hrund Bjargardóttir, Halldóra
Þorgeirsdóttir, Hildur Einarsdóttir
og Anna Bima Guölaugsdóttir.
Á sprettsundsmótum er aðeins
keppt í 50 og 100 metra greinum.
Fjórtán keppnisgreinar voru á
dagskránni.
Elín Sigurðardóttir, Sundfélagi
Hafnarfjarðar, varð sigursælust í
kvennaflokki en hún sigraði í 50
metra flugsundi kvenna á 29,62
sekúndum, í 50 metra baksundi á
31,82 sekúndum og í 50 metra
skriðsundi á 27,40 sekúndum.
Ríkarður Ríkarðsson, Ægi, sigr-
aði í þremur greinum í karla-
flokki. í 50 metra flugsundi á 26,17
sekúndum, í 50 metra skriðsundi á
24,46 sekúndum og í 50 metra
baksundi á 28,86 sekúndum.
Magnús Konráðsson, Keflavík,
sigraði í 100 metra fjórsundi á
59,34 sekúndum og í 50 metra
bringusundi á 30,13 sekúndum.
Lára Hrund Bjargardóttir, Ægi,
sigraði í 100 metra fjórsundi
kvenna á 1:09,67 mínútu.
Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi,
sigraöi í 50 metra bringusundi á
35,14 sekúndum.
Karlasveit Ægis sigraði í 4x50
metra skriðsundi á 1:41,44 mínútu
og Ægismenn sigruðu einnig í
4x50 metra fjórsundi karla á
1:54,66 mínútu.
-VS
Flóahlaup Samhygðar:
Borgfirðingarnir
hnífjafnir í mark
Guðmundur V. Þorsteinsson
og Sigmar H. Gunnarsson úr
UMSB komu hnífjafnir í mark í
karlaflokki í Flóahlaupi UMF
Samhygðar sem fram fór á laug-
ardaginn. Þeir hlupu báðir 10
kílómetra á 34:55,00 mínútum og
tóku því í sameiningu við sigur-
laununum, Markúsarbikamum.
Þriðji varð Daníel Guðmundsson,
Ármanni, á 36:24,66 mínútum.
í kvennaflokki sigraði Helga
Baldursdóttir sem hljóp 5 km á
27:41,76 mínúttun. Önnur varð
Katrín Jóhannesdóttir á 28:51,41
og þriðja Inga J. Halldórsdóttir á
29:51,53 en allar keppa þær fyrir
hönd Námsflokka Reykjavíkur.
-VS