Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1996, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
25
I
íþróttir
21 árs landsliðið:
Enn ósigrað
á þessu ári
Atli Eðvaldsson, þjálfari 21 árs landsliðsins í knattspyrnu, valdi 17
leikmenri fyrir leikina tvo gegn Litháen og Rúmeníu í Evrópukeppninni
en liðið leikur i Litháen á laugardag og við Rúmena í Mosfellsbæ næsta
miðvikudag.
Þessir leikmenn fara til Litháen: Ámi Gautur Arason, ÍA, Gunnar Sig-
urðsson, ÍBV, Sigurvin Ólafsson, Stuttgart, Brynjar Gunnarsson, KR, Jó-
hannes Harðarson, ÍA, Ólafur Stígsson, Fylki, Guðni Rúnar Helgason,
Völsungi, Bjamólfur Lárusson, ÍBV, Stefán Þ. Þórðarson, ÍA, Ólafur Örn
Bjarnason, Grindavik, Sigþór Júlíusson, Val, Þorbjörn Atli Sveinsson,
Fram, Bjarki Stefánsson, Val, Bjarni Guðjónsson, ÍA, Amar Viðarsson,
FH, og Gunnar Einarsson, Val.
Valur Fannar Gíslason frá Arsenal bætist síðan í hópinn fyrir leikinn
gegn Rúmeníu.
Allir þessir piltar hafa spilað með 21 árs liðinu á árinu en liðið er enn
ósigrað undir stjórn Atla. ísland vann Makedóníu, 2-0, í Evrópukeppn-
inni í vor og hefur gert jafntefli við Eistland, 1-1, og sigrað Möltu, 6-0, í
vináttuleikjum. -VS
Smáþjóðaleikar í skvassi:
Kim lagöi alla
andstæðingana
Ólafsfjörður:
Gunnar Oddsson
leikmaður ársins
DV, Ólafsfirði:
Gunnar Oddsson var kjörinn
leikmaður ársins á lokahófi
knattspyrnudeildar Leifturs á
laugardagskvöldið. Gunnar var
að leika sitt annað tímabil með
Leiftri og stóð sig frábærlega.
Bæði DV og Morgunblaðið hafa
talið hann einn allra besta leik-
mann 1. deildarinnar. Þrátt fyrir
það hlýtur hann ekki náð fyrir
augum landsliðsþjálfara, enda
segja gárungarnir að það sé nóg
að gerast atvinnumaður erlend-
is, þá eigi maður fast sæti i ís-
lenska landsliðinu.
-HJ
„ Karate:
Olafur náði
bestum árangri
Ólafur Nielsen náði bestum
árangri íslendinga á Norður-
landamótinu í karate sem fram
fór í Helsinki um síðustu helgi.
Ólafur glímdi um bronsverð-
launin í opnum flokki í kumite
en tapaði fyrir Juha Nieminen
frá Finnlandi og varð fjórði.
Ingólfur Snorrason var nálægt
því að keppa um bronsið í +78 kg
flokki en missti naumlega af því.
Ásmundur ísak varð í 6. sæti í
kata en þeir Halldór Svavarsson
og Jón Ingi Þorvaldsson komust
ekki eins langt í sínum flokkum.
-VS
Badminton:
Broddi og Elsa
byrjuðu vel
Broddi Kristjánsson og Elsa
Nielsen úr TBR sigruðu á ein-
liðaleiksmóti TBR, fyrsta opna
badmintonmóti tímabilsins, sem
fram fór á sunnudag. Broddi
vann Njörð Ludvigsson i úrslit-
um í karlaflokki og Elsa vann
Vigdísi Ásgeirsdóttur í úrslitum
í kvennaflokki. -VS
Kim Magnús Nielsen stóð sig
mjög vel á Smáþjóðaleikunum í
skvassi sem fram fóru í Búdapest.
Kim lagði alla andstæðinga sína á
mótinu. Þátttökuþjóðir voru, auk
gestgjafanna og íslands, Malta, Lúx-
emborg, Kýpur, Mónakó og
Liechtenstein.
Jón Auðunn mikiö efni
Keppnin var afar jöfn og spenn-
andi og léku flestir tvo leiki á dag
þá fimm daga sem keppnin stóð
yfir. Kvennasveitin lenti í 5. sæti en
karlarnir í 6. sæti. Ungur og efnileg-
ur spilari, Jón Auðunn Sigurbergs-
son, var að leika á sínu fyrsta al-
vörumóti og sýndi að þar er á ferð-
inni frábært efni. Tveir ísfirðingar,
Hjálmar Björnsson og Rósamunda
Baldursdóttir, voru í liðinu og
sýndu mikla baráttu.
Ungverjar báru sigur úr býtum í
karlaflokki en- Kýpur í kvenna-
flokki. Kim Magnús keppir í næsta
mánuði á Evrópumóti landsmeist-
ara á Spáni.
-JKS
Þú getur unnið tvo stúkumiða
á landsleik íslands og Rúmeníu
þann 9. október í skemmtilegri
knattspyrnugetraun í
síma 904-1750.
S8 ivlATywQ ~ ?
0 4 • 2 7 5 0 a®e'ns 39-90min-
Brann Biricir
við bekkinn
ISLAND - RUMENIA
9. október kl. 19:00
Handbolti:
Jason að gera
góða hluti
Jason Ólafsson hefur verið að
gera góða hluti með Lauter-
hausen í þýsku 2. deildinni í
handknattleik. Um síðustu helgi
skoraði Jason 9 mörk í sigri
Lauterhausen á Wiesbaden og
hefur þar með skorað 17 mörk í
fyrstu þremur leikjum liðsins í
deildinni. Lauterhausen er efst i
suðurdeildinni með fullt hús
stiga. -GH
Halla María
í góðu formi
Halla María Helgadóttir átti
stórleik með liði Sola í norsku 1.
deildinni í handknattleik um
helgina. Halla skoraði 9 mörk en
þau dugðu skammt því Sola tap-
aði fyrir Byásen, 23-20.
Larvik, liðið sem Kristján
Halldórsson, fyrrum landsliðs-
þjálfari stýrir, vann sigur á
Stábek, 41-27, og hefur þar með
unnið báða leiki sína.
Hjá körlunum töpuðu Gunnar
Gunnarsson og lærisveinar hans
í Elverum fyrir Sandefjörd,
24-26, og hafa tapað báðum
leikjum sínum í deildinni.
Real Madrid
á toppinn
Real Madrid komst á topp
spænsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu í gær með 2-0. Raul
Gonzalez og Davor Suker
skoruðu mörkin í fyrri hálfleik.
-GH
Ólafur kyrr
á Skaganum
Ólcifur Þórðarson, fyrirliði ís-
lands- og bikarmeistara Skaga-
manna í knattspymu, hefur tekið
þá ákvörðun að leika áfram með lið-
inu á næsta keppnistímabili en
hann hafði í hyggju að snúa sér að
þjálfun.
„Mig langar hreinlega að spila
lengur og ég neita því ekki að það
var þrýst á mig að halda áfram. Það
er erfítt að slíta sig frá þessum ein-
staka hópi eins og Skagaliðið er og
ég taldi það best fyrir fjöldskylduna
að vera um kyrrt hér á Akranesi,"
sagði Ólafur í samtali við DV í gær-
kvöldi en þá hafði hann nýlokið við
að taka þessa ákvörðun.
„Ég vona að ég eigi eftir að fá
möguleika aftur að þjálfa svo ég
þurfi ekki að sjá eftir þessari
ákvörðun minni, sagði Ólafur enn
fremur.
Fylkismenn höfðu þegar rætt við
Ólaf um að taka við þjálfun liðsins á
næsta keppnistímabili og DV hefur
heimildir fyrir því að eitt 1. deildar
lið var með hann í sigtinu.
-GH
Gunnar Oddsson
næsti þjálfari
Keflvíkinga?
- Kristinn Björnsson orðaöur við Ólafsfirðinga
Gunnar Oddsson verður að öll-
um líkindum næsti þjálfari 1.
deildar liðs Keflvíkinga í knatt-
spymu og mun þar taka við starfi
Kjartans Mássonar, sem tókst á
ævintýralegan hátt að bjarga lið-
inu frá falli þrátt fyrir hrakspár
margra manna.
Gunnar hefur undanfarin tvö
keppnistímabil leikið með Leift-
ursmönnum á Ólafsfirði en hann
hefur nú gefið Ólafsfirðingum þau
svör að hann leiki ekki með þeim
á næstu leiktíð.
Heimildir DV herma að Gunnar
hafi ráðið sig í vinnu I Keflavík og
það ýtir stoðum undir það að
hann sé á leið til Keflvíkinga sem
spilandi þjálfari enda segja sömu
heimildir aö forráðamenn Kefl-
víkinga séu búnir að bjóða Gunn-
ari þjálfarastarfið.
Það verður mikið áfall fyrir
Leiftursmenn að missa Gunnar úr
herbúðum sínum enda hefur
hann verið kjölfestan í liðinu og í
sumar hefur hann leikið einstak-
lega vel.
Nú er orðið ljóst að Óskar Ingi-
mundarson hættir þjálfun Leift-
ursliðsins eftir að hafa stýrt lið-
inu undanfarin 3 ár og samanlagt
í 6 ár. Ekki hefur verið ráðinn eft-
irmaður Óskars en samkvæmt
heimildum DV er Kristinn
Björnsson sterklega inni í mynd-
inni. Kristinn er að hætta sem
þjálfari kvennalandsliðsins en
hann hefur einnig þjálfað karlalið
Vals og Stjömunnar.
-GH
Þórður áfram í Garðabænum
Þórður Lárusson verður að öllum líkindum endurráðinn þjálfari 1.
deildar liðs Stjörnunnar í knattspyrnu á næstu dögum en undir hans
stjórn var Garðabæjarliðið í 6. sæti eftir að hafa komið upp úr 2.
deildinni. Stjörnumenn vinna i þvi að halda sínum mannskap. Bjami
Sigurðsson hefur ákveðið aö hætta í markinu og er leitað eftirmanns
hans. Þá er vitað að nokkur félög renna hým auga til Baldurs
Bjamasonar en Stjörnumenn munu gera sitt ýtrasta til að halda honum.
-GH
Tvöfalt hjá
Keflavík
- samkvæmt spá forráðamanna
3. Haukar .............299
Ef marka má spá forráðamanna 4. KR.................294
úrvalsdeildarliða karla í 5. Njarðvík ..........240
körfuknattleik og 1. deildar 6. Skallagrímur.....208
kvenna fagna Keflvíkingar tvö- 7. ÍR...............199
földum sigri á íslandsmótinu í 8. Akranes............151
körfuknattleik sem hefst í vik- 9. Tindastóll.........131
unni. 10. Þór...............102
Keppnin í úrvalsdeildinni eða 11. KFÍ ..............64
DHL-deildinni eins og hún nefnist 12. Breiðablik .....52
hefst annað kvöld með heilli um- Hjá konum fengu íslandsmeist-
ferð og um næstu helgi hefja kon- arar Keflvíkinga 89 stig af 91
umar leik. mögulegu en spáin lítur þannig
KKÍ efndi til blaðamannafund- út:
ar í gær og á honum var meðal 1. Keflavík...........89
annars birt spáin góða. Hjá 2. KR...............69
körlunum fengu Keflvíkingar 361 3. Grindavik .......64
stig af 372 mögulegum. Sam- 4. ÍS ..............56
kvæmt spánni munu liðin 12 raða 5. Njarðvik ........35
sér í eftirfarandi sæti: 6. Breiöablik.......24
1. Keflavik ...........361 7. ÍR ..................23
2. Grindavik .........310 -GH
Róbert Duranona í kunnulegri stellingu í leik með KA. I kvöld klæðist Duranona landsliðspeysunni í fyrsta sinn á
heimavelli sínum, KA-heimilinu, þegar íslendingar mæta Grikkjum í undankeppni HM í handknattleik. DV-mynd BG
ísland mætir Grikklandi í KA-húsinu á Akureyri í kvöld:
Patti og Duranona
aftur saman á
fjölum KA-hússins
DV, Aknreyri:
Fyrsti leikur íslenska landsliðsins í
handknattleik í keppni fjögurra liða
um eitt laust sæti í heimsmeistara-
keppninni í handknattleik í Japan á
næsta ári verður í KA-húsinu á Akur-
eyri í kvöld og eru andstæðingar leik-
menn Grikklands. Lítið er vitað um
þessa mótherja okkar, en þó það að
þarna er á ferðinni lið sem getur bitið
hressilega frá sér og sigraði m.a. lands-
lið Frakklands fyrir tveimur árum.
Önnur lið í riðlinum eru Danmörk og
Litháen.
Leikurinn í KA-heimilinu, sem hefst
kl. 20 í kvöld, er fyrir margra hluta
sakir athyglisverður og augu Akureyr-
inga munu ekki síst beinast að þeim
Patreki Jóhannessyni, leikmanni
Essen í Þýskalandi, sem hefur leikið
frábærlega þar að undanförnu og Juli-
an Robert Duranona. Duranona leikur
sinn 3. landsleik fyrir ísland í kvöld og
þann fyrsta hér á landi og þá við hlið
Patreks.
Þetta verður gaman
„Það var frábært að klæðast íslenska
landsliðsbúningnum og mér leið hálf-
undarlega, fann fyrir spennu og stressi
sem ég geri ekki venjulega," segir
Duranona. „Það verður mjög gaman að
fá að spila fyrir ísland á heimavelli
mínum á Akureyri, fólkið hér hefur
alltaf stutt vel við bakið á mér og í
kvöld lætur það vonandi vel í sér heyra
og styður landsliðið okkar í þessum
leik,“ bætti hann við.
Vona að fólk mæti
„Það er frábært að vera kominn.
hingað aftur og ég vona bara að fólkið
mæti og sýni strákunum í landsliðinu
hvernig alvöru stemning á leikjunum
er á Akureyri og hversu gott er að hafa
hana með sér,“ sagði Patrekur Jóhann-
esson í gær. „Við vitum ekkert um
þetta gríska lið en verðum að taka vel
á þeim frá byrjun. Það verður frábært
að spila aftur við hlið Duranona og ég
er stoltur af því að fá tækifæri til þess
hér á Akureyri,“ sagði Patrekur.
Liö sem þarf að varast
„Þetta gríska lið er lið sem við þurf-
um að varast eins og önnur lið sem við
vitum lítið um, en leikinn verðum við
að vinna,“ sagði Geir Sveinsson í gær-
kvöldi. „Þeir unnu Kýpur stórt í for-
keppninni og franska landsliðið fyrir
tveimur árum svo eitthvað kunna þeir
fyrir sér. Það verður gaman að spila í
KA-húsinu, ég hef litlu mætt þar hing-
að til nema mótlæti og það verður gam-
an að hafa þessa hressu áhorfendur
núna með sér. Ég er bjartsýnn á úrslit-
in og vona að fólk fjölmenni og láti vel
í sér heyra," sagði Geir.
Verðum að vinna
„Það sem ég veit um Grikkina er að
þeir eru fljótir, spila hraðan leik, eru
líkamlega sterkir og spila vörnina
framarlega. Þá veit ég að þeir eru með
einn leikmann sem hefur verið að
skora upp í 10 mörk í þýsku 1. deild-
inni svo þar er leikmaður sem við
verðum að gefa gætur," sagði Þorbjöm
Jensson landsliðsþjálfari þegar lands-
liðiö var að hefja æfingu í KA-húsinu í
gærkvöldi.
„Við verðum að passa að hleypa
þeim ekki inn í leikinn og helst að af-
greiða þá strax í byrjun. Ég hef aðeins
séð til þeirra á myndbandi, leik gegn
ísrael, en nú var ég einmitt að fá áðan
í hendurnar leik þeirra við Kýpur fyr-
ir skömmu og við munum fara vel yfir
hann. Með hjálp áhorfenda ætlum við
okkur ekkert annað en sigur, enda
reikna allir með að baráttan um sigur-
inn í riðlinum og sæti á HM í Japan
verði milli okkar og Dana,“ sagði Þor-
björn.
Sem fyrr sagði hefst leikurinn kl. 20
í kvöld og Akureyringar sem þykja lif-
legustu áhorfendur á handboltaleikjum
hér á landi sýna Grikkjunum væntan-
lega hvemig erfiður útivöllur er, gera
þeim grikk sem hjálpar „strákunum
okkar“ til að vinna mikilvægan sigur í
fyrsta leiknum í riðlinum.
-gk
Essen vill
fá Einar
Þýska 2. deildar liðið Rot
Weiss Essen vill fá KR-inginn og
landsliðsmanninn Einar Þór
Daníelsson í sínar raðir.
Forráðamenn liðsins sáu Einar í
leik með KR gegn AIK í Svíþjóð í
síðustu viku og settu sig í
samband við hann. Essen vantar
leikmann á vinstri kantinn en
liðið er í 4. neðsta sæti í sínum
riðli í 2. deildinni
Lúkas Kostic, þjálfari KR,
sagði við DV í gær að ef Einar
færi þá myndi hann fara eftir
landsleikinn gegn Rúmenum 9.
október. Hann sagði að KR-ingar
myndu lána Einar til þýska
félagsins í vetur og hann kæmi í
góðu formi til KR í vor.
Þrír leikmenn KR sem léku
með liðinu í sumar hafa lausa
samninga. Það er fyrirliðinn
Þormóður Egilsson, Kristján
Finnbogason markvörður og
Heimir Guðjónsson. Allir aðrir
eru á samningi hjá félaginu.
Lúkas sagði að gengið yrði í það
á næstu dögum að semja við
þessa leikmenn og þá væri hann
að líta í kringum sig með að fá
liðsstyrk til félagsins. -GH
Steindór og
Björn þjálfa HK
Steindór Elíson og Björn
Björnsson hafa verið ráðnir
þjálfarar 3. deildar liðs HK í
knattspyrnu. Steindór lék með
HK síðara hluta sumars og skor-
aði 13 mörk í 10 leikjum og Bjöm
var aðstoðarþjálfari liðsins.
Ragnar Bogi Petersen þjálfaði
HK í sumar.
-VS
Þýska knattspyrnan:
Stórleikur hjá Þórði
Þórður Guðjónsson átti stórleik með Bochum í gærkvöldi þegar liðið sló
Schalke út í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar. Bochum hafði betur, 3-2, og
skoraði Þórður fyrstu tvö mörk Bochum í leiknum. Það fyrra með skoti
utan vítateigs og það síðara með því að vippa glæsilega yfir markvörð
Schalke. Þórði var hrósað mikið fyrir frammistöðuna í þýskum fjölmiðlum
og þýska ríkissjónvarpið tók hann í viðtal strax eftir leikinn.
Önnur úrslit urðu þau að Mannheim tapaði fyrir Freiburg, 0-1, Bjarki
Gunnlaugsson lék ekki með vegna meiðsla, Stuttgart lagði Eyjólf Sverrisson
og félaga hans hjá Hertha Berlín, 5-4, eftir vítakeppni og Hannover tapaði
fyrir 1860 Múnchen, 2^4. -GH/DVÓ
t
_____________íþróttir
íííi INðlAND I
Sex leikir voru í 1. deildinni í gær.
Úrslitin urðu þessi:
Grimsby-Norwich.............1-4
Ipswich-Bamsley.............1-1
Oldham-WBA .................1-1
Portsmouth-Cr. Palace.......2-2
Southend-Sheff. Utd.........3-2
Tranmere-Oxford ............0-0
Fer Ravanelli
til Man. Utd?
ítalska fréttastofan ANSA
greindi írá því í gær að Manchest-
er United væri tilbúið að bjóða 1
milljarð króna í Fabrizio Ravan-
elli, silfurrefinn snjalla sem gekk
til liðs við Middlesbrough fyrir
tímabilið. Ravanelli, sem leikm-
með ítölum gegn Moldövum í
undankeppni HM í kvöld, sagði
við ítalska fjölmiðla að hann væri
spenntur fyrir þessu tilboði og
myndi ræða við sína menn hjá
Middlesbrough þegar hann kæmi
aftur til Englands. Seint í
gærkvöldi báru forráðamenn
Man. Utd þessa frétt ANSA til
baka.
2. deildin hefst
á föstudaginn
Keppnin í 2. deild karla í hand-
knattleik hefst á fóstudagskvöld-
ið. ÍH og Breiðablik leika fyrsta
leikinn í Strandgötu klukkan 20.
Á laugardag leika Þór Ak.-Hörð-
ur, KR-Fylkir og Ármann og HM.
Á þriðjudagskvöldið lýkur 1. um-
ferð með leik Keflvíkinga og Vík-
inga.
Besti árangur
Mörthu á HM
Martha Emstdóttir náði sínum
besta árangi á heimsmeistaramóti
þegai- hún varð í 15. sæti í háif-
maraþoni sem fram fór í Palma á
Mallorca á sunnudaginn. Martha
hljóp vegalengdina á 1:13,27 klst.
-GH
Sjö í leikbann
Sjö leikmenn í 1. deild karla í
knattspyrnu vom úrskurðaðh’ í
leikbann á fundi aganefndar í
gær. Rúnar Sigmundsson, Stjöm-
unni, fékk tveggja leikja bann og
þeir Enes Cogic, Fylki, Grétar
Einarsson, Grindavík, Alexander
Högnason, ÍA, Ólafur H. Krist-
jánsson, KR, Sigurður Ö. Jónsson,
KR, og Sigurður Grétarsson, Val,
eins leiks bann.
-GH
39. vika - 29.-30 sept. 1996
Nr. Leikur:________________Röðin
1. Atafanta - Inter - -X
2. Juventus - Fiorentina 1 - -
3. Lazio - Parma 1 - -
4. Reggiana - Roma -X -
5. Sampdoria - Napoli --2
6. Udinese - Bologna -X -
7. Djurgárden - Degerfors 1 - -
8. Halmstad - Oddevold 1 - -
9. Malmö - Öster -X -
10. Norrköping - Helsingb. - -2
11. Umeá-Trelleborg 1--
12. Örebro - AIK --2
13. Örgryte - Göteborg - -2
Heildarvinningsupphæd:
15 milljónir
13 réttir
12 réttir
Tvöfaldur
kr.
kr.
11 réttiri
10 réttirl
2.310
kr.
kr.