Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 8
tómstundir og útivist alyöru'+*s» I Switchback |/ Fullt verð kr. 36.820 Útsöluverð kr. 22.091 Brúsi, brúsahaldari og stelltaska fylgja með í kaupum á Switchback. Alta Fullt verð kr. 59.852 Útsöluverð kr. 47.881 20% afsláttur mag Hilltopper Fullt verð kr. 46.851 Útsöluverð kr. 37.481 20% afsláttur talckf«@rkBð mag Sycamore Fullt verð kr. 39.900 Útsöluverð kr. 31.919 20% afsláttur Threshold Fullt verð kr. 29.900 Útsöluverð kr. 20.930 30% afsláttur Maneuver Fullt verð kr. 25.556 Útsöluverð kr. 17.889 30% afsláttur iðlciTtoricsiS magn 30% afsláttur af öllum fylgihlutum s.s. brettum, dekkjum, hraðamælum, hnökkum, bögglaberum, brúsahöldurum, demparastömmum, táklemmum ofl PKufi.50% ■_* afsláttur G.A.PETURSS0N ehf Faxafeni 14 • Sími 568 5580 af hjálmum sértilboð á fylqihlutum MIÐVIKUDAGUR. 7 ÁGÚST 1996 J3"V Hjólreiðar verða sífellt vinsælli: Bjóðum byrjendum upp á lautarferðir íHeiðmörk - segir Björn Finnsson, Fjallahjólaklúbbi Islands Við verðum sífellt okkur meira meðvitandi um að góð hreyfing er nauðsynleg, bæði fyrir líkama og sál. Sumir eru auðvitað meira með- vitandi en aðrir og hreyfa sig reglu- lega en svo eru aðrir sem eru alltaf á leiðinni að byrja, það vantar bara herslumuninn til að koma sér af stað. Það eru ýmsir hópar starfandi í dag sem bjóða upp á spennandi möguleika, ekki síst fyrir þá sem langar til að hreyfa sig lítið eitt og skoða umhverfi sitt á annan hátt en út um bílrúðuna. Einn af þessum hópum er Fjallahjólaklúbbur ts- lands sem hefur verið starfræktur í nokkur ár. í klúbbnum er ekki ein- göngu fólk sem þeysist á sínu „fiallahjóli“ um óbyggðir landsins heldur er markmið klúbbsins að reyna að fá fólk til að taka hjólin úr geymslunni, dusta af þeim rykið og komast í nánara samband við móð- ur náttúru. Einn þeirra sem hefur verið hvað ötulastur við að fá fólk með sér út að hjóla er Björn Finnsson en hann hefur undan- farið boðið upp á ferðir fyrir byrjend- ur. „í sumar hef ég farið með byrjend- ur í lautar- ferð í Heið- mörk þar sem umhverf- ið er skoðað og nesti borð- að. Það er mikið kapps- mál fyrir mig að kynna fólki þennan ferðamáta og það er svo margt sem skiptir máli sem fólk al- mennt gerir sér ekki grein fyrir þegar það er að kaupa sér hjól. Til hvaða nota er hjólið? Ef ætl- unin er að hjóla mest innanbæjar eða á stígum í nágrenninu þarf ekki að kaupa dýrt hjól með flóknum gírabúnaði og stórum og grófum dekkjum. Annað er að rétt stilling á hjólinu er mjög mikilvæg. Ef hjólið er ekki rétt stillt þá er áreynslan of mikil á handleggi og bak og það verður erfiðara að hjóla, sem getur svo leitt til þess að fólk gefst upp. Þessar stillingar, sem ég er að tala um, varða hæð hnakksins og fjar- lægð sætis frá stýri.“ „Oft verður fólk mjög aumt eftir fyrstu skiptin, hnakkurinn særir og það eru ýmsar lausnir til við því vandamáli. Hægt er að fá sérstaka púða á hnakkana og svo eru auðvit- að til sérstakir hnakkar fyrir konur sem eru styttri og breiðari og mun hentugri fyrir þær. Fyrst við erum farin að minnast á konur er rétt að geta þess að innan Fjallahjóla- klúhbsins er starfandi kvennaklúbb- ur sem er mjög virkur.“ Margar nýjar og skemmtilegar leiðir „Þegar búið er að ganga úr skugga um að hjólið sé rétt stillt og hjálmurinn kominn upp er tíma- hært að ákveða hvaða leið á að velja. í Reykjavík og nágrenni eru margar skemmtilegar leiðir sem hægt er að fara og má t.d. nefna að eftir að brú var byggð yfir Kringlu- mýrar- braut er hægt að hjóla frá mótum Hofsvalla- götu og Ægissíðu alla leið upp í Heið- mörk, nánast án þess að fara yfir götu. Það er hægt að fara góðan hring um Breið- holts- hverfin, Árbæjar- hverfi, Kópavog og víðar, það sem vantar einna helst er tenging milli bæjarfélaga. Það er af nógu að taka hvað hjólaleiðir varð- ar, hjólakerfið er alltaf að batna, þannig að það er hægt að komast ferða sinna nokkuð auðveldlega án þess að vera hræddur um að vera keyrður niður.“ -gdt Björn Finnsson fer allra sinna ferða á fjallahjólinu sínu og hefur engan áhuga á því aö eignast bíl. Hans markmiö er aö reyna aö vekja áhuga al- mennings á því hve skemmtilegur og góður ferðamáti þetta er. Félagar í Fjallahjólaklúbbnum, sem eru um fjögur hundruð, leggja stundum land undir fót. Hér er hluti þeirra í Skorradal, á hátíö sem klúbburinn hélt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.