Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1996, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1996, Síða 3
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1996 23 íþróttir 1 aLL rov hnnrli inti^ ■■1 OKV im nonui um - Skallagrímur nálgast 1. deildina eftir 1-2 sigur á Þrótti 1-0 sjálfsmark (18.) 1-1 Valdimar K. Sigurðsson (28.) 1-2 Hilmar Þ. Hákonarson (52.) Skallagrímur hleypti mikilli spennu í toppbaráttu 2. deildar meö því að bera sigurorð af Þrótt- urum, 1-2, á Valbjamarvelli i gær. Með sigrinum komust Borgnesing- ar upp í annað sætið og þeir eiga nú alla möguleika á að tryggja sér sæti í 1. deild í fyrsta sinn þegar tveimur umferðum er ólokið. Þróttarar byrjuðu betur og komust yfir á 18. mínútu með dyggilegri aöstoð gestanna. Gunn- ar Gunnarsson átti þá fasta fyrir- gjöf frá vinstri og það vildi ekki betur til en svo að Pétur Grétars- son, vamarmaður Skallagríms, setti knöttinn í eigið mark. Borgnesingar jöfnuðu 10 mínút- um síðar en þá skoraöi Valdimar K. Sigurðsson úr vítaspymu eftir að hrint hafði verið á bak Hilmars Hákonarsonar í vitateignum. Hilmar skoraði svo sigurmarkið snemma í síðari hálfleik, skaliaði þá í netið eftir fyrirgjöf Svein- bjöms Ásgrímssonar og þar sváfu vamarmenn Þróttara illa á verðin- um. Kortéri fyrir leikslok fengu Þróttarar frekar ódýra vítaspyrnu en Friðrik Þorsteinsson varði spyrnu Áma S. Pálssonar vel. Þróttarar, sem vom dyggilega studdir af fjölmörgum stuðnings- mönnum sínum, vom frekar dauf- ir í þessum leik og talsverð tauga- veiklun einkenndi leik þeirra. Þróttarar hafa oft klikkað á loka- sprettinum og spurningin er hvort það sé enn einu sinni að gerast. Gestimir komu hins vegar til að selja sig dýrt. Þeir börðust eins og ljón allan leikinn, vel hvattir áfram af Ólafi Jóhannessyni þjálfara og Dýrmætt stig IR 1-0 Arnar Viðarsson (81.) 1-1 Kjartan Kjartansson (82.) „Það var kærkomið að ná stigi hér því við eram með slæma markatölu og eram nú tveimur stigum á undan Völs- ungi. Þetta var mikill baráttuleikur og sigurinn gat lent hvorum megin sem var en ég held að úrslitin hafi verið sann- gjörn,“ sagði Ásbjörn Jónsson, leikmaður ÍR, eftir 1-1 jafntefli við FH í 2. deildinni í Kaplakrika í gær. ÍR-ingar fengu dauðafæri strax í upphafi seinni hálfleiks en þá varði Jónas Hjartarson glæsilega frá Kristjáni Brooks. Mínútu fyrir leikslok átti Will Davies síðan skalla í mark- vinkilinn hjá FH og það munaði þvi litlu að ÍR hirti öll stig- in. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og skothríð á bæði mörkin. Bæði liöin vora með varamarkverðina, Jónas hjá FH og Magnús Jónsson hjá ÍR. Þeir höfðu nóg að gera og stóðu sig báðir vel. Maður leiksins: Ásbjöm Jónsson, ÍR. -Pu unnu vel hver fyrir annan. Friðrik var góður í markinu og þeir Hilm- ar Hákonarson, Bjöm Axelsson og Garðar Newman léku vel í barátt- uglöðu liði Borgnesinga. „Ég er auðvitað mjög ánægður með þennan sigur. Við vissum að ekkert nema sigur dygði okkur til að vera með í baráttunni um 1. deildar sætið og nú er þetta algjör- lega í okkar höndum. Við ætlum að klára þetta sjálflr,” sagði baráttu- jaxlinn, Björn Axelsson, við DV eft- ir leikinn. Maður leiksins: Friðrik Þorsteinsson, Skallagrími. -GH 2. deild Fram 16 10 5 1 52-16 35 Skallagr. 16 10 3 3 29-14 33 Þróttur R. 16 9 5 2 34-19 32 KA 16 7 3 6 33-30 24 FH 16 6 4 6 25-21 22 Þór A. 16 6 4 6 24-28 22 Vlkingur R. 16 5 3 8 20-30 18 ÍR 16 5 2 9 18-35 17 Völsungur 16 4 3 9 22-35 15 Leiknir R. 16 1 2 13 17-46 5 Markahæstir: Ágúst Ólafsson, Fram...........14 Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram . . 14 Þorvaldur M. Sigbjömsson, KA . . 12 Sindri Grétarsson, Skallagr...10 Hreinn Hringsson, Þór...........9 ippli? feröi lokaumferöunum: Fram: Leiknir (h), FH (ú) Skallagrimur: KA (h), Völsungur (ú) Þróttur: ÍR (ú), Víking (h) Ólafur Jóhannesson þjálfari og Valdimar K. Sigurösson fyrirliöi stefna ótrauöir á 1. deildina meö liöi Borgnesinga. DV-mynd EP Víkingur í 7. sætið 0-1 Amar Hrafn Jóhannsson (17.) Glæsimark Amars Hrafns Jóhannssonar á 17. mínútu tryggði Víkingum mikilvægan sigur á Leiknismönnum á Breið- holtsvelli í gær. Með hraða sínum fiskaði Amar boltann af vamarmanni Leiknis og skoraði laglega. Eftir þennan sigur komust Víkingar upp í 7. sætið. „Leiknismenn voru grimmir til að byrja með en eftir því sem á leikinn leið náðum við betri tökum á honum. Þetta var dýr- mætur sigur og við ætlum okkur að sigra gömlu félaga mína úr FH í næsta leik til að tryggja okkur sæti í deildinni," sagði Stefán Arnarsson, markvörður Víkings. Breiðhyltingar byrjuðu af miklum krafti og sköpuðu sér nokkur færi í byrjun leiks sem þeim tókst ekki að nýta. Fyrri hálfleikurinn var annars jafn. í síðari hálfleik náðu Víkingar betri tökum á leiknum. Þeir gátu gert út um leikinn en skyndi- sóknir Leiknismanna voru hættulegar. Bæði lið áttu skot í þverslá en sigur Víkinga var nokkuð öruggur. Maður leiksins: Hörður Theódórsson, Víkingi ^ Þórsarar í hefndarhug - þegar Þór og Fram skildu jöfn, 2-2 DV, Akureyri 0-1 Ágúst Ólafsson (43.) 0-2 Ágúst Ólafsson (55.) 1- 2 Bjdrai F. Guðmundsson (56.) 2- 2 Sjálfsmark (72.) Það var greinilegt að Þór hugð- ist hefna fyrir þá háðulegu útreið sem liðið fékk er það spilaði gegn Fram í fyrri umferð 2. deildarinn- ar en þá steinlá það, 0-8. Það tók á móti Fram um helgina og þótt Þórsarar hefðu ekki að neinu að keppa öðru en að bjarga andlitinu máttu Framarar teljast heppnir að sleppa með eitt stig úr viðureign- inni. Þeir era því ekki enn öraggir með 1. deildar sætið þótt staðan sé vissulega vænleg. Gegn gangi leiksins komust Framarar í 0-2 með mörkum í lok fyrri hálfleiks og byrjun þess síð- ari en stórefnilegur unglingur í Þórsliðinu, Bjami F. Guðmunds- son, minnkaði stax muninn fyrir Þór og jöfnunarmarkið kom um miðjan síðari hálfleik. Það var greinilegt að Þórsarar sem stilltu upp nokkuð breyttu liði hugðust ekki tapa þessum leik og margir áhorfenda höfðu á orði að staða liðsins í deildinni væri án efa önnur ef liðið hefði mætt með þessu hugarfari í leikina í sumar. íliði Fram var Ágúst Ólafsson ógnandi en hjá Þór voru bestir þeir Páll Gíslason og Bjami F. Guð- mundsson. Maður leiksins: Bjami F. Guð- mundsson, Þór. -gk Enn syrtir í álinn hjá Völsungum - eftir 2-3 ósigur gegn KA DV, Húsavík: 0-1 Höskuldur Þórhallsson (59.) 0-2 Gísli Guðmundsson (73.) 1- 2 Hjörtur Hjartarson (77.) 2- 2 Ásgeir Baldurs viti (85.) 2-3 Bjami Jónsson viti (89.) KA hafði betur í uppgjöri norðan- liðanna á Húsavík í gær og þar með má segja að það sé farið að syrta í álinn hjá Völsungum. Fyrri hálfleikur var jafn og liðin sóttu á víxl en fátt var um mark- tækifæri. í síðari hálfleik byrjuðu Völsung- ar af miklum krafti og sóttu mikið meira. Þeir áttu nokkur góð mark- tækifæri og hefðu átt að fá víta- spymu þegar Hjörtur var felldur. KA-menn náðu forystunni gegn gangi leiksins meö marki Höskuld- ar og Gísli bætti við öðru með góðu skoti. Þá var eins og heimamenn vöknuðu til lífsins. Þeir sóttu stíft og tókst að jafna metin. Það stefndi allt í jafntefli þegar KA-menn fengu dæmda vítaspymu og skoraði Bjami Jónsson af öryggi úr því. Maður leiksins: Ásgeir Bald- urs, Völsungi. -GA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.