Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 8
52 MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 TÓNLISTJIR fcöjm'j! Lou Reed - Set the Twilight Reeling Enn í skugga fortíðar Lou Reed er ein af þessum gullslegnu goösagnapersónum frá upp- hafsdögum sýrutónlistarinnar. Hann var einn af stofnendum Velvet Underground á sínum tima og hann samdi hið ódauðlega lag Walk on The Wild Side. Það kom út 1973 á plötunni Transformer sem er enn þann dag í dag meistarastykki Lou Reeds og hefur í raun skyggt á all- ar plötur hans síðan. Nú eru fjögur ár frá síðustu plötu Reeds en árin og þróunin virðast ekki hafa nein stórvægileg áhrif á tónlist hans; hann heldur sig við þá línu sem hann markaði sér meö Transformer. Lögin hafa tiltölulega hráa áferð, í þeim er hæg undiralda og textarnir jaðra við að vera flutt- ir frekar en sungnir. Þeir eru enn sem fyrr aðalsmerki Lou Reeds og hann er ekkert að skafa utan af hlutunum; sendir hér til dæmis for- setaframbjóðandanum Boh Dole tóninn með slikum hætti að væri Dole íslenskur embættismaður væri Reed löngu kominn í yfirheyrslur hjá RLR. Og það má eiginlega segja að textamir séu eina verulega lífsmarkið með Lou Reed á þessari plötu, lögin eru frekar máttleysisleg og mér finnst vanta í þau herslumuninn til að þau megni að lyfta plötunni upp. Sigurður Þór Salvarsson. Skunk Anansie - Paranoid & Sunburnt ★★★★ Sólkerfisrokk Vissulega hefur það tekið íslendinga alltof langan tíma að uppgötva þessa frábæru rokk- sveit. Platan Paranoid & Sunburnt kom út seinni hluta siðasta árs og hefur fengið frá- bærar viðtökur um allan heim. En við hugg- um okkur við orðatiltækiö „betra seint en aldrei". Án þess að virðast áhrifagjarn verð ég að taka undir með starfsbróð- ur mínum í breska tímaritinu Kerrang, því ef að öllu jöfnu er talað um stjömur, þá er söngkonan Skin sólkerfi. Rödd hennar á liklega engan sinn líka, þó henni hafi stundum verið lýst sem sköllóttri Tinu Tum- er. Rokk og reiði, villimennska og melódíur, Skin er „in“. Skunk Anansie leikur melódískt rokk af kraftmestu gerð. í laga- smíðunum má heyra ýmsa áhrifavalda án þess þó að um beinan stuld sé að ræða. Opnunarlagið „Selling Jesus", sem jafnframt var fyrsta smáskifan af glötunni, er án vafa eitt besta rokklag sem ég hef heyrt i langan tíma. í textanum er að finna vel útfærða ádeilu á trúarsölu- menn heimsins og kraftmikla rokkmelódíu í bland. „Intellectualise My Blackness" er Led Zeppelin frösuð ádeila sem skýrir sig sjálf. Skunk Anansie tekur pönkið skrefi lengra í textasmiðum sínum og gerir ádeilumar ljóðrænar. í „Little Baby Swastikka“ örlar á Primus um stund en viðlagið rífur hlustandann upp á rassgatinu og kemur honum í rokkstellingar. Ekki má gleyma þvi lagi sem næst kemst því að kall- ast popp, en í „Weak“ er að finna góða melódíu og texta sem allir virð- ast tengjast á einn eða annan hátt. í heild er platan krafmikil, hrá og melódísk sólkerfisrokkplata sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Eins og áður segir, „betra seint en aldrei". Guðjón Bergmann Híf opp - Egill Ólafsson og Tríó Björns Thoroddsen ★★★Á Þeir Björn Thoroddsen og Egill Ólafsson eru feikigóðir lagasmið- ir og hér hafa þeir fundið afurð- um sínum verðugan búning. PurpendiCular - Deep Purple: ★★★ Þessi nýja plata sýnir að þreytumerki eru fá eða engin á gömlu mönnunum og sjálfsagt verða þeir í enn meira stuði á þrí- tugsafmælinu. -ÁT Ávextir - Blandaðir flytjendur: ★★★ Plötur eins og Ávextir, sem gera upp liðið ár, eru nauðsynleg- ar en bestur fengur væri í þeim ef allir útgefendumir gætu samein- ast um að velja á þær lög. -ÁT The Lost Episodes - Frank Zappa: ★★★ The Lost Episodes er ómissandi eign fyrir aUa sanna Zappa-aðdá- endur og ekki síður fyrir þá sem vilja kynnast bakgrunni eins merkasta tónlistarmanns aldar- innar. -SÞS Murder Ballads - Nick Cave and the Bad Seeds: ★★★Á Murder Ballads er í öllu tilliti magnaðasta plata sem komið hef- ur út það sem af er árinu og setur Nick Cave í flokk með athyglis- verðustu rokktónlistarmönnum samtímans. -SÞS Second Toughest in the Infants: ★★★ Meirihlutinn af efninu er frek- ar rólegt „ambient techno“, þó vissulega sé ástæða til fótatilfær- inga á dansgólfinu inn á milli. Frasar eru grípandi og hljóm- sveitin heldur einkennum sínum í gegn. -GBG Life Is Sweet - Maria Mckee: ★★★ Platan er mjög jöfn að gæðum, þarfnast reyndar örlítillar þolin- mæöi en í heildina séð hefur Mar- íu Mckee tekist að skapa mjög heilsteypta og frambærilega sóló- plötu. -SÞS Minnisvarði um Tvöföld plata Tugthúslimurinn 2Pac Valdamikill Ófarir rapparans hafa jafnt verið notaðar með og á móti honum. í dag stendur hann upp með nýfundna von um heim sem á enn eftir að skapa, platan er fyrir þá sem ætla að skapa hann og þá sem enn hafa ekki öðlast eins valdamikla rödd. „All Eyez on Me“ er fyrsta tvö- falda platan í sögu rappsins og fyrsta platan sem 2Pac gefur út hjá útgáfufyrirtækinu Death Row, en þar segist rapparinn finna til frelsis. Um plötuna segir hann: „Ég sagði bara það sem mig langaði til að segja, og það frelsaði mig.“ Það eru þó nokkrir þekktir lista- menn sem leggja 2Pac lið á þessari rúmlega tveggja tíma 27 laga plötu og má þar nefna Dr. Dre, Snoop Doggy Dogg, Dat Nigga Daz, Method Man og Suge Knight. Fyrirtækið Death Row hefur feng- ið titilinn „The Motown of the Rap“ eða Motown rappsins og 2Pac er sagður einn allra vinsælasti rappari allra tíma. Fólk sér nefnilega ekki bara mann sem hefur náð að þrauka í gegnum harðræði, heldur líka mann sem styrkist við mótlæti og þessi eiginleiki færir honum áður óþekkt völd. -GBG Eftir yfirþyrmandi sex ára göngu velgengni hefur hljómsveitin Take That slitið samstarfi. Take That skilur eftir sig brotin hjörtu ung- menna um allan heim, þrjár met- söluplötur, átta smáskífur sem náðu sæti eitt, heilmargar myndbands- spólur og nú, plötu sem segir alla söguna. Greatest Hits plata Take That inniheldur allt það besta af hreint ótrúlegum ferli þessara sykursætu poppdrengja. Ásamt plötunni er gef- in út myndbandsspóla sem inniheld- ur, auk myndbanda við öll lögin, efni sem Gary, Mark, Howard og Jason tóku upp á sínar eigin mynd- bandsvélar á meðan á ferlinum stóð. Platan er ekki einungis minnis- varði um milljónasölu, því pening- arnir eru rétt að byrja að streyma inn. Átján ástæður ... . . . fyrir aðdáendur til að kaupa plötuna, nefnilega lögin. Fyrsta lag- ið á plötunni var nýlega tekið upp í flutningi sveitarinnar. Þarna er á ferðinni 1977 smellur Bee Gees, „How Deep Is Your Love“. En hvers vegna að gefa út lag eftir aðra í lok ferilsins? „Af hverju ekki?“ segir söngvarinn Gary Barlow. „Okkur langaði til að sýna að við gætum enn tekið lpg eftir aðra og gert það vel.“ Númer 2 er lagið „Never Forget“ sem kom út í júlí 1995. Lagið fór beint í fyrsta sæti, enda mikil um- ræða á ferð í kringum brottför Roobie Williams úr sveitinni. Þriðja lagið er líklega þeirra vinsælasta lag til þessa. Lagið var frumflutt á Brit-verðlaunahátíðinni 1995 og var selt í 300 þúsund eintökum í útgáfu- vikunni. Lagið heitir „Back for Good“. Á eftir kemur „Sure“, en það náði líka toppsæti árið 1994. „Love Ain’t here Anymore“ var sumar- ballaða sama árs. Lagið „Everything Changes“ var titilag breiðskífunnar sem kom út árið 1994. Að mati gagnrýnenda tók platan píkupoppskeiminn af sveit- Take That aðdáendur mega vel við una eftir útkomu nýrrar plötu sveitarinn- ar, enda ekki á hverjum degi sem hljómsveitir sem eru hættar gefa út plötu. inni og gaf henni meira tónlistarlegt vægi. „Babe“ kemur þarna strax á eftir og síðan gamli Dan Hartmann slagarinn „Relight My Fire“. Það var hins vegar myndbandið við það lag sem vakti hvað mesta athygli vegna kroppasýningar þessara þroskuðu drengja (það sást í rass). Lagið „Pray“ kom út í júlí 1993 og fór beint í fyrsta sæti. Nokkrum mánuðum á undan kom „Why Can’t I Wake up with You“. Það náði hins vegar ekki toppnum. Á plötunni má einnig finna í þessari röð: „Could It Be Magic“, „A Million Love Songs“, „I Found Heaven“, „It only Takes a Minute", „Once You’ve Tasted Love“, „Promises“, „Do What You Like“ og „Love Ain’t here Anymore (US Version)“. Take That aðdáend- ur mega vel við una, enda ekki á hverjum degi sem hljómsveitir sem eru hættar gefa út plötu (nema kannski Lennon, hann virðist stjórna plötuútgáfu úr gröfinni). En ef við miðum við atburði eins og endurkomu Sex Pistols á þessu ári, getur vel verið að hljómsveitin taki saman á ný eftir 20 ár. Spurn- ingin verður hins vegar hvort þeir geti þá sýnt á sér kroppana í sama mæli? -GBG Það sem ekki drepur þig styrkir þig. Sannleikurinn um rapparann 2Pac Shakur, sem gaf nýverið út sína fjórðu sólóplötu. Hún er tvöfóld og ber titilinn „All Eyez on Me“. Eftir að hafa verið innan veggja fangelsis síðastliðið ár kemur 2Pac aftur til leiks, uppfúllur af meðfæddu stolti og mikilli reiði auk þess sem hann ber með sér nýfundinn skilning. Eftir að hafa verið innan veggja fangelsis síðastliðið ár kemur 2Pac aftur til leiks með nýja plötu. millj ónasölu Take That's Greatest Hits

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.