Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1996, Síða 9
r FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 um helgina *> Borgarleikhúsið: Leikfélag Reykjavíkur er 100 ára á þessu leikári Borgarleikhúsið mun bjóða al- menningi á hið árvissa opna hús sitt laugardaginn 5. október. Þar verða sýningar vetrarins kynntar, boðið upp á veitingar og tónlist. Dagskráin stendur frá kl. 14-17. Gullfiskar og trúðar Á meðal atriða á opna húsinu verða atriði úr Ef ég væri gullfiskur eftir Áma Ibsen og Largo Desolato eftir Václav Havel. Fylgst verður með æfingum á bamaleikritinu Trúðaskólanum, Svaninum og Gull- táraþöll. Enn fremur verða nokkur lög úr Stonefree sungin. í barna- horninu verður meðal annars teiknimyndasamkeppni. Lúðrasveit- in Svanur tekur á móti gestum við Borgarleikhúsið frá kl. 13.45 Borgarleikhúsið heldur upp á 100 ára starfsafmæli á þessu leikári og vonast félagið til þess að borgarbú- ar og aðrir velunnarar haldi upp á það með því. Sýnd verða atriði úr Ef ég væri gull- fiskur eftir Árna Ibsen á opnu húsi Borgarleikhússins á laugardag. Opið hús hjá Trúðaskólanum Hér sést Jón við eitt verka sinna. Málverkasýning í banka Barna- og fiölskylduleikritið Trúðaskólinn er tiltölulega nýtt leikrit en telst þrátt fyrir það til sí- gildra bamaleikrita. Höfundar eru Friedrich Karl Waechther og Ken Campbell og hefur þetta leikrit þeirra verið sýnt um allan heim við gríðarlega miklar vinsældir. Atburðirnir gerast í skólastofu einni þar sem prófessorinn Bletta- skarpur stundar kennslustörf sín og reynir að kenna nemendum sínum reglusemi, aga og virðingu. Nem- endurnir em hins vegar trúðar og haga sér samkvæmt því. Hver ein- asta kennslustund endar með ringulreið og ósköpum. Einn okkar ástsælustu leikara, Bessi Bjarnason, leikur prófessor- inn. Trúðana leika Halldóra Geir- harðsdóttir, Eggert Þorleifsson, Bessi Bjarnason er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar og leikur pró- fessorinn í Trúðaskólanum. Helga Braga Jónsdóttir og Kjartan Guðjónsson. Hann er að fara að opna sýningu fram milli kl. 14 og 17 en síðan verð- á vatnslitamyndum hann Jón Gunn- ur opið á sama tíma sparisjóðurinn arsson á morgun. Sýning hans verð- til 8. nóvember. -ilk ur í Sparisjóðnum í Garðabæ á Garðatorgi. Opnunarhátíðin fer Norræna húsið: Jóhanna í kjallaranum A morgun opnar Jóhanna Boga- dóttir sýningu í kjallara Norræna Sjávarljóð eftir Jóhönnu Boga. Þetta er akrýl á striga. hússins. Á sýningunni verða mál- verk og vatnslitamyndir frá síðast- liðnum tveimur árum. Jóhanna hefur haldið fjölmargar einkasýningar bæði hér á landi sem og erlendis. Einnig hefur hún tekið þátt í sýningum víða um heim. Henni var boðin þátttaka sem full- trúi Islands á afmælissýningu nor- ræna myndlistarbandalagsins síð- asta sumar en hún var haldin í Juleá Kunsthall í Svíþjóð. Á undan- fómum ámm hafa verið sýningar á verkum hennar í New York og víð- ar. Verk eftir hana hafa verið keypt af opinberum aðilum og söfnum í ýmsum löndum. Sýningin í Nor- ræna húsinu stendur til 20. október og er opin alla daga frá kl. 14 til 19. -ilk Langur laugardagur: Sprell á Laugaveginum Verslunareigendur við Laugaveg og nágrenni hafa haldið langa laug- ardaga við miklar vinsældir við- skiptavina sinna. Það er því kominn tími til að halda einn slíkan næst- komandi laugardag og eins og venju- lega verður margt til gamans gert í bænum í tilefni af því. Sjálfsvamaríþróttin tai- kwon-do verður í stóru hlutverki á þessum langa laugar- fyrir utan Kjörgarð, kl. 14.30 á Lauga- vegi 45 og klukkan 15 efst í Banka- strætinu. Skylmingafélagið verður einnig með þrjár sýningar og verða þær á sömu stöðum og Ármenningar sýna. Sýningar Skylmingafélagsins verða hins vegar klukkan 15.30,16 og 16.30. Smáfólkið gleymist auðvitað ekki, SPRELL leik- degi. Iþróttin hefur verið afar vinsæl að undan- fornu og munu félag- ar úr Ár- manni sýna hana á þremur mismun- andi stöð- um. Klukkan 14 verður íþróttin sýnd Sjálfsvarnarí- þróttin tai- kwon-do verö- ur sýnd á löng- um laugardegi. DV-mynd BG tækin verða á völdum stöðum en meðal þeirra eru hopprólur og geimsner- ill. Einnig verður Mjólk- ursamsalan með kynningu á kókómjólk í Vínberinu, Laugavegi 43, frá kl. 13.30-16.30. -JHÞ Hafnarfjörður: Spennandi handboltadagar - karla- og kvennalið eigast við Hafnfirðingar hafa löngum þótt vera öflugir í handboltanum og daganna 4. og 5. október verða ] haldnir handboltadagar í miðhæ ;; Hafnarfjarðar. Stórliðin úr firð- í inum, FH og Haukar, munu kljást í ýmsum þrautum og kynna starfsemi sína. Svona dag- ; ar voru haldnir í fyrra og þóttu ; afar vel heppnaðir og nú verður bætt um betur. Dagskráin hefst klukkan 12 á > hádegi föstudaginn 4. október með kynningarstarfsemi félag- f anna FH og Hauka. Klukkan 17 ; þann dag eigast kvennalið félag- anna við og er ljóst að þá verður ; heitt í kolunum enda gefa hand- boltakonur í Hafnarfirðinum körlunum ekkert eftir. Laugar- daginn 5. október eigast karlalið S Hafnarfjarðarfólaganna við og fleiri uppákomur verða þann :: daginn. -JHÞ Listasetrið Kirkjuhvoli: Pétur Péturs- son lýkur sýn- ingu sinni Sýningu^Péturs Péturssonar Iljósmyndara sem hann hefur staðið að í Listasetrinu Kirkju- hvoli á Akranesi lýkur sunnu- daginn 6. október. Pétur sýnir þar hátt á fjórða tug ljósmynda | en þar eru „portrait myndh'“ mest áberandi. Mörg kunnugleg andlit er að sjá á þessum mynd- um. Sýningin verður opin föstu- I daginn 3. október, laugardaginn 4. október og sunnudaginn 6. október frá klukkan 15-18. Norræna húsið: Sýning á bandvefnaði Föstudaginn 4. október kl. 17.00 verður opnuö sýning á bandvefnaði í anddyri Norræna hússins. Um er að ræða sýningu finnsku veflistarkonunnar Bar- bro Gardberg á ofnum böndum og lindum. Hún vinnur listaverk sín eftir fomum mynstrum frá Eystrasaltslöndunum og þá sér- staklega frá Eistlandi. Beinagrind vakti áhuga Barbro hefur átt gott samstarf viö safnafólk í Eistlandi og kynnt sér gamlar aðferðir sem notaðar voru við bandvefnaðinn. Barbro er lærður stærð-, eðlis- og efnafræðingur en hún er sjálf- lærður vefari. Áhugi hennar vaknaði á þessum málum í æsku þegar faðir hennar kom heim með gamla skrautlega beina- grind sem hann hengdi upp á vegg til skrauts. Barbro hefur haldið sýningar í meira en aldarfiórðung og kennt bandvefnað í meira en áratug. Hún hefur leiðbeint á fiölda námskeiða á Norðurlöndum og haldið mikið af fyrirlestrum. Sýning Barbro verður opin dag- lega kl. 9.00-19.00 nema sunnu- daga en þá er opið frá klukkan 12.00-19.00. Henni lýkur sunnu- daginn 27. október næstkom- andi. -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.