Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1996, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1996, Side 5
JJ"V FÖSTUDAGUR 25. október 1996 til nætursýningar „Nei, það hefur aldrei áður heyrst í Stripshow á plötu. Við tókum reyndar einu sinni upp lag sem átti að fara á safnplötu en þegar til átti að taka var það svo ólíkt öllu öðru sem búið var að ákveða að yrði á plötunni að það var sett í geymslu. En það er reyndar á nýju plötunni þannig að vinnan var ekki alveg til einskis.“ Þannig svar- ar Ingólfur Geirdal spurn- ingunni um fer- il hljómsveitar sinnar, Strips- how, á hljóm- plötumarkaði hingað til. Nú er hins vegar breytinga að vænta því að næsta mánudag kemur út platan Late- Night Cult Show, íjórtán laga plata sem Ingólfur og fé- lagar hafa verið að vinna við að undanfömu. „Þetta er eins konar þema- plata; rauði þráðurinn í gegnum hana eru nokkrir karakterar sem hafa sett saman sýningu, freak- show,“ segir Ingólfúr. „Ég samdi lag sem heitir Freaks fyrir þremur árum. Það er í þremur þáttum og er eins konar miðpunktur plöt- unnar sem hin lögin verða til út frá. Við sömdum reyndar 28 lög en hent- um helmingnum til að heildin yrði sem best. En þótt efnið tengi lögin standa þau þó flest ein og sér. Til dæmis er lagið Blind þegar komið í spilun hjá útvarpsstöðvunum. Þetta lag ber nokkum keim af verkum ítalska lagahöfundarins Ennios Morreones. Andrea Gylfadóttir að- stoðar okkur í því.“ Myndrænt rokk Að öðm leyti annast liðsmenn Stripshows sjálfir allan hljóðfæra- leik og söng á nýju plötunni. Þeir eru, auk Ingólfs, Sigurður Geirdal, bassaleikari, Guðmundur Aðal- steinsson, söngvari, og Bjarki Þór Magnússon, trommuleikari. „Það hittist þannig á að við erum allir kvikmyndafrík," segir Ingólfur þegar hann er inntur eftir því hvaða stefha sé ráðandi á plötunni Late- Night Cult Show. „Kjaminn í tón- listinni okkar er rokk. í seinni tíð hefur borið nokkuð á því að rokkar- ar væru bara undir áhrifum frá öðr- um rokkhljómsveitum. Okkur þykir það ekkert spennandi og þess vegna reyndum við að fara okkar eigin leiðir. Ég held að okkar stefnu verði best lýst með því að ef Charlie Chaplin, Boris Karloff, Salvador Dali og Tracy Lord tækju sig saman og gerðu plötu yrði útkoman eitt- hvað svipuð og hjá okkur. Myndrænt? Já, já, það má segja að tónlistin sé það,“ bætir Ingólfur við. „Ég hef lengi verið áhugamaður um töfrabrögð og showbisness og leikhússelement spila einnig inn i verkið. Lírukassatónlist tilheyrir Hljómsveitin Stripshow: Samdi 28 lög fyrir nýju piötuna og henti helmingnum. gjaman sýningum og okkur þótti hæfa að hafa hana einnig hjá okkinr. Við vildum hins vegar ekki láta spila hana á hljómborð eða nota sampler þannig að ég hætti ekki fyrr en ég var búinn að ná líru- kassahljóm á gítarinn. Það var nokkuð erfitt en náðist eiginlega fyrir tilviljun.“ Öflugir út- gáfutónleikar Að sögn Ingólfs Geirdals tók upp- taka plötunnar að- eins nokkra daga. Fjórmenningamir unnu vel heima- vinnuna sína og vora því snöggir að vinna þegar í hljóð- ver var komið. Þeir sáu sjálfir um upp- tökustjórn en Þor- valdur Bjami Þor- valdsson tók að sér hljóðblöndunina. „Við vildum ná fram sama hljómi og i gamla daga þeg- ar hljómsveitir voru bara í nokkra tíma að ljúka við eina plötu. Þorvald- ur Bjarni tók upp- tökumar siðan og vann mjög vel úr þeim,“ segir Ingólf- ur og bætir við: „Við í Stripshow erum þekktir fyrir að vera með reyk- sprengjur, sápuk- úluvélar, ljósashow og fleira þegar við höldum tónleika. Við ætlum að fagna útkomu nýju plötunnar með útgáfutónleikum í Loftkastalanum sjötta nóvember og þá er ætlunin að bjóða upp á allar sömu brellumar og fyrr en bara að minnsta kosti tíu sinnum betri en hingað til.“ -ÁT Stripshow býður Vestmannaeyjakvöld á Hótel íslandi: Sjávarfang og dynjandi tónlist - fjöldi tónlistarmanna leikur Eyjalög Eyjamenn ættu að kætast næstu helgi enda verð- ur haldið veglegt Vestmannaeyjakvöld föstudaginn 25. október. Þar kemur fram fjöldi þekktra skemmti- krafta, tónlistarmanna og snæddur verður Ijúffeng- ur matur að hætti Eyjapeyja. Spilað fram eftir nóttu Lúðrasveitin STALLA HÚ tekur á móti matar- gestum en þeir geta gætt sér á lunda og sjávarfangi úr „bugtinni." Það verður dynjandi tónlist á Eyja- kvöldinu. Bjami Arason, Ari Jónsson, Helena Kára- dóttir, Ólafur Þórarinsson munu syngja Eyjalög eft- ir þekkta Vestmannaeyinga. Undirleikarar verða meðlimir hljómsveitarinnar Karma. Auk þessa mun hljómsveitin Logar koma fram og hana skipa þau Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir, Henrý Er- lendsson og Guðlaugur Sigurðsson. Þessi útgáfa af Logum gaf út plötuna Minningu um mann árið 1973. Þingmaðurinn lagvissi Árni Johnsen kemur fram og einnig Eyjasöngvarinn Einar „Klin“. Þegar dag- skránni lýkur munu hljómsveitimar Logar og Karma leika fyrir dansi langt fram á nótt. Sérstök afsláttargjöld eru í boði hjá Herjólfi og Flugleiðum og á gistingu á Hótel íslandi í tilefni af Eyjakvöldinu. -JHÞ Htónlist,. Þrælfínt í Leikhúskjallaranum Leikhúskjallarinn verður ólg- andi af fjöri um næstu helgi. Föstudaginn 25. október verður Bylgjan með beina útsendingu úr Kjallaranum. Þá munu út- varpskappamir ívar Guðmuhds- son og Sigurður Hlöðversson stjóma kvöldinu. Laugardags- kvöldið 26. október mun Stjóm- in snúa aftur úr æfmgum og spila linnulaust fyrir danstryllta gesti Kjallarans. Blönduósingar og nærsveitar- menn ættu að geta sett á sig dansskóna og skellt sér í spari- gallann þar sem hljómsveitin Draumalandið fagnar vetri með balli á Sveitasetrinu á Blönduósi fyrsta vetrardag, laugardaginn 26. október. Væntanlega fær lag- ið Vegir liggja til allra átta að hljóma en það lag með Draumal- andinu hefur notið þónokkurra vinsælda á öldum ljósvakans að undanfömu. Stórdansleikur í Kántrýbæ Þessa helgina verður Rúnar Þór með stórdansleik í Kántrý- bæ föstudaginn 25. október. Laugardaginn 26. október verð- ur Rúnar með dansleik á Langa- sandi á Akranesi. Á þeim tónleikum mun hann að öllum líkindum leika efni af væntanlegri plötu, auk þess sem gamlir slagarar fá einnig að flakka. Vax á Nashville Glatt verður á hjalla á hinum ágæta skemmtistað Nashville næstu helgi en þar mun hijóm- sveitin Vax leika fyrir dansi fóstudaginn 25. október og laug- ardaginn 26. október. Strippari með í för Hljómsveitin Sóldögg ætlar | heldur betur að hrista upp i Norðlendingum um næstu helgi. jj Föstudagsvöldið 25. október leik- ur hljómsveitin fyrir gesti hins | eina sanna Sjalla á Akureyri. Bryddað verður upp á þeirri ný- breytni að maður er tínir af sér spjarimar verður á sviðinu með j þeim í Sóldögg. Það verður sem j sagt strippað á dansleiknum en I talsmaður hljómsveitarinnar í fullvissaði blaðamann DV um að ? hljómsveitarmeðlimir yrðu full- klæddir. Laugardagskvöldið 26. október ætlar Sóldögg að þeysa j vestur og spila á Hlöðufelli í I Húsavík. Á þessum dansleikjum verður leikiö fmmsamið efni í bland viö efni sem Sóldaggarfélagar taka upp eftir öðrum tónlistar- I mönnum. -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.