Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 6
50 MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 ;< ^3D*ngar Sýningar Café Mílanó Faxafeni 11 Halla Haraldsdóttir heldur sýningu á verkum sínum á Café Mílanó til 19/4. Gallerí Art-Hún Stangarhyl 7, Rvik Til sýnis verk eftir Erlu B. Axelsdóttur, Helgu Ár- mannsdóttur, Sigrúnu Gunnarsdóttur og Mar- gréti Salome. Galleriið er opið alla virka daga kl. 12-18. Gallerí Birgir Andrésson Vesturgötu 20 Gunnar M. Andrésson sýnir ný verk, nokkurs konar lýriska hljóðskúlptúra þar sem unnið er með upprunatengsl og vitnað er í þjóðleg minni. Galleriið er opið kl. 14-18 á fimmtudög- um en aðra daga eftir samkomulagi. Gallerí Greip Hverfisgötu 82 (Vitastfgsmegin). Sólrún Friðriksdóttir opnar sýningu á mynd- vefnaði og textil-miniaturverkum laugardaginn 6. apríl kl. 14. Sýningin er opin alla daga kl. 14-18 nema á páskadag og lýkur henni 14. apríl. Gallerí Hornlð Hafnarstræti 15 Laugardaginn 6. apríl kl. 17 opnar Sigríður Gísladóttir sýningu á málverkum f Gallerí Greip. Sýningin verður opin alla daga kl. 11-23.30 nema hvað lokað verður á páskadag. Frá kl. 14-18 er sérinngangur í galleríið opinn en annars er hægt að fara gegnum veitinga- húsið inn á sýninguna. Gallerí Hnoss - handverskshús: f Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3b. Galleríið verður fyrst um sinn opið virka daga frá kl. 13-18 og lauardaga frá 10-14. Gallerí Ingu Elínar Skólavörðustíg 5 Föstudaginn 29. mars milli kl. 17 og 19 verða kynnt 5 ný verk unnin nú á þorranum og góunni. Verkin eru spegillágmyndir þar sem hafið, frostið og birtan mynda órofa ramma um ásjónu þess er á Iftur. Kynningin verður opin eins og galleríið, frá kl. 11-18 alla virka daga og frá kl. 1-14 á laugardögum. Kynningin er öllum opin og aðgangur ókeypis. Gallerí Regnbogans Sveinn Bjömsson sýnir verk sfn f Regnbogan- um. Meðal verka Sveins á sýningunni eru Rauð mynd, Blátt í blátt, Hveralitir, Ástariitir, Grátt f grátt, Græn og brún. Gallerí Geysir Aðalstræti 2 Galleríið er opið alla virka daga kl. 9-23 og um helgar kl. 12-18. Gallerí Guðmundar Ánanaustum 15 Galleríið er opið virka daga kl. 10-18. Gallerí Ingólfsstræti 8 „Blóð Krists". Á morgun, skírdag, verður opnuð f Ingólfsstræti 8 samsýning fjögurra myndlistar- manna. Það eru Steingrímur Eyfjörð, Sara Bjömsdóttir, Börkur Arnarson og Svanur Krist- bergsson sem unnið hata nokkur ný verk út frá þemanu. Sýningin stendur til 28. apríl. Opið frá 14-18 alla daga nema mánudaga. Gallerí List Skipholti 50b Gallerfið er opið alla daga kl. 11-18 nema laug- ardaga kl. 11-14. Sýningar í gluggum á hverju kvöldi. Gallerí Ríkey Hverfisgötu 59 Sýning á verkum Rfkeyjar. Opið kl. 12-18 virka daga og aðra daga eftir samkomulagi í síma 552 3218 og 562 3218. Hafnarhúsið Tryggvagötu Sýningunni Gull og íslenskar gersemar í Hafn- arhúsinu við Tryggvagötu lýkur laugardaginn 6. apríl nk. Opið verður á skírdag, föstudaginn langa og á laugardag trá kl. 13-18. Gallerí Slunkaríki Aðalstræti 22 ísafirði Sýning Tuma Magnússonar í Slunkariki. Slunk- aríki er opið frá fimmtud. til sunnud. frá kl. 16-18. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 Kristín Arngrfmsdóttir sýnir í Galleríi Sævars Karls. Sýningin stendur til 10. apríl. Opið á verslunadíma frá kl. 10-18 virka daga. Gallerí Úmbra Amtmannsstíg 1 Útbrot er yfirskrift sýningar sem Ijósmyndarinn Jónas Hallgrimsson stendur fyrir í Gallerí Úmbru. Sýningin stendur frá 4.-24. april og er opin alla daga nema mánudaga. Hafnarborg Fimmtudaginn 4. apríl verður opnuð í Hafnar- borg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, sýning á málverkum eftir Pétur Halldórsson listmálara. Sýningin stendur til 29. apríl. Sýningar í kaffistofu eru opnar virka daga frá 9-18 en kl. 11-18 um helgar. Kjarvalsstaðir v/Miklatún I vestursal er sýning á fyrirmælaverkum sem ber yfirskriftina DO IT. í vesturforsal sýning á videóverkum eftir Steinu Vasulkas og i miðsal sýning á nýjum verkum eftir Harald Jónsson. Sýning á verkum Kjarvals. Pétur Halldórsson sýnir í Hafnarborg: Áherslan öll á bygg- ingu myndarinnar Á morgun, skírdag, verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, sýning á mál- verkum eftir Pétur Halldórsson list- málara. Pétur hefur áður sýnt málverk í Hafnarborg auk þes sem hann hefur sýnt víða annars staðar, bæði hér heima og erlendis, meðal annars í Listasafni ASÍ, í Norræna húsinu í Reykjavík og í Pleiades-galleríinu i New York. Á sýningunni verða verk unnin með olíulitum en jafnframt olíulit- unum notar Pétur áprentaðan papp- ír, ljósmyndir og annað sem hann límir á strigann og málar yfir. Með þessari aðferð nær hann að gefa myndum sinum sérstakt yfirbragð sem er í senn hógvært og áleitið, einfalt og óendanlega margrætt. „Áprentaður pappír, ljósmyndir og annað sem límt er á málverk þjónar þar tvöföldu hlutverki: Við sjáum hlutinn sjálfan, festan á myndflötinn, en um leið verður hann liður í heildarmyndinni og gengur inn í formbyggingu mynd- flatarins. Áherslan í slíkum mynd- um er gjarnan öll á byggingu mynd- arinnar vegna þess að byggingar- Blár hestur er eitt verka Péturs á sýningunni. Listaverkið er 130x180 sentí- metrar. hlutarnir eru svo greinilegir og fyr- ir kúbistunum markaði þessi aðferð vendipunkt,“ segir Jón Proppé list- gagnrýnandi í sýningarskrá. Pétur nam myndlist við Mynd- lista- og handíðaskólann en sótti framhaldsnám á Bretlandi og við School of Visual Arts í New York. Sýningin stendur tO 29. apríl. -ÞK Sólrún Friðriksdóttir í Gallerí Greip: Myndvefnaður og textíl- miniaturverk Sólrún Friðriksdóttir opnar sýningu á myndvefnaði og textíl- miniaturverkum í Gallerí Greip við Hverfisgötu laugardaginn 6. apríl klukkan 14. Sólrún stundaði nám í myndlistakennaradeild og textíldeild Myndlista- og handíðaskóla íslands, við Textilinstitutet i Borás í Svíþjóð og Meisterklasse Texti- les Design í Listaskólanum Gráz í Austurríki. Hún hefur tekið þátt í samsýningum hérlendis og al- þjóðlegum samsýningum víðsvegar um heim, en þetta er fyrsta einkasýning hennar. Sólrún er fædd árið 1955 á Stöðvarfirði og alin upp þar. Á lýðháskóla í Finnlandi kyntist Sólrún vefnaði sautján ára gömul. Árið 1979 útskrifaðist hún úr kenn- aradeild Mynlista- og handíðaskólans í Reykjavik. Einn- ig var hún á trextílnámskeiðum í Þýskalandi og í námi í vefnaði og tauþrykki í Svíþjóð. Veturinn 1982- 1983 kenndi hún myndmennt við Vesturbæjarskólann í Reykjavík. Árið 1985 fluttist hún ásamt manni sínum, Ríkharði Valtingojer grafíklistamanni, til Stöðvarfjarðar og hóf störf sem kennari við grunnskólann. Þau hjón hafa komið sér upp góðri vinnuaðstöðu á Stöðvarfirði þar sem þau búa nú. Sýning Sólrúnar verður opin alla daga frá klukkan 14 til 18 nema á páskadag og lýkur henni sunnudaginn 14. apríl. -ÞK Páskasýning í Þrastarlundi Sólveig Eggerz Pétursdóttir opnar páskasýningu í Þrastarlundi á morgun, skh'dag. Á sýningunni verða 22 vatnslita- myndir og eru þær flestar málað- ar á undanfórnum mánuðum. -ÞK Tréristur Þorgerðar í Varmahlíð Áttunda einkasýning Þorgerðar Sigurðardóttur verð- ur í Varmahlíð í Hveragerði til 20. apríl nk. Myndefnið er sótt í Marteinsklæðið frá Grenjaðarstað, refílsaumað altariskæði frá miðöldum sem segir tólf atriði úr sögu heilags Marteins frá Torus, verndardýrlings Frakklands. Þorgerður hlaut starfslaun Listasjóðs í sex mánuði og heiðurslaun Brunabótafélags íslands í tvo mánuði til að undirbúa verkið í Frakklandi og á íslandi. Myndirnar eru tréristur og allar unnar í Hveragerði í september og október 1995. Menningamálanefnd Hvera- gerðisbæjar úthlutaði listakonunni gestabústaðnum Varmahlíð um átta vikna skeið. Að lokinni vinnu sinni í Hveragerði sýndi Þorgerður 40-50 Marteinsmyndir í Listasafni Kópavogs, Gerðar- safni. Þetta er aðeins brot af þeirri sýningu. Þorgerður útskrifaðist ir grafikdeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1989 og hefur starfað óslitið að list sinni síðan. Hún hefur haldið sýningar víða hérlendis og erlendis og tekið þátt í fjölda samsýninga. -ÞK „Blóð Krists" í Ingólfsstræti 8 Samsýning fjögurra myndlistarmanna verður opnuð í Ingólfsstræti 8 á morgun, skírdag. Þeir eru Steingrímur Eyfjörð, Sara Björnsdóttir, Börkur Arnarson og Svanur Kristbergsson og hafa unnið nokkur verk út frá þemanu „Blóð Krists". Hugmyndin að sýningunni á rætur í verki tónskálds- ins Gavin Bryars „Jesu’s Blood Never Failed Me Yet“. Tildrög þess má rekja til byrjunar áttunda áratugarins þegar.Bryars vann við hljóðupptökur á vettvangi úti- gangsmanna í Lundúnum. Þá varð á vegi hans flæking- ur nokkur sem söng fyrir hann vísu eftir óþekktan höf- und. Bryars hljóðritaði sönginn og varð hann síðar kveikjan að fyrrgreindu verki. Ingólfsstræti 8 er opið frá klukkan 14-18 alla daga nema mánudaga, þá er lokað. Sýningin stendur til 28. apríl. -ÞK Myndlistarklúbbur Hvassaleitis: Hópur áhugafólks sýnir um páskana Myndlistarklúbbur Hvassaleitis er hópur áhugafólks um myndlist, sem kemur saman einu sinni í viku í Hvassaleitisskóla og málar undir leiðsögn kennara sem undanfarin ár hefur verið Sveinbjörn Þ. Einarsson. Klúbburinn hefur starfað síðan 1978 og haldið margar sýningar frá þeim tíma. Meðlirnir klúbbsins eru rúmlega 20 manns. Formaður er Matthildur Jóhannsdóttir og gjaldkeri Hlíf Leifsdótt- ir. Á sýningunni verða myndir, málaðar með vatnslit- um, olíu, akrýl og pastel. Sýningin er í íþróttasal Hvassaleitisskóla og verður opnuð laugardaginn 6. apríl nk. og verður opin til 8. apr- íl á milli kl. 14 og 19. Klúbbfélagar bjóða alla velkomna. -ÞK Listhús 39: Einkasýning Drafnar Guðmundsdóttur Dröfn Guðmundsdóttir myndhöggvari opnar sýningu í Listhúsi 39 í Hafnarfirði laugardaginn 6. apríl. Þetta er önnur einkasýning Drafnar, áður sýndi hún í Stöðlakoti 1994. Hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýning- um. Dröfn útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Is- lands, myndhöggvaraskor, árið 1993. Einnig hefur hún lært glerbræðslu hjá bandarískum listamanni, Chris Ell- is, og farið á ýmis námskeið varðandi list sína síðan hún útskrifaðist. Verkin á sýningunni eru unnin úr gleri, málmum og tré. Sýningin verður opin daglega frá 6.-21. apríl klukkan 14-18. Sýningar Listasafn Einars Jónssonar Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga. Listasafn Hallgrímskirkju Listasafn Hallgrímskirkju hefur boðið Magnúsi Kjartanssyni að sýna málverk í kirkjunni. Sýn- ingin verður opnuð sunnud. 17. mars og stend- ur fram yfir páska. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Opin frá 12-18 alla daga nema mánudaga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn Sólveig Baldursdóttir myndhðggvari heldur sýningu í Gerðarsafni. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá 12-18. Sýningin stendur yfir frá 16/3—8/4. Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi Listasetrið er opið frá kl. 16-18 virka daga og frá kl. 15-18 um helgar. Mokka kaffi Fiskar drekka ekki vatn, myndasýning, stendur til 16. apríl. Ósk Vilhjálmsdóttir og Hjálmar Sveinsson. Norræna húsið í dag, miðvikudaginn 3. apríl hefst sýning á vinningstillögum og tillögum íslensku keppend- anna um norræna sendiráðssvæðið í Berlín í Norræna húsinu í Reykjavík og mun hún standa til 25. apríl nk. Norræn heimilisiðnaðarsýning stendur nú yfir í Norræna húsinu Náttúran er þema sýningar- innar. „NATUR-naturiigvis" var heiti hennar í Noregi þar sem hún var opnuð i júnf á sl. sumri. Náttúruefni og fágað handbragð eru ein- kenni sýningarinnar. Sýningin verður opin alla daga kl. 14-19, fimmtudaga til kl. 21, allt til páska. Síðasti sýningardagur er 6. apríl. Fimmtud. 4. apríl, skírdag, kl. 16 mun hand- verksfólk vera að störfum og íslenskír þjóðbún- ingar verða sýndir. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga Sýning á völdum andlitsmyndum ettir Sigurjón Ólafsson, „Þessir kollóttu steinaH, mun standa í allan vetur. Bætt hefur verið við verkum, bæði þrívíðum andlitsmyndum, skúlptúmm o.fl. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum kl. 14-17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Listhúsið í Laugardal Engjateigi 17 Gallerí-Sjöfn Har. Þar stendur yfir myndlistar- sýning á verkum eftir Sjöfn Har. Sýningin ber yfirskriftina „íslensk náttúra, íslenskt landslag." Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16. Listhús 39 Strandgötu, Hafnarfirði l’lát er nafn á sýningu sem Sigríður Erla heldur. Sýningin verður opin til 1. april. Listasafn Akureyrar 2 myndlistarsýningar standa ytir í Listasafninu á Akureyri. í austur- og miðsal sýnir Ijósmynd- arinn og bókagerðarmaðurinn Guðmundur P. Ólafsson Ijósmyndari. Sýningin heitir í náttúm íslands. í vestursal er sýning á verki rússnesku listamannanna Komar of Meiamid um eftirsótt- asta og sfst eftirsótta málverk íslensku þjóðar- innar. Listasafnið er opið alla daga vikunnar nema mánudaga frá kl. 14-18. Listhús Ófeigs Skólavörðustíg 5. Opið alla daga á almennum verslunadíma, lok- aðá sunnudögum. Ljósmyndamiðstöðin Myndás Laugarásvegi1 Laugardaginn 23. mars verður opnuð Ijós- myndasýning afrakstur Ijósmyndanámskeiðs sem haldið var í svokallaðri opinni viku Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi. Sýningin opnuð kl. 14. Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Safnið er opið á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13-17. Stöðlakot Bókhlöðustíg 6 Opiðfrá kl. 14-18 daglega. Krossferillinn: Anna Guðrún Torfadóttir heldur sýningu á fjórtán nýjum grafíkverkum. Fjórtán krossferilsmyndir í einni samræmdri myndrðð eru með elstu viðfangsefnum evrópskra lista- manna. Sýningin stendurtil 14. apríl. Veitingastaðurinn Á næstu grösum Laugavegi 20b Nú stendur yfir myndlistarsýning, 11 málverk, eftir Kristberg Ó. Pétursson. Kristbergur stund- aði nám í MHÍ og f Hollandi. Hann hefur tekið þátt í samsýningum heima og erlendis og hald- ið nokkrar einkasýningar. Þjóðminjasafn íslands Úr fórum S.i.S. Myndasýning í Bogasal Þjóð- minjasafnsins 28. mars til 21. apríl 1996. Þjóð- minjasatnið er opið laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12-17. Varmarhlíðarhúsið Hveragerði Þorgerður Sigurðardóttir myndlistarmaður opn- ar sýningu á skírdag, þann 4. apríl nk. kl. 14 í Varmahlíðarhúsinu í Hveragerði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.