Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1996, Síða 4
20 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1996 ------------------I-------------------------------------- —i----------I r ö n l i s i/í k UMIIYII The Cranberries - To the Faithful Departed ★★ Hraðsuða Þaö getur bæði veriö kostur og löstur að ganga hratt til verks þegar hljómplötur eru hljóðritaðar. Liðsfólk Cranberries tók plötuna To the Faithful Departed með áhlaupi og vann lögin funmtán sem hún hefur aö geyma á skömmum tíma. Hér og þar heyrist að óhætt heföi verið aö gefa sér dálítinn tíma og finslípa eitt og annað og heföi platan þar með orðið áheyrilegri en ella. Þá hefði sömuleiðis ekki sakað að Dolores O’Riordan hefði verið gagn- rýnni á sjálfa sig við lagasmíðar og einnig suma textana. Hún virðist vinna töluvert út frá laginu Zombie, aðalsmelli síðustu plötu Cranberries. Einnig heyrist hér og þar að hún er aö sjóða Linger upp á nýtt. Þetta hefðu samstarfsmenn hennar og upptökustjórinn Bruce Fairbarn átt að hnippa í söngkonuna með. Sumir textamir eru reyndar ágætir og ein- lægnina skortir ekki. En f nokkur skipti - sér í lagi þegar stríð, eymd og þjáningar bama eru annars vegar - verður einlægnin pínleg og textarnir minna einna helst á vangaveltur táningsstúlkna sem em að þreifa fyrir sér með að yrkja. Sömu sögu er að segja af skilaboðum söngkonunnar sem hún ritar á plötuumbúöh'. Þau eru afskaplega vel meint en eru of óþroskuð í framsetningu tii að vera samboðin heimskunnri poppstjömu á borð við Dolores O’Ríordan. Fjórmenningamir í The Cranberries völdu sér Bruce Fairbarn sem meðpródúsent að plötunni To The Faithful Departed. Fairbam er þekkt- astur fyrir verk sín með nokkrum þéttustu rokksveitum heimsins, svo sem AC/DC, Aerosmith og Van Halen. Hann hefur skapað með þeim ákveðinn hljóm sem margir vilja eflaust flokka undir iðnaðarrokk tíunda áratugarins. Eigi að sfður höfðar hann til ótrúlega margra rokkunnenda með stíl sínum. Á plötu Cranberries er ekkert sem bendir til þess aö Fair- bam hafi haft þar nein ítök. Enda var ekki viö því að búast að hann myndi svo mikið sem reyna að ná neinu út úr írsku fjórmenningunum og skjólstæðingum sínum úr rokkframlinunni í gegnum tíöina. Á To the Faithful Departed em vissulega áheyrilegir punktar. Heildin líður hins vegar fyrir að platan er hraðsoðin á flestum sviðum. Sennilega henta þess háttar vinnubrögð hljómsveitinni The Cranberries ekki ef ár- angurinn á að verða fyrsta flokks. Ásgeir Tómasson Hootie & The Blowfish - Fairweather Johnson ★★★ Skilgetið afkvæmi Undanfarin ár hCTflr reglulega skotið upp á stjömuhimininn vestur í Bandarikjunum hljómsveitum sem slegiö hafa rækilega í gegn með fyrstu plötu en síðan ekki söguna meir. Nægir að nefna Crash Test Dummies og Counting Crowes í þessu sambandi sem hafa hreinlega ekki orkað að koma annarri plötu út, enn sem komið er að minnsta kosti. Hljómsveitin Hootie & The Blowfish á það sameiginlegt með fyrmefndu sveitunum að slá 1 gegn svo um munaði með fyrstu plötu en sú plata hafði sfðast þegar fréttist selst 111 milljónum eintaka! En þeir Hootie-menn ætla greinilega ekki að láta það henda sig að gefast upp eftir góða byijun og hafa sent frá sér nýja plötu. Það var ljóst að ekki yrði auðvelt að fylgja fyrstu plötunni eftir og því kemur það vart á óvart að nýja platan er nánast endurtekning á þeirri fyrstu. Tónlistin er létt og þægilegt gítarpopp með öllu því sem til þarf fyrir bandaríska markaðinn, örlítil kántríáhrif, smáblús og þar fram eftir götunum. Ekki á ég von á að þessi plata gangi jafn vel og sú fyrsta en hún stendur fyllilega fyrir sínu; lögin era jöfn og góð, melódísk og vel flutt og allt eins og það á að vera. Stærsti gaili en um leið einkenni sveit- arinnar er einhæfur söngvari með sérstaka rödd sem vantar þvi miður öll blæbngði í. Fyrir vikiö virka mörg laga sveitarinnar eins, og hætt er við því að þetta geti orðið hljómsveitinni fjötur um fót þegar komið er fram á fjórðu fimmtu plötu. Sigurður Þór Salvarsson ______________________________PV Þriðja plata Vina vors og blóma: kynnir Plútó „Við sjálfir" Á nýju plötunni eru allar laga- og textasmíðar eftir Vinina auk þess sem þeir útsetja öll lögin á plötunni sjálfir, fyrir utan Ljúfa líf og text- ann sem er á ensku (vúhú), hann er eftir Hans Cahulf og Mike Hunt. Lagasmíðar fóru að mestu leyti fram í sumarbústað við Geysi. Plat- an kemur út eftir tvær vikur en hún var tekin upp í Sýrlandi og var reynt að halda „live filingnum” frekar en að hafa upptökurnar nið- ursoðnar. „Platan er meira við sjálf- ir í þetta skiptið,” segir Steini. Gestir á plötunni eru Kiddi „Big- foot“ sem rappar í laginu Satúrnus sem er þegar farið að hljóma á öld- um ljósavakamiðlanna. Einnig kem- ur fram 14 ára söngkona að nafni Kenya Emilíudóttir í lagi sem nefn- ist Dúndrið. Stuttmynd Til að fagna útgáfunni verður haldið „útgáfupartí” þar sem sýnd verður stuttmynd sem er nú verið að leggja lokahönd á. Birgir Nielsen trommari leikur aðalhlutverkið í Ný plata hljómsveitarinnar Vinir vors og blóma kemur út eftir tvær vikur. myndinni en auk hans koma fram gamlar og ungar kempur úr brans- anum. „Spennutryllir með gaman- sömu ívafi“ (*★★* - kvikmynda- handbók Maltins). Þó platan sé að mestu á gaman- sömu nótunum má líka finna á henni alvarlegan undirtón. Einn textinn er saminn til styrktar fólk- inu sem lenti í snjóflóðunum á Súðavík og Flateyri. Stefgjöldin af laginu munu renna óskipt til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna þessara náttúruhamfara. Hljómsveitin mun einnig verða í nánu samstarfi við Jafningjafræðsl- una í sumar. Plútó er hins vegar nafnið á nýja meðlimnum (sem spil- ar því miður ekki á hljóðfæri) og plötunni sem er væntanleg í versl- anir þetta síðasta samstarfssumar sveitarinnar í bili. Chiao! -GBG Sumarsveitin Vinir vors og blóma eru löngu orðnir þekkt heimilisnafn um land allt. Nú eru liðin tvö ár frá útgáfu þeirra fyrstu breiðskífu sem bar nafnið Æði og fékk feiknagóðar við- tökur. Hljómsveitin hefur á síðast- liðnum tveim árum tryllt um landið i leit að gleði, fundið hana og fílað sig. Nú er komið að þriðju útgáfu sveitarinnar, sumarplötunni Plútó sem er jafnframt nafnið á nýjum meðlim sveitarinnar (sem er hund- ur). Plútó sver sig í ætt við fyrstu plötu sveitarinnar og er að hennar sögn „skemmtilegasta platan okkar hingað til“. Perlur hafsins: Óskalög sjómanna Nú styttist óðum í sjómannadag- inn sem haldinn verður hátíðlegur sunnudaginn 2. júní næstkomandi. Sjómenn eru upp til hópa söngelsk- ir og um ferðir þeirra á haf út og til baka hafa verið gerð ótal lög, vísur og söngvar. Af tilefni sjómannadagsins gefur Hljóðsmiðjan nú út plötuna „Óska- lög sjómanna” sem hefur að geyma allar helstu perlur hafsins saman- komnar í flutningi okkar ástsælustu söngvara. Vaxandi útgáfa Hljóðsmiðjan útgáfa er vaxandi fyrirtæki innan útgáfubransans á íslandi. Hingað til hefur fyrirtækið gefið út plöturnar Minningar 1, 2 og 3, Barnabros, Barnabros 2 (frá ítal- íu), Barnaborg og Barnajól. Konan á bak við útgáfuna heitir María Björk og fylgir hugverkum sínum allt frá fæðingu til enda: „ ég pakka meira að segja kassettunum þegar þær koma til landsins“. María hefur sungið á öllum plötunum og á það I tilefni sjómannadagsins gefur Hljóö- smiöjan út plötuna „Óskalög sjó- manna“ sem hefur aö geyma allar helstu perlur hafsins saman komnar í flutningi okkar ástsælustu söngvara. einnig við um þessa. Hún titlar sig framleiðanda, velur lögin, söngvar- ana, sér um framleiðsluna, stendur yfir hljóðversvinnunni og gerir allt annað sem viðkemur svona viða- mikilli útgáfu. Söngurinn göfgar „Óskalög sjómanna er plata sem á erindi inn á öll söng- og Ægiselskandi heimili,” segir María. Á henni eru lög eins og: Vor við sæinn, Hafið lokkar og laðar, Ég hvísla yfir hafið, Þú ert vagga mín haf, Ég veit þú kemur, Föðurbæn sjómannsins, Sjó- mannavalsinn og mörg fleiri. Söngvararnir eru ekki af verri endanum og eru auk Maríu: Ari Jónsson (sem syngur um þessar mundir í sýningunni Bítlaárin á Hótel íslandi), Björgvin Halldórs- son (sem vart þarf að kynna), Sig- rún Hjálmtýsdóttir (hin eina sanna Diddú) og Örn Árnason (leikarinn góðkunni sem nú sýnir á sér nýjar hliðar). Sem sagt, einvalalið söngvara á plötu sem er tileinkuð öllum þeim sem sótt hafa björg í bú úr gullkistum Ægis fyrir landsmenn í aldaraðir. -GBG With These Hands - Alejandro Escovedo: ★★★ Þótt Alejandro Escovedo hafi ekki skapað sér nafn enn þá er hann að gera eitt og annað áhuga- vert. Lög hans eru ágætlega samin og textarnir eru reyndar enn áhugaverðari. -ÁT How Long Has This Been Going On? - Van Morrison og Georgie Fame: ★★★ Þessi nýja plata lendir hiklaust djassmegin í lífinu en með sterk- um blússkugga. -IÞK The Score - Fugees: ★★★ The Score er í heild sinni góð viðbót við það poppaöa og meló- díska rapp sem komið hefur fram á sjónarsviðið hingað til. Ef Fu- gees heldur áfram á þessari braut gæti hún auðveldlega orðið best á sínu sviði. -GBG Lore - Clanned: ★★★ Vissulega er mikill svipur með tónlist þeirra Brennan-systkina í Clannad og systur þeirra Enyu, þó ekki sé þar með sagt að annar að- ilinn stæli hinn. -SÞS PureDisco-Ýmsir ★★★ Pure Disco er ágætisheimild um tónlist sem reynst hefur lífseigari en margur hugði á sínum tíma. -SÞS Ýmsir - Leaving Las Vegas ★★★ Tónlist úr kvikmyndum er orð- in ein mesta söluvara í hljómplötu- bransanum. Þarna er á ferðinni spennandi og vel samin tónlist, sem ávallt er að minna á enn betri mynd. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.